Morgunblaðið - 09.01.2013, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2013
Opið virka daga frá 9-18
og lau frá 10-16
Laugavegi 29 - sími 552 4320
www.brynja.is - brynja@brynja.is
Lykilverslun við Laugaveg síðan 1919
Áratuga þekking og reynsla
SKÁPA- OG INN-
RÉTTINGAHÖLDUR
Í MIKLU ÚRVALI
TÆ
PLE
GA
400
GER
ÐIR
!
Umræðan um hin sérkennilegudrög umboðslauss hóps
manna að hugdettu að stjórnarskrá
fyrir lýðveldið Ísland verður dul-
arfyllri með degi hverjum.
Og skringileg-ust verður
hún gjarnan þeg-
ar einhver úr
„hópnum“ tekur
til máls um efnið.
Í framhaldi afafgerandi umfjöllun forsetans
um tiltekna þætti stjórnarskrár-
innar annars vegar og vinnubrögð
við málið hins vegar skrifar einn úr
hópnum og fullyrðir að forsetinn sé
vanhæfur (í lagaskilningi) til að
fjalla um stjórnarskrána.
Og hann bætir um betur og full-yrðir að alþingismenn séu með
sama hætti vanhæfir til að koma að
verkinu. Það er að sögn viðkom-
andi vegna þess að stjórnarskráin
taki til þeirra!
Virðist viðkomandi vera að ruglasaman embættum og per-
sónum.
Þetta er auðvitað eins og hverönnur endileysa og tekur
naumast tali.
Enda myndi þá núgildandistjórnarskrá með þeim fjöl-
mörgu breytingum sem við hana
hafa verið gerðar vera ógild með
öllu.
En þótt bull af framangreindutagi sé auðvitað varla um-
ræðutækt má velta fyrir sér í ljósi
þess, hvers konar andrúmsloft hafi
eiginlega ríkt á þessari prívat-
samkomu sem rumpaði af einu
stykki stjórnarskrá á fáeinum dög-
um eða vikum.
Enn bætir í bullið
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 8.1., kl. 18.00
Reykjavík 3 skýjað
Bolungarvík 4 skýjað
Akureyri 2 alskýjað
Kirkjubæjarkl. 4 skýjað
Vestmannaeyjar 4 skýjað
Nuuk -6 heiðskírt
Þórshöfn 7 skúrir
Ósló -2 alskýjað
Kaupmannahöfn 6 skýjað
Stokkhólmur 1 þoka
Helsinki 0 snjókoma
Lúxemborg 2 skýjað
Brussel 7 skýjað
Dublin 8 léttskýjað
Glasgow 7 léttskýjað
London 11 skýjað
París 3 alskýjað
Amsterdam 8 alskýjað
Hamborg 7 súld
Berlín 7 skýjað
Vín 0 upplýsingar bárust ek
Moskva -7 alskýjað
Algarve 13 léttskýjað
Madríd 1 skýjað
Barcelona 13 heiðskírt
Mallorca 16 heiðskírt
Róm 12 léttskýjað
Aþena 2 léttskýjað
Winnipeg -7 skýjað
Montreal 1 alskýjað
New York 5 heiðskírt
Chicago 0 skýjað
Orlando 22 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
9. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:07 16:04
ÍSAFJÖRÐUR 11:43 15:37
SIGLUFJÖRÐUR 11:28 15:19
DJÚPIVOGUR 10:44 15:26
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
(SHS) sinnti meira en 25.000 útköll-
um á árinu 2012. Þar af voru rúm-
lega 1.200 slökkviliðsútköll en yfir
24.000 vegna sjúkraflutninga. Um
95% allra útkalla SHS tengdust því
sjúkraflutningum af einu eða öðru
tagi. Heildarfjöldi útkalla jókst um
618 á milli áranna 2011 og 2012, sam-
kvæmt frétt frá SHS.
Sjúkraflutningum er skipt í fjóra
flokka eftir alvarleika þeirra. Þannig
eru F1 og F2 svokallaðir neyð-
arflutningar, F3 eru vegna vægari
sjúkdómstilfella eða minni slysa og
F4 vegna flutninga á milli stofnana.
Alls voru 6.602 neyðarflutningar á
árinu 2012 en mesta aukningin var í
F3 flutningum. Þeim fjölgaði um 911
frá árinu 2011.
Þegar útköll eru skoðuð eftir
mánuðum þá var slökkviliðið oftast
kallað út í janúar í fyrra, eða 135
sinnum. Mest var um sjúkraflutn-
inga í desember eða alls 2.202 útköll.
Fæst útköll voru aftur á móti vegna
slökkvi- og björgunarstarfa í sept-
ember í fyrra og í apríl voru fæst út-
köll vegna sjúkraflutninga. For-
varnasvið SHS sinnti yfir 3.000
eldvarnaskoðunum 2012, gerði rúm-
lega 200 loka- og öryggisúttektir og
heimsótti tæplega 130 staði vegna
veitingahúsaeftirlits. gudni@mbl.is
Slökkviliðið fékk yfir 25.000 útköll
Um 95% allra útkalla SHS í fyrra
voru vegna sjúkraflutninga
Morgunblaðið/Júlíus
Sjúkraflutningar Fleiri flutningar.
Faxi RE og Ingunn AK komu til
Vopnafjarðar snemma í gærmorg-
un með rúmlega 2.000 tonn af
loðnu. Aflinn fékkst aðallega í flot-
troll á togveiðisvæðinu norður af
Langanesi, samkvæmt upplýs-
ingum frá HB Granda.
Að sögn Alberts Sveinssonar,
skipstjóra á Faxa RE, var þetta stór
og falleg loðna og svo til átulaus.
Hann sagði að í síðustu mælingu á
Faxa hefði talning skilað að jafnaði
33 loðnum í kílói.
Töluverður fjöldi skipa var á
veiðisvæðinu í gær og sagði Albert
að skipin hefðu sennilega verið 17
talsins og því nokkur þröng á þingi.
Vestan við togveiðisvæðið stóð
loðnan mjög djúpt.
Grænlenska skipið Erika kom á
miðin í fyrrinótt en það skip er
útbúið til nótaveiða.
Morgunblaðið/Þorkell
Faxi RE Loðnuskipin veiða nú vel af af fal-
legri loðnu norður af Langanesi.
Stór og falleg loðna
norður af Langanesi
en stendur djúpt