Morgunblaðið - 03.01.2013, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 03.01.2013, Blaðsíða 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2013 Mýs og menn fjallar með-al annars um það aðhve miklu marki viðeigum að taka ábyrgð hvert á öðru, mikilvægi þess að eiga sér draum og lýsir einnig margs kyns fordómum og átökum í mann- legu samfélagi á þann hátt að manni finnst verkið jafn ungt í dag og þeg- ar það var skrifað. Við kynnumst í upphafsatriði far- andverkamönnunum Lennie og George sem eru að byrja á nýjum vinnustað. Lennie er heljarmenni að burðum en barnslega einfaldur. George er minni og skynsamari og hefur tekið Lennie að sér. Lennie er eins og stórt barn, fullur af gleði en einnig gjarn á að strjúka öllu mjúku, jafnvel með banvænum afleiðingum. George er þreyttur á að vera með Lennie á sínum herðum en getur þó ekki skilið hann eftir og kannski fær hann einnig sitt út úr sambandinu. Saman eiga þeir draum um betra líf sem kemur fram í skýjaborgum sem George reisir reglulega fyrir sig og félaga sinn. Þegar þeir koma til starfa kemur í ljós að á búinu ríkir ójafnvægi. Cur- ley, sem er sonur bústjórans, er í baráttu við umhverfi sitt, sjúklega hræddur um konu sína sem gefur sig talsvert að verkamönnunum. Þá hefur hann sterka tilhneigingu til að abbast upp á stóra og sterka menn. Samskipti verkamannanna eru ekki óvinsamleg en einkennast af hörku. Hver verður að sjá um sig og það er fáheyrt að einhver taki að sér að annast annan mann eins og George hefur gert. Sviðsmyndin í þessari uppfærslu setur verkið inn samtímann en er þó nokkuð tímalaus. Fatnaður og gervi verkamannanna er fátæklegt, larfar er besta orðið til að lýsa klæðum þeirra. Staðurinn þar sem þeir fé- lagar staldra við í upphafi er hlaði af stórum plastsekkjum eða böllum sem mynda hæð eða hól og í baksýn má sjá himininn – nokkuð falleg mynd. Hringsviðið er svo nýtt til að færa okkur í svefnrými verkamann- anna og í hýbýli „útlendingsins“ Crooks. Tónlistin er áhrifamikil og undirstrikar með djúpum tónum að eitthvað er í aðsigi. Ólafur Darri leikur hinn barns- lega Lennie og tekur hlutverkið snilldartökum. Það er skemmtilegur leikur í honum eins og þegar hann stikar á milli ballanna eða risastórra pokanna og svo reiðir hann sig á George eins og barn. Ólafur Darri nær bæði að sýna hve aðlaðandi Lennie getur verið og hve barns- legur. Hilmar Guðjónsson leikur George, sem er skynsamur og jarð- bundinn, einnig afar vel og er sam- leikur þeirra mjög góður. Theodór Júlíusson túlkar hinn fatlaða Candy af öryggi. Þegar Candy missir hundinn fer hann að gráta og hann grætur einn. Það er enginn til að hugga hann. Val Frey tekst einnig mjög vel að búa til skýra persónu úr Slim. Sömu sögu er að segja um Kjartan Guðjónsson sem hinn hár- sleikta Karlsson, Halldór Gylfason sem Whit og Þröst Leó sem bústjór- ann. Hinn afbrýðissami og stríði Curley er eins og hann á að vera í meðförum Þóris Sæmundssonar og Sigurður Þór Óskarsson er mjög góður í hlutverki Crooks. Hund- urinn Máni var stilltur vel á frum- sýningunni, fatlaður eins og Candy, eigandinn. Örlög hans kallast bæði á við örlög eigandans og Lennie. Álf- rún Örnólfsdóttir leikur konu Cur- leys. Maður á von á að áhersla sé lögð á kynþokka persónunnar en hér er hún sett fram meira sem venjuleg einmana stúlka sem er að leita að félagsskap. Það er skyn- samleg nálgun í nútíma uppfærslu. Álfrún gerir þessu hlutverki prýði- leg skil. Þýðing Ólafs Jóhanns Sigurðs- sonar, sem er á vönduðu íslensku máli, fer vel í munni leikaranna. Nú- tíma vendingum bregður fyrir í tal- anda Lennie. Þær eru sparlega not- aðar og skemmtilegar. Í þessari uppfærslu er brugðið út frá því sem maður á að venjast í lokaatriði verksins. Mér líkaði það persónu- lega vel. Endirinn verður ekki eins tilfinningalegur og jafnvel væminn heldur nokkuð lunkinn og ég sé ekk- ert athugavert við að leikstjóri leyfi sér þetta tilbrigði og komi áhorfand- anum jafnframt á óvart. Þessi uppfærsla Músa og manna er í stuttu máli frábærlega vel heppnuð. Góð vinna fagfólksins sem að henni kemur rennur saman í afar sterka heild og ber vott um öfluga leikstjórn leikstjóra sem hefur góð- an skilning og snjalla sýn. Afburða tök