Morgunblaðið - 09.01.2013, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 09.01.2013, Blaðsíða 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2013 Íris Ólöf Sigurjónsdóttir býður til listamannsspjalls annað kvöld um sýningu sína Drósir og draumar sem stendur yfir í Flóru, Hafn- arstræti 90, á Akureyri. Spjallið hefst kl. 20 og lýkur um klukku- stund síðar. Á sýningunni getur að líta textílverk eftir Írisi og skart úr margs konar hráefni sem „lifað hef- ur tímana tvenna og þrenna“, eins og segir í tilkynningu. Gamlir efn- isbútar, perlur og prjál eru efnivið- ur nýrra drauma og drósir koma við sögu. Íris er textílhönnuður og textílforvörður að mennt, nam í Ósló og Lundúnum og gegnir stöðu safnstjóra Byggðasafnsins á Dal- vík. Hún hefur tekið þátt í mörgum samsýningum en sýningin í Flóru er þriðja einkasýning hennar. Sýn- ingunni lýkur 13. janúar. Íris spjallar um verk sín Textílhönnuður Íris sýnir í Flóru og spjallar um verk sín á morgun. ÁKjarvalsstöðum er nú ívestursalnum til sýnis úr-val verka frá rösklegafjörutíu ára ferli Ragn- heiðar Jónsdóttur. Yfirskriftin, „Hugleikir og fingraflakk“, end- urspeglar tvískiptar sýningará- herslur; annars vegar eru sýnd graf- íkverk (sinkætingar) frá 8. og 9. áratugnum, hins vegar stórar kola- teikningar sem Ragnheiður hefur fengist við frá um 1990, en nýjustu verkin voru sýnd í Listasafni ASÍ nú í haust. Heiti sýningarinnar vísar í senn til hugmyndalegs inntaks eldri verkanna og líkamlegra og spuna- kenndra vinnubragða teikninganna. Ætingarnar þekkja margir, ekki síst þær er tengjast vakningu í jafn- réttisbaráttu kvenna á 8. áratugnum og má þar nefna Ónefnd-seríuna þar sem við sögu koma óléttubumbur, kjólar og húsgögn, og svo myndir sem tengjast kvennafrídeginum 24. október 1976. Þessi verk mótast af tæknilegri færni og frjórri mynd- hugsun. Fyrir vikið fela mörg þeirra í sér áhrifaríkar ímyndir er lifað hafa í menningarvitundinni sem tímanna tákn – og erindi þeirra er sígilt. Textaspjöld með tilvitnunum í lista- manninn, staðsett við verkin, eru mjög vel til fundin og þau auðga sýn- ingarreynsluna. Tilvitnanirnar varpa ljósi á persónulega reynslu og sýn á samfélagið og listalífið, þ. á m. upp- sveiflu í grafíklistinni hér á landi. Spjöldin hefðu gjarnan mátt vera stærri og textinn ritaður með auð- lesnara letri. Merking verkanna frá þessum ár- um er oftar en ekki pólitísk og tengd hugleiðingum um stöðu kvenna eða náttúruvernd. Í myndröðinni Völu- spá, frá upphafi 10. áratugarins, er skírskotað til Persaflóastríðsins. Í því verki, líkt og öðrum nátt- úrutengdum grafíkverkum frá svip- uðum tíma, má sjá breytingar í átt til meira frjálsræðis í listrænum vinnu- brögðum: hreyfing og átök eru túlk- uð með lausbundnara flæði forma. Í stöku verkum sjást skírskotanir til forsögulegra mynda og ljóst er að hugur Ragnheiðar stóð um þetta leyti til frumlægrar og milliliðalausr- ar tjáningar. Í stórri teikningu frá 1990 sést hvar listamaðurinn hefur stigið skrefið til