Morgunblaðið - 09.01.2013, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 09.01.2013, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2013 ✝ Svanlaugfæddist á heimili sínu, Þórs- götu 4, í Reykja- vík, 20. júní 1923. Hún lést á Land- spítalanum við Hringbraut á að- fangadag jóla. Foreldrar hennar voru Guðlaug Ragnhildur Árna- dóttir húsmóðir, fædd 4. maí 1891, látin 21. nóvember 1947 og Sigurjón Jónsson bóksali, fæddur 27. júní 1882, látinn 10. nóvember 1957. Systkini hennar voru Gunnar, Árni, Þorbjörg Hólm- fríður og Jóna, sem öll eru lát- in. Svanlaug giftist Heiðari Haraldssyni árið 1947, f. 21. apríl 1924, d. 7. október 2010. Svanlaug og Heiðar eignuðust þrjú börn. 1) Sigurjón, f. 1951, maki Kristín Tryggvadóttir, f. 1951. Börn þeirra eru a) Svana Kristín, f. 1973, í sambúð með Sigurði Jörgenssyni, f. 1971. Börn þeirra eru þrjú. b) Árni, f. 1978, í sambúð með Rebekku Bettý Gunnarsdóttur, f. 1985. Börn þeirra eru tvö. 2) Haraldur, f. 1956, en hann lést aðeins þriggja vikna gamall. 3) Ólöf Inga, f. 1960, maki Magnús Jón Smith, f. 1959. Börn þeirra eru a) Heiðar, f. 1988 og b) Íris Kristín, f. 1994. Svanlaug fékkst lengst af við húsmóður- og umönnunarstörf. Hún starfaði við ýmis verslunarstörf og rak verslun við Öldugötu um nokk- urra ára skeið. Þá starfaði hún við þjónustustörf við íbúðir aldraðra við Dalbraut. Svan- laug var virkur þátttakandi innan KFUM og KFUK og Kristniboðssambandsins. Hún var þekkt fyrir fallega söng- rödd og söng um árabil með Dómkórnum. Þá söng hún oft einsöng og tvísöng með Árna bróður sínum við undirleik Gunnars bróður þeirra. Útför Svanlaugar fer fram frá Háteigskirkju í dag, 9. jan- úar 2013, og hefst athöfnin kl. 13. Á aðfangadag jóla, rétt áður en jólahátíðin gekk í garð, lést tengdamóðir mín Svanlaug Sig- urjónsdóttir. Svana, eins og hún var alltaf kölluð, var yngst fimm systkina og ólst upp á Þórsgötu 4 í Reykjavík. Svana giftist Heiðari Haraldssyni árið 1947. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að kynnast þeim hjónum, Svönu og Heiðari, fyrir um þrjátíu árum og naut þeirra forréttinda að búa með þeim í sama húsi undanfarin 10 ár. Svana var einstök mann- eskja, mannkærleikur og um- hyggja voru henni í blóð borin þannig að eftir var tekið. Aldrei hallmælti hún nokkrum manni og trúði aðeins á hið góða í mann- inum, sama hvað gekk á. Helst að hún segði „hvað gengur þeim til?“ Kristin trú var stór hluti af lífi hennar og sóttu þau hjónin mikið samkomur í KFUM og K. Þá var Svana frá unga aldri félagi í Kristniboðsfélagi kvenna. Fréttir af góðum árangri kristni- boðsins glöddu ávallt hjarta hennar. Tónlist var stór hluti í lífi Svönu og söng hún með Dóm- kórnum um árabil. Hún spilaði listavel á gítar og tóneyra hennar var mjög næmt, gat hún greint falskan tón hvort sem hann kom frá einum söngvara í kór eða hljóðfæri í hljómsveit. Fólk kom til hennar og bað hana að stilla gítara eða til þess að fá ráð hjá henni um val á hljóðfæri. Svana var hin fullkomna amma sem barnabörnin hændust að og var þeim sú besta fyrirmynd sem hugsast gat. Hún hvatti þau áfram hvort sem var í tónlist, námi eða íþróttum og umhyggja hennar og hrós var þeim vega- nesti út í lífið. Nægjusemi og já- kvæðni voru einstakar náðargjaf- ir Svönu og aldrei kvartaði hún þrátt fyrir mikið heilsuleysi síð- ustu árin. Sjón og heyrn voru að