Morgunblaðið - 22.02.2013, Side 4

Morgunblaðið - 22.02.2013, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2013 Bílabúð Benna - Dekkjaþjónusta Tangarhöfða • Sími: 590 2045 Skiptib.: 590 2000 • www.benni.is Mætum vetri á réttum dekkjum Jeppa- og fjórhjóladekk í miklu úrvali - umboðsmenn um land allt Jeppa- og fjórhjóladekk Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks- ins, boðaði lækkun á tekjuskatti og að hætt verði með þriggja þrepa skattkerfi ef flokkurinn kemst til valda eftir kosningar í setningarræðu sinni á landsfundi flokksins sem hófst í gær. Formanninum varð tíðrætt um glötuð tæki- færi og aðgerðaleysi fráfarandi ríkisstjórnar í ræðu sinni. Þá sagði hann að til þess að ráðast að rót vanda heimilanna ætluðu sjálfstæðismenn að grípa til skulda- og skattalækkana. Fyrir utan lægri tekjuskatt og einföldun á skattkerfinu sagði Bjarni að kerfið yrði notað til þess að hjálpa fólki að lækka húsnæðislán sín. Þannig yrði veittur sér- stakur skattaafsláttur vegna afborgana á lánum til eigin íbúðarkaupa. Auk þess vill hann að þeir sem kjósa frekar að greiða af húsnæðislánum sín- um en leggja fyrir í séreignarsparnað fái varan- legan skattaafslátt líkt og tíðkast hefur með líf- eyrissparnaðinn. Skuldarar fái að skila lyklunum Bjarni lofaði frekari uppstokkun á húsnæðis- málum í ræðunni. Íbúðalánamarkaðurinn yrði endurskipulagður og fólki tryggt val um lánakerfi með það að markmiði að hægt væri að fá sam- bærileg lán og í nágrannalöndunum á sann- gjörnum vöxtum til lengri tíma, óverðtryggt. Þá vildi hann koma upp hvötum til sparnaðar til að létta undir með ungu fólki í íbúðarkaupum svo það þyrfti ekki að byrja að búa með tvær hendur tóm- ar, steypa sér í skuldir og treysta á vaxtabætur. Róttækasta hugmyndin sem kom fram í máli Bjarna var þó að skuldarar gætu skilað lyklunum að húsnæði sínu þegar öll önnur úrræði þryti. „Við viljum ekki að fólk sé gert upp vegna skulda sem það hefur stofnað til vegna eigin íbúð- arhúsnæðis. Sjái skuldari sér engan veginn fært að standa undir rekstri húsnæðis síns, jafnvel með ofangreindum úrræðum, á honum að vera heimilt að skila lyklunum og losna undan skuldum sínum án þess að það leiði til gjaldþrots,“ sagði hann. Bjarni ræddi einnig um verðtrygginguna í ræðunni og sagði að þau óverðtryggðu lán sem bankarnir byðu nú upp á bæru háa vexti og væru til tiltölulega langs tíma. Til að lækka vextina og tryggja framboð á óverðtryggðum lánum með föstum langtímavöxtum þyrfti stöðugleika. Hann varaði einnig óbeint við hugmyndum um að af- nema verðtrygginguna. „Höfum einnig hugfast að daginn sem við bönnum verðtryggð lán verður erfiðara að verja lífeyrinn okkar fyrir verðbólgunni,“ sagði Bjarni. Uppbygging á grundvelli krónunnar Skynsamlegustu stefnuna sagði Bjarni vera þá sem ýtti undir aukinn stöðugleika, minni verð- bólgu og þar með lægri vexti og hærra atvinnu- stig. Sá stöðugleiki ætti þó ekki að nást með aðild að Evrópusambandinu eða upptöku annarrar myntar en Bjarni útilokaði hvort tveggja í ræðu sinni, að minnsta kosti til skemmri tíma litið að því er varðar síðarnefnda kostinn. „Krónan er og verður gjaldmiðill okkar í fyr- irsjáanlegri framtíð. Það er mikið hættuspil að taka upp nýjan gjaldmiðil þegar nauðsynlegar forsendur skortir og sem stendur tel ég þær alls ekki fyrir hendi. Verkefnið er að byggja upp efna- hagslífið á grundvelli krónunnar,“ sagði hann. Þjóðinni ekki haldið í spennitreyju hafta Þá gagnrýndi Bjarni núverandi ríkisstjórn harðlega fyrir að hafa brugðist þegar gjaldeyr- ishöftin væru annars vegar. Hik og sleifarlag hefðu einkennt allar aðgerðir hennar. Hann sagði að áfram yrði staðinn vörður um eignarréttinn og sanngjörn og eðlileg málsmeðferð yrði tryggð en flokkurinn ætlaði ekki að sætta sig við að þjóðinni allri væri haldið í spennitreyju haftanna fyrir það eitt að erlendir aðilar hefðu eignast kröfur á þrotabú föllnu bankanna. „Nú er kominn tími til að setja afarkosti með almannahag að leiðarljósi. Þessar kröfur þarf að afskrifa að verulegu leyti,“ sagði Bjarni. Skattar og skuldir lækki  Formaður Sjálfstæðisflokksins boðar „afarkosti“ um gjaldeyrishöftin í setn- ingarræðu sinni á landsfundi  Varar við afleiðingum afnáms verðtryggingar Morgunblaðið/Árni Sæberg Landsfundur Sjálfstæðismenn taka á móti landsfundargögnum í