Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.12.2012, Blaðsíða 42
*Fjármál heimilannaSjaldan verja Íslendingar jafn miklum fjármunum til matarkaupa og í jólamánuðinum
Á aðventunni og um jólin er venja að gera vel við sig í mat. Jólasteikin, smákökubaksturinn, laufabrauðsgerðin,piparkökuskreytingar að ógleymdu jólahangikjötinu eru ómissandi þættir í jólahaldi margra Íslendinga. Matvælaframleiðendur keppast við að auglýsa hver sem betur getur í aðdraganda jólanna. Enda er eftir
miklu að slægjast. Séu matarinnkaup hins dæmigerða Meniganotanda heimfærð á alla Íslendinga yfir 18 ára aldri má
ætla að Íslendingar kaupi mat fyrir 18 milljarða í desember í ár. Er það um 4% aukning á milli ára á föstu verðlagi.
Hér er átt við innkaup í matvöruverslunum á Íslandi einvörðungu, en ekki verslun á mat-
sölustöðum eða í söluturnum.
Menigahagkerfið telur um 22% íslenskra heimila og velta um 883 milljörðum króna. Sé
hagkerfið skoðað má glögglega sjá mikla útgjaldaaukningu til matvörukaupa. Í desember
2010 varði hver einstaklingur, 18 ára og eldri, að meðaltali rúmum 47.000 krónum til kaupa
á matvörum í nóvember en tæplega 62.000 krónum í desember, eða nærri þriðjungi meira
en í nóvember sama ár, en gera má ráð fyrir að meðalheimilið verji töluvert meira. Svipaða
sögu er að segja árið 2011. Þá vörðu einstaklingar að meðaltali tæpum 51.000 krónum í
nóvember og rúmum 69.000 krónum í desember. Munurinn milli mánaða er jafnvel meiri
en árið áður eða 36%.
Sé árið í ár skoðað sést að notendur Meniga vörðu að meðaltali um 50.000 krónum í mat-
vöruinnkaup í nóvember. Ef við gerum ráð fyrir svipaðri aukningu og í fyrra má gera ráð fyrir að meðalmatvöruinn-
kaup muni nema rúmum 75.000 krónum í desember í ár.
Að meðaltali vörðu notendur Meniga rúmum 47.000 krónum á mánuði í matarinnkaup árið 2010 en ef að líkum læt-
ur munu þeir verja tæpum 57.000 krónum á mánuði í ár. Það er hækkun upp á um það bil 10% umfram almenna
hækkun á vöruverði á sama tímabili. Það er því ljóst að notendur Meniga verja umtalsvert hærri upphæð í matvæli í
ár en undanfarin ár að raunvirði. Hvort það sé vegna þess að matvæli hafi hækkað umfram annað vöruverð eða vegna
þess að fólk sé að kaupa dýrari vörur í ríkara mæli skal ósagt látið.
Aurar og
krónur
ÁTJÁN MILLJARÐAR Í JÓLAMAT Matvörukaup í nóvember og desember
Meðalútgjöld á hvern einstakling, 18 ára og aldri
Matarkaup í nóvember
Matarkaup í desember
*Áætlun
2010 2011 2012
47
.0
00
kr
.
62
.0
00
kr
.
51
.0
00
kr
. 69
.0
00
kr
.
50
.0
00
kr
.
75
.0
00
kr
.
BREKI KARLSSON
JÓLAGJAFIR SEM KOSTA EKKERT EÐA LÍTIÐ
SAMVERUSTUNDIR
Gefðu gjafabréf upp á samverustundir.
Nú er um að gera að elta áhugasvið
þiggjandans og hér skiptir mestu máli
að efna gefið loforð.
BAKSTUR
Ef þú hefur nýtt tímann
á aðventunni í bakstur
og konfektgerð er til-
valið að taka hluta af af-
rakstrinum og pakka
honum fallega inn.
Bragðgóð gjöf sem
gleður.
TÓNLIST
Rifjaðu upp tónlistarnámið
frá æskuárunum. Dragðu
fram blokkflautuna, gítarinn
eða sellóið og taktu upp
tónlistaratriði. Ekki er verra
að fá aðra fjölskyldumeðlimi
til að syngja undir. Þetta þarf
ekki að vera fullkomið. Feil-
nótur geta verið fyndnar. Ís-
lensk tónlist er jólagjöfin í
ár, nú getur þú lagt þitt af
mörkum.
MÁTTUR ORÐA
Finndu fallegan málshátt eða tilvitnun, prentaðu út og settu
í ramma. Nú er tækifærið til að játa ást sína eða draga fram
grínistann. Aðalatriðið er að láta hugmyndaflugið ráða.
MYND
Það er klassískt að finna fallega mynd af
einhverjum fjölskyldumeðlimi og
ramma hana inn. Gjöf sem allar ömmur
og afar eru ánægð með. Stimpluð
handa- og fótaför gætu jafnvel fylgt með.
SÆLGÆTI
Brjóstsykursgerð
er einföld og
skemmtileg. Það er
margar skemmtilegar
uppskriftir að finna á
netinu. Gjöf sem gleð-
ur jafnt unga sem aldna.
Ein gjöf eftir
og buddan tóm
EFLAUST EIGA EINHVERJIR EFTIR AÐ KLÁRA
JÓLAGJAFAINNKAUPIN OG NÚ ÞEGAR
ÓÐUM STYTTIST Í AÐ KLUKKAN SLÁI SEX
Á AÐFANGADAG ER EKKI ÓLÍKLEGT AÐ
SEÐLUNUM Í VESKINU SÉ FARIÐ AÐ FÆKKA.
HÉR ERU 10 HUGMYNDIR AÐ GJÖFUM
SEM KOSTA EKKERT EÐA LÍTIÐ.
Signý Gunnarsdóttir signy@mbl.is
SKÁLD-
SKAPUR
Semdu ljóð
eða litla
sögu. Ef þú
hefur fallega
rithönd get-
urðu hand-
skrifað
skáldskapinn
til þess að
hann verði
enn per-
sónulegri.
FÖNDUR
Það eiga allir eitthvert efni á heimilinu
til að föndra úr. Nú er bara að gefa
hugmyndafluginu lausan tauminn.
Hér sjáið þið gamlan
plastleikfanga-
hest sem hefur
verið breytt í
fallegt
heimilis-
skraut. Það
eina sem þurfti
var UHU-
límstaukur og
glimmerdunkur.
GAMALT OG GOTT
Þú átt örugglega eitthvað heima hjá þér
sem þú hefur engin not fyrir en einhver
sem þér þykir vænt um kann að meta.
Eins og til dæmis bók sem var gefin út
árið sem þiggjandinn fæddist, mynd
sem afi teiknaði þegar hann var ung-
lingur og liggur inni í geymslu eða gaml-
an kaffibolla sem amma átti og þú situr uppi
með og notar aldrei.
KORT
Finndu fallegt póstkort og rammaðu það
inn. Ekki er verra að finna kort sem
þiggjandinn tengir við, til dæmis með
mynd af æskuslóðum eða uppáhaldsdýri.