Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.12.2012, Qupperneq 59
23.12. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59
LÁRÉTT
1. Á sjálfan komu lagfæringar í byrjun út af ástandi. (11)
6. Sækjast eftir kind sérstaklega? (8)
10. Galnar með dug birtast þeim sem tekur heilan dag. (9)
11. Villur fá alræmda tölvu frá hliðhollum. (9)
12. Stærðfræði Snorra við koma sér til Íslands. (12)
14. Með erlendum og Orra á fjarlægum stað. (7)
15. Stykki frá íþróttafélagi nær að ringla íþróttaútbúnað. (11)
16. Há enn engu hjá Sláturfélaginu þrátt fyrir að vera dýrmæti.
(5)
18. Kýs sex og fimmtíu fyrir brún hjá hliðhollum. (11)
20. Með hornmyndun keyrið að ræsinu. (7)
22. Sá sem fær fullt af peningum fyrir að lækna? (7)
24. Hjá froststúlku birtast gljúfur. Ég fyrst veit það. (11)
26. Greind bráð er sú sem er fljót að átta sig. (10)
27. Falls nutu einhvern veginn við klára. (9)
28. Set víst ramma til að sundra. (7)
29. Á lak tvívegis hjá uppeldistöð. (7)
30. Alltaf ákafur út af erlendri stjórn. (5)
31. Tungumálið sem þú lærir á undan öðru tungumáli um morg-
uninn. (10)
LÓÐRÉTT
2. Byrjunarhestur með leiðslu. (11)
3. Au er skaðlegur vökvi, ljósleitur. (9)
4. Kindaáfengi við mið er samsvörun. (11)
5. Strokhljóðfæri sem fæst fyrir úrelta gjaldmiðilinn. (5)
7. Sá sem getur orðið að Frakka hefur klæði. (9)
8. Lyftir húsgagni einn með fataskrauti. (10)
9. Vaða af þöku. (5)
13. Mild leikföng eru mikilsverð. (7)
16. Herra samþykki hvað ami að. (5)
17. Sær og iður með öfugt magn hjá töframanni. (12)
19. Við Vestmannaeyja rusk fær slá lista. (11)
20. Óefnilegur maður sem læsir tönnum í kolefni. (8)
21. Stamaði ruglaður og agnúaðist. (7)
23. Komu auga á huldufólk að því sagt var á svæði. (8)
24. Sjávarafurð í upplituð ílát. (7)
25. Flana innst með peninga. (8)
Í keppni sem vakti talsverða at-hygli hér á landi og fram fór íPoderbrady í Tékklandi milli
„Gamalla handa“ og „Snjóflygsna“
áttu sér stað mögnuð umskipti í
seinni hálfleik. Lengst af benti flest
til þess að þarna myndi enn eitt
karlavígið falla. „Snjóflygsurnar“,
þ.e. rússnesku skákkonurnar Val-
entina Gunina og Alina Kas-
hlinskaya, tékkneska skákkonan
Kristína Havlikova og indverska
skákdrottning Tania Sachdev, tefldu
af miklum styrk, einkum þó hin und-
urfagra Tania sem náði besta vinn-
ingshlutfalli keppenda, sex vinn-
ingum úr átta skákum og árangri
upp á 2643 elo-stig. Wolfgang
Uhlmann og Friðrik Ólafsson, sem
tefldu fyrir „Hendurnar“ ásamt
Vlastimil Hort og Oleg Romanishin,
byrjuðu báðir illa og um tíma virtist
mega afskrifa gamla Austur-
Þjóðverjann. Einhvers staðar úr
blámóðu fjarskans heyrðist þó hvísl-
að að gamlir gæðingar færu stund-
um hægt af stað. Í hálfleik var stað-
an 10:6 „Snjóflygsunum“ vil og allt
eins líklegt að þær ykju forskotið í
seinni helmingi keppninnar. En viti
menn: „Hendurnar“ unnu næstu
viðureignir og söxuðu á forskotið.
Fyrir lokaumferðina var svo jafnt,
14:14. „Snjóflygsurnar“ stóðu þó
betur að vígi því þær höfðu hvítt í
öllum skákum lokaumferðarinnar.
