Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.12.2012, Blaðsíða 40
Þ
að var tískudrottningin Coco Chanel
sem á þriðja áratugnum kynnti
fyrst „litla svarta kjólinn“, eða „the
little black dress“ („lbd“) eins og
hann kallast upp á enskuna, til sögunnar
sem tískuflík á síðum bandaríska Vogue.
Var þar um að ræða nettan, vel sniðinn,
svartan kjól, oftar en ekki í styttri kant-
inum, sem hægt var að nota bæði í leik og
starfi. Lagði hún þar með línurnar fyrir
klassískt „trend“, sem seint eða aldrei
fellur úr gildi.
Kostir litla svarta kjólsins eru óum-
deildir. Hann er allt í senn; tímalaus,
praktísk og falleg flík, sem á alltaf við
(nema kannski á fjöllum!).
Hægt er að fá hann í ýmsum tilbrigðum,
m.a. klassískan með V-hálsmáli, með ermum
eður ei, blúndum í bland eða peplum-sniði
með smá pils-vængjum á mjöðmunum, svo
fátt eitt sé nefnt. Frægasta sniðið kemur án
vafa úr smiðju Huberts de Givenchys, sem
Audrey Hepburn klæddist svo eftirminnilega í
kvikmyndinni Breakfast at Tiffany’s.
Einfalt mál er að klæða þennan klassíska
kjól bæði upp og niður, t.d. við fallegt skart,
skó eða feld, sandala, jakka eða annað.
Á meðal þekktra aðdáenda má nefna
stjörnurnar Angelinu Jolie, Scarlett Johans-
sen, Victoriu Beckham og Ditu Von Teese,
sem allar láta reglulega sjá sig í þessari
klassík, hvort heldur sem er á rauða dregl-
inum eða annars staðar.
Einn slíkur ætti í öllu falli að vera stað-
albúnaður í fataskáp hverrar konu, enda
betri kaup í fáum flíkum.
Svo ef einhver er í vandræðum með eigin
jólakjól í ár, eða gjöfina fyrir konuna, er ekki
úr vegi að skella sér í betri búðir bæjarins. Þar
er töluvert úrval af „þeim
litla svarta“ að finna og
í nokkrum útgáfum.
Jólakötturinn er
líka eflaust alveg
nógu vel haldinn hjá
Grýlu!!
Audrey
Hepburn í
Breakfast at
Tiffany’s.
LITLI SVARTI KJÓLLINN
Tímalaus klassíkFallegur svart-ur silkikjóll fráEllu. Verð:70.000 kr.
MARGIR FÁ ÞÁ EITTHVAÐ FALLEGT FATAKYNS FYRIR EÐA YFIR JÓLAHÁTÍÐINA. LITLI
SVARTI KJÓLLINN ER FYRIRTAKS JÓLAGALLI OG -GJÖF, ENDA TÍMALAUS KLASSÍK.
Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir gunnhildur@mbl.is
Klassískur
kjóll frá
Zöru. Verð
11.995 kr.
Sophia Loren
glæsileg á
sjötta ára-
tugnum.
Coco
Chanel
Úr vor-/sumarlínu
Victoriu Beckham
fyrir 2013
40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.12. 2012
Föt og fylgihlutir
HÁLSPRÝÐI HERRAMANNA
Eflaust huga margir að hálstaustískunni fyrir
þessi jólin eins og svo mörgu öðru.
Samkvæmt heimildamönnum Morg-
unblaðsins gætir ýmissa grasa í þessum
efnum nú um stundir.
Þykk ullarbindi, bæði íslensk hönnun
eins og frá Kormáki og Skildi eða hinu sænska Portia, hafa
t.a.m. notið töluverðra vinsælda. Prjónuð, einlit eða þver-
röndótt silkibindi hafa einnig verið að ryðja sér til rúms en
þau fást m.a. í Herragarðinum. Lífga þau óneitanlega upp á
jakkaföt. Þá sjást öll mynstur, ekki síst hið skáröndótta, jafnt í klassískum silkibindum
sem og úr ull. Í slifsadeildinni ber ullarþverslaufan höfuð og herðar yfir annað.
Virðist almennt andi Ivy League- og Oxbridge-háskólanema fyrri tíma, í bland við
herratískuna sem birtist í Mad Men-sjónvarpsþáttunum, svífa yfir vötnum – á sama
tíma og fjölbreytnin ræður ríkjum.
Fjölbreytt hálstau