Morgunblaðið - 03.01.2013, Síða 12

Morgunblaðið - 03.01.2013, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2013 G l æ s i b æ | Á l f h e i m u m 7 4 | 1 0 4 R e y k j a v í k | Þ j ó n u s t a á l a n d s b y g g ð i n n i | S í m i 5 6 8 6 8 8 0 | w w w. h e y r n a r t æ k n i . i s Njóttu þess að heyra betur með ósýnilegu heyrnartæki! Intigai eru fyrstu ósýnilegu heyrnartækin frá Oticon. Intigai eru sérsmíðuð og liggja svo djúpt í eyrnagöngunum að enginn mun sjá þau eða átta sig á því að þú sért með heyrnartæki. Intigai eru fullkomlega sjálfvirk og aðlaga sig að því hljóðumhverfi sem þú ert í hverju sinni. Bókaðu tíma í fría heyrnarmælingu í síma 568 6880 og fáðu heyrnartæki til prufu í vikutímaStærð á Intigai í samanburði við kaffibaunir Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Það var ansi lítið sofið, bara vakað yfir þessu. Ég náði að halla mér tvo tíma annan sólarhringinn og þá var hinn maðurinn hérna og svo öfugt,“ segir Sigurður Þ. Gunnarsson sem með félaga sínum hélt dísilvélunum á Þingeyri gangandi fyrir og um áramótin þegar grípa þurfti til va- rafls víða á Vestfjörðum. Orkubú Vestfjarða er með tvær dísilvélar á Þingeyri. Samband við virkjanir og raforkukerfi landsins rofnaði í óveðrinu sem gekk yfir landið. Sigurður þurfi að ræsa fyrri vélina klukkan rúmlega hálf átta á laugardagsmorgni og vélarnar tvær voru til klukkan tíu á gamlárskvöld. „Við reyndum að halda þessu í botn- keyrslu svo að sem flestir fengju rafmagn. Það er þó ekki alltaf hægt því þá fer allt á yfirhitun og slær út. Við héldum annarri vélinni þó í 700 kílóvöttum mestallan tímann, keyrð- um hana sólarhringinn út, greyið,“ segir Sigurður. Til þess að skammta rafmagn þurftu Sigurður og samstarfsmaður hans að hlaupa reglulega út í spennistöðvar til að taka út lág- spennurofa fyrir hluta af götum og fara svo aftur eftir tvo tíma til að setja þær inn aftur og taka aðrar götur út á móti. Margir nota rafmagn til kynd- ingar á Þingeyri og því mikilvægt að taka rafmagnið ekki af lengi í einu. Þá segir hann að ekki hafi ver- ið miklir kuldar og það hafi hjálpað mikið til. Sigurður telur að keyrsla dísil- rafstöðvanna á Þingeyri hafi gengið nokkuð vel, miðað við aðstæður. Um tíma, þegar best gekk, sáu dísilvél- arnar á Þingeyri öllu þorpinu fyrir rafmagni auk sveitanna í Dýrafirði og Önundarfirði og Hrafnseyri og fleiri bæjum í Arnarfirði. „Maður er farinn að læra þetta, eftir tæp fjöru- tíu ár,“ segir Sigurður. Sigmundur Þórðarson húsasmíða- meistari segir að Þingeyringar hafi átt góð áramót. „Veðrið var ekkert verra en oft í gamla daga. Norð- austanáttarinnar gætir ekki eins mikið hér og í hinum bæjunum,“ segir Sigmundur og tekur fram að lífið hafi gengið sinn vanagang. Jólaball hafi verið haldið á milli jóla og nýárs og brenna á gamlárskvöld. Sundlaugin lokuð Hann segir að starfsmenn Orku- búsins hafi staðið vaktina vel svo jólaljósin hafi lýst upp þorpið og verktakar sem annast snjóruðning hafi sömuleiðis séð til þess að allar götur voru hreinsaðar. Aðeins hafi verið ófærð einn dag. Ekki hafi ver- ið vit í að aka um vegna þess hversu mikið snjóaði. „Það eina sem vantaði var að komast í sund en ekki var um það að ræða því sundlaugin er hituð með varaafli,“ segir Sigmundur. Dísilvélarnar keyrðar í botni  Þeir sem sjá um dísilstöðvarnar fara í spennistöðvar á tveggja tíma fresti til að skammta rafmagn  Maður er farinn að læra þetta eftir tæp fjörutíu ár, segir Sigurður Þ. Gunnarsson á Þingeyri Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Snjór Óveður með snjókomu setti líf margra Vestfirðinga úr skorðum. „Fólk sem er fætt og uppalið á þess- um stöðum, eða hefur búið hér lengi, þekkir mikla snjóavetur. Við erum róleg yfir þessu. Það þýðir ekki að kvarta og kveina, við ráðum ekki við