Morgunblaðið - 03.01.2013, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.01.2013, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2013 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Um tíu bifreiðar skemmdust mikið þegar snjór féll af þaki fjölbýlishúss í Arahólum í Breiðholti í fyrri- nótt og á bílana sem stóðu fyrir neðan. Í samtali við mbl.is í gær sagði Kristinn Eiðsson, íbúi í Arahólum 4, bifreið sína gjörónýta en þak hennar og framrúða féllu saman undan snjófarginu. Þetta mun ekki vera í fyrsta sinn sem snjór fellur af þakinu þannig að skemmdir hljótast af en bílaeig- endurnir töldu líklegt að tryggingar myndu bæta tjónið. Tíu bílar skemmdust Morgunblaðið/Hallur Blautur og þungur snjór veldur tjóni í Breiðholti Guðni Einarsson gudni@mbl.is Beint tjón Landsnets vegna ítrek- aðra óveðra á síðasta ári gæti numið 300-500 milljónum króna, að mati Guðlaugs Sigurgeirssonar, deildar- stjóra netrekstrar Landsnets. End- anleg upphæð liggur ekki fyrir enda er enn verið að gera við raflínur sem skemmdust í óveðrinu í lok ársins. Þá er ótalinn kostnaður sem aðrir en Landsnet urðu fyrir vegna raf- magnsleysis. Miklar rafmagnstruflanir urðu víða um land 10. og 11. janúar 2012. Selta og ísing ollu bilun og eldsvoða í tengivirki Landsnets á Brennimel í Hvalfirði. Stóriðjuverin á Grundar- tanga urðu m.a. rafmagnslaus vegna bilunarinnar. Kostnaður Landsnets vegna tjónsins á Brennimel og fleiri tjóna sem tengjast því er talinn hlaupa á 70-100 milljónum króna. Óveður olli gríðarlega miklum skemmdum á flutningskerfi raforku á Norðausturlandi í fyrrihluta sept- ember. Kostnaður vegna þess óveðurstjóns eins er kominn yfir 100 milljónir. Rafstrengur til Vestmannaeyja bilaði einnig í september. Það tjón er talið geta kostað 30-40 milljónir. Þá ollu óveður einnig miklum truflunum á raforkuflutningum og rekstraróhagræði í nóvember. Enn er verið að gera við raflínur sem skemmdust í illviðrinu sem gekk yfir Vestur- og Norðurland í lok síðasta árs. Talið er að tjónið sem varð nú í árslok gæti slagað upp í um 100 milljónir króna. Breytingar á gjaldskrám Breytingar urðu á gjaldskrám Landsnets 1. janúar 2013. Flutnings- gjöld vegna stóriðju hækkuðu um 20% og afhendingargjöld hækkuðu um 9%. Gjaldskrá fyrir kerfisþjón- ustu hækkaði um 27% en gjaldskrá fyrir flutningstöp lækkaði um 6,8%. Landsnet hafði gert tillögu um hækkun á flutningsgjöldum vegna almennra notenda um 9% en Orku- stofnun (OS) samþykkti hana ekki. Guðmundur Ingi Ásmundsson, að- stoðarforstjóri Landsnets, sagði að Landsnet hefði sent tillögur sínar um gjaldskrárbreytingar til um- sagnar OS sex vikum fyrir áramót. OS hefði haft þrjár vikur til að gera athugasemdir en ekki gert þær fyrr en 21. desember, eða tveimur vikum eftir að fresti lauk. „Þeir gerðu athugasemd við hækkun á flutningsgjöldum til al- mennra notenda á grundvelli úr- skurðar þeirra frá 19. desember,“ sagði Guðmundur. Hann sagði að OS og Landsnet hefðu deilt um túlkun arðsemis- krafna samkvæmt raforkulögum. Landsnet muni líklega kæra úrskurð OS frá 19. desember enda taki hann ekki neitt tillit til sjónarmiða Lands- nets varðandi leyfða arðsemi, að mati Guðmundar. Tjónið er 300-500 milljónir  Óveður ollu ítrekað tjóni á flutningskerfi Landsnets á nýliðnu ári  Viðgerðir eftir síðasta tjón standa enn yfir  Breytingar urðu á gjaldskrám um áramótin Beint tjón Landsnets gæti numið 300-500 milljónum Guðlaugur Sigurgeirsson Það er mat hagfræðinganna Þórs Sigfússonar og Hauks Más Gests- sonar að fyrirtæki í íslenskum sjávar- útvegi og tengdum greinum geti auk- ið veltu sína um allt að 250 milljarða á næstu tíu árum. Til að ná því mark- miði segja þeir að fjárfestingar í ný- sköpun þurfi að aukast umtalsvert en augljósasta leiðin til þess að auka ný- sköpun í sjávarklasanum, þ.e. sjávar- útvegi og tengdum greinum, sé að bjóða sjávarútvegsfyrirtækjum að greiða umtalsvert lægra veiðileyfa- gjald ef þau fjárfesta í nýsköpun og tækni. Í greiningu Sjávarklasans sem kom út í gær eru nefndar til sögunnar átta leiðir til að auka verðmæti í iðn- aðinum. Er m.a. lagt til að fiskimjöli verði í auknum mæli breytt í fæðu- bótarefni, að fjármagn verði lagt til rannsókna á nýtingu sjávarfangs, að háþróuð slógvinnsla verði efld, að tæknivæðing verði aukin, að staða Ís- lands sem svæðis fyrir þjónustuhöfn á Norður-Atlantshafi verði tryggð, að íslensk sjávarútvegsfyrirtæki komi í auknum mæli að ráðgjöf erlendis, að fiskeldi verði eflt og að grunnfjárfest- ingar í greininni verði auknar. „Líklegt er að fjárfestingar í ný- sköpun og tækni í sjávarklasanum þurfi að nema um 8-10% af tekjum til þess að þau markmið náist sem hér eru kynnt,“ segir í grein hagfræðing- anna. „Það þýðir með öðrum orðum að fjárfestingar í sjávarklasanum þyrftu að vera 20-30 milljarðar á ári á næstu árum.