Morgunblaðið - 09.01.2013, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 09.01.2013, Blaðsíða 44
MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 9. DAGUR ÁRSINS 2013 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190 1. Segir nauðgunina konunni … 2. Íslendingar lágu fyrir Svíum … 3. Ná þeir að sættast? 4. „Þó ég sé skepna inn að beini“ »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Moderna listasafnið í Malmö opnar í maí sýningu þar sem verki Ragnars Kjartanssonar, „Scandinavian Pain“, verður komið fyrir á hlöðu í safninu en inni í henni verða verk eft- ir Edvard Munch. Sýn- ingin verður hluti af hátíðinni Malmö Nor- dic 2013. Verk Ragnars og Munchs sýnd saman Á fimmtudag Suðlæg átt, 3-8 m/s, en 8-13 m/s með A- ströndinni. Rigning, slydda eða jafnvel snjókoma á stöku stað, en þurrt NA-til. Styttir upp að mestu á V-verðu landinu eftir hádegi. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Gengur í suðaustan 13-20 m/s S- og V-lands og fer að rigna um hádegi, en 5-13 NA-til og þurrt. Fer að lægja í kvöld, fyrst vestast á landinu. Hiti yfirleitt á bilinu 2 til 8 stig. VEÐUR Forráðamenn belgíska knattspyrnufélagsins Cercle Brugge eru ekki hrifnir af áhuga granna sinna og erkifjenda í Club Brugge á Eiði Smára Guð- johnsen. „Við viljum helst ekkert af áhuga Club vita. Við eigum á hættu að missa okkar besta sóknarmann og munum gera allt sem í okk- ar valdi stendur til að halda honum,“ segir talsmaður Cercle Brugge. »1 Óhressir með áhugann á Eiði Íslenska landsliðið í handknattleik mátti sætta sig við tveggja marka tap gegn Svíum í vináttuleik í Helsing- borg í gær en þetta var lokaundirbún- ingur íslenska liðsins fyrir HM sem hefst um næstu helgi. Þetta var um leið fyrsta tap landsliðsins undir stjórn Arons Kristjánssonar. »3 Fyrsta tap landsliðsins undir stjórn Arons Heil umferð fór fram í N1-deild kvenna í handknattleik í gærkvöld. Óvænt úrslit urðu í Mýrinni þegar HK hafði betur gegn Stjörnunni. Aftur- elding innbyrti sín fyrstu stig á mótinu en eftir 10 tapleiki í röð náði Afturelding að vinna lið Selfoss. Val- ur og Fram héldu sínu striki og ÍBV gerði góða ferð út á Seltjarnarnes og lagði lið Gróttu. »2 Lið HK vann góðan sigur í Mýrinni ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á  Nú þegar leikarinn Gérard De- pardieu er orðinn rússneskur ríkis- borgari velta menn fyrir sér hvort leikarinn flytji til Rússlands flenni- stórt málverkið Íslenskir fiskar, þriggja metra langt, sem hann keypti fyrir nokkrum árum af Helga Þorgils Friðjónssyni. Helgi opnar stóra sýn- ingu á málverkum og skúlptúrum í Gerðarsafni á laugardaginn kemur. Fara Íslenskir fiskar til Rússlands? Gérard Depardieu Helgi Þorgils Friðjónsson  Tónlistarmað- urinn Snorri Helgason hefur tekið við stöðu framkvæmda- stjóra tónlistar- hátíðarinnar Reykjavík Folk Festival sem Ólaf- ur heitinn Þórðar- son og hljómsveitin South River Band stofnuðu. Hátíðin verður haldin á Kex Hosteli 7.-9. mars nk. Tekur við Reykjavík Folk Festival Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Ég hef alltaf haft áhuga á tungu- málum en þó ívið meiri á tölvum og skráði mig því í tölvunarfræði við Háskóla Íslands. Fyrir einskæra til- viljun fékk ég sumarvinnu hjá Árna- stofnun við stafsetningarleiðrétt- ingu. Þá mættust þessir tveir heimar sem ég hef mikinn áhuga á. Út frá því varð frumgerðin af Skramba til,“ segir Jón Friðrik Daðason, tölvunarfræðingur, einn höfunda nýs stafsetningar- og mál- farsleiðréttingartóls fyrir íslenskan texta. Skrambi er fyrsta íslenska forritið sem getur leiðrétt samhengisháðar villur, eins og þegar líkur hefur ver- ið skrifað í stað lýkur. Jón rekur ekki minni til þess hvaðan nafngiftin Skrambi er komin því að hún hefur verið vinnuheiti í nokkurn tíma, „ætli hana megi ekki rekja til þess að þetta er skrambi gott,“ segir Jón kíminn. Skrambi er afrakstur nokkurra rannsóknarverkefna, m.a. meist- araverkefnis Jóns. Þá hefur styrkur frá Nýsköpunarsjóði námsmanna greitt götu hans. Þess má geta að verkefnið hlaut fyrsta sæti í sam- keppninni um Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands 2012. Jón og Kristín Bjarnadóttir, rann- sóknarlektor við Stofnun Árna Magnússonar, héldu fyrsta fyr- irlestur Máltækniseturs á þessu ári í Árnagarði í gær. Þar kynntu þau að- ferðir og gögn sem Skrambi notast við. Skrambi frír Textasmiðir munu geta nálgast Skramba sér að kostnaðarlausu. Í vefútgáfu forritsins verður textabox sem hægt er að setja text- ann inn í og leita að villum. Skrambi verður seldur sem við- bót við Office-pakkann fyrir Wind- ows og einnig sem viðbót við helstu vafra. Aðferðirnar sem eru notaðar við gerð forritsins eru að erlendri fyr- irmynd. „Ég skoðaði aðferðirnar sem notaðar eru í öðrum tungu- málum, sérstaklega ensku, og að- lagaði þær að einkennum íslensk- unnar,“ segir Jón. „Niðurstaðan var sú að leiðréttingarnákvæmni Skramba var 94%, sem er sambæri- legt því sem fæst í öðrum einfaldari tungumálum.“ Kristín og Jón hafa starfað tölu- vert saman á sviði máltækni. Ljóst er að Skrambi hefði ekki litið dags- ins ljós nema fyrir tilstuðlan styrkja og þverfaglegs samstarfs. Skrambi góður Skrambi  Íslenskt forrit leiðréttir sam- hengisháðar villur Morgunblaðið/Styrmir Kári Skrambar Jón Friðrik Daðason tölvunarfræðingur og Kristín Bjarnadóttir rannsóknarlektor við Stofnun Árna Magnússonar að kynna Skramba, nýtt stafsetningar- og málfarsleiðréttingartól fyrir íslenskan texta, í Árnagarði. Flest leiðréttingartól finna ein- göngu orðleysur, þ.e. orð sem ekki eru til í málinu eins og fleirri, kanski og engann. Skrambi bætir um betur og metur einnig samhengi orðanna til að ákvarða hvort þau séu rétt stafsett. Með því móti get- ur hann einnig fundið og leiðrétt raunorðavillur, eins og „ég vill“, „á næsta leyti“ og „af ástæðulausu“. Jón segir að það sé erfitt að finna þessar villur því þessi orð eru öll til í íslensku máli en samhengið sem þau standa í skiptir máli. Greining Stofnunar Árna Magn- ússonar í íslenskum fræðum gef- ur til kynna að um það bil tvær af hverjum þremur villum í rit- gerðum íslenskra mennta- skólanema séu raunorðavillur. Skrambi finnur samhengið LEIÐRÉTTIR ORÐLEYSUR OG RAUNORÐAVILLUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.