Morgunblaðið - 09.01.2013, Side 38

Morgunblaðið - 09.01.2013, Side 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2013 Þjóðleikhúsið hefur fest kaup á nýju ónefndu leikriti eftir Braga Ólafsson og er ráðgert að frumsýna verkið í haust. Verk Braga hafa áður verið flutt í Þjóðleik- húsinu, nú síðast Hænuungarnir en það gekk fyrir fullu húsi í tvö samliggjandi leikár. Fyrir það verk var Bragi tilnefndur til norrænu leikskáldaverðlaunanna. Enn hefur ekki verið gengið frá ráðningu leikstjóra eða í aðal- hlutverk en í tilkynningu frá leik- húsinu segir líklegt að þeir Stefán Jónsson og Eggert Þorleifsson verði kallaðir til. Þjóðleikhúsið kaupir nýtt leikrit Braga Ólafssonar Bragi Ólafsson Þjóðarlistasafn Breta, National Gallery, hefur frá árinu 1924 átt málverk af ítalska lækninum Giro- lamo Fracastoro sem fann lækn- ingu við sárasótt og var það sagt eftir óþekktan listamann. Nú hafa sérfræðingar úrskurðað að verkið sé í raun eftir einn merkasta mynd- listarmann sögunnar, Feneyjamál- arann Titan (1490-1576). Málverkið hékk um árabil í sal í kjallara safnsins sem fáir heim- sóttu. Nýlega fóru starfsmenn að rýna betur í það og við hreinsun og rannsókn á verkinu kom í ljós með óyggjandi hætti hver hafði málað það. Vísbendingar var ekki síst að finna í gaupufeldi sem læknirinn ber á herðum sér, en Titian hafði málað slíkan feld áður. Nú eru því sex verk eftir Titian í safninu, fleiri en í nokkru öðru safni. Málverkið reyndist vera eftir Titian Læknirinn Hluti portretts Titians. Þriðja breiðskífa tónlistarmannsins Sin Fang kemur út 1. febrúar næst- komandi og ber hún titilinn Flo- wers. Útgefandi skífunnar er þýska útgáfufyrirtækið Morr Music og kemur hún út á geisladiski og vínylplötu. Flowers er tekin upp og framleidd í samstarfi við Alex So- mers sem hefur m.a. starfað með Jónsa, Sigur Rós, Úlfi og Pascal Pi- non. Sin Fang er einmenningsverk- efni Sindra Más Sigfússonar og varð það til í fríum og hléum hljóm- sveitarinnar Seabear sem Sindri stofnaði, eins og því er lýst í til- kynningu. Fyrri breiðskífur Sin Fang eru Clangour og Summer Echoes. Blómlegur Fagurt umslag þriðju breiðskífu Sin Fang, Flowers. Flowers með Sin Fang 1. febrúar Þriðja hæðin, fjölmennasta hipp- hopp-sveit Íslands, gaf út fyrstu plötu sína, Rædaðu með, í desember síðastliðnum. Í tilkynningu frá Þriðju hæðinni segir að stíl hennar megi líkja við hina góðkunnu sveit Wu-Tang Clan og að inn í þann stíl blandist nýir straumar. Sveitina skipa níu rapparar og einn plötu- snúður, þau Addi Funi, Árni Drop, Dabbi Bone, Danni A, G MarÍs, Haukur H, Jóhann Dagur, Marlon Pollock, Siggi G og Valli Pardo. Gestir á plötunni eru þeir Diddi Fel og Class B úr hljómsveitinni Forgotten Lores og Gummi Ft og Xardu. Í tilkynningu segir að ágóði af sölu sérstakrar, áritaðrar útgáfu af diskinum muni renna til styrktar krabbameinssjúkum körlum. Plöt- unni má hala niður án endurgjalds á vefslóðinni skapandi.is/3h/. Rædað Umslag plötunnar Rædaðu með, með Þriðju hæðinni. Fyrsta plata Þriðju hæðarinnar Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Nýtt myndlistargallerí hefur rekstur að Hverf- isgötu 4 í lok febrúar og verður fyrsta sýningin á verkum Sigurðar Árna Sigurðssonar. Mun það heita Hverfisgallerí og er samstarfsverkefni að hálfu í eigu i8 gallerís við Tryggvagötu og að hálfu í eigu fjárfesta tengdra Arev verðbréfafyrirtæki. Þrátt fyrir hlut i8 mun Hverfisgallerí verða rekið sem algerlega sjálfstæð stofnun og hefur verið samið við tólf listamenn um að vinna með gall- eríinu og er ekki fyrirhugað að bæta öðrum við þann lista í nánustu framtíð. Meðal listamannanna eru, auk Sigurðar Árna, þau Hildur Bjarnadóttir, Guðjón Ketilsson, Harpa Árnadóttir og Kristinn E. Hrafnsson. Marteinn Tryggvason Tausen hef- ur verið ráðinn til að reka galleríið en auk