fulls, tekið sér kol og strokleður í hönd og unnið beint á pappírinn. Þar er sem hárin í eró- tískri og beittri („bóka“)myndröð frá 1981 hafi öðlast sjálfstætt líf í verki sem minnir á loðfeld eða fold. Nátt- úruskírskotunin er raunar sterk í kolamyndum Ragnheiðar eins og heiti verka á borð við Húmtjöld og Storð gefa til kynna. Verkin tengjast vissulega náttúruhrifum en þau eru fyrst og fremst myndheimur þar sem Ragnheiður finnur frelsi til at- hafna: „Mér fannst ég vera inni í þessum verkum. Maður gat hreyft sig, ekki bara frá hægri til vinstri, heldur farið upp og niður, út og suð- ur á myndfletinum.“ Verkin einkenn- ast af hrynjandi og hreyfingu sem býður upp á virka skynjun þar sem áhorfandinn flakkar um myndflötinn ekki síður en fingur listamannsins. Tjáningin er kraftmikil og hrífandi – en vinnubrögðin engu að síður fáguð. Í úthugsuðum „hugleikjum“ er sjón- taugum ögrað og ýmist kallað á grannskoðun eða áhorfandanum hrundið í fjarlægð frá myndunum. Verkin eru stór og krefjandi og þar sem þau hanga nokkuð þétt í salnum, taka þau stundum hvert frá öðru. Sum stærri verkanna þarfnast meira andrúms. Engu að síður felur sýn- ingin „Hugleikir og fingraflakk – Stiklur úr starfsævi Ragnheiðar Jónsdóttur“ í sér prýðilegt yfirlit um glæsilegan feril. Unaðsleg Eitt af verkum Ragnheiðar Jónsdóttur á sýningunni Hugleikir og fingraflakk, Deluxe and delightful, frá árinu 1979. Hitnar í kolunum Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir Hugleikir og fingraflakk – Stiklur úr starfsævi Ragnheiðar Jónsdóttur bbbbn Til 20. jan. 2013. Opið alla daga kl. 10- 17. Aðgangur 1.000 kr. Hópar 10+ kr. 600. Frítt fyrir börn yngri en 18 ára, eldri borgara og öryrkja. Árskort 3.000 kr. Sýningarstjóri: Eiríkur Þorláksson. ANNA JÓA MYNDLIST Ljósmynd/Listasafn Reykjavíkur Lið Verzlunarskóla Íslands, Menntaskólans í Reykjavík og Menntaskólans í Kópavogi komust áfram í fyrstu umferð spurn- ingakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur, í fyrrakvöld. 29 skólar taka þátt í kepnninni í ár og er hún sú 27. í röðinni. Fyrsta umferðin fer fram í útvarpi, á Rás 2. Lið Menntaskólans í Reykjavík sigraði Fjölbrautaskóla Breiðholts með 29 stigum gegn 5, Verzl- unarskóli Íslands sigraði Mennta- skólann í Borgarfirði með 22 stig- um gegn 9 og Menntaskólinn í Kópavogi hafði betur gegn Fjöl- brautaskólanum í Vestmannaeyjum með 10 stigum gegn 6. Versló, MR og MK komust áfram Alsæla Sigurlið Versló í Gettu betur 2004. Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is VIÐ SÝNUM TILFINNINGAR Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið) Lau 12/1 kl. 16:00 Aukas. Lau 19/1 kl. 16:00 Aukas. Lau 26/1 kl. 16:00 Aukas. Sun 13/1 kl. 13:00 35.sýn Sun 20/1 kl. 13:00 37.sýn Sun 27/1 kl. 13:00 39.sýn Sun 13/1 kl. 16:00 36.sýn Sun 20/1 kl. 16:00 38.sýn Sun 27/1 kl. 16:00 40.sýn Lau 19/1 kl. 13:00 Aukas. Lau 26/1 kl. 13:00 Aukas. Sýningar í janúar komnar í sölu! Macbeth (Stóra sviðið) Mið 9/1 kl. 19:30 Aukas. Mið 16/1 kl. 19:30 Aukas. Fim 24/1 kl. 19:30 10.sýn Fim 10/1 kl. 19:30 6.sýn Fim 17/1 kl. 19:30 8.sýn Fös 25/1 kl. 19:30 11.sýn Fös 11/1 kl. 19:30 7.