Morgunblaðið - 03.01.2013, Side 39
MINNINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2013
✝ Kristján Guð-mundsson var
fæddur í Nesi við
Stykkishólm 30.
mars 1928. Hann
andaðist á Hjúkr-
unarheimilinu Sól-
túni aðfaranótt 30.
desember 2012.
Foreldrar hans
voru hjónin Guð-
mundur Finnsson,
f. 1888, d. 1971,
bóndi og verkamaður, og Hall-
dóra Ísleifsdóttir, f. 1900, d.
1991, húsmóðir. Systkini Krist-
jáns eru Lára Guðmundsdóttir,
f. 1929, Finnur Guðmundsson f.
1933, d. 1935, Sighvatur Guð-
mundsson, f. 1936, d. 1957 og
Marta Magnúsdóttir uppeld-
issystir, f. 1938.
Kristján kvæntist eftirlifandi
eiginkonu sinni, Ragnheiði
Hjálmtýsdóttur, húsmóður, f.
1925 í Villingadal í Haukadals-
hreppi, Dalasýslu, árið 1959.
Börn Kristjáns og Ragnheið-
prófum 1953. Hann byrjaði ung-
ur að vinna til sjós og lands, að-
eins 10 ára gamall fékk hann að
vinna með afa sínum við breiðslu
á saltfiski til þurrkunar.
Kristján stundaði sjómennsku
á sínum yngri árum, var háseti,
stýrimaður og skipstjóri á hin-
um ýmsu bátum og togurum.
Árið 1954 ákveður Kristján
smíði á nýjum bát frá skipa-
smíðastöð í Esbjerg í Dan-
mörku. Hann kemur með nýja
bátinn Tjald SH heim til Íslands
1956, byrjar að gera út frá
Stykkishólmi en flyst svo út í Rif
árið 1959 og gerir út þaðan.
Hann stofnar fiskverkun á Rifi
og rekur fiskverkun og útgerð
þar í 40 ár, eða þar til hann
hættir störfum og synir hans
taka við.
Kristján og Ragnheiður voru
meðal þeirra fyrstu sem byggðu
sér hús og hófu búskap á Rifi,
hann var hreppstjóri í Nes-
hreppi utan Ennis í 30 ár, einnig
var hann lóðs við Rifshöfn, um-
boðsmaður Eimskipafélags Ís-
lands og tók þátt í félagsstarfi
Lions.
Útför Kristjáns verður gerð
frá Dómkirkjunni í Reykjavík í
dag, 3. janúar 2012, og hefst at-
höfnin kl. 13.
ar eru: 1) Hjálmar
Þór, f. 1958, kvænt-
ur Lydíu Rafnsdótt-
ur, f. 1960, synir
þeirra eru Fannar,
f. 1983 og Daði, f.
1986. Fannar er
kvæntur Guðnýju
Ösp Ragn-
arsdóttur, f. 1983,
og eiga þau Þiðrik,
f. 2009 og stúlku, f.
2012. Daði er í sam-
búð með Sigrúnu Erlu Sveins-
dóttur, f. 1986, og eiga þau
Hjálmar Þór, f. 2011. 2) Guð-
mundur, f. 1960, var kvæntur
Rakel Steinarsdóttur, f. 1965,
börn þeirra eru Agnes, f. 1990,
Rebekka, f. 1992 og Kristján, f.
1999. 3) Sigurrós, f. 1962, í sam-
búð með Ingvari J. Baldurssyni,
f. 1961.
Kristján gekk í barnaskóla
Stykkishólms og lauk þaðan
unglingaprófi 14 ára, fór síðar í
Skipstjóra- og stýrimannaskól-
ann í Reykjavík og lauk þaðan
Minning mín um minn föður er
góð. Hann var rólegur og yfirveg-
aður maður, fór hægt yfir en
örugglega. Oft fékk ég að fara
með honum og Leifi hafnarstjóra
á Rifi á litla lóðsbátnum þegar
hann þurfti að fara út í flutninga-
skip sem voru að koma í Rifshöfn.
