Morgunblaðið - 03.01.2013, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2013
SVIÐSLJÓS
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Notkun SSRI-þunglyndislyfja á
meðgöngu eykur ekki líkurnar á and-
vana fæðingu eða ungbarnadauða.
Kemur þetta fram í nýrri samnor-
rænni rannsókn sem Ísland er
þátttökuland að. Niðurstöður hennar
voru birtar í gær í JAMA, Journal of
American Medical Association.
Rannsakaðar voru yfir 1,6 milljón-
ir fæðinga á tímabilinu frá 1996 til
2007. Upplýsingum var safnað úr
fæðingaskrám og frá útleystum lyfj-
um í Danmörku, Finnlandi, Noregi,
Svíþjóð og á Íslandi.
Fyrri rannsóknir hafa sýnt að
þungaðar konur sem taka þunglynd-
islyf úr SSRI-lyfjahópnum eru í auk-
inni hættu á að fæða börn með fæð-
ingargalla eða ungbarnasjúkdóma.
Þær rannsóknir hafa sýnt að sum
SSRI-lyf megi tengja við meðfædda
hjartagalla og tímabundin vandamál
eins og svefnerfiðleika ungbarns og
erfiðleika við brjóstagjöf. Þrálátur
lungnaháþrýstingur er einnig al-
gengari hjá börnum mæðra sem hafa
tekið SSRI-þunglyndislyf á með-
göngu.
Það hefur hins vegar ekki verið vit-
að hingað til hvort andvana fæðingar
og ungbarnadauði tengjast notkun
SSRI-lyfja. Það voru vísindamenn
við Karolinska Institutet í Svíþjóð
sem leiddu norrænu rannsóknina. Í
frétt á heimasíðu Karolinska Institu-
tet segir að niðurstöðurnar sýni að
1,8% þeirra 1,6 milljóna þungaðra
kvenna sem voru í rannsóknarhópn-
um tóku út lyfseðil fyrir SSRI-þung-
lyndislyf að minnsta kosti einu sinni á
tímabilinu sem nær frá þremur mán-
uðum áður en þær urðu þungaðar þar
til þær fæddu. Algengara var að eldri
konur og konur sem reyktu á með-
göngunni tækju þessi lyf.
Þarf að meðhöndla þunglyndi
Rúmlega 6.000 andvana fæðingar
urðu á rannsóknartímabilinu, en
rúmlega 3.600 nýburar létust á fyrstu
vikum lífsins. 1.500 létust á fyrsta
aldursári. Dauðsföll voru nokkuð al-
gengari meðal barna kvenna sem
höfðu tekið SSRI-þunglyndislyf á
meðgöngunni. En þegar tölurnar
voru leiðréttar fyrir sögu um andlega
heilsu mæðranna, aldri, reykingum
og blóðþrýstingi var ekki lengur
hægt að sjá tengingu á milli notkunar
SSRI-lyfja og aukningar á andvana
fæðingum eða ungbarnadauða.
„Við höfum sýnt fram á að hætta á
andvana fæðingum og ungbarna-
dauða er ekki meiri þegar konan tek-
ur SSRI-lyf við þunglyndi. Það er
hins vegar hætta á alvarlegum auka-
verkunum fyrir barnið. Á sama tíma
er hætta fyrir hendi ef þunglyndi hjá
þunguðum konum er ekki meðhöndl-
að,“ segir Olof Stephansson, dósent
við Karolinska Institutet.
Má þar nefna hættuna á að þung-
lyndið verði alvarlegt með tilheyr-
andi hættu á sjálfsvígi móður á með-
göngu og á tímabilinu eftir fæðingu.
Það er líka vitað að vöxtur fóstursins
gæti orðið verri og hættan á fæðingu
fyrir tímann er meiri ef þunglyndið
er látið ómeðhöndlað.
„Það er mikilvægt að skoða hvert
tilvik fyrir sig. Það þarf að vega og
meta áhættuna fyrir móður og barn
þegar ákveðið er hvort eigi að með-
höndla barnshafandi konu með
SSRI-lyfjum. Læknirinn þarf að end-
urskoða lyfin reglulega til að velja
rétta lyfið og skammtana. Það er líka
mikilvægt að fylgja þessum konum
vel eftir á meðgöngunni og brjósta-
gjafatímabilinu,“ segir dr. Stephans-
son.