mestu leyti farin og líkamleg heilsa orðin mjög léleg. Þrátt fyr- ir það hélt hún sinni léttu lund og gantaðist með heilsufarið og blinduna á sinn einstaka hátt. Nú þegar Svana er meðal engla þá er ljóst að glæsilegt fas hennar og kærleikur sómir sér vel í þeim hópi. Magnús. Elsku besta amma mín. Mikið er sárt að horfa á eftir þér en ég ylja mér við allar yndislegu minn- ingarnar sem ég á um þig og afa sem kvaddi okkur fyrir 2 árum. Afi kom og sótti þig á aðfanga- degi jóla þar sem þú kvaddir okk- ur eftir stutt veikindi. Þú varst með allt klárt fyrir jólin og ætl- aðir að eyða þeim með okkur. Minningarnar hrannast upp. Þau voru ófá skiptin sem ég hringdi í ykkur sjálf sem lítil stelpa til að fá að gista hjá ykkur. Það var alltaf svo notalegt og gott að vera hjá ykkur. Þá fékk ég að sitja í ruggustólnum með teppi og þú sast við hliðina á mér og skrældir og skarst epli ofan í mig. Svo þegar ég vaknaði um morg- uninn sníkti ég sunnudagsgöngu- túrinn með afa og við fórum hönd í hönd og gengum um hverfið. Göngutúrinn endaði alltaf í ein- hverri sjoppunni í hverfinu þar sem ég mátti velja mér eitthvað gotterí. Þið afi voruð gift í rúm 60 ár og betri hjón er ekki hægt að hugsa sér. Virðingin sem þið báruð hvort fyrir öðru var óendanleg og hjá afa varst þú í guðatölu. Tón- listin var líf þitt og yndi og þú söngst sjálf svo fallega. Ég fékk oft að fara með þér á aðfangadag þar sem þú söngst í Dómkirkj- unni, þá fékk ég að fara með þér upp á efri hæðina í kirkjunni og vera með kórnum, þetta fannst mér toppurinn. Ég var svo hepp- in að fá að búa í nokkur ár í hús- inu ykkar í litlu íbúðinni og á þeim tíma eignaðist ég Árna Geir sem hélt svo mikið uppá „ömmu namm namm“ og „afa skafa“. Það var svo notalegt að geta rölt yfir með litla ungann í kaffi til afa og ömmu þar sem dekrað var við mann. Maður kom ekki til þín án þess að þiggja einhverjar veiting- ar, það þýddi ekkert að segja nei takk ég er södd. Enda var ekki komið að tómum kofanum hjá þér, þvílíkur listakokkur sem þú varst, eggjagrauturinn, banana- kakan, konungsættin, súpurnar, sósurnar og lambakjötið, þetta toppar enginn. Þið afi voruð alltaf í keppni hvort ykkar þekkti söngvarann sem söng síðasta lagið fyrir há- degisfréttir Ríkisútvarpsins, það heyrði til undantekninga ef þið höfðuð ekki rétt fyrir ykkur. Svo núna í seinni tíð, þegar ég og þú borðuðum saman hádegismat í hverri viku, tókst mér að giska á réttan söngvara nokkrum sinn- um þér til mikillar gleði. Þú varst alltaf svo fín og vel tilhöfð og tókst alltaf eftir því ef ég var í einhverju nýju. Þú varst svo mik- il félagsvera og hafðir gaman af veislum og samkomum hverskon- ar. Við vorum leikhús- og tón- leikavinkonur, fórum saman á skemmtilegar leiksýningar og fjölda tónleika. Þú varst ekki bara amma mín heldur líka góð vinkona mín. Spjallið okkar í gegnum tíðina er ómetanlegt og þakka ég þér ráðin sem þú hefur gefið mér og allt sem þú deildir með mér og ég með þér. Hlýju hendurnar þínar og elskulegheit- in alltaf, betri ömmu er ekki hægt að hugsa sér. Það er sárt að kveðja þig en ég veit að þú ert núna hjá afa og litla drengnum ykkar, Haraldi. Afi hefur tekið á móti þér með bros á vör, það veit ég því þið voruð eitt og hann var örugglega farið að lengja eftir þér. Guð blessi minningu þína, elsku amma Svana og afi Heiðar og við sjáumst seinna. Svana. Elsku