Morgunblaðið - 03.01.2013, Page 16
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Eigendur Striksins ætla að opna
nýjan veitingastað í bænum ein-
hvern tíma fyrir páska. Hann verð-
ur til húsa við Strandgötuna þar
sem skemmtistaðurinn 600 var til
húsa og þar áður Vélsmiðjan og
Pollurinn.
Stefnt er að því að þetta verði
fjölskylduveitingastaður, eins og
það er kallað; þar sem allir eiga að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Hann verður opinn alla sjö daga
vikunnar.
Eigendur Striksins eru Sig-
urður Jóhannsson, Heba Finns-
dóttir og Róbert Häsler. Þau eiga
einnig pitsustaðinn Bryggjuna og
ekki er loku fyrir það skotið að
hann flytjist úr miðbænum í Gránu-
félagshúsin við Strandgötu, þar
sem nýi staðurinn verður. Rétt er
að taka fram að Strikið verður að
sjálfsögðu rekið áfram í óbreyttri
mynd.
Sögusagnir hafa verið á kreiki
um að Hamborgarafabrikkan opni
brátt veitingahús á Akureyri en
ekkert er ákveðið í þeim efnum.
Eigendurnir eru þó að hugsa mál-
ið …
Mikið verður um dýrðir í KA-
heimilinu laugardagskvöldið 12.
jan-úar. Þá verður haldið upp á 85
ára afmæli Knattspyrnufélags Ak-
ureyrar með veglegri veislu. Af-
mælið er þriðjudaginn 8. jan. Vert
er að geta þess að ræðumaður
kvöldsins verður Logi Már Ein-
arsson, arkitekt og dansari í þeirri
merku hljómsveit Skriðjöklunum.
Aðstæður gerast varla betri í
Hlíðarfjalli en skíðamönnum stóð til
boða í gær; logn, frábært færi og
hitastigið við frostmark. Opið var til
klukkan 19 eins og alla virka daga.
Töluverður fjöldi fólks var á skíðum
eða brettum en pláss fyrir talsvert
fleiri …
Þrettándagleði íþróttafélags-
ins Þórs og Akureyrarstofu verður
að þessu sinni á planinu við Hamar,
félagsheimili Þórs. Samkoman hefst
kl. 16 á sunnudaginn, 6. janúar.
Fastagestir verða á sínum stað;
jólasveinar, álfakóngur og drottn-
ing hans, tröll og púkar. Þá syngur
Óskar Pétursson nokkur lög, sem
og Heimir Bjarni Ingimarsson og
Móeiður Guðmundsdóttir. Ókeypis
er inn á gleðina en heitt kakó, kaffi
og vöfflur með rjóma verða seldar í
Hamri.
Tvennir söngtónleikar verða í
Hofi um næstu helgi. Á laugardags-
kvöldið nýárstónleikar Garðars
Thórs Cortes og Vínartónleikar
kvennakórsins Emblu á sunnudag.
Gestir Garðars verða faðir hans
og nafni, Valgerður Guðnadóttir og
söngflokkurinn Norrington.
Vínartónleikar Emblu verða í
Hömrum í Hofi, á sunnudaginn kl.
17.00. Einsöngvarar eru óperettu-
söngvararnir Alda Ingibergsdóttir
og Haukur Steinbergsson. Stjórn-
andi kórsins er Roar Kvam.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Dásemd Aðstæður voru góðar í Hlíðarfjalli í gær, frábært færi og blíðviðri. Myndin er tekin við Strýtu undir kvöld.
Nýr veitingastaður
og gamla, góða fjallið
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2013
Lyftarar og staflarar í yfir 600 útgáfum
EINSTAKT - hillulyftari sem getur líka unnið úti
▪ Rafdrifnir brettatjakkar með eða án palls. Allt að 5.350 mm lyftihæð
og 3.000 kg lyftigeta
▪ Tínslu- og þrönggangalyftarar með allt að 14.250 mm lyftihæð
▪ Rafmagns- og dísellyftarar með allt að 9.000 kg lyftigetu
▪ Hillulyftarar með allt að 12.020 mm lyftihæð
Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is
Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki
Sérsmíðaðar innréttingar
Hjá GKS færð þú faglega ráðgjöf er varðar
sérsmíði á innréttingum.
Við bjóðum framúrskarandi þjónustu og gæðasmíði
alla leið inn á þitt heimili.
„Við bíðum eftir því að fá nið-
urstöðu frá dómkvöddum mats-
manni varðandi það sem kemur
fram í krufningarskýrslunni,“ segir
Ólafur Helgi Kjartansson, sýslu-
maður á Selfossi, spurður út í stöðu
rannsóknar lögreglunnar á Selfossi
á andláti karlmanns í fangaklefa í
fangelsinu á Litla-Hrauni í maí á
síðasta ári.
Að sögn Ólafs Helga barst lög-
reglunni krufningarskýrslan rétt
fyrir jól en hann vildi þó ekki tjá sig
um efni hennar þegar blaðamaður
hafði samband við hann í gær. Að-
spurður segir Ólafur Helgi að málið
sé ennþá rannsakað sem grunur um
manndráp.
Þann 17. maí síðastliðinn fannst
Sigurður Hólm Sigurðarson látinn í
fangaklefa í fangelsinu á Litla-
Hrauni en hann hafði þá verið inn-
an múra fangelsisins í einn sólar-
hring. Bráðabirgðaniðurstöður
krufningar bentu til þess að Sig-
urður, sem var 49 ára gamall, hefði
látist vegna innvortis blæðinga.
Tveir refsifangar eru grunaðir um
að hafa veitt manninum áverka sem
leiddu hann til dauða.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Litla-Hraun Þann 17. maí sl. fannst fangi látinn í fangaklefa á Litla-Hrauni.
Bíða skýrslu dóm-
kvadds matsmanns