Morgunblaðið - 09.01.2013, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 09.01.2013, Blaðsíða 11
Tvö jarðarber Sálufélagar og bestu vinkonur, hvor úr sinni heimsálfu, Halla og Nitya við Bláa lónið árið 2011. Þurfti leyfi frá foreldrum Árið 2009 fór Halla og heimsótti Nityu til Delhí og var með henni í tvær vikur af þeim fimm sem hún dvaldi á Indlandi. „Svo kom hún og heimsótti mig til Íslands sumarið 2011 og ljóðabókin er í raun ferðasaga okk- ar Nityu um Ísland. Þessi heimsókn hennar hafði verið í undirbúningi frá því árið 2006, því það tók tíma að fá foreldrana til að samþykkja ferðina og undirbúa allt sem þarf að undirbúa þegar fólk utan EES kemur til lands- ins. Þegar ég kynntist henni í Ástralíu lá það fyrir að hún ætti að gifta sig helst strax og hún sneri aftur heim til foreldra sinna. Það er hálfpartinn menningarleg skylda pabba hennar að leita að manni fyrir hana og það er mikil pressa. En hún hefur samt frelsi til að hafna þeim mönnum sem hann kynnir fyrir henni og hún getur leitað sér maka sjálf, en hann verður að koma úr réttri stétt og vera af réttu þjóðerni. Þegar Nitya kom til Íslands lá fyrir bónorð og í ljóðabókinni er ég meðal annars að velta því fyrir mér hvernig hún veltir þeirri stöðu fyrir sér.“ Á Íslandsflakkinu flökkuðu þær vinkonurnar um Suður- og Austur- land og var það mikið ævintýr. „Það þekkja það allir sem hafa þvælst með útlendinga um landið hvernig maður fer að líta náttúru og menningu öðrum augum. Ég horfði með hennar augum. Nitya var að koma í fyrsta sinn til Evrópu og henni fannst þögn- in á Íslandi yfirþyrmandi. Við keyrð- um alla suðurströndina og ég sýndi henni alla fossana og lét hana labba miklu meira en hún var vön. Við gist- um fyrstu nóttina í tjaldi uppi við jökul í Skaftafelli. Svo fórum við til Hafnar í Hornafirði, komum við á Borgarfirði eystri, þaðan fórum við í Loðmundarfjörð og gistum í eyðifirð- inum Húsavík á Víknaslóðum. Það var mikil upplifun fyrir mig að fylgj- ast með vinkonu minni upplifa þá miklu kyrrð sem þar ríkir.“ Bollywoodhátíð á Íslandi Þær vinkonurnar höfðu ekki set- ið lengi á bæjarbarnum á Borgarfirði eystra þegar vertinum í Fjarðarborg datt í hug að halda Bollywoodhátíð. „Fyrst það var Indverji í bænum var ekkert annað að gera! Við brugðum okkur til Seyðisfjarðar en fljótlega byrjuðu símtölin að berast, því þá var búið að auglýsa Bollywoodhátíðina og fimmtíu manns búnir að skrá sig. Ég átti að elda indverskan mat ofan í gestina, því ég hafði gloprað því út úr mér við vertinn að ég kynni að elda indverskan mat, sem ég kann þó tæp- ast, en Nitya kann það alls ekki,“ seg- ir Halla og hlær. En það var vaðið í verkið og þær komu með indversk klæði með sér frá Seyðisfirði fyrir há- tíðarhaldara. Hátíðin heppnaðist afar vel, þótt misvel hafi gengið að nálgast allt indverska kryddið og hið ind- verska baunadahl var gert úr klass- ískum gulum baunum frá Danmörku. „Nitya sá um að kenna Bolly- wooddansa og þetta var stórkost- legt.“ Nú hafa þær Nitya og Halla hist þrisvar sinnum í þremur heims- álfum og Halla stefnir að því að hitta hana í fjórðu heimsálfunni. „Sameig- inleg vinkona okkar mun gifta sig í Mexíkó í sumar og ég ætla að leggja hart að Nityu að koma þangað. Það er svalt að hafa hist fjórum sinnum í fjórum heimsálfum.“ Ljósmynd/Hafþór S. Helgason Vertar í Fjarðarborg Ásgrímur Ingi Arngrímsson og Skúli Sveinsson. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2013 Stjórnsemi hefðanna í stéttskiptu karllægu samfélagi má sín lítils andspænis stjórnseminni í mér þegar ég klæði hana í ull og meiri ull pakka henni ofan í dúnpoka segi frá börnum sem sofa úti í vögnum renni upp góða nótt á morgun sérðu jökulinn hann er hér og hann skríður. Hún liggur vakandi lengi eftir að ég sofna og hlustar á þögnina ærandi þögnina. Ferðasaga LJÓÐABÓKIN Heill heimur af ævintýrum Fossaleyni 2, Grafarvogi, sími 586 1000 husgogn.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.