Morgunblaðið - 09.01.2013, Síða 31

Morgunblaðið - 09.01.2013, Síða 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2013 ferðir, bæði innanlands og utan, með góðum félögum og þá var alltaf gott að eiga sælkerann að hvað varðar nautnir lífsins í mat- argerð og víni. Nú síðast fórum við saman til Minneapolis í haust, grunlausir um hvað í vændum væri nú fyrir jól. Þar var farið í veiðibúðir og veitingastaði valda af Sigmari, sem ekki klikkuðu frekar en fyrri daginn. Í dag er ég sérstaklega þakklátur fyrir það tækifæri sem ég fékk að fara með Sigmari í þá ferð svo stuttu fyrir hans síðasta dag. Að vinna með Sigmari var af- skaplega gott, hann var alltaf kát- ur og þægilegur í samskiptum, ákaflega hreinn og beinn og ólík- ur mörgum Íslendingum að því leyti að hann mætti alltaf á rétt- um tíma þegar við höfðum ákveð- ið að hittast. Alltaf var stutt í glens og gaman og ávallt stóðust áætlanir hans um verkefnin. Ég er þakklátur fyrir þann tíma sem ég hef átt með honum og hef lært mikið af honum hvað varðar já- kvæðni gagnvart lífinu og þeim verkefnum sem að höndum ber. Það eru því erfið spor að fylgja frænda mínum, vini og samstarfs- manni, til grafar svona fyrir aldur fram miðað við nútíma viðmið. Þessi veikindi Sigmars tóku hann frá okkur á örskotsstundu en þó þannig að tími gafst til að ræða málið og kveðjast sem vonandi hjálpar þeim sem næst honum standa. Ég og fjölskylda mín vott- um Hauki og Guðjóni, sonum Sig- mars og fjölskyldum þeirra, systkinum hans sem og öðrum aðstandendum okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning Sig- mars Bent. Kjartan Jónsson og fjölskylda. Fallinn er frá hann Sigmar vin- ur minn. Hann sem átti eftir að fella margar rjúpurnar og þreyta stórlaxana í Bæjarfljótinu neðan Víðivalla, ættaróðalsins sem var honum svo kært. Við Sigmar heyrðumst alltaf reglulega og ár- viss var fundur okkar á hólnum hvar hann hafði búið sér fallegt skjól í heiðblárri berjabrekku. Ég var ungur lögreglumaður þegar ég hóf störf og flutti til Hólmavík- ur 1992 og það var veiðiáhuginn og löngun til útiveru sem leiddi mig og bræðurna frá Víðivöllum saman. Félagsskapur sem hefur verið óslitinn síðan. Ég segi það reglulega að maður eignast í lífi sínu marga kunningja og félaga en þetta eru vinir mínir. Við Sig- mar fórum oft saman til veiða á meðan ég bjó á Hólmavík en nú síðustu ár hefur verið minna um það. Þó hefur það gerst annað slagið og naut ég félagsskapar Sigmars. Sjaldan hef ég hitt mann sem hefur tekið eins miklu ástfóstri við heimabyggð sína, Strandirnar, eins og hann. Sig- mar var búsettur í Reykjavík en hann sagði mér oft að hann yrði aldrei Reykvíkingur, hann myndi ávallt verða Strandamaður. Skemmtilegar voru stundirnar við tíru olíulampans í húsinu hlýja hvar Sigmar eldaði veislumat sem gjarnan var eldaður úr villi- bráð. Veisla sem hæfði konung- um. Gott ef það var ekki söltuð gæs með rótargrænmeti sem var síðasta máltíðin okkar saman og reyndist lostæti. Sigmar var fag- urkeri, hvort sem var á mat eða vín og lagði mikinn metnað í það að maturinn væri góður, eðal- rauðvín væri fram með borið og að viskíið eftir á væri af réttri teg- und. Mörg voru gullkornin sem féllu af vörum hans. Eftirminni- leg er ferð okkar til gæsa snemma morguns einn haustdag ekki langt frá Hólmavík. Veiðin var döpur að mér fannst, ekki nema fimm gæsir og nefndi ég það við Sigmar. Hann horfði á mig alvarlegur á svip og sagði: „ Höskuldur, þú ert orðinn þrosk- aður sem veiðimaður þegar veiðin snýst ekki lengur um magn veiddra fugla, heldur gæði veið- innar.