Morgunblaðið - 09.01.2013, Side 18
18 FRÉTTIRViðskitpi | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2013
Kópavogur 544 5000
Njarðvík 421 1399
Selfoss 482 2722www.solning.is
Smurþjónusta RafgeymarSmáviðgerðir RúðuvökviRúðuþurrkur
JEPPADEKK
VILT ÞÚ HAFA BÍLINN Í LAGI?
ÞÁ GETUM VIÐ AÐSTOÐAÐ
EINFÖLD ÁKVÖRÐUN
VELDU
ÖRYGGI
FYRIR ÞIG OG ÞÍNA
STUTTAR FRÉTTIR
● Atvinnuleysi á evrusvæðinu jókst um
1% milli mánaða og nam 11,8% í nóv-
ember. Það hefur aldrei mælst meira
segja erlendir fjölmiðlar. Atvinnuleysi
meðal ungs fólks mældist 24,4%. At-
vinnuleysið í Evrópusambandinu var
óbreytt milli mánaða eða 10,7%. Það er
mest á Spáni, 26,9%, og á Grikklandi,
20%. Minnst atvinnuleysi er í Austur-
ríki, 4,5%. Mest dró úr atvinnuleysi í
nóvember í Eistlandi eða úr 12,1% í
9,5%, en Eistland er nýjasta landið
sem tók upp evru. Um 26 milljónir
manna eru án vinnu í ESB, þar af 18,8
milljónir á evrusvæðinu.
Atvinnuleysi eykst
● Gunnar Petersen hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri fjármálasviðs Ný-
herja hf. og mun hefja störf í vikunni.
Hann er viðskiptafræðingur frá Há-
skóla Íslands og löggiltur verð-
bréfamiðlari. Hann var fjármálastjóri
Iceland Express hf. 2011-2012 og fjár-
málastjóri Landic Property hf. frá 2006
til 2010, segir í tilkynningu.
Áður hafði Gunnar starfað sem við-
skiptastjóri og sérfræðingur hjá HSH
Nordbank í Kaupmannahöfn, Verð-
bréfastofunni hf. og Sparisjóðabanka
Íslands hf.
Gunnar er nýr fram-
kvæmdastjóri Nýherja
Dr. Eyþór Ívar Jónsson hefur
ákveðið að láta af störfum sem for-
stjóri Klaks – Nýsköpunarmiðstöðv-
ar Íslands eftir að hafa starfað þar í
næstum fimm ár. Hann segir í til-
kynningu að þetta sé góður tíma-
punktur, Klak skili hagnaði og búið
sé að tryggja rekstur næstu tveggja
ára.
Klak stendur m.a. fyrir Seed For-
um Iceland og kom að uppbyggingu
tveggja sprotasetra, annars í gamla
Morgunblaðshúsinu og hins í O2 –
gamla HR. Á síðustu fimm árum
hafa verið haldin tíu 100 til 200
manna sprotaþing. Í Viðskiptasmiðj-
unni – Hraðbraut nýrra fyrirtækja
hafa ellefu þriggja mánaða hraðlar
verið haldnir frá árinu 2008 þar sem
um 200 námskeið hafa verið kennd
með fleiri en 50 kennurum og 100
gestafyrirlesurum. Hraðall þýðir að
hraða á hinu hefðbundna fram-
kvæmdaferli sprotafyrirtækja.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Kraftur Eyþór Ívar Jónsson, forstjóri Klaks, var fundarstjóri á síðasta Seed
Forum og lagði sig allan fram þegar hann steig á svið.
Dr. Eyþór Ívar
hættir hjá Klaki
Stýrði nýsköpunarmiðstöðinni í 5 ár
enda (þ.e. annarra en stjórnarmanna)
og fyrirtækjamenningu. Í flestum til-
vikum telja stjórnarmenn að löggjöf-
in muni engin áhrif hafa á ofangreind
atriði.
Spurt var í hversu mörg ár stjórn-
armennirnir hefðu verið í stjórn þess
félags/sjóðs sem var í úrtaki könnun-
arinnar. Hjá fjármálafyrirtækjum og
vátryggingafélögum hafa 90% stjórn-
armanna verið þrjú ár eða skemur í
stjórn félagsins en 5% stjórnarmanna
hafa verið sjö eða fleiri ár í stjórninni.
Í öðrum atvinnugreinum hafa 49%
stjórnarmanna verið þrjú ár eða
skemur í stjórn félagsins en 28%
stjórnarmanna hafa verið sjö eða
fleiri ár í stjórninni. „Endurnýjun í
stjórnum fjármálafyrirtækja og vá-
tryggingafélaga hefur því verið meiri
en hjá öðrum atvinnugreinum,“ segir
í niðurstöðum KPMG.
Stjórnarmenn voru spurðir hvort
þeir séu almennt í samskiptum við
aðra stjórnarmenn hjá félaginu/
sjóðnum á milli stjórnarfunda um
málefni er varða störf stjórnarinnar.