á sígildu efni Ljósmynd/Grímur Bjarnason Frábær „Ólafur Darri nær bæði að sýna hve aðlaðandi Lennie getur verið og hve barnslegur. Hilmar Guðjónsson leikur George, sem er skynsamur og jarðbundinn, einnig afar vel og er samleikur þeirra mjög góður,“ segir m.a. um jólasýningu Borgarleikhússins, Mýs og menn, sem gagnrýnandi telur frábærlega vel heppnaða og gefur fullt hús stiga. Borgarleikhúsið Mýs og menn bbbbb Mýs og menn eftir John Steinbeck Þýðing: Ólafur Jóhann Sigurðsson. Ný og endurbætt útgáfa Jóns Atla Jón- assonar og Jóns Páls Eyjólfssonar. Leikarar: Ólafur Darri Ólafsson, Hilmar Guðjónsson, Theodór Júlíusson, Þröst- ur Leó Gunnarsson, Þórir Sæmundsson, Álfrún Örnólfsdóttir, Valur Freyr Ein- arsson, Kjartan Guðjónsson, Halldór Gylfason og Sigurður Þór Óskarsson. Leikmynd: Ilmur Stefánsdóttir, bún- ingar: Ilmur Stefánsdóttir og Anna Kol- finna Kuran, lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson, tónlist: Davíð Þór Jóns- son, hljóð: Gunnar Sigurbjörnsson, leik- gervi: Margrét Benediktsdóttir, aðstoð- arleikstjóri: Jón Atli Jónasson. Leikstjóri: Jón Páll Eyjólfsson Frumsýning 29. desember á stóra sviði Borgarleikhússins SIGURÐUR G. VALGEIRSSON LEIKLIST Í áramótakveðju til gesta frá Gall- eríi Ágúst við Baldursgötu kemur fram að galleríið muni ekki halda starfseminni áfram á nýju ári. „Starfsárin sem orðin eru ríflega fimm, hafa verið skemmtileg og lærdómsrík, ekki síst vegna sam- skipta við ykkur öll,“ skrifar Sig- rún Sandra Ólafsdóttir galleristi og bætir við að ef spurningar vakni hjá fyrrverandi viðskiptavinum um myndlist, hvort sem um er að ræða listamenn, listaverk, val, kaup eða hvaðeina, sé hjartanlega velkomið að hafa samband. Gallerí Ágúst var rekið af metn- aði þessi ár en meðal þeirra sem þar sýndu eru Steingrímur Eyfjörð, Guðrún Kristjánsdóttir, Sigtryggur Bjarni Baldvinsson, Andrea Maack og nú síðast Hugsteypan. Gallerí Ágúst lokaði við áramót Hætt Sigrún Sandra í galleríinu. Morgunblaðið/Valdís Thor Hinn gam- alreyndi, banda- ríski leikari Dustin Hoffman hefur nú leik- stýrt sinni fyrstu kvikmynd og nefnist hún Quar- tet. Hoffmann er orðinn 75 ára en slær ekki slöku við, eins og sjá má. Kvikmyndin segir af fjórum fyrrverandi óperusöngvurum sem komnir eru á eftirlaunaaldur og búa á dvaldarheimili fyrir aldraða. Meðal helstu leikara í myndinni eru Michael Gambon, Tom Courtenay, Billy Connolly, Pauline Collins og Maggie Smith. Quartet var frumsýnd í Bretlandi á nýársdag. Hoffman leikstýrir í fyrsta sinn Dustin Hoffman Bíólistinn 28. desember-30. desember 2012 Nr. Var síðast Vikur á listaKvikmynd The Hobbit: An Unexpected Journey 3D Life of Pi The Impossible Rise Of The Guardians Sammy 2 Niko 2: Bræðurnir fljúgandi Red Dawn Cloud Atlas Skyfall Silver Linings Playbook Ný 1 3 2 Ný 8 5 14 4 9 1 3 2 4 1 6 3 8 10 6 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 The Hobbit: An Unexpected Journey er sú kvikmynd sem mestum miða- sölutekjum skilaði í kvikmynda- húsum yfir helgina, sú fyrsta í þrí- leik leikstjórans Peters Jacksons. Önnur jólamynd bíóhúsanna, Life of Pi, er sú næsttekjuhæsta en í þriðja sæti er kvikmynd sem frumsýnd var skömmu fyrir jól, The Imposs- ible. Í henni segir af fjölskyldu sem lenti í flóðbylgjunni miklu sem myndaðist við jarðskjálfta á botni Indlandshafs og skall á fjórum löndum á annan dag jóla árið 2004. Yfir 230 þúsund manns létu lífið í þeim hamförum. Bíóaðsókn helgarinnar Ævintýri Hobbitans lokkandi Ferðalag Úr Hobbitanum sem fjöl- margir sáu um síðustu helgi. Skráning hafin á mottaka@heilsuborg.is eða í síma 560 1010 Betri heilsa borgar sig! Faxafeni 14 · Sími 560 1010 · heilsuborg.is ER ÞITT HJARTA Í ÖRUGGUM HÖNDUM? Nýtt námskeið í Heilsuborg Hentar einstaklingum sem hafa fleiri en einn áhættuþátt hjartasjúkdóma, eru með kransæða- þrengingu eða hafa fengið hjartaáfall og vilja gera reglulega þjálfun að lífsstíl til frambúðar Hefst 15. janúar• Þri og fim kl. 07:00 eða 10:00• Þjálfun, fræðsla og einstaklingsviðtal við hjúkrunarfræðing• Frjáls aðgangur í heilsurækt á æfingatímabilinu• Verð í 8 vikur kr. 33.800 (16.900 kr. pr. mán.)• Þjálfari: Óskar Jón Helgason, sjúkraþjálfari•

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.