Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.12.2012, Blaðsíða 33
LITURINN ER
AÐALATRIÐIÐ
segir Bragi Valdimar Skúlason, Baggalút-
ur, textasmiður og tónlistarmaður, sem
segist taka malt- og appelsínblönduna
mjög alvarlega en hann gefur ekki upp
nein hlutföll og notast aldrei sjálfur við
slíkt því hann sér smám saman á litnum
hvort blandan er rétt.
„Ég er ekki sáttur fyrr en ég hef náð ná-
kvæmlega réttum lit á hana sem hefur
PANTONE-gildið 7.600 C. Hitastigið skal
vera 6°C og froðulagið skal auk þess vera
12,3 mm í gler-
könnu sem hefur
radíus 5,1 cm,“
segir Bragi og
bætir við:
„Hlutföll eru
fyrir ama-
töra.“
Bragi Valdimar
Morgunblaðið/Styrmir Kári
23.12. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
Laugavegi 47 | Opið 23. des 10-23 | www.kokka.is kokka@kokka.is
Brauðristar-
gæðaeftirlit
Framleiðendur bresku Rowlett brauðristanna hafa aldrei
verið sammála því að brauðristar eigi að vera ódýrar,
ónákvæmar og ónýtar alltof snemma. Rowlett ristar hratt,
vel og nákvæmlega og er fljót að borga sig upp því þú
kaupir eina og átt hana svo alla ævi. Rowlett brauðristar
fást í mörgum stærðum, með og án samlokugrindar. Þær
hafa verið handsmíðaðar í 60 árog hvert einasta tæki er
prófað áður en það fer úr húsi. Það hlýtur að vera öfundsvert
starf að sjá um gæðaeftirlitið með öllu þessu ristaða brauði.
Sigurveig Kára
HLUTFÖLL
50 PRÓSENT MALT
50 PRÓSENT APPELSÍN
Sigurveig Káradóttir, matgæðingur og bókahöfundur,
telur að hún skipti jólablöndunni sinni hnífjafnt milli
malts og appelsíns þótt hún mæli það ekki upp á
millilítra.
„Appelsínið verður samt hlutfallslega meira en
malt þegar líður á jólahátíðina.“ Blandan breytist þó
eftir því sem líður á hátíðina. „Og endar á því að
mann langar bara í appelsínið.“
HLUTFÖLL
40 PRÓSENT MALT
40 PRÓSENT APPELSÍN
20 PRÓSENT KÓK
„Ég á auðvitað hina fullkomnu blöndu og er ein af þeim sem
ólust upp við að nota kók í drykkinn,“ segir Ólöf Snæhólm
Baldursdóttir, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar. Ólöf notar einn hluta af kók og einn hluta af appelsíni
á móti hálfum hluta malts.
„Ég helli fyrst kókinu og appelsíninu í könnuna, alveg um
leið – með kókflösku í annarri hendi og appelsín í hinni. Svo
bæti ég maltinu út í en það verður að útbúa blönduna í þess-
ari ef maður ætlar ekki að eyða aðfangadagskvöldi í að þrífa
veggi, loft og gólf í eldhúsinu.“
Ólöf Snæhólm
Könnurnar voru
fengnar að láni
hjá Búsáhöldum
og IKEA.
HLUTFÖLL
75 PRÓSENT MALT
25 PRÓSENT APPELSÍN
Karen Kjartans-
dóttir fréttakona
er ein þeirra sem
nota nærri ein-
ungis malt í jóla-
blönduna sína.
„Annars er ekkert
fútt í þessu,“ segir
hún og bætir við
að hún útbúi
blönduna nokkuð
vísindalega.
„Ég helli drykkn-
um alltaf í sömu
könnuna sem er appelsínugul en liturinn á blöndunni
á að vera svartur. Amma átti könnuna og kenndi mér
að gera þetta svona.“ Karen segir appelsínið á sínum
bæ einungis vera notað til eins; „til að fá svokallaðan
jólakeim og appelsínið er bara til að gera þetta örlít-
ið sætara“.
Karen Kjartans