amma mín, Svanlaug Sigurjónsdóttir, lést á Landspít- alanum þann 24. desember síð- astliðinn. Ég held að hún hefði ekki getað valið fallegri dag til þess að fara frá okkur. Þessi kona var besta og yndislegasta manneskja sem ég hef kynnst og mun ég ávallt sakna hennar. Hún kenndi mér svo sannarlega á lífið, hún er flottasta fyrirmynd sem ég hef átt og að alast upp á heim- ili þar sem hún og afi Heiðar voru til staðar var það besta sem fyrir mig gat komið. Alltaf var gaman hjá þeim og man ég einhverju sinni þegar ég læddist yfir til þeirra, sátu þau saman við borð- stofuborðið og skemmtu sér við það að giska á hver var að syngja lagið í útvarpinu. Amma Svana var góð við alla, hvert sem hún fór geislaði af henni góðmennsk- an og allir sem fengu að kynnast henni voru sammála um að hún væri besta og yndislegasta kona sem þeir hefðu kynnst. Við áttum margar skemmtilegar stundir saman og mun ég sakna þess að fá ekki að eiga þær fleiri. Ég á endalausar góðar minningar, eins og þegar hún kenndi mér á gítar og við sungum saman, spil- uðum á spil og svo margt fleira. Hún naut þess að hlusta á mig spila og þegar ég vildi leika eitt- hvað nýtt á hljóðfærið fannst henni það alltaf jafn fallegt. Ég vil þakka henni allar þær góðu stundir sem við áttum saman og ég veit að hún hvílir nú í friði með afa mínum Heiðari sem ég sakna svo mikið. Guð blessi þau og varðveiti. Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum. (Sálm. 119, 105.) Íris Kristín Smith. Amma Svana eins og hún var alla tíð kölluð kvaddi okkur á að- fangadag jóla, 24. desember. Hún var besta og hjartahreinasta manneskja sem ég hef kynnst, hún var alveg einstök kona hún amma mín. Við vorum alltaf perluvinir frá því að ég man fyrst eftir mér og studdi hún mig í öllu sem ég gerði í lífinu. Hún var allt- af svo jákvæð og áhugasöm um allt sem ég gerði, sama hvort það var í námi, vinnu, tónlistarnámi eða bara almennt í lífinu. Ég mun muna það svo lengi sem ég lifi hvað hún var góð manneskja og hvað var æðislega gaman að fara til ömmu og afa á Háaleitisbraut um helgar og gista hjá þeim. Það var komið fram við mig eins og prins og endalaust stjanað við mig þegar ég mætti í heimsókn til þeirra heiðurshjóna á Háaleitis- brautinni. Ég var vakinn á laug- ardags- eða sunnudagsmorgnum og fékk að horfa á teiknimyndir hjá ömmu og afa og hún kom með morgunmat á bakka til mín og hún kunni sko að búa til góðan mat. En það er svo margt sem mig langar að tala um sem myndi komast fyrir í heilli bók. Mér er nú samt alltaf minn- isstætt hversu góð hún var við allt og alla í kringum sig og sér- staklega fjölskylduna sína. Ég veit ekki hversu oft hún kallaði mig „uppáhalds“ og „bestan“. Einnig er mér minnisstætt þegar ég var að spila á fiðlu fyrir hana uppáhaldslagið hennar Lítill fugl Svanlaug Sigurjónsdóttir Jón Valgeir Guðmundsson ✝ Jón ValgeirGuðmundsson fæddist í Folafæti í Súðavíkurhreppi í Norður- Ísafjarðarsýslu 3. apríl 1929. Hann lést á Sjúkraskýl- inu í Bolungarvík 19. desember 2012. Útför Jóns Val- geirs var gerð frá Hólskirkju í Bolungarvík 29. desember 2012. legu frétt. Ég brast í grát þegar ég átt- aði mig á að ynd- islegi langafi minn hafdi látist. Ég treysti mér ekki til að fara í skólann þar sem ég átti að fara upp á svið og syngja með kórnum mínum og einsöng með einni bestu vinkonu minni. Mamma sagði