Töluverður munur er á samskiptum
við aðra stjórnarmenn á milli stjórn-
arfunda þegar horft er til starfsaldurs
í stjórn og kyns. „Það virðist taka
lengri tíma fyrir kvenkyns stjórnar-
menn að hefja samskipti við alla
stjórnarmenn þar sem karlar sem
hafa verið 1-3 ár í stjórninni eiga sam-
skipti við alla stjórnarmenn í 44% til-
vika en konur í 25% tilvika. Í þeim til-
vikum þar sem stjórnarmenn eiga
engin samskipti við aðra stjórnar-
menn á milli funda er einkum munur
þegar stjórnarmenn hafa verið ann-
ars vegar skemur en eitt ár í stjórn-
inni og hins vegar sjö ár eða lengur,“
segir í skýrslunni.
Af þeim sem svöruðu voru 80% há-
skólamenntaðir, þ.e. með háskóla-
menntun og/eða framhaldsmenntun á
háskólastigi. 20% stjórnarmanna eru
því ekki háskólamenntuð. Þetta hlut-
fall er það sama og árið 2011. 89%
kvenkyns stjórnarmanna eru há-
skólamenntuð samanborið við 77%
karlkyns stjórnarmanna. Fleiri konur
eru jafnframt með framhaldsmennt-
un á háskólastigi eða 68% samanborið
við 59% karla.
Hlutfall kvenna í stjórnum
hefur hækkað jafnt og þétt
Í haust taka gildi lög um að hlutfall hvors kyns sé að lágmarki 40% í stjórnum
Forstjórar vinsælir
» Stærsti hópur stjórn-
armanna (55%) er menntaður
í viðskipta- eða hagfræði.
» Stærsti hópur karlkyns
stjórnarmanna (37%) er fram-
kvæmdastjórar/forstjórar að
aðalstarfi. Stærsti hópur
kvennanna (25%) er milli-
stjórnendur að aðalstarfi.
Afstaða stjórnarmanna til löggjafar um
40% lágmarkshlutfall hvors kyns í stjórn
Jákvæð eða
frekar jákvæð
Hvorki jákvæð
né neikvæð
Frekar neikvæð
eða neikvæð
Eldri en
60 ára
51-60
ára
41-50
ára
31-40
ára
18%
15%
67%
20%
31%
49%
33%
20%
47%
41%
15%
44%
Kynjahlutfall stjórnarmanna
eftir lengd stjórnarsetu
Karlar Konur
Minna en eitt ár Eitt til þrjú ár Fjögur til sex ár
Sjö ár eða fleiri Óháð árafjölda
51% 49%
34%
66%
21%
79%
14%
86%
29%
71%
Heimild: KPMG
BAKSVIÐ
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Hlutfall kvenna í stjórnum hefur
hækkað jafnt og þétt, einkum und-
anfarin þrjú ár, samkvæmt könnun á
vegum KPMG. Af þeim stjórnar-
mönnum sem tóku þátt í könnuninni
og hafa verið minna en eitt ár í stjórn-
inni er 51% konur og 49% karlar.
Kynjahlutfall þeirra sem hafa verið
eitt til þrjú ár í stjórninni er 34% kon-
ur og 66% karlar. Könnunin var gerð
haustið 2012 og var úrtakið 920
stjórnarmenn félaga og lífeyrissjóða
á Íslandi. Alls tóku 396 stjórnarmenn
fullan þátt í könnuninni og var svar-
hlutfallið 43%.
Kynjakvótalögin
Þessa þróun má rekja til þess að
þann 1. september í ár taka gildi lög
sem kveða á um að hlutfall hvors kyns
sé að lágmarki 40% í stjórnum lífeyr-
issjóða og stærri fyrirtækja. Þetta á
við um hlutafélög, einkahlutafélög og
samlagshlutafélög þar sem starfa
fleiri en 50 starfsmenn á ársgrund-
velli, öll opinber hlutafélög og alla líf-
eyrissjóði. Samstarfssamningur Sam-
taka atvinnulífsins, Viðskiptaráðs
Íslands og Félags kvenna í atvinnulíf-
inu var auk þess undirritaður árið
2009 um að efla hlut kvenna í stjórn-
um íslensks atvinnulífs. Samkvæmt
samningnum átti að hvetja til þess og
leggja ríka áherslu á fjölgun kvenna í
forystusveit íslensks viðskiptalífs
þannig að hlutfall hvors kyns yrði
ekki undir 40% í lok árs 2013. Ári síð-
ar var það fest í lög.
Stjórnarmenn voru spurðir hvort
þeir teldu að löggjöfin mundi hafa
áhrif á stjórnarstörf, rekstrarafkomu,
ímynd, kynjahlutfall æðstu stjórn-
!"# $% " &'( )* '$*
+,-.//
,01.12
+30.3,
,,.425
,,.514
+5.13/
+35.3+
+./125
+51.14
+1-./1
+,-.24
,02.+2
+30.2
,,.1/4
,3.033
+5.15,
+35.2
+./2,,
+52.,/
+1-.53
,3+.50/4
+,5.01
,02.12
+3+.0-
,,.2++
,3.+0+
+5.24
+/0.05
+./214
+52.-3
+15./
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á