Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.12.2012, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.12.2012, Blaðsíða 60
60 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.12. 2012 S ir Alex Ferguson, sigursælasti þjálfari í sögu ensku knattspyrn- unnar, hefur stýrt Manchester United til 12 Englandsmeist- aratitla á rösklega aldarfjórðungi. Tvisvar hefur liðið orðið Evrópumeistari, fimm sinnum enskur bikarmeistari og fleira mætti nefna. En sá gamli er ekki aðeins kænn í að þjálfa upp liðsheildir sigurvegara heldur öllum öðr- um fremri í sálfræðistríðinu sem háð er nánast dag hvern í knattspyrnuheiminum núorðið. Hann hefur ekki náð að vinna hverja orr- ustu, en oftast fer Ferguson sigri hrósandi úr stríðinu. Skotinn hefur eldað grátt silfur við Arsene Wenger hjá Arsenal, José Mourinho hjá Chelsea, að ekki sé minnst á Rafa Benitez á meðan hann stýrði Liverpool. Þar gneistaði gjarnan á milli. Eitt eftirminnilegasta stríðið er þó það sem Ferguson háði við Kevin Keeg- an, þáverandi þjálfara Newcastle, vorið 1996. Ferguson seldi þrjá reynslubolta og lykil- menn fyrir tímabilið 1995-96 og ungir heim- alningar tóku við keflinu. Franski „kóngurinn“ Cantona var í banni í fyrstu sjö leikjunum og liðið byrjaði ekki vel. Nálægt áramótum höfðu Keegan og hans menn afgerandi forystu í deildarkeppninni. Voru 12 stigum á undan United, léku stór- skemmtilegan sóknarleik þar sem Frakkinn David Ginola var í aðalhlutverki, en munurinn minnkaði hægt og rólega og á endanum kom- ust Rauðu djöflarnir fram úr Newcastle og hömpuðu Englandsbikarnum. Drengir Keeg- ans urðu í öðru sæti, fjórum stigum á eftir United. Ungstirnin – Beckham, Scholes, Butt, Neville-bræður og Ryan Giggs – sönnuðu sig með Cantona sem bakhjarl. Hann fór hrein- lega hamförum. Þegar kapphlaupið um Englandsmeistara- titilinn stóð sem hæst undir vor varpaði Fergu- son frægri sálfræðisprengju. Kvaðst efast um að mótherjar Newcastle legðu sig almennilega fram, og síður en gegn United; gaf í skyn að leikmenn í deildinni vildu frekar að sveinar Keegans yrðu meistarar en hans lið. Mörgum þótti ummælin lúaleg en þau höfðu e.t.v. áhrif. Ekki að slíkt þurfi alla jafna í Eng- landi; þar berjast menn alltaf eins og ljón, sama hver andstæðingurinn er, en hugsanlega hafa mótherjar Newcastle lagt sig fram sem aldrei fyrr til að sýna fram á hve fjarstæðu- kennd yfirlýsing Fergusons var! Og þess vegna hafi ummælin svínvirkað … Taugastríðið hafði staðið lengi en loks eftir næstsíðasta leik Newcastle, 1:1 jafntefli gegn Nottingham Forest á útivelli fimmtudaginn 2. maí, gerði Keegan lýðnum ljóst að hann hafði gengið í gildru Fergusons. Skoski sálfræði- herforinginn hefur án efa brosað út í annað fyrir framan sjónvarpið, fullviss um að stríðið væri unnið. Með sigri hefði Newcastle náð United en var tveimur stigum á eftir fyrir lokaumferðina vegna jafnteflisins. „Ég hef verið þögull fram að þessu en ég get sagt þér það; hann setti mjög ofan að mínu mati með þessum ummælum. Við höfum ekki gefist upp. Þið getið sagt honum að við munum berjast allt til loka. Hann verður að fara til Middlesbrough og fá eitthvað út úr þeim leik,“ sagði Keegan í beinni sjónvarpsútsendingu og augun skutu gneistum. Fleyg eru ummæli Keegans í lokin – þau sem í fyrra voru valin áhugaverðustu ummæli í 20 ára sögu Úrvalsdeildarinnar: „Ég skal segja þér, í fullri hreinskilni; það myndi gleðja mig ósegjanlega mikið ef við næðum að komast upp fyrir þá og vinna deildina. Ósegjanlega mikið.“ United vann síðasta leikinn en Newcastle gerði jafntefli. Liðin mætast á öðrum degi jóla og er vissulega tilhlökkunarefni en dráttur í Meistaradeildinni á fimmtudaginn hefur ugg- laust glatt áhugamenn um sálfræðihernað enn meira. Manchester United dróst gegn Real Madrid; Ferguson mætir Mourinho. AFP Sálfræðihershöfðingi Keegan í viðtalinu fræga. Þá féllu „áhugaverð- ustu ummælin“ í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. * „Hann er eini maðurinn sem ég er sannfærðurum að gæti komið af stað rifrildi við sjálfan sig.“Þjálfarinn Sir Bobby Robson um leikmanninn Craig BellamyBoltinnSKAPTI HALLGRÍMSSON skapti@mbl.is * Freddie Shephard, þáverandi stjórnarformaður Newcastle sem réð Bobby Robson sem knatt- spyrnustjóra 1999, upplýsti seinna hvern Robson hefði viljað ráða sem aðstoðarmann sinn 2001: José Mour- inho, sem hafði starfað með hinum sigursæla þjálfara hjá Sporting Lissa- bon, Porto og Barcelona. * „Ég hafði aldrei heyrt um þennan náunga þegar Bobby vildi ráða hann. Hver veit hvað hefði gerst, ef hann hefði komið til okkar? En Bobby var þegar með aðstoðarmann, auk þess sem Mourinho talaði ekki ensku með hreim okkar hér norður frá!“ sagði Shephard í léttum dúr. * Mourinho tók við liði Leiria í Portúgal 2001, fór þaðan til Porto sem varð Evrópumeistari, síðan til Chelsea sem varð yfirburðalið á Eng- landi, næst til Internazionale á Ítalíu sem hann gerði að Evrópumeistara * Shephard hefur líka sagt frá því að þegar Kevin Keegan hætti með New- castle 1997 hafi félagið reynt að fá Alex Ferguson í staðinn! * „Hann átti þá í viðræðum við Man- chester United um nýjan samning, við ræddum við ráðgjafa hans en ekk- ert varð úr.“ Ekki verður þó annað sagt en forkólfar Newcastle hafi sýnt mikinn metnað. * Alan Pardew, núverandi knatt- spyrnustjóri Newcastle, er sá 12. sem gegnir starfinu síðan Bobby gamli Robson var rekinn fyrir átta ár- um, haustið 2004. José Mourino þjálfar Real Madrid og fv. aðstoðarmaður Bobby gamla Robson. HVAÐ EF JOSÉ HEFÐI KOMIÐ MEÐ ROBSON? Engum líkur! Sir Alex Ferguson er sannkallaður leikstjóri á Old Trafford; Leikhúsi draumanna eins og heima- völlur Manchester United er kallaður. * „Það myndi gleðja migósegjanlega mikið efvið næðum að komast upp fyrir þá og vinna deildina. Ósegjanlega mikið.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.