“ Ég hef oft hugsað til þess- ara orða hans og í dag sennilega 15 árum síðar er ég sammála. Kæri vinur, við eigum eftir að ganga saman til rjúpna einn góð- an veðurdag, þar sem fer saman fallegasta fjallasýn í heimi, á hjarni glitra frostrósir og gæði veiðinnar eru mikil. „Þá er veiði- dagur góður þegar hóflega er veitt, með talsverðri líkamlegri áreynslu, vakandi náttúruskyni og sært dýr liggur ekki eftir að kveldi.“ Strandabyggð í björtum skrúða brosir fegurst hér á jörð inn til dala út til flúða eilíf hljómar þakkargjörð. Síkvik unn við ársól glitrar örsmá bára á sundum hlær yndisfögur tíbrá titrar töfrabliki fjær og nær. (Jóhannes Jónsson.) Þinn vinur Höskuldur Birkir Erlingsson. Sigmar B. Hauksson er horf- inn sjónum okkar mannanna langt um aldur fram. Hans er sárt saknað. Við Sigmar kynntumst á gaml- ársdegi fyrir u.þ.b. þremur ára- tugum og kvöddumst nú hinsta sinni á Þorláksmessukvöld. Á síðari hluta þessa tíma unn- um við náið saman að líknar- og félagsmálum innan vébanda Astma- og ofnæmisfélagsins og SÍBS, en við Sigmar vorum lengi og samtíða stjórnarmenn í báðum þessum félögum og Sigmar auk þess formaður Astma- og ofnæm- isfélagsins um margra ára skeið. Mér finnst það hafa verið ákveðin forréttindi mín að fá að njóta mannkosta Sigmars. Hann var mikill þekkingarbrunnur, víð- sýnn og mjög frjór í hugsun. Hann tók sér einatt stöðu með þeim, sem áttu á brattann að sækja í lífinu og leitaðist við að bæta stöðu þeirra. Það er stórt skarð fyrir skildi í baráttumálum sjúkra og öryrkja, þegar Sigmars nýtur ekki lengur við. Það skarð verður vandfyllt. Fyrir handleiðslu Sigmars og vinarþel alla tíð er ég ákaflega þakklátur og mun varðveita minningu hans um ókomna tíð. Blessuð veri minningin um hinn góða dreng, Sigmar B. Hauksson. Við hjónin vottum fjöl- skyldu hans okkar dýpstu samúð. Björn Ólafur Hallgrímsson. Það er ekki alltaf einskær gleðiboðskapur sem jólin flytja okkur. Á aðfangadag jóla barst okkur í Landssambandi eldri borgara sú þungbæra fregn að Sigmar B. Hauksson hefði látist þann dag á Landspítalanum eftir stutta sjúkdómslegu. Hann hafði unnið með okkur sl. ár sem rit- stjóri blaðsins Listin að lifa sem Landssambandið gefur út til sinna félagsmanna. Nú síðast vorum við að vinna með honum að útgáfu vetrarblaðsins sem út kom í byrjun desember. Við höfðum því enga hugmynd um veikindi hans, enda lét hann ekkert slíkt í ljósi við okkur. Það var gott að vinna með Sigmari, hann hafði mikinn áhuga fyrir málefnum eldri borgara og vildi leggja sitt af mörkum til að gera blaðið okk- ar sem best úr garði. Þau tvö blöð sem hann hefur verið ritstjóri fyrir á síðasta ári hafa fengið lof frá lesendum blaðsins. Við höfð- um því gert okkur vonir um áframhaldandi farsælt samstarf. En að slíku er ekki spurt þegar alvarleg veikindi gera vart við sig. Sigmar hefur komið að mörg- um öðrum