Morgunblaðið - 03.01.2013, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2013
Innlent
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir,
þingmaður Vinstrihreyfingarinnar
- græns framboðs, hefur ákveðið
að láta af þingmennsku og mun
hún því ekki taka sæti á Alþingi
þegar það kemur
aftur saman 14.
janúar næstkom-
andi. Hún hefur
verið formaður
umhverfis- og
samgöngunefnd-
ar Alþingis frá
því haustið 2011
en áður var hún
formaður þing-
flokks Vinstri
grænna og for-
maður félags- og tryggingamála-
nefndar Alþingis. Þá hefur hún
einnig setið í utanríkismálanefnd
og allsherjar- og menntamála-
nefnd þingsins.
Bæjarfulltrúi sest á þing
Í stað Guðfríðar Lilju kemur
Ólafur Þór Gunnarsson, varaþing-
maður Vinstri grænna og bæjar-
fulltrúi fyrir V-lista í bæjarstjórn
Kópavogs. Jafnframt mun Ólafur
Þór skipa annað sæti framboðs-
lista Vinstri grænna í Kraganum í
vor en hann beið lægri hlut gegn
Ögmundi Jónassyni í baráttunni
um fyrsta sætið í forvali flokksins í
Suðvesturkjördæmi sem fram fór
24. nóvember síðastliðinn.
Í fréttatilkynningu sem Guðfríð-
ur Lilja sendir frá sér á gaml-
ársdag kemur fram að hún hafi
sagt formlega af sér þingmennsku
um hádegisbilið þann dag með
bréfi til forseta Alþingis. Þá segir
einnig í tilkynningunni að um leið
og hún sagði af sér þingmennsku
hafi Guðfríður Lilja óskað þing-
heimi heilla á nýju ári. Rétt er að
nefna að Guðfríður Lilja hafði áður
lýst því yfir að hún hygðist ekki
sækjast eftir endurkjöri í alþing-
iskosningunum vor, þá gaf hún
ekki kost á sér í forvölum Vinstri
grænna vegna kosninganna.
Guðfríður Lilja læt-
ur af þingmennsku
Ólafur Þór sest á þing í hennar stað
Hætt Guðfríður Lilja sagði af sér
þingmennsku á gamlársdag.
Ólafur Þór
Gunnarsson
VG nýtur 9,1% fylgis samkvæmt nýj-
um Þjóðarpúlsi Capacent Gallup.
Flokkurinn hefur ekki mælst með
minna fylgi frá því í september 2003
samkvæmt frétt Ríkisútvarpsins í
gærkvöldi og hafði tapað tveimur
prósentustigum frá fyrra mánuði.
Hinn ríkisstjórnarflokkurinn,
Samfylkingin, mældist með 19,1%
fylgi og hafði fylgi flokksins minnk-
að um þrjú prósentustig frá fyrra
mánuði.
Björt framtíð mældist með 12,3%
fylgi og heldur samkvæmt því
áfram að auka fylgi sitt en fyrir
mánuði mældist framboðið með 8%
fylgi.
Lítil breyting hafði orðið á fylgi
annarra flokka frá fyrra mánuði,
samkvæmt könnuninni. Sjálfstæð-
isflokkurinn var með 36,3% fylgi og
Framsóknarflokkurinn með 13,1%
fylgi. Dögun mældist hins vegar
með 3% fylgi, Hægri grænir voru
með 2,6%, Píratar með 2,5% og Sam-
staða með 1,3% fylgi.
Um 13% svarenda í könnuninni
tóku ekki afstöðu eða vildu ekki
gefa hana upp. Um 10% ætluðu að
skila auðu eða ekki að kjósa ef kosið
væri nú til Alþingis.
Ríkisstjórnarflokk-
arnir tapa fylgi
Laugavegi 82,á horni Barónsstígs,
sími 551 4473 - www.lifstykkjabudin.is
Vinsæli
íþróttahaldarinn
frá Abecita er
á 20% afslætti
út þessa viku
Póstsendum út á land
Þúsundir fjölskyldna þurfa mataraðstoð fyrir jólin.
Vörumóttaka alla virka daga kl. 9-17
að Eskihlíð 2-4, 105 Reykjavík.
Söfnunarreikningur 101 - 26 - 66090
Kt. 660903-2590
Fjölskylduhjálp Íslands
Getur þú hjálpað fjölskyldum
í neyð á Íslandi?
Útsalan er hafin
v/Laugalæk • sími 553 3755
Jakkaföt
Stakir jakkar
Stakar buxur
Kakí- og flauelsbuxur
Frakkar
Vetrarúlpur
30%
afsláttur
ÚTSALAN
ER
HAFIN
50%
afsláttur
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/