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 9.sýn Aðeins sýnt út janúar! Athugið - stobe lýsing notuð. Ekki við hæfi barna. Jónsmessunótt (Kassinn) Lau 12/1 kl. 19:30 25.sýn Lau 19/1 kl. 19:30 27.sýn Sun 13/1 kl. 19:30 26.sýn Sun 20/1 kl. 19:30 28.sýn Frábær skemmtun! Síðustu sýningar! Karíus og Baktus (Kúlan) Lau 12/1 kl. 13:30 9.sýn Lau 12/1 kl. 16:30 Aukas. Sun 13/1 kl. 15:00 12.sýn Lau 12/1 kl. 15:00 10.sýn Sun 13/1 kl. 13:30 11.sýn Sun 13/1 kl. 16:30 Aukas. Frábært leikrit sem á erindi við alla krakka! Með fulla vasa af grjóti (Stóra sviðið ) Fim 31/1 kl. 20:30 19.sýn Fös 8/2 kl. 20:30 21.sýn Fös 15/2 kl. 20:30 24.sýn Sun 3/2 kl. 20:30 20.sýn Lau 9/2 kl. 20:30 23.sýn Lau 16/2 kl. 20:30 25.sýn Nýtt sýningatímabil hefst eftir áramót - miðasala í fullum gangi! Já elskan (Kassinn) Mið 9/1 kl. 20:00 5.sýn Fim 10/1 kl. 20:00 6.sýn Nýtt íslenskt dansverk um margbreytileg mynstur fjölskyldna. Með fulla vasa af grjóti (Samkomuhúsið Akureyri) Lau 26/1 kl. 20:00 Sun 27/1 kl. 16:00 Sýningar á Akureyri Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Mýs og Menn (Stóra svið) Mið 9/1 kl. 20:00 4.k Fös 18/1 kl. 20:00 aukas Fim 31/1 kl. 20:00 13.k. Fim 10/1 kl. 20:00 aukas Lau 19/1 kl. 20:00 9.k Fös 1/2 kl. 20:00 14.k Fös 11/1 kl. 20:00 5.k Sun 20/1 kl. 20:00 10.k Fös 8/2 kl. 20:00 Lau 12/1 kl. 20:00 aukas Fim 24/1 kl. 20:00 11.k Lau 9/2 kl. 20:00 Sun 13/1 kl. 20:00 6.k Fös 25/1 kl. 20:00 aukas Lau 16/2 kl. 20:00 Mið 16/1 kl. 20:00 7.k Lau 26/1 kl. 20:00 aukas Sun 17/2 kl. 20:00 Fim 17/1 kl. 20:00 8.k Sun 27/1 kl. 20:00 12.k Mið 27/2 kl. 20:00 Jólasýningin 2012. Meistaraverk eftir John Steinbeck. Sýningum lýkur í febrúar. Gulleyjan (Stóra sviðið) Sun 13/1 kl. 14:00 Sun 20/1 kl. 14:00 Ævintýralegasta fjársjóðsleit allra tíma. Aukasýningar í janúar! Gullregn (Nýja sviðið í janúar. Stóra sviðið í febrúar) Lau 12/1 kl. 20:00 Lau 19/1 kl. 20:00 Lau 2/2 kl. 20:00 Sun 13/1 kl. 20:00 Mið 23/1 kl. 20:00 Sun 3/2 kl. 20:00 Mið 16/1 kl. 20:00 Fim 24/1 kl. 20:00 Sun 10/2 kl. 20:00 Fim 17/1 kl. 20:00 Fös 25/1 kl. 20:00 Fös 18/1 kl. 20:00 Lau 26/1 kl. 20:00 Mannlegt verk um íslenskt fólk og útlenskt tré Saga Þjóðar (Litla sviðið) Fös 11/1 kl. 20:00 Fös 18/1 kl. 20:00 Lau 26/1 kl. 20:00 Lau 12/1 kl. 20:00 Lau 19/1 kl. 20:00 Sun 27/1 kl. 20:00 Íslandssagan á hundavaði í tónsjónleik með Hundi í óskilum. Síðustu sýningar. Stundarbrot (Nýja sviðið) Fim 10/1 kl. 20:00 frums Þri 15/1 kl. 20:00 3.k Þri 22/1 kl. 20:00 Fös 11/1 kl. 20:00 2.k Sun 20/1 kl. 20:00 4.k Framsækið sjónarspil á mörkum vísinda, leikhúss og dans Skoppa og Skrítla í leikhúsinu (Litla sviðið) Lau 12/1 kl. 13:00 1.k Sun 13/1 kl. 13:00 3.k Lau 19/1 kl. 13:00 5.k Sun 13/1 kl. 11:00 2.k Lau 19/1 kl. 11:00 4.k Leikhús með söng og dansi fyrir börn frá níu mánaða aldri Saga Þjóðar – HHHHH–JVJ. DV

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.