Ég fékk oft í magann þegar hann
þurfti að stökkva í lóðsstigann
sem hékk utan á þessum stóru
skipum, en alltaf gekk þetta vel
hjá þessum öruggu mönnum.
Skipunum var siglt af öryggi inn í
höfnina og við komnir á undan í
land til að taka við spottanum.
Vinnan var alltaf númer eitt hjá
pabba. Hann var með útgerð og
fiskvinnslu á Rifi, hann var um-
boðsmaður Eimskips, hafnarlóðs,
hreppstjóri og neitaði aldrei nein-
um um greiða ef hann var beðinn.
Það var kosið á okkar heimili í ut-
ankjörstaðaatkvæðagreiðslum,
hann gerði skattaskýrslur fyrir þá
sem báðu hann um það. Á neðri
hæðinni heima var oft mikið um
aðkomusjómenn á vertíð og hugs-
uðu þau bæði mamma og pabbi
vel um þá. Okkur systkinunum
var fljótt kennt að við ættum að
hjálpa til og var það góð kennsla
og lífsreynsla fyrir okkur sem
nýttist okkur vel seinna á lífsleið-
inni. Pabbi var orðheldinn maður
og vildu menn eiga viðskipti við
hann. Hans orð stóðu alltaf, orð
og handaband, samningur kom-
inn á og þetta vissu allir. Sjávar-
útvegur var líf hans og yndi. Ég
spurði hann nokkrum árum eftir
að ég kom heim úr námi hvernig
honum hefði dottið í hug að sam-
þykkja kvótakerfi. „Við sáum
bara enga aðra leið.“ Þetta var
pabbi. Skýrmæltur og ekkert að
flækja málið. Hann sagði mér oft
sögur af mikilli sóun í sjávarút-
vegi, hann var á síðutogurunum
við Grænland, síldinni í Hvalfirði
og fyrir norðan land. Hann sá að
með skynsamlegu fiskiveiði-
stjórnarkerfi var hægt að búa til
mikil verðmæti fyrir land og þjóð.
Hann sagði mér sögur af aðbún-
aði sjómanna þegar hann var að
byrja til sjós og hvað það var orð-
in mikil breyting til batnaðar
núna á síðustu árum. Hann var
alltaf stoltur af góðum og nýleg-
um skipum, hann vissi hvað það
var mikilvægt fyrir sjómennina
og fyrirtækið. Hann þekkti veð-
urfar og sjólag hér við land og
vissi vel hvað það er þýðingarmik-
ið að við sem þjóð eigum góð og
örugg skip. Pabbi var með salt-
fiskverkun í áratugi og eftir að
hann fór að fara í söluferðir til
okkar saltfisklanda þá lagði hann
enn meiri áherslu á að við værum
alltaf með mestu gæði af fiski sem
völ væri á. Núna á seinni árum var
hann oft farinn að hrista hausinn
yfir hvernig margir aðilar í þjóð-
félaginu töluðu um sjávarútveg-
inn. Í kringum árin 1990 breyttist
tónninn í garðs útvegsmanna og
það bitnaði ekki síst á mönnum
eins og pabba sem höfðu unnið
alla sína ævi í sjávarútvegi, voru
stálheiðarlegir og ráku sín litlu
fjölskyldufyrirtæki af kostgæfni
og natni. Allt í einu voru einhverj-
ir aðilar í Reykjavík sem höfðu
aldrei komið nálægt sjávarútvegi
farnir að uppnefna þessa menn.
Núna síðustu árin bjuggu þau
pabbi og mamma hér í Reykjavík
og var pabbi alltaf tilbúinn að
hjálpa mínum börnum, hvenær
sem var. Var það mikil gæfa fyrir
börnin að fá að kynnast afa sínum
svona vel. Erum við öll þakklát
fyrir það. Mamma var hans stoð
og stytta í lífinu og hún og Sig-
urrós systir hugsuðu vel um hann
eftir að hann varð lasinn. Eftir
stendur minning um góðan og
traustan föður.
