Morgunblaðið - 22.02.2013, Síða 2

Morgunblaðið - 22.02.2013, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2013 Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Athygli er vakin á að á skattur.is er boðið upp á sjálfsafgreiðslu og á rsk.is er hægt að nálgast ýmsar upplýsingar um skattamál. Lokað í dag ! Föstudaginn 22. febrúar er lokað hjá ríkisskattstjóra Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Við erum í raun og veru alveg búin. Það er skjalavinnsla eftir og svo eru lausir endar í nokkrum málum þar sem nefndin á eftir að ákveða hvað hún gerir. Það hafa engar greinar verið valdar úr stjórnarskrárfrum- varpinu. Þær verða allar inni,“ segir Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, um stöðu málsins hjá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Nefndin fór yfir málið á fundi í gærmorgun og segir Margrét, sem er einn fimm fulltrúa meirihlutans, stefnt að því að þingið taki frum- varpið aftur til 2. umræðu á mánu- dag eða þriðjudag í næstu viku. „Þetta var síðasti formlegi fund- urinn um frumvarpið áður en það verður tekið úr nefndinni með nefnd- aráliti. Þannig að við sjáum til lands,“ segir Margrét og útskýrir hvernig landsfundur VG um helgina kunni að leiða til þess að yfirferð full- trúa flokksins í nefndinni færist að hluta yfir á mánudaginn kemur. Á hún þar við Álfheiði Ingadóttur, varaformann nefndarinnar. Líka horft til sérfræðingahóps Spurð út í álit Feneyjanefndarinn- ar á frumvarpinu og áhrif þess á framvindu málsins segir Margrét að það hafi verið tekið alvarlega eins og önnur álit sem hafi borist. Sérfræðingahópur sem ráðlagði nefndinni um smíði frumvarpsins skilaði inn áliti vegna umsagnar Feneyjanefndarinnar og segir Mar- grét að það verði að sjálfsögðu líka horft til þess álits. Hún telur raun- hæft að afgreiða frumvarpið fyrir áformuð þinglok 15. mars. Engir samningar liggja fyrir milli stjórnar og stjórnarandstöðu um meðferð málsins. Hvorki náðist í Valgerði Bjarna- dóttur, formann nefndarinnar, né varaformanninn Álfheiði Ingadóttur. Ferlið hefst á ný verði breytingar Hafsteinn Þór Hauksson, lektor við lagadeild Háskóla Íslands, var í hópi fjögurra sérfræðinga sem stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd óskaði eftir að færu yfir frumvarpið. Eftir að álit Feneyjanefndarinnar barst óskaði þingnefndin eftir því að Hafsteinn Þór færi yfir umsögn er- lendu sérfræðinganna um 113. grein frumvarpsins um stjórnarskrár- breytingar. Kveðið er á um stjórnar- skrárbreytingar í 79. grein núver- andi stjórnarskrár en samkvæmt henni verður að bera allar breyting- ar á stjórnarskrá, eða tillögu að nýrri stjórnarskrá, undir tvö þing með kosningum á milli áður en þær geta tekið gildi, að uppfylltu samþykki beggja þinga. Spurður hvort þetta ákvæði verði enn í gildi ef meirihluti á núverandi þingi samþykkir stjórnarskrárfrum- varpið segir Hafsteinn Þór svo vera. Ef næsta ríkisstjórn geri athuga- semdir við einstakar greinar eða frumvarpið í heild verði því að hefja ferlið á ný samkvæmt 79. greininni og sama stjórn að samþykkja breytt frumvarp áður en það kemur til kasta næsta þings þar á eftir. »26 Umfjölluninni lokið í bili  Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd lýkur vinnu við stjórnarskrárfrumvarpið  Öllum greinum frumvarpsins haldið inni  Tekið tillit til Feneyjanefndar Morgunblaðið/Kristinn Á þingi Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, tilkynnti vantrauststillögu sína í fyrradag. Hann dró hana til baka en útilokar þó ekki aðra tillögu. „Það er hreint ótrúlegt að þeir þingmenn séu til, sem trúi því í hjarta sínu að framþróun sjáv- arútvegs, auk- inni verðmæta- sköpun og ekki síst lífsgæðum þeirra er koma til með að starfa í greininni í framtíðinni sé best borg- ið með því að ganga sífellt lengra í því að skerða rekstrargrunn þeirra fyrirtækja sem bestum tökum hafa náð á rekstri í sjávarútvegi.