Morgunblaðið - 03.01.2013, Page 22
BAKSVIÐ
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Yfirmenn nokkurra minni fjármála-
fyrirtækja sem Morgunblaðið ræddi
við kvarta yfir því að stóru viðskipta-
bankarnir þrír noti ítök sín yfir
skuldsettum fyrirtækjum til að
tryggja fyrirtækjaráðgjöfum sínum
verkefni. Þóknanir af fyrirtækjaráð-
gjöf geta verið háar. Málið er til rann-
sóknar hjá Samkeppniseftirlitinu.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins, segir í sam-
tali við Morgunblaðið að hann vonist
til þess að lokið verði við skýrslu
seinni partinn í janúar um það hvort
ítök viðskiptabankanna í skuldsett-
um fyrirtækjum hafi leitt til skekktr-
ar samkeppnisstöðu í fyrirtækjaráð-
gjöf.
Finnst þetta ósanngjarnt
Starfsmenn fjármálafyrirtækja
segja í samtali við Morgunblaðið að
yfirskuldsett fyrirtæki þurfi á endur-
skipulagningu lána að halda. En til að
fá lánin endurskipulögð, semji við-
skiptabankinn, þ.e. aðalánveitandinn,
um að hann muni sinna ýmsum ráð-
gjafarverkefnum fyrir fyrirtækið,
t.d. skuldabréfaútboð, selja fyrirtæk-
ið, einingar þess eða annast skrán-
ingu á hlutabréfamarkað. Bankarnir
séu þarna með óeðlilega stöðu gagn-
vart sínum viðskiptavinum, sem eigi
ekki margra kosta völ. Viðmælandi
blaðsins segir að það hljóti að vera
hagsmunir hluthafa þessara fyrir- tækja, sem verið sé að endurskipu-
leggja, að fá að bjóða út þessi dýru
ráðgjafarverkefni, þ.e. að viðskipta-
bankarnir séu ekki einir um hituna.
Annar viðmælandi nefnir að
Landsbankinn hafi nýtt sér sinn
stóra efnahagsreikning og sölutryggt
skuldabréfaútgáfu Hörpu og sölu á
hlutabréfum TM fyrir Stoðir (áður
FL Group). Stóru viðskiptabankarn-
ir séu þeir einu sem geti sölutryggt
slík verkefni. Stóru bankarnir þrír
séu auk þess markaðsráðandi á við-
skiptabankamarkaði. Og geti því
samhliða tilboðum fyrirtækjaráðgjöf
lagt fram heildstæð tilboð í banka-
þjónustu, þ.e. með lánafyrir-
greiðslum og öðru slíku. Minni fjár-
málafyrirtæki sinni ekki
hefðbundinni viðskiptabankaþjón-
ustu og geti því ekki keppt á þeim
vettvangi.
Það er þó ekkert nýtt að viðskipta-
bankarnir bjóði upp á heildstæða
pakka. Í uppsveiflunni, þegar mikið
var um skuldsettar yfirtökur á fyr-
irtækjum, var þetta gert í enn meira
mæli en nú. Viðmælandi blaðsins seg-
ir að það sem hafi breyst, sé að nú séu
mun fleiri fyrirtæki sem bjóði upp á
fyrirtækjaráðgjöf, en það hafi áður
hafi það fyrst og fremst verið á hendi
viðskiptabankanna.
Minni keppinautar
ósáttir við bankana
Samkeppniseftirlitið lýkur rannsókn í lok mánaðarins
Baráttan um viðskiptin
» Minni fyrirtækjum þykir bar-
áttan við stóru bankana ósann-
gjörn. Yfirskuldsett fyrirtæki
semji við viðskiptabankann
sinn um önnur ráðgjafarverk-
efni.
» Samkeppniseftirlitið stefnir
á að birta skýrslu í lok janúar
um hvort ítök viðskiptabank-
anna í skuldsettum fyr-
irtækjum hafi leitt til skekktrar
samkeppnisstöðu í ráðgjöf.
Morgunblaðið/Golli
Háar fjárhæðir Fyrirtækjaráðgjöf getur verið dýr. Stjórnendur minni fjár-
málafyrirtækja eru margir hverjir ósáttir við stóru bankana.
