Morgunblaðið - 09.01.2013, Side 34

Morgunblaðið - 09.01.2013, Side 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2013 Ég tek daginn jafnan snemma og fer í Kópavogslaugina. Syndieinhvern sprett en fer síðan í heita pottinn, þar sem við fasta-gestirnir ræðum málefni líðandi stundar. Síðustu dagana hef- ur jólabækurnar borið á góma. Sjálfur hef ég síðustu daga verið að glugga í bók Guðmundar Magnússonar, Íslensku ættarveldin. Er að vísu ekki kominn nema rétt í miðja bókina, sem þó lofar góðu. Og sjálfur veit ég að ættarveldin á Íslandi með sínu ósýnilega valdakerfi eru enn býsna sterk,“ segir Helgi Laxdal sem er 72 ára í dag. Helgi Laxdal er Eyfirðingur, úr Grýtubakkahreppi við Grenivík og ólst þar upp. Hann fór ungur til sjós, var fyrst kokkur en svo vélstjóri. Flutti suður árið 1961 og var í fimmtán ár á bátum Gjögurs hf. sem gerðir voru út frá Grindavík. Helgi hóf snemma afskipti af félagsmálum; var formaður Vélstjóra- félags Íslands og síðar sameinaðs félags vélstjórnar- og málmiðn- aðarmanna í alls 25 ár. „Þegar litið er til baka er ég ekkert viss um að ég færi aftur í félagsmálin. Forysta í stéttarfélagi er vanþakklátt starf og gagnrýnin oft ósanngjörn. Maður þarf að hafa breitt bak til að lifa af,“ segir Helgi sem nú er sestur í helgan stein eftir langan feril. Eig- inkona hans er Guðrún Elín Jónsdóttir og eiga þau fjögur börn „… og barnabörnin voru orðin alls ellefu þegar ég taldi síðast,“ segir afmæl- isbarnið að síðustu. sbs@mbl.is Helgi Laxdal er 72 ára í dag Frí Helgi Laxdal er sestur í helgan stein eftir langan feril. Hér eru þau Guðrún Elín Jónsdóttir, eiginkona hans, saman á ferðalagi. Maður þarf breitt bak til að lifa af B altasar fæddist 9. janúar 1938 í Barcelona í Kata- lóníu á Spáni og ólst þar upp. Hann stundaði nám við listadeild Há- skólans í Barcelona og útskrifaðist þaðan 1961. Auk þess stundaði hann nám í grafík við Institut del llibre og sem gestanemandi við Beaux Arts í París 1960, fór í eins árs reisu um Evrópu 1962 til að skoða og kynna sér listasöfn, stundaði síðar rann- sóknir í grafík í Bandaríkjunum og fór í rannsóknarferðir til Mexíkó vegna áhrifa jarðskjálfta á fresku og tæknilegrar lausnar á þeim vanda. Að loknu háskólanámi í Barcelona 1961 ferðaðist Baltasar til Norður- landanna og kom þá til Íslands. Hann dvaldi þá í átta mánuði hér á landi og var á síldveiðum. Baltasar Samper listmálari - 75 ára Barnabörnin Baltasar og Kristjana með öllum barnabörnum sínum á góðri stund. Búsettur á Íslandi í 50 ár Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. London Anders Thor fædd- ist 6. desember kl. 10.15. Hann vó 3.572 g og var 50 cm langur. Foreldrar hans eru Lauren Fulbright og Xavier Thor Fulbright. Nýr borgari „Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Ögurhvarfi 2 • 203 Kópavogi • Sími 567 1770 • Opið alla daga kl. 10 -23 Indverskt buff í grófu naanbrauði, grilluð paprika, rauðlaukur, jöklasalat, raita og mangó chutney Indverji Borgari, franskar, gos og kokteilsósa 1.550 kr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.