Guðmundur Kristjánsson.
Elsku Kiddi.
Ósköp verða orðin mín
eitthvað lítils virði.
Þó hugsa ég, bróðir, hlýtt til þín
héðan úr Skagafirði.
Margt í æsku á móti blés
en mitt var lánið stóra.
Að send ég ung var út í Nes
þar enginn lærði að slóra.
Það er fátt sem Guð minn góður
gerði betra fyrir mig.
Að eignast slíkan afbragðs bróður,
elsku Kiddi, eins og þig.
Snemma fór að laða og lokka
og lengi vel, ég að því bjó.
Að fá hjá honum Kidda að kokka
og kynnast lífinu á sjó.
Ég held við munum meðan lifi
margar ferðir út á Nes.
Gott var þá að gista í Rifi
er golan hlý af Jökli blés.
Við kveðjum, vinur, klökk ég segi
hvað sem lífið færir mér.
Ég tæpast held að aðrir eigi
annan betri á landi hér.
(Benedikt Benediktsson)
Elsku Ragna mín, Hjálmar,
Gummi, Sigurrós og fjölskyldur.
Megi minningin um góðan dreng
lifa. Innilegar samúðarkveðjur til
ykkar frá fjölskyldunni á Stóra
Vatnsskarði.
Þín fóstursystir,
Marta.
„Hann Kiddi frændi dó í nótt.“
Þannig hljóðaði andlátsfregnin,
sem í reynd kom ekki á óvart.
Kristján Guðmundsson var sonur
Halldóru föðursystur minnar og
Guðmundar bónda í Nesi, Stykk-
ishólmi. Við vorum sem sagt
systkinasynir og heimili foreldra
okkar náin og í sama húsi á annan
áratug eftir að Halldóra og Guð-
mundur fluttu úr Nesi.
Kristján varð ungur skipstjóri
og útgerðarmaður og lét um miðj-
an sjötta áratug síðustu aldar
smíða fyrir sig bát í Danmörku,
tæplega sextíu tonna bát sem
hann nefndi Tjald. Ég á í huga
mínum skýra mynd af Kristjáni
þar sem hann situr við borð í her-
bergi sem hann hafði til afnota í
íbúð foreldra minna. Fyrstu vetr-
arvertíð hans á Tjaldinum var lok-
ið og komið að uppgjöri við skips-
höfnina. Þarna sat hann og taldi
peninga í umslög hvers skipverj-
ans á fætur öðrum. Seðlahaugur-
inn í upphafi var svo stór í mínum
augum að ég spurði hvort hann
hefði flutt þá í hjólbörum úr spari-
sjóðnum. Um leið og hann svaraði
mér kom þetta sérstaka bros, höf-
uðið hallaði fram og til hægri.
Þetta hef ég margoft séð síðan og
fundið hve mjög hann þá líktist
föður sínum Guðmundi í Nesi.
Á þessum árum var ekki mikið
um peninga á heimilum daglauna-
manna, jafnvel dæmi um að
vinnuveitandinn notaði eigin seðla
eða launþegar tækju út megin-
hluta launa sinna í versluninni.
Því var þetta mér mikil upplifun
að sjá hjólbörufarm af peningum
á borðinu fyrir framan frænda
minn og færði mér sannleikann
um hvaðan peningarnir komu á
Íslandi. Hefur nokkur breyting
orðið á því?
En Kristján gerði ekki lengi út
frá Stykkishólmi því hann flutti út
í Rif og gerði Tjaldinn út þaðan og
hóf að verka sinn fisk sjálfur í eig-
in fiskhúsi auk þess að kaupa fisk
af öðrum til verkunar. Enn gerir
fjölskyldan út bát frá Rifi með
nafninu Tjaldur. Næsta kynslóð
hefur tekið við keflinu, Hjálmar í
Rifi með útgerð og verkun, Guð-
mundur og Sigurrós í Reykjavík
þaðan sem gerð eru út vinnslu-
skip.
