Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.12.2012, Page 57

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.12.2012, Page 57
23.12. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57 Kristín Eiríksdóttir er í hópi áhugaverðustu höfunda okkar af yngri kynslóð. Hvítfeld er fjöl- skyldusaga þar sem höfundi tekst hvað eftir annað að koma lesanda á óvart og afhjúpa þá lygi sem persónur hafa vafið um sig. Þetta er fyrsta skáldsaga Kristínar og ber með sér að höfundurinn býr yfir umtalsverðum hæfileikum. Afar forvitnileg skáldsaga. Forvitnileg fyrsta skáldsaga Það er engin ástæða til annars en að gera vel við sig í mat og drykk um jólin og þá kemur sér vel að eiga góða mat- reiðslubók þar sem mið er tekið af há- tíð ljós og friðar. Jólaréttirnir er matreiðslubók eftir Sigga Hall en þar eru uppskriftir að helstu jólaréttum sem hafa verið á borðum landsmanna und- anfarna áratugi. Vitanlega eru svo myndir með öllum réttunum. Bókin skiptist í fjóra kafla: Jólahlaðborð og kaldir réttir, Hátíðarréttir, Súpur og meðlæti og Sætt á eftir. Orð, krydd og krásir er bók eftir Sig- rúnu Óskarsdóttur og Kristínu Þóru Harðardóttur. Þar er að finna spennandi rétti af slóðum Biblíunnar. Höfundarnir sækja hugmyndir úr hinni helgu bók en hrá- efnið er úr íslenskri náttúru. Þarna er að finna uppskriftir að kálfakjöti með möndlu- sósu, chilisúkkulaðiköku, hægelduðu sí- trónulambalæri og súkkulaðibúðingi með möndlusósu svo örfáir réttir séu nefndir. Sannarlega öðruvísi matreiðslubók. Orð, krydd og krásir. ÝMISS KONAR GÓÐGÆTI UM JÓLIN Jólaréttir Sigga Hall. Bókin Maxímús Músíkús eftir Hall- fríði Ólafsdóttur og Þórarin M. Bald- ursson kom nýlega út í Bandaríkjunum og forvitnilegt verður að fylgjast með við- brögðum þar í landi en hin tónelska mús Maxímús hefur farið víða um heim og fengið góðar viðtökur. Reyndar hafa þegar komið viðbrögð við útgáfunni í Bandaríkjunum því á Amazon US er að finna umsögn móður sem sagði Max- ímús Músíkús hafa bjargað helginni hennar. Hún er ánægð með hljóðfærafræðsluna, teikningarnar sem leiða lesandann inn í sög- una og tónlistina sem fylgir með bókinni á geisladiski. Hún endar umsögnina með orð- unum: „Ég elska þessa bók. Hún er frábær til að kynna tónlistina fyrir börnum.“ MAXÍMÚS MÚSÍKÚS BJARGAR HELGINNI Í BANDARÍKJUNUM Nýjasta bókin um Maxímús fjallar um ballettinn. Hallfríður Ólafsdóttir Íslendingablokk Péturs Gunn- arssonar er ákaflega fallega stíl- uð, eins og búast má við af höf- undinum. Pétur er snjall athugandi og lýsir tíðaranda og samtíma oft á einkar næman hátt og fyndni hans nýtur sín ágætlega. Persónur bókarinnar, sem eiga það sameiginlegt að búa í sömu blokk, eru þó mis- eftirminnilegar. Gömlu menn- irnir bera af og stela senunni hvað eftir annað. Bókin er helst til stutt, hefði mátt vera miklu lengri. Næmar lýsingar á tíðaranda Skáldsögur og saga skáksnillings ÁHUGAVERÐAR BÆKUR ÞÓTT ÞAÐ SJÁIST KANNSKI EKKI Á METSÖLU- LISTUM ÞÁ ERU ÞETTA SKÁLDSAGNAJÓL. FLESTIR AF OKKAR REYNDUSTU SKÁLDSAGNA- HÖFUNDUM SENDA FRÁ SÉR VERK OG YNGRI HÖFUNDAR BLANDA SÉR Í SLAGINN OG MEGA EKKI GLEYMAST. ÆVISAGA BOBBYS FISCHERS HLÝTUR SVO AÐ KALLA Á ATHYGLI. Bragi Ólafsson er svo frumlegur og sér- stakur höfundur að hann getur aldrei orðið allra. Hann sýnir allar sínar bestu hliðar í Fjarverunni sem fjallar um próf- arkalesarann Ármann og atburði í lífi hans og þar kemur Geirfinnsmálið meðal ann- ars við sögu. Hér er nóg um neyðarlegar uppákomur, vandræðagang og erjur, en fáir lýsa slíku betur en Bragi. Auk þess býr verkið yfir lúmskum húmor. Þessi bók stækkar kannski ekki lesendahóp Braga en ætti að gleðja aðdáendur hans. Vandræðagangur og lúmskur húmor Endatafl, ævisaga Bobbys Fischers eftir Frank Brady, ætti að vekja áhuga hér á landi enda tengdist skákmaðurinn Íslandi sterkum böndum. Þetta er saga snillingsins sem var á mörkum vitfirringar og höfundi tekst vel að sýna þverstæður í karakter hans. Afar læsileg, grípandi og eftirminnileg ævisaga um merkilegan ein- stakling. Bókin fékk mjög góða dóma erlendis. Bók sem allir skákáhugamenn hljóta að óska sér í jólagjöf. Grípandi ævisaga um erfiðan snilling * Sjúgið hunang af hverju strái ensnertið aldrei sorann af botninum.Bríet Bjarnhéðinsdóttir BÓKSALA 9.-15. DESEMBER Allar bækur Listinn er byggður á upplýsingum frá Rannsóknasetri verslunarinnar 1 Gísli á UppsölumIngibjörg Reynisdóttir 2 ReykjavíkurnæturArnaldur Indriðason 3 HáriðTheodóra Mjöll 4 KuldiYrsa Sigurðardóttir 5 ÓsjálfráttAuður Jónsdóttir 6 UndantekninginAuður Ava Ólafsdóttir 7 ÚtkallÓttar Sveinsson 8 Aukaspyrna á AkureyriGunnar Helgason 9 HúsiðStefán Máni 10 MegasMagnús Þór Jónsson Uppsafnað frá áramótum 1 ReykjavíkurnæturArnaldur Indriðason 2 Grillréttir HagkaupsHrefna Rósa Sætran 3 Gísli á UppsölumIngibjörg Reynisdóttir 4 Heilsuréttir fjölskyldunnarBerglind Sigmarsdóttir 5 Iceland Small WorldSigurgeir Sigurjónsson 6 HáriðTheodóra Mjöll 7 Fimmtíu gráir skuggarE.l. Jones 8 KuldiYrsa Sigurðardóttir 9 Heilsuréttir HagkaupsSólveig Eiríksdóttir 10 Eldar kviknaSuzanne Collins MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR Hvar er allt fólkið, sagði bóndi, hjákonan var ekki á pallinum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.