Áhrif þunglyndis-
lyfja á meðgöngu
Auka ekki líkurnar á andvana fæðingu eða ungbarnadauða
Morgunblaðið/Kristinn
Þunglyndi Það þarf að vega og meta áhættuna í hverju tilviki fyrir sig.
Unnur Valdimarsdóttir prófessor
og Helga Zoëga, lektor í lýðheilsu-
vísindum, sáu um hlut Íslands í
rannsókninni. „Þetta er önnur
rannsóknin í stærra rannsóknar-
verkefni. Á nýliðnu ári birtum við
niðurstöður um notkun sömu lyfja
á meðgöngu en með lungnahá-
þrýsting nýbura sem útkomu,“
segir Helga. „Rannsókninni verður
haldið áfram með aðrar fæðingar-
útkomur en sömu lyf. Næst skoð-
um við líklega vansköpun.“
Gögnin sem þær öfluðu fyrir
rannsóknina eru fyrst og fremst
frá 2003 til 2007 að sögn Helgu.
„Allar fæðingar á Íslandi frá 2003
til 2007 eru inni í þessari rann-
sókn, fyrir utan fjölburafæðingar.
Að öllu jöfnu fæðast um 4.000 til
4.500 börn á Íslandi ár hvert en í
þessari grein horfum við á Norð-
urlönd sem eina heild, en ekki
SSRI-notkun og fæðingarútkomu í
hverju landi fyrir sig,“ segir Helga
og kveður rann-
sóknina ein-
staka. „Í fyrsta
lagi er þetta
gert á mjög
stórum hópi
kvenna, 1,6
milljónir fæð-
inga. Það er í
raun og veru
hvergi annars staðar í heiminum
hægt að framkvæma svona rann-
sókn, þar sem við náum yfir þung-
lyndislyfjanotkun allra ófrískra
kvenna á Norðulöndum.
Af því að andvana fæðingar og
ungbarnadauði eru svo sjaldgæfar
útkomur er ekki annað hægt en að
skoða þetta í svona stórum hópi.
Niðurstaðan er að það er ekkert
afgerandi samband milli þess að
hafa notað þunglyndislyf á með-
göngu og að afkvæmi deyi í móð-
urkviði, við fæðingu eða á fyrsta
ári eftir fæðingu.“
Einstök rannsókn á heimsvísu
ÍSLENSKI ÞÁTTURINN
Helga Zoëga
„Mér finnst það langmerkilegast af
öllu saman að þessar gömlu hús-
mæður skyldu hafa komist yfir það
að þjóna öllu þessu fólki og lítið gert
með það,“ sagði Auðbjörg Halldís
Hrafnkelsdóttir, ein 16 barna
hjónanna Hrafnkels Aðalsteins Elí-
assonar og Láru Stefánsdóttur frá
bænum Hallgeirsstöðum í Jökuls-
árhlíð. Systkinin eru 15 eftirlifandi
og er samanlagður aldur þeirra 981
ár. Þau eru fædd á árunum 1936 til
1959 og þrjú þeirra voru alin upp hjá
kjörforeldrum.
Eftir umfjöllun Morgunblaðsins
um systkinin frá Kjóastöðum, 31.
desember 2012, fékk blaðið ábend-
ingar um tvo hópa sem væru sam-
anlagt eldri í árum. Hinn hópurinn er
uppalinn í Vestmannaeyjum.
Auðbjörg segir alltaf hafa verið
nóg að bíta og brenna og að á heim-
ilinu hafi verið gestkvæmt. Hún segir
þau hafa verið alin upp við að sýna
hvert öðru tillitssemi. „Móðir mín var
mikill sáttasemjari,“ sagði Auðbjörg.
Hrafnkell og Lára brugðu búi árið
1980 eftir 45 ára búskap á Hallgeirs-
stöðum og fluttu til Egilsstaða. Hann
lést 1989 en hún 2009, 91 árs. Afkom-
endur þeirra eru 142 í dag.
Gyða Vigfúsdóttir er ein systk-
inanna. Hún ólst upp hjá kjörfor-
eldrum í sömu sveit en segir þau
systkini ætíð hafa vitað hvert af öðru
og haldin séu ættarmót reglulega.