þess að setja upp sýningar með listamönnum gallerísins og erlendum gestalistamönnum, mun Hverfisgall- erí taka vönduð myndverk virtra listamanna í endursölu. Vinna með „hæfilega mörgum“ Edda Jónsdóttir stofnaði i8 gallerí fyrir 17 ár- um en dró sig í hlé frá rekstrinum fyrir nokkrum árum þegar Börkur Arnarson sonur hennar tók við galleríinu. Hún segir hugmyndina um Hverf- isgallerí hafa lifað í nokkur ár. Í hópi listamann- anna sem unnið verður með er að finna fleiri mál- ara og skúlptúrista en hjá i8, og að sumu leyti hefðbundnari notkun miðla í listinni. Edda segir marga viðskiptavini hafa viljað sjá verk eftir fleiri listamenn en hún sýndi. „Þótt fólk hafi keypt og notið konseptverka eft- ir listamenn okkar þá vildu margir einnig skoða og eignast verk eftir góða listamenn sem vinna með málverk og skúlptúra. Margir vandaðir lista- menn hafa ekki haft samanstað hjá galleríi, sem er synd. Þeir yngstu eiga oft auðveldara með að koma sér sjálfir á framfæri, en listamenn sem eru orðnir vel mótaðir hafa margir enga gallerista að vinna með. Ég hafði áhuga á að vinna með góðum listamönnum sem gaman væri að eiga samstarf við,“ segir hún. Edda segir að galleríið byrji á að vinna með hæfilega mörgum listamönnum. Marteinn og Edda bera sameiginlega ábyrgð á vali þessa hóps og vali verka í galleríið. Varðandi verk eldri listamanna í endursölu, segir hún þau eingöngu hafa áhuga á mjög góðum verkum. „Það verður áhugavert að sjá þau í gall- eríinu í samræðu við verk samtímalistamannanna sem við vinnum með,“ segir hún. Marteinn er menntaður félagsfræðingur og starfaði hjá Íslandsbanka en myndlist hefur lengi verið áhugamál hans. „Ég hef lengi sótt sýningar af áhuga en síðustu ár hef ég samhliða vinnu lagt stund á nám í listfræði við Háskóla Íslands,“ segir Marteinn en hann var einn stofnenda Artíma nemendagallerísins sem rekið er af listfræðinem- um og setti þar upp sýningu. Hvað er málverk og hvað er ekki málverk? „Þetta er mjög spennandi áskorun, að takast á við þetta starf, og heiður að hafa verið valinn til verksins,“ segir Marteinn. Margir myndlistarmenn segja sölu verka dræma þessi misserin, dregur það ekki kjark úr gallerista sem er að hefja störf? „Það er markaður fyrir myndlist,“ segir Marteinn ákveðinn og bætir við að góð myndlist sé vænlegur fjárfestingar- kostur. Hann segir vissulega vera ákveðna áherslu á listamenn sem vinna með málverkið en stefna gallerísins einskorðist alls ekki við það. „Málverk og skúlptúrar eru útgangspunktar en flestir myndlistarmenn vinna í fleiri miðlum í dag – og hvað er málverk og hvað er ekki málverk? Það er orðið teygjanlegt.“ Verða að sanna sig hér Hann segir stefnt að sex til átta sýningum á ári, í aðalsalnum, og þá verði önnur verk, ný eða eldri, í hliðarstofu. i8 byggir starfsemina að stórum hluta á sókn á markaði erlendis, mun Hverfisgall- erí feta sömu braut? „Já, en ekki til að byrja með. Fyrst einbeitum við okkur að íslenskum listunnendum og því að sanna okkur hér, fyrr getum við ekki stefnt að þátttöku í erlendum listkaupstefnum. Það verður ekki fyrstu árin.“ Edda tekur undir að Hverf- isgallerí verði að sanna sig hér og það ætli þau að gera af miklum metnaði. „Allt snýst þetta um góða myndlist,“ segir hún. „Markaður fyrir myndlist“  Áhersla á málverk og skúlptúr í Hverfisgalleríi sem opnar í febrúar  Unnið með völdum hópi listamanna  Eigendur i8 gallerís eiga helming Morgunblaðið/Einar Falur Húsnæðið Hverfisgallerí verður á neðstu hæð hússins að Hverfisgötu 4. Settar verða upp sýningar með listamönnum gallerísins og boðssýningar að auki með verkum erlendra listamanna. Edda Jónsdóttir Marteinn T. Tausen Hverfisgötu 52 • 101 Reykjavík • Sími 561 0075 • sjadu@sjadu.is Horni Hverfisgötu og Vatnsstígs Bara flott gleraugu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.