mér að langafi minn væri leiður með að ég væri bara heima að gráta og myndi frekar vilja að ég myndi fara í skólann og gera hann stoltan. Ég fór í skólann en þar brast ég þrisvar í grát þegar ég sagði vin- konum mínum og kennaranum mínum að hann langafi minn Elsku besti langafi minn. Ég vaknaði við þessa sorglegu frétt 19. desember að afi minn væri látinn. Vaknaði ég í her- berginu mínu eins og vanalega. Mamma mín settist við rúmið mitt og færði mér þessa sorg- hefði látist. Þú fékkst mig svo oft til þess að brosa og hlæja. Mér fannst þú yndislegur og hjartgóður við alla. Þú varst allt- af svo hress og mér fannst þú alltaf svo ungur í anda. Ég sem langafabarn þitt elska ég þig alla leið frá Kópavogi út í geim og hana langömmu mína líka. Ég sakna þín ótrúlega mikið og ég hefði viljað geta kvatt þig en er mjög ánægð að hafa hitt þig í sumar. Hvíldu í friði og guð blessi þig. Því þar getur hann vakið yfir okkur dag og nótt svo við getum sofið vært og rótt, hann mun ávallt okkur vernda, vináttu og hlýju mun hann okkur senda. Elsku afi, guð mun þig geyma, yfir okkur muntu sveima en eitt vil ég þó að þú vitir nú, minn allra besti afi, það varst þú. (Katrín Ruth.) Þitt langafabarn að eilífu. Alma Dís. Elsku fallegi fað- ir okkar, tengdafað- ir og afi er farinn frá okkur. Þú varst mikill og einstaklega ljúfur maður, við vorum svo stolt að eiga þig að. Ég man fyrsta skiptið sem við hittumst, fyrir 3 Róbert Maitsland ✝ Róbert Maits-land fæddist 3. september 1943. Hann lést 14. des- ember 2012. Útför Róberts var gerð frá Hellig Kors Kirke í Kaup- mannahöfn 21. des- ember 2012. árum, þegar þú, Elma og Sara syst- ur okkar komuð til Íslands, þá var það alveg eins og að við hefðm alltaf þekkst og þegar Heiðdís systir kom frá Ak- ureyri og við loks- ins sameinuðumst, það var besti dag- urinn sem við höf- um upplifað. Þú varst í miklu uppáhaldi hjá afastelpunum þínum, þær voru mjög hrifnar af þér og hún Ást- hildur Ben hafði svo gaman af að segja þér frá öllum áhuga- málunum sínum, því þú varst svo áhugasamur og stoltur að eiga svona duglega afastelpu. Það var alltaf svo gaman að senda þér myndir og skrifa þér í tölvupóstum því þú varst svo glaður og þú skrifaðir svo skemmtilega til baka. Það var alltaf svo gaman að hlusta á all- ar sögurnar af öllum þínum æv- intýrum því þú sagðir svo skemmtilega frá. Við erum svo hamingjusöm að hafa fengið að kynnast þér á þessum stutta tíma og allar góðu minningarnar um þig munum við varðveita í hjarta okkar um ókomna tíð og við munum ávallt elska þig. Þín tengdadóttir, synir og afastelpur. Svala Birna Sæbjörnsdóttir. ✝ Sigurður Þór-ir Guðmunds- son fæddist 17. janúar 1934 í Reykjavík. Hann lést á krabba- meinsdeild Land- spítalans við Hringbraut þann 26. desember síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Sigríður Þór- hildur Tómasdóttir, fædd í Reykjavík 4. júlí 1899, dáin 8. maí 1990, og Guðmundur Frið- rik Guðmundsson, veit- ingaþjónn frá Vindási í Grund- arfirði, fæddur 12. júlí 1901, dáinn 29. október 1960. Fóst- urfaðir Sigurðar var Þórarinn Lýðsson frá Bakkaseli í Bæjarhreppi Strandasýslu, fæddur 24. ágúst, dáinn 13. september 1974. Sigurður ólst upp á Borðeyri við Hrútafjörð til 8 ára aldurs en þá flutti fjölskyldan í Kópavog. júní 1987. Hún á 2 börn. c. Emil Ivar, fæddur 25. feb. 1990. d. Rebekka Lydia, fædd 9. ágúst 1991. 