Morgunblaðið - 09.01.2013, Qupperneq 10
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Mér fannst rosa gaman aðríma og ég var alltaf aðpára eitthvað þegar égvar krakki. Ég samdi
töluvert af ljóðum á menntaskóla-
árunum og þegar ég var í Kennara-
háskólanum var ég í ljóðahópi hjá
Þórði Helgasyni, en honum á ég mik-
ið að þakka í því að skóla mig til í
ljóðagerð. Árið 2007 gaf ég svo út
mína fyrstu ljóðabók, Leitina að
Fjalla-Eyvindi. Mörg ljóðanna í
henni urðu til á ferðalögum, en á slíku
flakki fer ljóðmælið af stað,“ segir
Halla Gunnarsdóttir sem í gær fagn-
aði ekki aðeins 32 ára afmæli sínu
heldur einnig útkomu nýrrar ljóða-
bókar sem ber titilinn Tvö jarðar ber.
Hef lært mikið af Nityu
„Þessi bók er tileinkuð ind-
verskri vinkonu minni, Nityu, en
henni kynntist ég í Ástralíu fyrir
rúmum sex árum en hún var þar í
meistaranámi og ég tók eina önn af
mínu meistaranámi í Sydney. Nitya
er alin upp í Delhí og hennar ind-
verska fjölskyldumunstur er mjög
ólíkt því sem við þekkjum. Hún var
að fara að heiman í fyrsta skipti þeg-
ar við kynntumst í Ástralíu og við
urðum eiginlega strax vinkonur. Við
smullum saman og það er klisjukennt
en ég upplifði hana strax sem ein-
hvers konar sálufélaga. Í Ástralíu
gerði ég nánast ekkert annað en læra
og drekka te með Nityu. Ég hef lært
rosalega mikið af henni og það er
skrýtið að eignast svona góða vin-
konu með gerólíkan bakgrunn, að
þurfa að skilja hana og hennar líf,
ekki á einhvern yfirborðskenndan
hátt, heldur á dýptina.“
Vinkonur með
gerólíkan bakgrunn
Þær hafa hist þrisvar í þremur heimsálfum og stefna á að hittast í fjórða sinn í
fjórðu heimsálfunni. Þær Halla og Nitya eru með gerólíkan bakgrunn, önnur ís-
lensk og hin indversk, en þær eru afar góðar vinkonur. Nú hefur Halla gefið út
ljóðabók sem er ferðasaga þeirra vinkvennanna um Ísland.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Teiti Halla hélt í gær upp á 32 ára afmæli sitt og útgáfu ljóðabókar.
Ljósmynd/Hafþór Snjólfur Helgason
Indverskt Halla og Nitya saman á Bollywoodhátíðinni í Borgarfirði eystri.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2013
Dalvegi 4 - 201 Kópavogur
Hamraborg 14 - 200 Kópavogur
Sími: 564 4700
Opnunartími Dalvegi:
Mánudaga til föstudaga frá 6:00 til 18:00
laugardaga frá 6:00 til 17:00
sunnudaga frá 7:00 til 17:00
Hugsaðu um heilsuna
og veldu heilkorn
Hjartabrauð
Þitt hjartans mál...í hvert mál...
Mörgum er sérstaklega umhugað
um heilsu og heilbrigða lífshætti nú
í byrjun árs. Allt er best í hófi en
yfir hátíðarnar eiga margir það til
að leyfa sér um of og vilja nú bæta
sig.
Á vefsíðunni authoritynutrition-
.com er að finna ýmsar greinar er
snúa að mataræði. Á síðunni má
meðal annars finna grein um hvað
sé til í því að C-vítamín geti dregið
úr kvefi og hvaða innihaldsefni ber
helst að varast í matvælum. Öllu
skal vitaskuld taka með fyrirvara en
forvitnilegt getur verið að glugga í
greinar sem þessar. Höfundur
síðunnar er læknanemi og einka-
þjálfari sem hefur lesið sér mikið til
um heilsu og næringu.
Vefsíðan www.authoritynutrition.com
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sítrusávextir Appelsínur eru C-vítamínríkar og hollur millibiti.
Fróðleikur um holla næringu
Kynning á niðurstöðum landskönn-
unar á mataræði sex ára barna á Ís-
landi 2011-2012 verður haldin föstu-
daginn næstkomandi, 11. janúar.
Kynningin fer fram í stofu LG-201 í
Læknagarði en könnunin er hluti af
stærra rannsóknarverkefni á matar-
æði sex ára barna á Íslandi síðast-
liðin tíu ár og því verður einnig farið
yfir helstu breytingar sem hafa orðið
á tímabilinu. Inga Þórsdóttir, forseti
Heilbrigðisvísindasviðs, flytur erindi
um forsöguna og hefst það klukkan
12, þá mun Ingibjörg Gunnarsdóttir,
prófessor í næringarfræði við Mat-
væla- og næringarfræðideild, greina
frá landskönnun á mataræði 6 ára
barna og loks mun Hafdís Helgadótt-
ir, meistaranemi í næringarfræði við
Matvæla- og næringarfræðideild,
flytja erindi um breytingar á matar-
æði 6 ára barna á 10 ára tímabili. Í
lokin verður opið fyrir umræður og
fyrirspurnir en fundarstjóri er Birna
Þórisdóttir, MSc í næringarfræði við
Matvæla- og næringarfræðideild.
Endilega…
…sækið erindi
um mataræði
Ljósmynd/Norden.org
Könnun Mataræði barna er mikil-
vægt rannsóknarefni.
Þeir sem ekki hafa í huga að léttast á
nýju ári gætu hugsað sér að takast á
við áskorun veitingastaðarins Monte
Carlo Pub í Las Vegas. Forsvarsmenn
hans veðja 29 dollurum, eða tæplega
3.800 krónum, á að fólk komi ekki
niður 3,6 kg hamborgara með bjór-
glasi á innan við 45 mínútum. Það er
andvirði borgarans sem lagt er undir
og takist fólki þetta fær það borgar-
ann frítt og stuttermabol með.
Áskorunin hófst á síðasta ári og hafa
150 gestir reynt við borgarann en að-
eins þremur tekist ætlunarverkið.
Þolinmæði er nauðsynleg fyrir þá
sem vilja reyna en það tekur hálftíma
til 45 mínútur að elda þau 1,8 kg af
kjöti sem fara í hamborgarann og
síðan bætist við nærri kg af ham-
borgarabrauði, ostur, jalapeno, kara-
mellu-laukur, grænmeti og sósa. Í
borgaranum eru alls 11.000 kaloríur
en kokkur staðarins segir brauðið
helst koma í veg fyrir að fólk geti
klárað þar sem það þenst út í mag-
anum. Hann mælir eindregið gegn
því að fólk smakki á laukhringjum
eða öðrum forréttum á undan
skrímslaborgaranum því þá er ekki
séns að klára. Kemur þetta fram í
frétt á vefsíðu bandaríska dagblaðs-
ins L.A.
Skrímslaborgari á matseðlinum
Í borgaranum eru 11.000 kaloríur
Borgari Þessi er engin smásmíði en Monte Carlo Pub-skrímslið er mun stærri.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.