Eftir að Kristján var fluttur út í
Rif stofnaði hann heimili með eft-
irlifandi eiginkonu sinni, Ragn-
heiði Hjálmtýsdóttur. Eftir
starfslok þeirra fyrir vestan
bjuggu þau sér heimili við Skúla-
götuna í Reykjavík.
Um leið og ég kveð frænda
minn Kristján og bið honum
blessunar á nýjum miðum send-
um við Jonný okkar innilegustu
samúðarkveðjur til Ragnheiðar
og barna, tengdabarna og afkom-
enda allra.
Finnur Jónsson.
Kristján Guðmundsson einn af
fyrstu landnemunum í Rifi er fall-
inn frá. Hann flutti hingað með
fjölskyldu sína 1959 og byggði eitt
af fyrstu íbúðarhúsunum hér. Á
þessum árum var útgerð og upp-
bygging að hefjast í Rifi. Kristján
kom frá Stykkishólmi en þar hafði
hann hafið útgerð á Tjaldi SH 175
sem hann var skipstjóri á. Honum
var ljóst að hér gæti hann átt
framtíð fyrir sér. Miklu munaði að
frá Rifi var miklu styttra á hin
gjöfulu fiskimið Breiðafjarðar en
frá Stykkishólmi. Ekki var þess
langt að bíða að Kristján byggði
upp fiskverkun jafnhliða því að út-
gerð hans styrktist stöðugt. Til
fjölda ára komu á vertíðar bátar
frá Hrísey og öðrum útgerðar-
stöðum, aðallega norðanlands,
sem lögðu upp afla sinn hjá Krist-
jáni enda var hann orðlagður fyrir
orðheldni og traust viðskipti.
Fyrirtæki Kristjáns óx og
dafnaði í gegnum árin. Verkunar-
húsin stækkuðu og bátaflotinn
einnig. Hér var á ferð maður sem
naut trausts og nýtti afl sitt og
getu til farsællar uppbyggingar
og lagði um leið grunn að tilveru
fyrirtækja sem eru í dag meðal
öflugustu sjávarútvegsfyrirtækja
á landinu. Kristján átti því láni að
fagna að börnin hans tóku þátt í
uppbyggingunni og stýra þessum
fyrirtækjum í dag og halda þann-
ig á vissan hátt merki hans á lofti.
Það fer ekki hjá því þegar
traustur og efnilegur ungur mað-
ur kemur í byggðarlag eins og
Neshreppur utan Ennis var á
þessum tíma að honum eru falin
ýmis trúnaðarstörf. Kristján var
hreppstjóri um ára bil, sat í sveit-
arstjórn og sinnti, eins og áður
sagði, ýmsum trúnaðarstörfum í
sveitarfélaginu og fór það vel úr
hendi.
Kristján var einn af stofnend-
um Lionsklúbbs Nesþinga, sem
var stofnaður 1970, gegndi þar
stjórnunarstörfum og var ötull og
góður félagi. Þar áttum við Krist-
ján gott samstarf frá upphafi og
eru störf hans þar hér með þökk-
uð.
Ég átti því láni að fagna að eiga
mikil og góð samskipti við Krist-
ján. Hann fól mér að sjá um bygg-
ingu á fiskverkunarhúsunum sín-
um og árið 1974 nýju íbúðarhúsi
að Háarifi 53. Einnig þurfti í þá
daga oft á smið að halda um borð í
bátunum þegar skipt var um veið-
arfæri á vetrarvertíðum. Þegar
við fjölskyldan eignuðumst hand-
færabát var aflanum landað hjá
Fiskverkun Kristjáns Guðmunds-
sonar. Í öllum okkar viðskiptum
bar aldrei skugga á og erum við
fjölskyldan þakklát fyrir það.
Að leiðarlokum viljum við
þakka Kristjáni samfylgdina og
hans mikla uppbyggingarstarf
hér í sveitarfélaginu.