anddyri Laugardalshallarinnar þar sem fundurinn fer fram. Hann stendur fram á sunnudag. Á dagskránni er meðal annars kosning um formann og varaformann flokksins. Alls eiga 1.700 flokksmenn seturétt á landsfundinum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Setningarræða Bjarni Benediktsson formaður setti landsfundinn síðdegis í gær. „Sjálfstæðisflokkurinn verður að horfast í augu við hver vandinn er og gera tillögur á þessum landsfundi um hvernig á að leysa hann,“ segir Hall- dór Gunnarsson, sem ákveðið hefur að gefa kost á sér í embætti for- manns Sjálfstæðisflokksins. Halldór hefur áður gefið kost á sér í forystu flokksins þegar hann bauð sig fram til varaformanns fyrir tveimur árum. Halldór segir ástæðu framboðs síns vera þá baráttu sem hann hafi staðið í frá síðasta landsfundi um að fylgt sé eftir ályktun flokksins um að færa niður höfuðstól verð- og geng- istryggðra húsnæðislána. Hann segir þingflokk Sjálfstæðisflokksins hafa brugðist í að fylgja því eftir. Halldór tók þátt í prófkjöri flokks- ins í Suðurkjördæmi í janúar og í tengslum við það skrifaði hann fjölda greina í blöð um leiðir sem hann sér til lausna á vanda heimilanna. Hann er ósátt- ur við þær til- lögur sem efna- hags- og skattanefnd flokksins leggur fyrir landsfund nú. „Nú þegar kjörorð landsfundarins er Í þágu heimilanna tel ég rétt að á þetta verði reynt. Til að fylgja þessu eftir hef ég lagt fram heildstæða breytingatillögu um efnahags- og viðskiptamál við þau drög sem fyrir liggja á fundinum. Þar er lögð fram skýr stefnumörkun um hvað gera verður í þágu heimilanna og í þágu þjóðarinnar til endurreisnar frá eignaupptöku og aðför stjórnvalda að atvinnuvegum og allri mögulegri sókn í atvinnuuppbyggingu,“ segir Halldór. Hann vill að fundurinn setji fram stefnu í samræmi við hin gömlu gildi Sjálfstæðisflokksins „um réttlæti, jafnræði, samábyrgð, grundvöll eignamyndunar heimila og frelsi ein- staklingsins til athafna með ábyrgð“, segir Halldór. Hann vill að hin gömlu kjörorð Stétt með stétt verði virt til að ná sátt um þessi úrlausnarefni. „Sem bíða þess að Sjálfstæðisflokkurinn komi að stjórn þessa lands,“ segir Halldór. ipg@mbl.is Býður sig fram til formanns  Leggur til heildstæða breytingu á ályktun um efnahags- og viðskiptamál  Vill skýrar tillögur um lausnir Halldór Gunnarsson Á dagskrá landsfundar Sjálfstæð- isflokksins í dag er meðal annars fyrirspurnartími með forystu- mönnum hans. Þar sitja fyrir svör- um formaðurinn, fyrsti og annar varaformaður, formaður þing- flokksins og oddvitar kjördæm- anna. Sá liður hefst kl. 13:30 og stendur til 15:30. Fyrr um morguninn skila vara- formennirnir skýrslum sínum um starf flokksins, stjórna hans og ráða. Þá verður byrjað að kjósa í mál- efnanefndir en sú kosning stendur fram til kl. 13 á morgun. Tekið er við breytingartillögum við drög að ályktunum til hádegis í dag. Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu af landsfundinum á vef Sjálfstæðisflokksins, xd.is. Sitja fyrir svörum Morgunblaðið/Árni Sæberg ’ Stjórnmálamenn sem sjá enga aðra leið til að bæta opinbera þjónustu en stóraukna skattheimtu og fjárútlát eru fulltrúar úreltra hug- mynda. Fráfarandi ríkisstjórn, sem sagðist ætla að kenna sig við nor- ræna velferð, er sósíalískari í aðgerð- um og hugsun en nokkurt annað nor- rænt þjóðfélag. ’ Vinstrimönnum er ákaflega illa við það að við tölum um nauðsyn þess að stækka kökuna, svo allir fái meira. Þau óttast að við fáum of mikinn sykur, of mikla orku. Við höf- um ekki áhyggjur af því. Þeir vilja, í stað þess að stækka kökuna, skipta henni endalaust upp á nýjan hátt, í smærri og smærri sneiðar. Þá aðferð kalla þeir að jafna lífskjörin. Við vilj- um bæta lífskjörin. Í þágu heim- ilanna. ’ Við höfum fjölmörg dæmi um að útgerðarfyrirtæki þurfi að standa skil á hærra veiðigjaldi en sem nem- ur heildarhagnaðinum. Alvarleg hugs- anavilla hrjáir þá sem reyna að rétt- læta slíkt. ’ Þau [Samfylkingin] segja að Evr- ópusambandið sé orðið þreytt á EES-samningnum. Ja, ég er orðinn þreyttur á Samfylkingunni og þeirra sífellda brölti við að grafa undan sjálfstæði okkar, þau tala niður gjald- miðilinn og skilja hvorki né sjá að Ís- land á sóknarfæri í allar áttir. Við viljum ekkert í Evrópusambandið. Orðrétt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.