Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.12.2012, Síða 24
Óhefðbundin
jólatré
F
ortíðarþráin svífur yfir vötnum í nýju jólatrjánum frá
DEMO-handverki. Þessi handgerðu tré eru sköp-
unarverk Magnúsar Ólafssonar og Dagnýjar Elsu
Einarsdóttur, sem áður hafa getið sér gott orð fyrir
ljós sín. Magnús er húsgagnasmíðameistari en Dagný Elsa
hefur lagt stund á nám í húsgagnasmíði ásamt því að hafa
lært hönnun.
Hugmyndin að trjánum kemur frá jólatrjám sem voru
á norrænum heimilum á fyrri hluta síðustu aldar. „Oftast
smíðaði fólk sín eigin tré úr því efni sem féll til og
skreytti þau gjarnan með mosa og lyngi, stundum
voru sett lítil kerti á greinarnar í þar til gerðum
klemmum. Síðar voru þau t.d. skreytt með
heimagerðum, fléttuðum hjörtum og kram-
arhúsum úr pappír sem hengd voru á grein-
arnar,“ segir á vefsíðu fyrirtækisins en Sunnu-
dagsblað Morgunblaðsins hafði samband við
Magnús og forvitnaðist nánar um hugmyndina á
bak við trén.
„Greinarnar hjá okkur eru hallandi. Áð-
ur fyrr voru þær bara láréttar. Á grein-
unum eru líka trépinnar til að hengja
skrautið á. Við höfum endurhannað þetta
frá grunni,“ segir Magnús.
Þrjár stærðir og þrír litir
Trén koma í þremur stærðum, Yrki er 45 cm, Þöll 65
cm og Þinur 110 cm. „Minnsta tréð er ógurlega mikið
krútt,“ segir Magnús og eru það orð að sönnu. Stærðin er
þannig að líka væri hægt að nota það fyrir skartgripi. Trén sóma
sér auðvitað öll sérstaklega vel sem jólatré og þá getur hver skreytt
sitt tré eftir eigin höfði. Líka er hægt að nota þau við önnur tilefni eins
og í skírnar-, fermingar- eða brúðkaupsveislur og þá fyrir skraut við hæfi
eða kveðjur frá gestum.
Trén eru seld í Aurum og auk þess að koma í þremur stærðum fást
þau í þremur litum, ómáluð, ljósgræn eða dökkgræn. „Það er hægt að
taka allar greinarnar af og kippa þeim út og auðvelt að setja það aftur
saman. Þau eru seld í strigapoka,“ segir Magnús en þess má geta að lok-
um að trén eru ennfremur öll númeruð.
Jólatrén kosta
frá 19.800 kr. til
36.800 kr. eftir
stærð og lit.
Trén eru seld
í handhægum
strigapokum.
Ljósmyndir/Karl Petersson
Hver og einn getur
skreytt tréð eftir
eigin höfði á látlaus-
an eða litríkan hátt.
HANDGERÐ JÓLATRÉ SEM HÆGT ER
AÐ SKREYTA EFTIR EIGIN HÖFÐI
HUGMYNDIN AÐ NÝJU JÓLATRJÁNUM FRÁ DEMO-
HANDVERKI KEMUR FRÁ ÞEIM TRJÁM SEM VORU
NOTUÐ Á NORRÆNUM HEIMILUM Á FYRRI HLUTA
SÍÐUSTU ALDAR.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Trén fást í
þremur litum
og þremur
stærðum.
Hér er minnsta
tréð, Yrki, sem er
45 cm á hæð,
skreytt með litrík-
um kryddpokum.
*Heimili og hönnunGunnar Magnússon setti frumleika á oddinn í hönnun en verk hans komu nýverið út á bók »27
Stærsta tréð, Þinur,
sem er 110 cm á hæð
er hér skreytt á þann
hátt að það líkist
hefðbundnu jólatré.