Morgunblaðið - 03.01.2013, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2013
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Fólk trúir mér ekki þegarég segi að ég sé ekki aðeltast við konu á Íslandi,það skilur ekki hvers
vegna ég fer í öllum mínum fríum
hingað til þessarar köldu eyju
lengst í norðri,“ segir Roland A.
Mores, kennari frá Sviss, sem er svo
heillaður af Íslandi að hann hefur
komið hingað ellefu sinnum und-
anfarin fjögur ár. „Helst af öllu vil
ég vera á Ströndum, þar líður mér
vel og þar hef ég eignast góða vini.
Ég ætlaði að verja áramótunum í
Djúpavík í Reykjarfirði en því mið-
ur var alveg ófært. Allt fór þetta þó
vel því hún Eva Sigurbjörnsdóttir,
vinkona mín og hótelstjóri í Djúpa-
vík, kom suður til Reykjavíkur um
áramótin til að taka við Fálkaorðu,
og hún bauð mér til áramótaveislu
með sínu fólki, sem var mjög gam-
an.“
Trúði vart því sem hann sá
Roland segir það hafa verið al-
gera tilviljun að hann kom til Ís-
lands fyrsta sinni fyrir fjórum árum.
„Ég fór á ferðaskrifstofu til að
kaupa mér farseðil til New York,
sem er ein af mínum uppáhalds-
borgum, en þá vildi svo til að upp-
selt var í flugið. Ég spurði hvort
flug væri til Skotlands, Írlands eða
jafnvel Íslands, því þangað hefði
mig lengi langað og ástæðan var
tónlistarkonan Björk. Laust var í
flug til Íslands og ég keypti ferð
sem innihélt tíu daga hringferð á bíl
um landið. Þetta var að sumarlagi
og ég varð algerlega heillaður. Ég
var alltaf að stoppa til að fara út úr
Meira en lítið ást-
fanginn af Íslandi
Hann hefur komið ellefu sinnum til Íslands frá því hann kom hingað fyrst fyrir
aðeins fjórum árum. Helst vill hann vera norður á Ströndum í fámenninu.
Hann segir erfitt að koma í orð hvað það er sem heillar, en myndirnar hans tjá
það og þær ætlar hann að sýna í sumar í síldarverksmiðjunni í Djúpavík.
Morgunblaðið/Ómar
Vinir Roland með vinkonu sinni Elínu Öglu Briem sem var skólastjóri
Finnbogastaðaskóla þegar hann kom þangað fyrst í heimsókn.
Kyrrð Þessa mynd tók Roland að ferð sinni við Mývatn.
Það er enginn sem segir að nóg sé
komið af bakstri þó helsta bakst-
urshátíðin sé nú að baki. Eftir mikil
veisluhöld og kræsingar er fínt að
baka nú eitthvað dálítið öðruvísi en
fyrir jólin og kannski ekki alveg jafn
sykrað. Trappa sig þannig smám
saman niður. Góðar múffur eru alltaf
góðar nýbakaðar á helgarmorgnum
þegar hægt er að taka því rólega með
te- eða kaffibolla. Appelsínu- og gul-
rótarmúffur eru t.d. tilvaldar sem
slíkur bakstur og má finna uppskrift
að slíku á uppskriftasíðu sem ber það
skemmtilega heiti www.bak-
ingobsession.com. Einnig má þar
finna uppskrift að grófu focaccia
brauði með ólífumauki. Skemmtileg
vefsíða fyrir bakarastubba á öllum
aldri sem vantar nýjar og spennandi
hugmyndir fyrir bökunarástríðuna.
Vefsíðan www.bakingobsession.com
Múffa Gott er að breyta til og prófa nýjungar í múffubakstrinum við og við.
Bökunarástríðan í hámarki
Yfir jól og áramót er nóg að gera hjá
flestum og samverustundir með vin-
um og ættingjum mikilvægastar. Nú
þegar heldur er farið að róast er til-
valið að skella sér í bíó. Af nógu er að
taka þessa dagana í bíóhúsunum og
fínt að trappa sig dálítið niður eftir
veisluhöldin. Enda langar mann oft
að gera eitthvað skemmtilegt og af-
slappað á þessum fyrstu dögum árs-
ins. Hvort heldur sem þig langar til
að sjá listræna, franska ræmu eða
Hollywood-stórmynd ættir þú að
finna eitthvað við þitt hæfi í bíóhús-
unum. Popp og kók og bíó er heilög
þrenning sem klikkar ekki.
Endilega…
…kíkið í
bíóhúsin
AFP
Stórmynd Hobbitinn er vinsæll.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Eva hótelstýra í Djúpavík hefur lengi suðað í Roland um að hann setji
upp ljósmyndasýningu í gömlu síldarverksmiðjunni þar. Nú hefur
hann loks sagt já og vinnur hann að sýningunni sem verður í sumar.
Sýning í síldarverksmiðju
LJÓSMYNDIR ROLANDS Í DJÚPAVÍK Í SUMAR
Gjögur Roland tók þessa mynd af litla þorpinu norður á Ströndum.
• Góðir tekjumöguleikar
• Þekkt vörumerki
• Sveigjanlegur vinnutími
Allar nánari
upplýsingar á
www.avon.is
577 2150
Við leitum af
sölufulltrúum
um land allt
maog í sí