Morgunblaðið - 09.01.2013, Side 2

Morgunblaðið - 09.01.2013, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2013 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Sverrir Þórðarson blaðamaður lést mánudaginn 7. janúar sl., níræður að aldri. Sverrir fæddist á Kleppi í Reykjavík 29. mars 1922. Foreldrar hans voru Ellen Jo- hanne Sveinsson hús- móðir og Þórður Sveinsson, prófessor og yfirlæknir á Kleppi. Systkini Sverris voru Hörður, lögfræðingur og spari- sjóðsstjóri SPRON; Úlfar, augnlæknir og borgarfulltrúi í Reykjavík; Sveinn, dr. rer.nat., skólameistari á Laug- arvatni og síðar pró- fessor í Kanada; Nína, húsmóðir í Reykjavík; Agnar, rit- höfundur og bóka- vörður, og Gunn- laugur, hæstaréttar- lögmaður í Reykjavík. Sverrir nam raf- virkjun áður en hann gerðist blaðamaður á Morgunblaðinu árið 1943. Þar vann hann til ársloka 1992 er hann lét af störfum sökum aldurs eftir tæplega 50 ára starf. Sverrir var jafnframt um langt skeið fréttaritari norrænna fjöl- miðla hér á landi. Hann tók þátt í félagsstörfum hjá Blaðamanna- félagi Íslands og sat um skeið í stjórn félagsins. Sverrir kvæntist árið 1946 Petru G. Ásgeirsdóttur. Þau eignuðust þrjú börn og lifa tveir synir þeirra, Þórður augnlæknir og Ásgeir blaðamaður. Dóttir þeirra, Ása Steinunn, lést árið 1984. Petra lést árið 1986. Útför Sverris Þórðarsonar verð- ur gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 11. janúar og hefst athöfnin klukkan 15. Við leiðarlok þakkar Morgun- blaðið Sverri mikil og góð störf fyrir blaðið og sendir fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur. Sverrir Þórðarson blaðamaður Stefán Pétur Eggerts- son verkfræðingur lést hinn 8. janúar á líknardeild Landspít- alans í Kópavogi, 66 ára að aldri. Hann fæddist 28. mars 1946 í Reykjavík, sonur Eggerts Eggerts- sonar, gjaldkera ÁTVR, og Arnheiðar Sveinsdóttur. Stefán lauk stúd- entsprófi frá Mennta- skólanum á Akureyri 1966. Hann lauk fyrri- hlutaprófi í verkfræði frá HÍ 1969 og prófi í byggingar- verkfræði frá Lunds Tekniska Högskola 1971. Hann var verk- fræðingur hjá Vatnsveitu Reykja- víkur 1971-1973, hjá Verk- fræðistofu Stefáns Ólafssonar, VSÓ, frá 1973-2005, lengst sem framkvæmda- stjóri og annar aðal- eigandi. Stefán sat í stjórn Árvakurs, út- gáfufélags Morg- unblaðsins, frá 1987- 2009. Hann var vara- formaður stjórnar frá 1995-2005 og formað- ur frá 2005 til 2007. Hann var formaður Samtaka um bygg- ingu tónlistarhúss frá 1995-2003 og stjórn- arformaður Austurhafnar 2005- 2012. Hann tók þátt í undirbún- ingi að stofnun Listaháskóla Ís- lands og sat í stjórn skólans frá stofnun hans 1998-2009 og var for- maður fyrstu þrjú árin. Hann sat í stjórn Skógræktarfélags Reykja- víkur 2000-2007, formaður 2002- 2007. Stefán sat í stjórn Marorku hf. frá stofnun fyrirtækisins árið 2002. Eftirlifandi eiginkona Stefáns er Kristín Gunnarsdóttir. Þau eiga þrjú börn, Huldu, Gunnar og Egg- ert og fjögur barnabörn. Stefán Pétur kom mjög að mál- efnum Morgunblaðsins um langa hríð og gegndi forystuhluverki í stjórn Árvakurs. Hann var vand- virkur og víðsýnn í senn, hófsamur og tillögugóður og gætti mjög að samheldni innan stjórnarinnar og nánu samráði ritstjórnar og fram- kvæmdastjórnar, þar sem það átti við. Eru honum þökkuð öll hin góðu störf í þágu blaðs og fyr- irtækis. Andlát Stefán P. Eggertsson verkfræðingur Meirihluti hafnarstjórnar Hafnar- fjarðar er mótfallinn viðræðum við Faxaflóahafnir um kosti hugsanlegr- ar sameiningar Hafnarfjarðarhafnar og Faxaflóahafna. Bæjarstjórn Hafn- arfjarðar vísaði tillögu þess efnis til umsagnar hafnarstjórnar 5. desem- ber s.l. Málið var tekið fyrir í hafn- arstjórn í gær og þar var tillaga full- trúa Samfylkingarinnar og VG um andstöðu hafnarstjórnar við slíkar viðræður samþykkt með þremur at- kvæðum gegn tveimur. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks lögðu fram tillögu og töldu rétt að skoða kosti og galla sameiningar við Faxaflóahafnir. Í tillögu meirihlutans, sem var samþykkt, er vísað til samkeppnis- sjónarmiða og mikilvægis þjónustu hafnarinnar fyrir atvinnulíf í Hafnar- firði, auk þess sem hafnarsvæðin gegni lykilhlutverki í skipulagsmálum bæjarins. Þá gangi rekstur hafnar- innar vel. Þar segir einnig: „Yfirstandandi eru viðræður við Rio Tinto – Alcan um nýjan hafnar- samning sem mun auka tekjur hafn- arinnar frá og með næsta ári.