veðrið. Allt hefst þetta að lokum,“ segir Kolbrún Benediktsdóttir, þjónustufulltrúi hjá upplýsingaþjón- ustu Vegagerðarinnar, 1777, á Ísa- firði. Mikið hefur verið að gera hjá starfsfólki upplýsingaþjónustunnar frá því fyrir áramót, vegna óveðurs og ófærðar, sérstaklega á Vest- fjörðum og Norðurlandi. Kolbrún segir að aðalverkefnið hafi verið að svara í upplýsingasímann, 1777, og veita vegfarendum upplýsingar. Einnig að koma sem réttustum upp- lýsingum um færð og veður á vegum landsins til fjölmiðla. Í gær var búið að opna flesta vegi á Norðurlandi og á milli helstu þétt- býlisstaða á Vestfjörðum og unnið við að moka aðalleiðir sem tengja Vestfirði við þjóðvegakerfið. Mikið verk er að moka veginn um Ísafjarð- ardjúp en Kolbrún taldi að hann myndi opnast fyrir kvöldið. Verra útlit var með Vestfjarðaveg um Barðastrandarsýslur. Þar bilaði moksturstæki og dró það úr fram- gangi verksins. Baldur sigldi í gær tvær ferðir á milli Brjánslækjar og Stykkishólms. Vegna snjóflóða á Hvilftarhlíð var Flateyri án vegarsambands frá föstudagskvöldi og fram á nýársdag. Björn R. Gunnarsson, formaður björgunarsveitarinnar Sæbjargar, segir að í nógu hafi verið að snúast hjá sveitarmönnunum við að aðstoða fólk. Snjó hafi verið mokað af þökum húsa og frá dyrum. Þeir sem þurftu að fara til Ísa- fjarðar á gamlársdag fengu far með fiskibáti sem sigldi frá Flateyri að bryggjunni í Holti í Önundarfirði. Raunar stóð björgunarsveitin fyrir þremur ferðum því einnig var siglt með sjúkling í veg fyrir sjúkrabíl sem beið í Holti og með rafstöð. Þá var mikil ófærð innanbæjar á Flateyri en byrjað að moka á gaml- ársdag. „Það fór bara vel um okkur og ég var raunar mestallan tímann úti að vinna í einhverjum málum,“ segir Björn. helgi@mbl.is Þýðir ekki að kvarta og kveina yfir veðri  Vegir opnaðir á Vestfjörðum Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Snjóflóðavakt Veðurstofunnar ákvað undir kvöldmat í gær að rýma reit 9 á Ísafirði og bæina Veðrará og Fremri Breiðadal í Önundarfirði. „Þetta er með langvinnari snjó- flóðahrinum en þetta gerist alltaf á nokkurra ára fresti. Veðrið gekk ekki almennilega niður til að hægt væri að aflétta rýmingunum. Við ákváðum að bíða eftir að það hlýnaði áður en við afléttum rýmingum af síðustu húsun- um,“ segir Harpa Grímsdóttir, úti- bússtjóri Snjóflóðaseturs Veðurstof- unnar. Í gærmorgun var ákveðið að aflétta hættustigi vegna snjóflóða á nokkrum stöðum á Vestfjörðum. Hættustigi var fyrst lýst yfir fimmtudagsmorguninn 27. desember. Í heildina þurftu um áttatíu manns að yfirgefa heimili sín, langflestir á Pat- reksfirði, eða um fimmtíu manns. Alls þurfti að rýma tæplega þrjátíu hús. Harpa segir ómögulegt að segja til um hversu mörg snjóflóð hafi fallið frá því hættustiginu var lýst yfir. Það sé þó ljóst að tugir eða hundruð flóða hafi fallið. „Við eigum aldrei eftir að vita um öll flóðin sem féllu. Mörg féllu utan byggða og það eru lítil eða engin um- merki eftir flóðin sem féllu snemma,“ segir hún. Ekki urðu miklar skemmd- ir vegna snjóflóðanna. Að sögn Hörpu skemmdust girðingar einhvers stað- ar, dráttarvél valt og annað hreyfði gám. Mörg fóru yfir vegi en það olli yfirleitt ekki skemmdum á þeim. Tjónið felist í því að vegirnir lokist og það geti verið erfitt og seinvirkt að moka í gegnum þykk flóð. Harpa beindi því til þeirra sem hyggja á ferðir á fjöll að fara að öllu með gát. Snjórinn sé enn ekki orðinn stöðugur og geta þeir sem eru þar á ferð sett snjóflóð af stað. Litlar skemmdir af völdum snjóflóðanna Morgunblaðið/Halldór Sveinbj. Fönn Lýst var yfir hættustigi vegna snjóflóða á Vestfjörðum á fimmtudag fyrir viku en þar snjóaði mikið auk þess sem ofviðri gerði um helgina.  Hús voru rýmd á Ísafirði og í Önundarfirði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.