málum um ævina og vakið þar verðskuldaða athygli. Við í stjórn Landssambands eldri borgara og útgáfunefnd fyrir Listin að lifa viljum þakka honum við leiðarlok, fyrir afar gott sam- starf við útgáfu blaðsins. Við sendum börnum hans, barnabörnum og öðrum aðstand- endum innilegar samúðarkveðjur vegna fráfalls hans. Jóna Valgerður Kristjáns- dóttir, formaður Lands- sambands eldri borgara. Ljúflingur er lát- inn. Jón Úlfar Líndal hefur lokið lífsgöngu sinni hér á jörð. Hann lék með leikhópnum Perlunni um árabil. Hann tók þátt í leikferð- um til Noregs, Færeyja, Brussel og Þýskalands. Einnig tók Jón þátt í spuna- verkefni Perlunnar og þýskra listamanna. Útkoman var leikrit- ið Sérstakar sögur, sem var frumsýnt í Bielefeld. Jóns var sérstaklega getið í einum af leik- dómum í þýskum blöðum. Hann Jón Úlfar Líndal ✝ Jón Úlfarfæddist í Reykjavík 12. júlí 1952. Hann lést á Droplaugarstöðum 25. desember 2012. Útför Jóns Úlf- ars Líndal fór fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík 4. janúar 2013. vakti athygli fyrir leik sinn. Jón var traustur liðsmaður leikhópsins Perl- unnar og liðtækur leikari. Jón var létt- ur í lund og fé- lagslyndur. Hann var í leiklistar- klúbbnum Perlu- festinni, sem er áhugahópur um leiklist. Hann var í stjórn og formaður um árabil. Hann naut sín vel og fannst gam- an að tala fyrir hönd Perlufest- arinnar og þakka fyrir, þegar við hittum leikarana eftir leiksýn- ingu. Það var gaman að fara í leikhús og líka gaman að fara „á bakvið“ og hitta leikarana. Margs er að minnast á kveðju- stund. Við þökkum Jóni Úlfari góða og skemmtilega samfylgd og samvinnu og minnumst hans með virðingu og þakklæti. Aðstand- endum sendum við samúðar- kveðjur. Sigríður Eyþórsdóttir og leikhópurinn Perlan. Jón frændi minn er nú dáinn og viðkvæm stund fyrir okkur. Nonni frændi var fastur punktur í tilverunni og öllum jólum svo lengi sem ég man. Hann kvaddi á jóladag og finnst mér það falleg og viðeigandi tímasetning fyrir svo yndislegan dreng. Jón kallaði mig alltaf Tomma frænda sinn og mér þótti ótrúlega vænt það og um þennan vin minn. Það er sorg og fallegar tilfinningar sem fylgja því að kveðja hann. Nú hefur hann fylgt móður sinni sem lést fyrir stuttu. Eins og mamma hans var hann ljúfmenni og eitt- hvað gott fylgdi honum. Það var gaman að hitta hann og við spjölluðum oft saman í ein- rúmi og oft var rætt um skátana. Við vorum skátar hér áður fyrr, sem tengdi okkur sérstökum böndum. Yfirleitt fann maður þó bara fyrir hreinni væntumþykju frá honum sem mér þótti sjálfum svo einstaklega vænt um. Nonni var alltaf góður við mig og mér fannst hann svo hrein og um- búðalaus sál þrátt fyrir að lífið hafi eflaust oft verið erfitt fyrir hann. Ég er svo þakklátur fyrir alla þá umhyggju sem honum var sýnd og hve mamma hans og fjöl- skylda voru góð við hann. Ég er svo þakklátur og stoltur að hafa átt þau sem hluta af fjölskyld- unni minni. Guði sé lof fyrir liðna tíð með Nonna en það sem kem- ur upp helst upp í hugann varð- andi frænda minn er kærleikur. Mér hefur lærst að við, í okkar veraldarvafstri, gleymum því grunngildi lífsins að Guð er kær- leikur og gefur lífinu raunveru- legt gildi. Minningin um Jón gerir þetta