4. Hildur, fædd 11. des. 1974, hennar maður er Jón Rafn Valdimarsson og eiga þau 2 börn. a. Áróra, fædd 9. sept. 2004. b. Rökkvi, fæddur 22. okt. 2009. Lengst af bjuggu þau í Hamratúni 4 í Mosfellsbæ, sem þau byggðu og bjuggu þau þar í 33 ár. Sigurður vann við hljóð- færaleik frá 18 ára aldri og spilaði með mörgum þekktum hljómsveitum, t.d. Orion kvin- tett og fór með honum til Þýskalands og Marokkó að spila 1956. Síðar spilaði hann með Hljómsveit Svavars Gests, Hljómsveit Ragnars Bjarna- sonar og mörgum fleirum. Einnig var hann með eigin hljómsveit í Þjóðleikhúskjall- aranum. Lengst af spilaði hann dinnertónlist á Loftleiða- hótelinu, í allt um 40 ár. Alltaf vann hann dagvinnu með mús- íkinni hjá Kristjáni Skagfjörð og hjá Steinavör hf. Útför Sigurðar fer fram frá Lágafellskirkju i dag, 9 janúar 2013, og hefst athöfnin klukk- an 13. Sigurður kvænt- ist þann 12. júlí 1958 Þóru Svan- þórsdóttur, fædd í Reykjavík 19. júní 1936, og áttu þau 4 börn. 1. Þórir, fæddur 11. nóv. 1958, hans kona er Aðalheiður E. Gunnarsdóttir. Hans synir með fyrri konu sinni, Svölu Sigtryggsdóttur: a. Sig- urður Þórir, fæddur 20. sept. 1981, og á hann 3 börn. b. Magnús Þór, fæddur 16. okt. 1983, hann á einn son. c. Sig- tryggur Þór, fæddur 20. maí 1989. d. Arnar Þór, fóst- ursonur Þóris, sonur Svölu, fæddur 18. ágúst 1977, hann á 2 börn. 2. Örn, fæddur 2. maí 1960, hans kona er Lyn Sig- urðsson. 3. Heimir, fæddur 26. mars 1963. Hann á 4 börn. a. Ole Marius, fæddur 25. nóv. 1985. b. Tara Sif, fædd 25. Í dag er til grafar borinn vin- ur okkar, mágur og svili Sig- urður Þ. Guðmundsson, hljóð- færaleikari, sem lést 26. desember sl. Andlát hans kom ekki á óvart því að hann hafði barist við illvígan sjúkdóm um margra mánaða skeið. Dauðinn virðist hins vegar alltaf koma manni í opna skjöldu og eftir sit- ur ófyllt tómarúm, í þetta sinn eftir góðan vin okkar í meira en hálfa öld. Sigurður hóf tónlistarnám ungur að árum, og aðeins átján ára gamall tók hann að leika á píanó með danshljómsveitum bæði í Reykjavík og víða um land. Það varð síðar aðalævistarf hans. Síðustu æviárin lék hann þó mest einn við ýmis tækifæri. Sigurður var mikill vinnuþjarkur og vann fulla vinnu auk tónlist- arinnar meðan heilsan leyfði. Vorið 1964 hófu þau hjón, Sig- urður og Þóra Svanþórsdóttir, að byggja myndarlegt einbýlis- hús í Hamratúni í Mosfellssveit. Við það verk nutu þau dyggi- legrar hjálpar stjúpföður hans, Þórarins Lýðssonar smiðs, og tengdaföður hans, Svanþórs Jónssonar múrarameistara. Betri hjálp var eðlilega ekki hægt að fá, enda fluttu þau Sig- urður og Þóra inn í nýbyggt húsið tæpu ári seinna. Þau bjuggu þar til fjölda ára. Gest- risni og félagslyndi þeirra hjóna var annálað og alla tíð var þar mikill gestagangur. Heimilið varð eins konar félagsheimili fjölskyldu þeirra, vina og sam- starfsmanna og húsið iðaði oftar en ekki af lífi og fjöri. Síðar var byggð þar sundlaug og ekki dró hún úr aðsókninni. Sigurður var einstaklega ljúf- ur og skemmtilegur maður og við sem þessi orð skrifum áttum með honum og fjölskyldu hans ótalmargar, ógleymanlegar sam- verustundir innanlands sem ut- an. Við vottum Þóru og aðstand- endum þeirra Sigurðar innileg- ustu hluttekningu. Minningarn- ar um hann gleymast okkur aldrei. Einar Egilsson. Sigurður Þórir Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.