“ Straumsvíkurhöfn heyrir undir Hafn- arfjarðarhöfn. Eyjólfur Sæmundsson, formaður hafnarstjórnar, sagði að núgildandi hafnarsamningur vegna Straumsvík- ur félli úr gildi á næsta ári. Fyrir þann tíma þyrfti að semja um ný hafnar- gjöld. Álverið hefur greitt lág vöru- gjöld því ÍSAL greiddi fyrir höfnina á sínum tíma og fékk í staðinn afslátt af vörugjöldum í tiltekinn tíma. Afslátt- urinn fellur niður á næsta ári. Eyjólf- ur sagði að miðað við hafnarsamninga álveranna á Reyðarfirði og á Grund- artanga mætti reikna með talsverðri hækkun vörugjalda í Straumsvík. gudni@mbl.is Hafnarstjórn leggst gegn sameiningu  Hafnarfjarðarhöfn reiknar með hærri tekjum af Straumsvíkurhöfn á næsta ári Morgunblaðið/Björn Jóhann Straumsvík Afsláttur álversins af vörugjöldum fellur brátt niður. Hafnarfjarðarhöfn » Hafnarfjarðarhöfn er ein elsta höfn landsins, eins og nafn fjarðarins bendir til. » Hafnarbakkar Hafnarfjarð- arhafnar eru um 1.500 metra langir og mesta dýpi við hafn- arbakka er 12 metrar. Þótt Reykjavík sé ekki stór á erlendan mælikvarða er eins gott að hafa greinargott kort í farteskinu þegar þræða á helstu ferðamannastaði höfuðborgarinnar. Hin ýmsu markaðsátök og kynningarverkefni síðastlið- inna ára, s.s. Inspired by Iceland og Ísland allt árið, hafa tvímælalaust skilað góðum árangri þar sem vel búnir ferðamenn setja enn mark sitt á mannlífið í mið- borginni og virðast ekki láta vetrarhráslagann á sig fá. Ferðamenn setja svip sinn á mannlífið í miðborginni Morgunblaðið/Golli Leitin að bestu leiðinni Viðræðunefnd Alþýðusambands Ís- lands (ASÍ) og Samtaka atvinnulífs- ins (SA) hélt áfram viðræðum í gær um endurskoðun kjarasamninga. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmda- stjóri SA, sagði að þar hefði verið skipst á skoðunum og spáð í stöðuna nú og í framhaldinu. Stefán Einar Stefánsson, formaður VR og LÍV, taldi í Morgunblaðinu í gær að bolt- inn væri nú hjá atvinnurekendum. „Boltinn er hjá báðum samnings- aðilum,“ sagði Vilhjálmur, spurður um afstöðu Stefáns Einars. „Sam- kvæmt kjarasamningnum er gert ráð fyrir því að við tölum saman og förum sameiginlega yfir stöðuna. Við höfum sagt að þrátt fyrir for- sendubrest gagnvart okkur viljum við ekki eiga frumkvæði að uppsögn samninganna.“ Vilhjálmur kvaðst vona að kjara- samningunum yrði ekki sagt upp. „Ég held að það sé engum í hag að gera það,“ sagði Vilhjálmur. Samið var til 31. janúar 2014. Stjórnarfundur verður haldinn hjá Samtökum atvinnulífsins á morgun, fimmtudag. Vilhjálmur sagði að viðræðunefndin hefði ákveðið að vera í sambandi eftir stjórnarfundinn. Samninganefnd ASÍ og fram- kvæmdastjórn SA þurfa að tilkynna niðurstöðu sína varðandi framleng- ingu kjarasamninga fyrir kl. 16.00 hinn 21. janúar nk. gudni@mbl.is Boltinn er hjá báðum aðilum  Viðræðunefnd ASÍ og SA fundaði í gær Karl Vignir Þorsteinsson var boð- aður í skýrslutöku hjá lögreglu í gær vegna umfjöllunar Kastljóss um kynferðisbrotaferil hans sem spann- ar nær hálfa öld. Samkvæmt frétta- vef Ríkisútvarpsins verður yf- irheyrslum haldið áfram í dag. Stjórn Kirkju sjöunda dags að- ventista sendi frá sér yfirlýsingu um málið í gær þar sem segir m.a. að samkennd með þolendum afbrota Karls Vignis sé kirkjunni efst í huga. „Það er augljóst að kirkjan og ís- lenskt samfélag í heild hafa brugðist þessum einstaklingum og fjöl- skyldum þeirra og viljum við fyrir hönd kirkjunnar biðjast innilegrar fyrirgefningar,“ segir í yfirlýsing- unni. Þá hafi fyrir áratug m.a. verið komið á verklagsreglum innan kirkjunnar um aðgerðir til varnar gegn ofbeldi, m.a. kynferðisofbeldi gegn börnum og unglingum, og kirkjan muni áfram gera allt sem í hennar valdi stendur til að koma í veg fyrir að slík afbrot endurtaki sig. »17 Yfirheyrslur yfir Karli Vigni halda áfram í dag Ungur maður sem leitaði til lög- reglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina vegna hópnauðgunar hefur nú lagt fram kæru vegna verknaðarins. Í gær var tekin skýrsla af manninum. Maðurinn var við tónlistarhúsið Hörpu þegar hann hafði samband við lögregluna. Ekki hefur fengist staðfest hjá lögreglu hve margir tóku þátt í nauðguninni né hvort vitað er hverjir árásarmennirnir eru. Lagði fram kæru vegna nauðgunar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.