„Þær voru ofboðslega miklar vinkon-
ur og enduðu á sömu stofu á elliheim-
ilinu,“ sagði Gyða um mæður sínar.
„Það var alltaf mjög mikill sam-
gangur á milli,“ segir Gyða sem var í
fóstri hjá frændfólki sínu.
Eldri systkinahópur úr Eyjum
Systkinin úr Eyjum voru 16 í allt,
en tvö eru látin. Hin 14 telja sam-
anlagt 992 ár í dag. Þau eru börn
hjónanna Gíslnýjar Jóhannsdóttur
og Þorsteins Ólafssonar sem voru
bændur í Landeyjum en bjuggu svo í
Eystri-Vesturhús í Vestmannaeyjum
þar sem systkinin ólust öll saman
upp. Þorsteinn lést 1967 og Gíslný
1993. Systkinin eru fædd á árunum
1930 til 1953 og geta náð samtals
1.000 ára aldri í maí í ár.
Svanur Þorsteinsson segir að oft
hafi verið þröngt á heimilinu og eina
vertíðina í Eyjum hafi með vertíð-
arfólki verið 23 í heimili, en húsið
sem þau bjuggu í þá var um 60-80
fermetrar að grunnfleti. Afkom-
endur Þorsteins og Gíslnýjar eru 136
talsins. ipg@mbl.is
Ljósmynd/Benedikt Hrafnkelsson
Hallgeirsstaðahópur Aftari röð f.v.: Benedikt, Orri, Auðun, Dvalinn, Helgi,
Ómar, Þórarinn, Sigþór, Elís og Haraldur. Fremri röð f.v.: Ásta, Hulda,
Stefanía, Lára, móðir þeirra, Gyða, Alda og Auðbjörg Halldís.
Fleiri systkinahópar
að nálgast 1.000 árin
Úr Jökulsárhlíð og Vestmannaeyjum
Eystri-Vesturhúsahópur Aftast f.v.: Sigurvin, Reynir, Smári, Tryggvi,
Trausti, Svanur og Birgir. Miðja f.v.: Halla, Guðrún, Ólafía, Vilborg, Sól-
veig, Lilja og Jónína. Fremst f.v.: Sigurbjörg, móðirin Gíslný og Jóhanna.
Togararnir streymdu á miðin í gær
eftir hátíðirnar. Loðnuskipin voru
einnig að tygja sig til veiða og
leggja sum af stað í loðnuleit í dag.
Ingimundur Ingimundarson,
rekstrarstjóri uppsjávarskipa hjá
HB Granda, sagði að uppsjáv-
arskipin Faxi RE og Ingunn AK
væru á Vopnafirði, en Lundey NS
á Akranesi. Hann sagði að Faxi
RE og Ingunn AK byrjuðu á að
leita loðnu ásamt fleiri loðnuskipum
frá öðrum útgerðum. Líklega taka
sex loðnuskip þátt í loðnuleitinni.
Hlutverk fiskiskipanna er e.t.v.
fyrst og fremst að afmarka heppi-
legan upphafspunkt fyrir loðnuleit
rannsóknarskips Hafrann-
sóknastofnunarinnar, að sögn Ingi-
mundar.
Hann taldi að HB Grandaskipin
sem færu frá Vopnafirði mundu
hefja leitina austur af landinu og
leita norður með Austfjörðum.
„Það er ágætis veðurútlit að
minnsta kosti næstu tvo dagana,“
sagði Ingimundur í gærkvöldi.
Togaraáhafnir HB Granda sem
fóru til sjós í gær mættu ein af
annarri á fundi í sjóminjasafninu
Víkinni áður en haldið var út á
miðin. Ingimundur sagði að á fund-
unum hefði m.a. verið farið yfir
niðurstöður viðhorfskönnunar
starfsmanna til félagsins. Nið-
urstöðurnar höfðu verið kynntar
öllum öðrum starfsmönnum HB
Granda og þótti hentugt að hafa
kynningar fyrir togarasjómennina
að loknu jólaleyfinu. gudni@mbl.is
Fiskiskipin streymdu á miðin í gær
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Á sjó Togarinn Ásbjörn RE var einn þeirra sem fóru til sjós í gær eftir landlegu um hátíðarnar.
Loðnuskip HB Granda hefja loðnuleit í
dag Nokkur loðnuskip leita að loðnu