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2013
STUTTAR FRÉTTIR
● Tekjur spilavíta í
Macau í Kína jukust
um 19,6% sé horft
til desember síð-
astliðins og veltan
borin saman við
sama mánuð fyrir
ári. Tekjurnar námu
3,5 milljörðum doll-
ara sem er met.
Það gerir um 448
milljarða króna.
Þetta kemur fram í frétt Financial Times.
Milli ára jókst veltan í Macua um
13,5% í 38 milljarða dollara fyrir árið
2012.
Macau er mekka spilavíta, það er eini
staðurinn í Kína þar sem spilavíti eru
lögleg og er starfsemin þar mun um-
fangsmeiri en í Las Vegas í Bandaríkj-
unum.
Ekki eru til tölur yfir spilagleðina í Las
Vegas fyrir desembermánuð, en sé horft
til síðastliðins októbermánaðar námu
tekjurnar þar 980 milljónum dollara en
þær námu 3,45 milljörðum í Macau á
sama tíma.
Tekjur aukast í
spilavítum Macau í Kína
Menn að spila fjár-
hættuspil í Macau.
Seðlabanki Íslands átti viðskipti fyr-
ir um sex milljónir evra, ríflega
milljarð króna, til þess að vinna
gegn hraðri veikingu krónunnar
milli jóla og nýárs. Þetta er í fyrsta
skipti sem hann beitir inngripum á
markaði síðan 6. mars í fyrra. Krón-
an hefur ekki verið veikari í tæplega
tvö ár. Þetta kom fram í frétt Stöðv-
ar 2 í gær.
Á dögunum milli jóla og nýárs
voru lífleg viðskipti á milli-
bankamarkaði, sem leiddu til þess að
krónan veiktist um tæplega 3%á
fimm viðskiptadögum á fyrrnefndu
tímabili.
Már Guðmundsson seðla-
bankastjóri segir við Stöð 2 að
ákveðið hafi verið að eiga þessi við-
skipti þar sem um skammtíma-
aðstæður á markaði hafi verið að
ræða. Hann segir krónuna vera und-
ir þrýstingi vegna gjalddaga á lán-
um fyrirtækja og sveitarfélaga sem
ekki geti endurfjármagnað skuldir í
erlendri mynt og þurfi því að greiða
upp háa gjalddaga. Sú staða muni
vara eitthvað áfram, en erfitt sé að
segja til um hvort krónan muni
styrkja eða veikjast á næstunni.
Morgunblaðið/Kristinn
Krónan lækkaði Seðlabankastjóri
greip til sinna ráða við gengisfall.
Seðlabank-
inn greip inn
í viðskipti
Gerðist síðast
í mars í fyrra
!"# $% " &'( )* '$*
+,-.,-
,/-.01
+,1./2
,,.233
,4.//0
+1.-+
+41.0
+.05+4
+12.1,
+53.24
+,-.2-
,/-.11
+,1.04
,,.520
,4./-,
+1.-53
+41.-1
+.0525
+15.2
+51
,4+.5545
+,-.3-
,/3.01
+,1.3+
,,.-,
,4.+0
+1.3,5
+0/.+3
+.0511
+1-./3
+51.0-
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
DREIFARAR • SNJÓTENNUR • SNJÓBLÁSARAR • SLITBLÖÐ
A. Wendel ehf | Tangarhöfða 1 | 110 Reykjavík | Sími 551 5464 | wendel.is
Tæki til
vetrarþjónustu
Stofnað 1957
Námskeið til löggildingar vigtarmanna verður haldin hjá
Neytendastofu, Borgartúni 21, dagana 14., 15. og 16. janúar
2013.
Skráning á námskeiðin fer fram á heimasíðu Neytendastofu,
www.neytendastofa.is, undir hlekknum „Skráning á
námskeið “ (ekki þörf á innskráningu) eða undir Mælifræði-
svið.
Athygli er vakin á því að gerðar eru kröfur um íslensku-
kunnáttu þar sem öll kennsla fer fram á íslensku - það gildir
einnig um skriflegar spurningar á prófi og svör við þeim.
Löggildingar vigtarmanna gilda í 10 ár frá útgáfu skírteina.
Allar nánari upplýsingar, svo og aðstoð við skráningu
þátttakenda, eru á heimasíðu Neytendastofu og í síma 510
1100.
Borgartúni 21 · 105 Reykjavik · Sími 510 1100 · Bréfasími 510 1101
postur@neytendastofa.is · www.neytendastofa.is
VIGTARMENN