“ Í fyrsta lagi þurfi fjárfestingar í grunnatvinnuveginum að aukast en í öðru lagi sé „þörf á umtalsverðu áhættufjármagni í ýmsan iðnað sem hefur mesta vaxtarmöguleika, eins og líftækni, fullvinnsla, tækniþróun o.fl.“. Miklir möguleikar í útvegi  Hægt að auka velt- una um 250 milljarða Morgunblaðið/RAX Aukning Það felast mörg tækifæri í afurðum íslensks sjávarútvegs. Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is „Það er ekki komin nánari útfærsla í smáatriðum, þetta eru eiginlega ennþá hugmyndir sem er eftir að finna farveg fyrir. Ég mun eiga fund með forstjóra Landspítalans á næstu dögum, og með nokkrum fleiri, og þá skýrist þetta,“ segir Agnes M. Sig- urðardóttir, biskup Íslands, spurð út í fyrirhugaða söfnun til tækjakaupa fyrir Landspítalann. Í nýársprédikun sinni í Dómkirkj- unni ræddi Agnes um mikilvægi þess að búa vel að Landspítala Íslands sem býr við bágborinn tækjakost og sagði kirkjuna vilja vera leiðandi í söfnun til tækjakaupa fyrir spítalann í samráði við stjórnendur hans. „Landspítali er fyrir okkur öll sem búum í þessu landi. Þjóðkirkjan er líka fyrir okkur öll sem búum í þessu landi. Þess vegna vill kirkjan taka þeirri áskorun að vera leiðandi í söfnun til tækjakaupa á Landspít- alanum í samráði við stjórnendur spítalans. Samtakamáttur þjóð- arinnar hefur einatt skilað miklum árangri,“ sagði Agnes m.a. í prédik- un sinni. Hún segir stefnt að því að fast- móta útfærsluna að söfnuninni í þessum mánuði. „Hvað kirkjuna varðar myndum við hefja söfnunina í messum sunnudagsins, fylgja henni eftir í vikunni og enda í stórri og mikilli landssöfnun laugardaginn á eftir. Þannig að þetta verður um viku ferli,“ segir Agnes um helstu hug- myndina. Söfnunin mun fara fram fyrrihluta þessa árs. Agnes hefur fengið mjög góð við- brögð við hugmyndinni að söfnun. „Ég hef hitt fólk og fengið tölvupósta og símtöl frá fólki sem ég þekki og ég þekki ekki. Það hefur viljað láta mig heyra að því líst vel á hugmyndina.“ Unnið að útfærslu tækjasöfnunar Morgunblaðið/Golli Safna Agnes M. Sigurðardóttir biskup vill búa vel að Landspítalanum.  Biskup hittir forstjóra Landspítalans næstu daga  Landssöfnun til tækjakaupa fyrir spítalann að til- stuðlan kirkjunnar fer fram fyrrihluta þessa árs  Biskup hefur fengið góð viðbrögð við hugmyndinni Á síðasta ári bárust stöðugar fréttir af úr sér gengnum tækj- um á Landspítalanum, t.d biluðu bæði geislatæki spítal- ans í sumar. Björn Zoëga, for- stjóri Landspítalans, hefur sagt að spítalinn þurfi minnst 860 milljónir á næsta ári til að geta endurnýjað það allra nauðsyn- legasta. Milljarður á ári næstu þrjú árin væri þó raunhæfara til að gera spítalann sæmilega sjó- færan á nýjan leik. Þarf milljarð LANDSPÍTALINN Lögreglan á Suðurnesjum handtók í fyrra- kvöld tæplega tvítugan karl- mann vegna gruns um fíkni- efnaakstur og sölu fíkniefna. Sýnatökur á lög- reglustöð staðfestu neyslu manns- ins á kannabis, amfetamíni og metamfetamíni. Við húsleit á heimili mannsins fannst talsvert af fíkniefnum, bæði kannabis og meint amfetamín. Einnig tól og tæki til neyslu fíkniefna. Lögreglan hafði áður handtekið þrjá ökumenn sem einnig voru grunaðir um fíkniefnaakstur. Sýnatökur staðfestu að þeir höfðu neytt kannabisefna. Þá hafði einn þeirra verið sviptur ökuréttindum. Grunaður um sölu og neyslu fíkniefna Talsverður erill hefur verið hjá lög- reglunni á höfuðborgarsvæðinu í gær og komu m.a. inn á borð henn- ar mál sem varða þjófnaði, slys og ágreining á milli einstaklinga. Skömmu fyrir klukkan þrjú var lögreglan kölluð að slysadeildinni í Fossvogi þar sem bifreið hafði bakkað á fótgangandi vegfaranda, sem mun hafa orðið fyrir ein- hverjum meiðslum. Bakkað á vegfar- anda við slysadeild

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.