Ragnheiði og börnum þeirra
hjóna Hjálmari, Guðmundi, Sig-
urrósu og fjölskyldum þeirra
sendum við okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Smári og Auður.
Á tímamótum rifjast upp minn-
ingar. Þær eru góðar sem tengj-
ast þér og þær hef ég og mun
varðveita í huga mínum.
Ekki kynntist ég stráknum
Kidda í Nesi sem ólst upp í Stykk-
ishólmi á kreppuárunum, eða sjó-
manninum, skipstjóranum fyrst á
skipum annarra og síðar á eigin
bát (Tjaldinum), útgerðamannin-
um og fiskverkandanum. Okkar
kynni hófust þegar þú varst að
draga þig út úr daglegum rekstri
sjávarútvegsfyrirtækis sem þú
hafðir byggt upp með dugnaði
ásamt konu þinni og börnum. Þar
kynntist ég góðum manni.
Við kveðjum í dag hina hljóðu
hvunndagshetju, sem lagði sitt af
mörkum til að byggja upp sam-
félagið. Ef við hefðum fleiri eins
og þig og konu þína Ragnheiði þá
væri okkar þjóð stödd á öðrum
stað en hún er um þessar mundir.
Þess vegna kemur upp í hugann
texti dægurlags: „Það þarf fólk
eins og þig fyrir fólk eins og
mig …“. Það eru margir sem
vinna verk sín af alúð og í hljóði án
athygli fjölmiðla eða viðurkenn-
ingar frá samfélaginu. Þetta
finnst mér vera hvunndagshetjur,
þú varst ein af þeim.
Stundum sárnar manni, fyrir
þína hönd, hvernig samfélagið tal-
ar og metur mann eins og þig.
Hvernig starfsstéttir þínar, sjó-
menn og útgerðarmenn, eru tal-
aðar niður. Þegar við ættum frek-
ar að líta upp til þeirra. Þú lagðir
stund á sjóinn og byggðir upp far-
sælt sjávarútvegsfyrirtæki þar
sem drifkraftur var lífsbjörgin en
ekki gróðavon. Skólinn sem þú
gekkst í, Stýrimannaskólinn í
Reykjavík, er ekki lengur til,
hann sameinaðist öðrum skóla og
fékk nýtt nafn án tengingar við
sjóinn. Þetta er ein birtingar-
mynd á virðingu eða öllu heldur
virðingarleysi sem við sýnum
þeim sem stunda sjóinn. Virðing
gagnvart fiskveiðum og störfum
tengdum þeim mætti vera meiri í
þjóðfélaginu. Umræður á Alþingi
um nýtingu auðlindarinnar virð-
ast mér stuðla að óeiningu meðal
þjóðarinnar og í einhverjum til-
vikum er farið léttúðugum orðum
um þetta mikilvæga fjöregg Ís-
lendinga. Þessu þarf af breyta.
Megi þingmenn bera gæfu til að
finna farsæla lausn á stjórn fisk-
veiða í framtíðinni.
Iðjusemi var ein af dyggðum
þínum, væntanlega í blóð borin.
Minnisstætt var að sjá ykkur
hjónin hnýta öngla á tauma við
eldhúsborðið ykkar á Rifi, þegar
þið voruð komin á aldur sem við
nefnum ellilífeyrisaldur. Hvötin
að leggja sitt af mörkum var alltaf
til staðar. Lyktin af bókunum sem
þið gáfuð mér mun minna mig á
þessa dyggð. Úrræðasemi þín
sást einnig í berjabrekkunum,
þegar við sem höfðum úthald
gengum upp brekkurnar í von um
að finna stærri ber undir þú hag
þínum við góða berjaþúfu og þeg-
ar upp var staðið var þinn fengur
drjúgur og ekki síðri en okkar
sem þeystumst um berjasvæðið.