Hafi það það verið taktík þeirra að
semja jafntefli gegn Hort og Rom-
anisin og reyna síðan að vinna Frið-
rik og/eða Uhlmann þá mistókst það
hrapallega: Friðrik og Uhlmann
unnu báðir og tryggðu sigur „Hand-
anna“ eða góðborgaranna eins og
einhver vildi kalla liðið, lokanið-
urstaðan 17:15. Hort og Romanishin
fengu 4 ½ v. af átta en Friðrik og
Uhlmann 4 vinninga hvor. Félagar
Friðriks í liðinu hafa allir teflt á Ís-
landi, Uhlmann á Fiske-mótinu
1968, Hort á Reykjavíkurskák-
mótinu 1972 og oft eftir það en
Romanishin var með á Reykjavík-
urmótinu árið 2004.
Þrjár sigurskákir Friðriks í þess-
ari keppni voru vel tefldar. Í loka-
umferðinni virtist staðan í jafnvægi
þegar andstæðingi hans varð á
meinleg yfirsjón og Friðrik lét ekki
tækifærið sér úr greipum ganga:
Kristina Havlikova – Friðrik
Ólafsson
Sikileyjarvörn – Alapin
1. e4 g6 2. d4 Bg7 3. c3 d5 4. e5
c5 5. h3 Rc6 6. Rf3 Bf5 7. Be2 cxd4
8. cxd4 Bxb1!?
Óvæntur leikur. Friðrik lætur
biskupaparið af hendi og reynir að
byggja upp trausta stöðu fyrir ridd-
arana.
9. Hxb1 e6
Alls ekki 9. …. Da5+ 10. b4! Dxa2
11. Hb2 og drottningin hefur ratað í
mikil vandræði.
10. h4 h5 11. O-O
Hér var upplagt að leika 11. b4
ásamt b5 við tækifæri og koma bisk-
upnum fyrir á a3.
11. … Rh6 12. Bd3 O-O 13. Bg5
Db6 14. Dd2 Rg4 15. Be2 Hac8 16.
Hbc1 Hfe8
Taflmennska hvíts hefur verið
alltof bitlaus og Friðrik hefur náð að
jafna taflið.
17. Hc3 Ra5 18. Hfc1 Hxc3 19.
Dc3 Rc6 20. Bf4 a6 21. Bd3 Bh6 22.
Bxh6 Rxh6 23. a3 a5 24. Dd2 Rg4
25. Bb1 Kg7 26. Hc3 He7 27. b3
Hc7 28. Re1??
Hér er kominn tapleikurinn.
Tékkneska skákkonan lagði þá
spurningu fyrir Friðrik hvort peðið
á d4 væri „eitrað“ eður ei. Eftir dá-
litla umhugsun komst Friðrik að
réttri niðurstöðu.
28. … Rxd4! 29. Hxc7 Dxc7 30. f3
Nú rann upp fyrir henni ljós að
30. Dxd4 er svarað með 30. … Dc1!
og vinnur manninn til baka. Þessi
leikur breytir engu.
30. … Rxb3! 31. Dc2 Dxe5!
Þar féll þriðja peðið og fleiri eru á
leiðinni. Hvítur gafst upp.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
SKÁK
Friðrik og Uhlmann tryggðu sigur „Handanna“
Verðlaun eru veitt fyrir
krossgátu vikunnar. Senda
skal þátttökuseðilinn í um-
slagi merktu: Krossgáta
Morgunblaðsins, Hádegis-
móum 2, 110 Reykjavík.
Frestur til að skila úrlausn
krossgátu 23. desember
rennur út á hádegi 28. des-
ember. Nafn vinningshafa er
birt í Sunnudagsblaði
Morgunblaðsins 30.
desember.
Vinningshafar krossgátunnar 16. desember eru Óli
og Bella Syðri-Reykjum II, Selfossi. Þau hljóta í verð-
laun bókina Íslenskir kóngar eftir Einar Má Guð-
mundsson. Forlagið gefur bókina út.
KROSSGÁTUVERÐLAUN
Nafn
Heimilisfang
Póstfang