svo skýrt. Ég vil senda frænd- fólki mínu, systkinum Jóns og fjölskyldum þeirra, innilegar samúðarkveðjur og þakklæti fyr- ir umhyggjuna fyrir Nonna frænda. Bless Nonni minn, nú gengur þú með Guði en þú átt varanlegan stað í mínu hjarta ávallt. Tómas Ottó Hansson. Nú kveðjum við kæra systur, mágkonu og síðast en ekki síst góða vinkonu í gegnum árin. Er efst í huga, þegar hún var spurð hvort til greina kæmi að vera með 3ja ára drenginn okkar, er vænt- anlegt barn bankaði upp á. Ekkert mál, var svarið. Þú hringir bara þegar að því kem- ur. Það eru liðin tæp 44 ár síð- an þetta var. Valur að vinna Sigrún Lilja Bergþórsdóttir ✝ Sigrún LiljaBergþórsdóttir fæddist í Reykjavík 10. júlí 1933. Hún lést á líknardeild Landspítala 22. desember 2012. Útför Lilju fór fram frá Hafnar- fjarðarkirkju 4. janúar 2013. austur í Búrfells- virkjun. Þannig að ég hengdi mig á Lilju og Malla þeg- ar að fæðingu kom. Um miðnætti fengu þau upp- hringinguna. Ekki stóð á viðbrögðum þeirra – voru mætt til mín innan skamms tíma. Svona var allt sem að þeim snéri, framkvæmt af heilum hug. Alltaf var jafn gott og gaman að kíkja í spjall. Því fylgdi ætíð kaffi og með því. Síðast fyrir nokkrum vikum. Þá kom ekki annað til greina, en dúkað borð og bjóða að venju upp á kaffi- sopa og meðlæti. Skrafað um allt og ekkert, allt frá fortíð til framtíðar og skipst á skoðun- um. Að leiðarlokum eru þessi fátæklegu orð, lítið brot af þeim hugrenningum, sem um hugann fara. Þökkum við af alhug fyrir vináttu og tryggð. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku Malli, Örn, Inga, Gréta og fjölskyldur. Megi birta hækkandi sólar lýsa ykk- ur veginn á nýju ári og um alla framtíð. Minning lifir um góða konu. Valur og Heiða. Við kynntumst í útlöndum þar sem við þrömmuðum saman hvern fjallsstíginn af öðrum, másandi og blásandi, alltaf á uppleið. Hamingjusamar í góð- um félagsskap með dásamlegt útsýni þegar ilmandi skógurinn loksins gaf eftir. Einhvern veg- inn smullum við saman og þá um leið hófst lærdómsganga mín fyrir alvöru. Eftir mikinn lestur námsbóka og fleyg orð mætra kennara gegnum tíðina hef ég samt aldrei lært eins góða lexíu og þá sem Lilja gaf mér. Hún kenndi mér æðru- leysi. Mun ég ætíð þakka henni þá stóru gjöf og gæta þess að gefa hana áfram. hlýja ylur alúð bros birta gleði gjafirnar streyma sem regnbogi í sólinni demantar við enda regnbogans ef við kunnum að leita ef við kunnum að þiggja Nú er sársaukinn horfinn og hún frjáls að heimsækja þá staði sem hún átti eftir. Björk Felixdóttir. Það er merkilegt hvað þeir sem taka lítið pláss í lifanda lífi geta skilið eftir sig mikið tómarúm. Þannig upplifi ég fráfall Studda, eins og hann var alltaf kallaður. Ég hef þekkt Studda alla mína ævi. Hann var maður móðursystur minnar, og þó að það færi lítið fyrir honum var hann hluti af tilverunni með sitt ljúfa, milda fas, alltaf í bak- grunni, traustur og óhagganleg- ur. Ég minnist þess þegar ég fór í pössun sem lítil stelpa til Önnu Soffíu og Studda, ég minnist allra góðu stundanna í Tungusíðunni og í sumarbústaðnum, og ég minnist með þakklæti þess að við Elvar áttum alltaf athvarf hjá Önnu Soffíu og Studda á Akureyri á meðan við bjuggum á Kópa- skeri. Þá var gott að koma við í Tungusíðunni á löngum akstri til eða frá Reykjavík, og þá var nú aldeilis gott að hafa aðgang að sumarbústaðnum í Vaðlaheiði ef okkur vantaði húspláss á Akur- eyri. Og alltaf var Studdi til stað- ar. Lengi vel með síamsköttinn Þumal í fanginu, og nú síðari ár með hundinn Bellu sem kom í Sturla Jónsson ✝ Sturla Jónssonfæddist á Ak- ureyri 21. febrúar 1951. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Ak- ureyri þann 18. desember 2012. Útför Sturlu fór fram 4. janúar 2013 frá Glerárkirkju. heimsókn með barnabörnunum úr Mosó. Og drengirnir mínir minnast allir Studda með hlýju. Hann var sá sem alltaf átti ís til að gefa börnunum sem komu í heimsókn „af því að honum þykir svo vænt um okkur“ eins og yngsti sonur minn sagði um daginn. Og hann var sá sem smíðaði dúkkuhús í garðinum og innréttaði til að börnin gætu leikið sér. Það fór ekki mikið fyrir Studda, en samt er höggvið stórt skarð í fjölskylduna. Elsku Anna Soffía, Atli, Drífa, Steini og börn. Við Elvar og strákarnir vottum ykkur innilega samúð okkar og biðjum góðan Guð að blessa ykkur og styrkja í sorginni. Minningarnar um góðan dreng lifa og gefa styrk og hlýju, og fjölskyldan stendur öll að baki ykkar í því verkefni sem fram- undan er. Arna Ýrr. Það er snjór. Ég er úti að moka af stéttunum. Konan kemur út í dyr og ég sé að henni er mikið niðri fyrir. Hún segir mér að mág- ur minn, Sturla Jónsson hafi verið fluttur á sjúkrahús og Anna Soffía biður okkur að koma strax. Það voru harmafregnir í aðsigi. Við hjónin kynntumst Sturlu þegar yngsta systir mín, Anna Soffía, fór að vera með honum og varð sambandið svo að hjúskap þeirra. Við þau kynni kom í ljós að Sturla var heilsteyptur og hóg- vær þótt hann væri ekki maður margra orða. Hann tók þátt í fjöl- skyldugleðskap og uppákomum þó hann léti ekki mikið fyrir sér fara. Sturla var frekar heimakær og og fjölskyldu sinni mikill horn- steinn, enda var hann einatt að breyta og hlúa að Tungusíðu 14 sem hann byggði. Sturlu þótti ekki nóg að vera heima með fjöl- skylduna heldur smíðaði hann þeim tjaldkerru til að fara með í útilegur. Síðar hóf hann að byggja sumarbústað í Vaðlareit með tengdamóður sinni og mágkonu sem hann keypti síðan að fullu. Þar hefur hann ásamt Önnu Soffíu búið fjölskyldunni smekk- legan og velbúinn stað. Sturla hafði ánægju af ræktun og gróðri, enda mátti sjá það bæði heima og í bústaðnum þar sem báðir þessir staðir bera þess fag- urt vitni. Sturla eignaðist traktor, Farmall, sem hann riggaði til og gerði gangfæran og stendur hann við bústaðinn og ber honum vitni um handlagni hans og eljusemi við að gera hlutina vel. Með þessum fáu orðum viljum við kveðja góðan vin og mág. Elsku Anna Soffía og fjöl- skylda, við vottum ykkur djúpa samúð okkar vegna ótímabærs andláts góðs eiginmanns, föður og afa. Þorsteinn og Þórhildur. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, jafnvel þótt grein hafi borist innan skilafrests. Lengd | Hámarkslengd minningargreina er 3.000 slög. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur senda inn. Þar kemur fram hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn, svo og æviferil. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.