Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.12.2012, Síða 23

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.12.2012, Síða 23
hafa. Ekkert varð af stofnun sambandsins á fundinum, m.a. vegna þess að fundarmenn töldu sig ekki hafa til þess um- boð. Þeir ákváðu hins vegar að skipa þriggja manna nefnd til að fara yfir tillögu að lögum fyrir sambandið og boða síðan til stofnfundar. Í þá nefnd voru kjörnir þeir Axel, Guð- mundur og Ólafur Björnsson. Samkvæmt fundargerð fund- arins skýrði Sigurjón í upphafi hans hvaða þýðingu sam- bandið myndi hafa fyrir íþróttir á Íslandi en virðist ekki hafa rætt sérstaklega um leikana í Stokkhólmi eða skýrt frá bréf- um sem hann hafði sent dönsku ólympíunefndinni og íslensk- um stjórnvöldum þar að lútandi. Grein í Vísi hinn 24. janúar bendir til að á þeim bæ hafi menn tæplega vitað af þessum bréfum Sigurjóns (var þó Ólafur Björnsson, ritstjóri blaðsins, formaður Íþrótta- sambands Reykjavíkur). Í greininni segir að Íslendingar hafi sótt um það til „forstöðunefndar (skipulagsnefndar) Ólympíu- leikanna (ekki dönsku ólympíunefndarinnar!) að mega taka þátt í leikunum sem Íslendingar“. Síðan segir að Svíum lítist ekki á að Íslendingar geti talist sérstök þjóð og greininni lýkur með þessum orðum: „Ekki líst íþróttamönnum okkar að koma fram sem Danir og hætta heldur við hluttökuna.“ Sama dag birti Lögrétta grein eftir Guðmund Björnsson. Í henni segir hann að hinum ungu íþróttafélögum landsins standi kunnáttuleysi og kennsluskortur fyrir þrifum. Þess vegna sé í ráði að koma öllum íþróttafélögum landsins í eitt samband í því skyni að þau styðji hvert annað. Íþróttasamband Íslands stofnað Til annars stofnfundar var boðað hinn 28. janúar í Bárubúð þar sem fyrri fundurinn var haldinn tíu dögum áður. Fulltrú- ar voru mættir frá fimm íþróttafélögum og tveimur ung- mennafélögum í Reykjavík. Fimm félög höfðu borið fram formlega ósk um aðild að sambandinu: tvö frá Reykjavík og þrjú frá Akureyri. Skautafélag Reykjavíkur, eitt öflugasta íþróttafélag landsins, hafði skömmu áður samþykkt að standa að stofnuninni. Fundurinn samþykkti að stofna Íþróttasamband Íslands (ÍSÍ) og lög fyrir það. Lögin voru bráðabirgðalög og áttu að gilda þar til aðalfundur yrði hald- inn í júnímánuði. Formaður sambandsins var kjörinn Axel V. Túliníus og í stjórn með honum fimm aðrir. Blaðið Lögrétta kallaði þessa fyrstu stjórn sambandsins bráðabirgðastjórn. Stungið var upp á Sigurjóni í stjórnina en hann baðst undan kjöri og bar því við að hann væri á förum til útlanda. Fyrsta stóra verkefni ÍSÍ Stjórn ÍSÍ hélt sinn fyrsta fund hinn 1. febrúar og skipti þá með sér verkum. Jafnframt fól hún tveimur stjórnarmönnum að semja skrá yfir öll íþróttafélög í landinu og hinum stjórn- armönnunum þremur að semja umburðarbréf til íþróttafélag- anna með tilkynningu um stofnun sambandsins og tilgang þess og einnig með tilmælum um að ganga í það. Rúmri viku síðar samþykkti stjórnin einróma að fela Sigurjóni að fara með umboð sitt utan um allt það er laut að för Íslendinga á Ólympíuleikana í Stokkhólmi. Þátttakan í leikunum var fyrsta stóra verkefni stjórnar hins nýstofnaða ÍSÍ. Hún leysti það vel af hendi. Íslensku íþróttamennirnir stóðu sig vel, einkum Sigurjón sem var nálægt því að hreppa verðlaun í grísk-rómversku fangbrögðunum. Eftir heimkomuna sigraði Sigurjón í Íslandsglímunni þriðja árið í röð. Við setningu leikanna heimtaði danska ólympíunefndin að íslenski hópurinn gengi inn á leikvanginn í miðjum hópi danskra keppenda. Þessu neituðu Íslendingarnir og gengu ekki inn ásamt öðrum keppendum. Um það hafði verið samið að þeir fylgdu danska hópnum eftir. Sú ákvörðun Íslending- anna að hunsa kröfu dönsku ólympíunefndarinnar var rómuð mjög heima á Íslandi. Ólympíufarar Íslands 1912 mættu til leiks í Stokkhólmi uppábúnir og glæsilegir. Efri röð frá vinstri: Hallgrímur Benediktsson, Jón Halldórsson, Sigurjón Pétursson, Guðmundur Kr. Guðmundsson og Kári Arngrímsson. Neðri röð frá vinstri: Axel Kristjánsson, Halldór Hansen og Magnús Tóm- asson Kjaran. Axel Tulinius lögfræð- ingur var fyrsti forseti Íþróttasambands Íslands. Sigurjón Pét- ursson var fremsti íþróttamaður landsins, glímu- kóngur Íslands og handhafi Ár- mannsskjaldarins þegar hann fór að vinna að stofnun ÍSÍ árið 1912. 23.12. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23 Hágæða sæn gurverasett og sloppar - Mikið úrval Jólagjöfin í ár 20% afslát tur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.