Það var friðsæld yfir þér þegar
þú kvaddir þennan heim. Mér
finnst að þú hafir verið sáttur við
farinn veg. Eftir að hafa kynnst
heilbrigðiskerfinu síðustu ár í
gegnum veikindi þín, þá sá ég með
eigin augum hvað við eigum mikið
af góðu og færu starfsfólki, þótt
starfsskilyrði séu stundum erfið
og kom mér í einhverjum tilvikum
spánskt fyrir sjónir.
Mannkosti þína sé ég í börnum
þínum og væntanlega hafa þau
lært af þér með því að umgangast
þig og starfa með þér. Ég mun
minnast þín sem góðs manns, þú
talaðir vel um fólk, hafðir gaman
af að segja sögur og varst þá
stundum sposkur og glettinn á
svip. Þú lést verkin tala en sleppt-
ir dægurþrasi um pólitík og trú-
mál. Vonandi hef ég lært af þér.
Þakka þér fyrir allt.
Ingvar J. Baldursson.
Kristján Guðmundsson var au-
fúsugestur á skrifstofu Brims
hvort sem hann leit við í miklum
önnum eða þegar rólegra var. Það
birti yfir á einhvern hóglegan
hátt. Hann kom til að spjalla um
hin ýmsu skip sem hann sá í höfn-
inni, lesa nýjustu blöð tengd út-
gerð og sjósókn og rifja upp
gamla tíð tengda sjónum og salt-
fisknum. Þekking hans var örugg
og samhengið við afkomubaráttu
fólksins þekkti hann einnig vel og
talaði um af virðingu þess sem
hana þekkir vel. Þetta gerði
Kristján reglulega þar til heilsan
tók af honum völdin og lokaði dyr-
unum að þeirri þekku ánægju sem
fylgdi nærveru hans. Umfram allt
var áhugi hans á viðmælendum
hans og ljúflyndi hans í garð
þeirra hin óhagganlega birta.
Hann deildi sjálfum sér og sögu
sinni af þeim þokka sem ljúflynt
og reynt fólk gerir öðrum betur.
Nærvera hans var eins og góðilm-
ur sem skynjunin festir í geymd
sinni, gleymir aldrei þó ekki rati
hún á orðin sem gætu dregið upp
verðskuldaða mynd af manninum.
Við biðjum góðan Guð að
blessa minningu Kristjáns Guð-
mundssonar og líkna þeim sem
lifa hann og næst honum standa
um leið og við þökkum hlut hans
og framlag til daglegra starfa
okkar og starfsanda.
Fyrir hönd starfsfólks á skrif-
stofu Brims,
Gunnbjörg Óladóttir.
Kristján
Guðmundsson
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
STURLA JÓNSSON,
Tungusíðu 14,
Akureyri,
lést á Sjúkrahúsi Akureyrar þriðjudaginn
18. desember.
Útför hans fer fram frá Glerárkirkju föstudaginn 4. janúar
kl. 13.30.
Anna Soffía Þorsteinsdóttir,
Drífa Björk Sturludóttir, Steingrímur Benediktsson,
Atli Þór Sturluson,
Júlíanna Þöll og Benedikt Sturla.
✝
Foreldrar okkar og tengdaforeldrar,
JÓN M. JÓNSSON
og
ÁSTA HELGADÓTTIR,
Hvítanesi,
Vestur-Landeyjum,
sem létust á Dvalarheimilinu Lundi, Hellu, 16. og 19. desember,
verða jarðsungin frá Breiðabólstaðarkirkju í Fljótshlíð laugar-
daginn 5. janúar kl. 14.00.
Þeir sem vilja minnast þeirra láti Dvalarheimilið Lund eða aðrar
líknarstofnanir njóta þess.
Elín Jónsdóttir, Sigurður Sigmundsson,
Margrét Helga Jónsdóttir, Ingimundur Vilhjálmsson,
Vilborg Alda Jónsdóttir,
Barbára Jónsdóttir Hlíðdal, Örn Þór Hlíðdal,
Sigrún Margrét Jónsdóttir, Árni Þorgilsson
og fjölskyldur.