“ Þannig segir í nýrri umsögn Far- manna- og fiskimannasambands Ís- lands um frumvarp til laga um stjórn fiskveiða, sem send hefur verið atvinnuveganefnd Alþingis. Stöðugleiki er lykillinn Í umsöginni segir: „Yfirlýstur til- gangur er að efla útgerð og stuðla að nýliðun í þeim útgerðarflokki sem útilokað er að skilað geti nokkru sinni hliðstæðri hagkvæmni og arðsemi og hinn hefðbundni floti hefur verið fær um að gera. Þótt ekki sé vísað til annars en legu landsins og þeirra veðurfars- aðstæðna sem ríkja á Íslands- miðum. Stöðugleiki í framboði sjáv- arafurða til viðskiptavina um allan heim er lykillinn að velgengni í matvælaframleiðslu. Slíkur stöðugleiki verður aldrei tryggður á ársgrundvelli með út- gerð smárra báta sem ekki eiga er- indi út á sjó þegar illa viðrar, þótt því miður séu allt of mörg dæmi um að smábátar séu á sjó þegar tog- arar leita vars. Engin dæmi eru til svo vitað sé, þar sem stóraukin rík- isafskipti af sjávarútvegi hafi leitt til annars en bölvunar fyrir at- vinnugreinina.“ aij@mbl.is Ríkisafskipti til bölvunar Árni Bjarnason, formaður FFSÍ. „Ég dró tillöguna til baka og hún er ekki lengur til sem fram- lagt þingskjal en ég get lagt hana fram aftur ef ég vil. Ég hef ekkert útilokað að leggja hana fram aftur. Það var líka meðal annars þess vegna sem ég vildi ekki að hún færi í atkvæða- greiðslu í dag. Það var meiri- hluti til að fella hana en það má ekki leggja tillögu sem er felld aftur fram á sama þingi,“ sagði Þór Saari, þingmaður Hreyf- ingar, um vantrauststillögu sína á stjórnina. Hann dró tillöguna aftur þegar stjórnarflokkarnir vildu taka hana fyrir á Alþingi í gær. Ekki hættur við tillöguna MÁLINU EKKI LOKIÐ Tillaga þess efnis að umsækjendur um félagslegt leiguhúsnæði í Árborg þurfi að hafa átt lögheimili í sveitar- félaginu í samfellt þrjú ár fyrir um- sókn var samþykkt á fundi bæj- arstjórnar á miðvikudag. Áður gat fólk sótt um eftir að hafa búið í Ár- borg í eitt ár. Tillagan var samþykkt með sex atkvæðum fulltrúa Framsókn- arflokks og Sjálfstæðisflokks en fulltrúar minnihlutans greiddu at- kvæði gegn tillögunni sem áður hafði verið samþykkt samhljóða í fé- lagsmálanefnd bæjarins. Samsvar- andi skilyrði eru fyrir umsóknum um félagslegt húsnæði í Reykjavík. Eyþór Arnalds, oddviti sjálfstæð- ismanna í bæjarstjórn, segir að ýms- ar ástæður liggi að baki þessari nýju tilhögun. „Það hefur mikið að segja hvað Reykjavík, okkar stóra ná- grannasveitarfélag, setur sem skil- yrði. Við erum einnig með mjög mik- ið af félagslegum íbúðum, því má segja að okkar aðstæður ráðist bæði af skilyrðum í Reykjavík og af því hvað við erum með mikinn fjölda fé- lagslegra íbúða miðað við önnur sveitarfélög,“ segir Eyþór. Hann tekur fram að umsækjendur hafi ekki verið greindir í smáat- riðum, þ.e. hvaðan þeir koma. Hins- vegar sé klárt að Árborg eigi mikið af félagslegum íbúðum, dæmi séu um að önnur sveitarfélög hafi engin félagsleg úrræði. „Það má segja að við höfum tekið ansi stórt hlutverk að okkur í þessum efnum,“ segir Ey- þór og tekur fram að mikil eft- irspurn sé eftir leiguhúsnæði í bæn- um, bæði félagslegu og á almennum markaði. heimirs@mbl.is Aðfluttir þurfa að bíða Morgunblaðið/Árni Sæberg Skortur Mikil eftirspurn hefur ver- ið eftir leiguhúsnæði í Árborg.  Breyta reglum um félagslegt húsnæði í Árborg Lögreglan á Eskifirði fór í tvær húsleitir í Fjarðabyggð í gær vegna fíkni- efnamála. Tveir menn voru hand- teknir í þágu rannsóknar og var þeim báðum sleppt að loknum yfirheyrslum að því er segir í tilkynningu frá lög- reglu. Í annarri húsleitinni var lagt hald á kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar, en í hinni var lagt hald á lítilræði af maríjúana auk neyslu- áhalda. Um tvö óskyld mál er að ræða að sögn lögreglu. Fundu kannabis- plöntur í tveimur húsum fyrir austan Kannabisplanta

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.