Morgunblaðið - 22.02.2013, Síða 17

Morgunblaðið - 22.02.2013, Síða 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2013 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Vísitala leiguverðs á höfuðborgar- svæðinu fór í 118,7 stig í janúar 2013 og hækkaði um 0,5% frá fyrra mán- uði. Vísitalan á sama tíma í fyrra var 111 stig og hefur hún því hækkað um 6,9% á ársgrundvelli. Vísitalan hefur þrátt fyrir það því sem næst staðið í stað þegar horft er til síð- ustu þriggja mánaða. Þetta kemur fram á vef Þjóðskrár Íslands. Þjóðskrá hefur einnig tekið sam- an upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í janúarmánuði. Þær tölur benda til þess að með- alleiguverð á fermetra sé að jafnaði hæst í Reykjavík vestan Kringlu- mýrarbrautar auk Seltjarnarness en lægst á Vestfjörðum. Stúdíóíbúðir skera sig þó úr í þessum samanburði en samkvæmt tölum þjóðskrár var meðalleiguverð á hvern fermetra í slíkum íbúðum 2.757 krónur á fermetra í Garðabæ og Hafnarfirði á móti 2.164 krónum á fermetra í Reykjavík vestan Kringlumýrarbrautar. Hins vegar er erfitt að draga ályktanir af þess- um tölum þar sem úrtakið er mjög lítið. Einungis fjórar stúdíóíbúðir eru á bak við tölur um meðalleigu- verðið í Garðabæ og Hafnarfirði á móti 15 í Reykjavík. Jafnframt er staðalfrávikið á stúdíóíbúðum í Reykjavík um 900 krónur. 972 leigusamningum var þinglýst í janúarmánuði en við úrvinnslu talnaupplýsinga var til dæmis sleppt leigusamningum sem voru eldri en 60 daga við þinglýsingu og samn- ingum þar sem herbergjafjöldi íbúða var ekki þekktur. Upplýsing- arnar eru því unnar upp úr 625 þinglýstum leigusamningum. Í jan- úar 2012 var 867 leigusamningum þinglýst og upplýsingar um meðal- leiguverð voru unnar úr 556 samn- ingum. Í samræmi við verðlag Svanur Guðmundsson, formaður Félags löggiltra leigumiðlara, segir að verð á leiguíbúðum hafi nær ekk- ert hækkað í nokkra mánuði, þrátt fyrir þá staðreynd að mikil eftir- spurn sé eftir leiguíbúðum og fram- boðið minna af eignum en áður. Sú hækkun vísitölunnar sem sjá- ist á ársgrundvelli komi sér á óvart en bendi til þess að leiguverð hafi haldist í hendur við verðlag: „Ég tek undir heildarniðurstöðuna, sem er að leiguverð hefur í raun ekkert hækkað og haldið í við verðlag. Leiguverðið undanfarna mánuði er komið í þann topp sem greiðslugeta fólks afmarkar.“ Svanur segir erfitt að nota tölur þjóðskrár um meðalleiguverð vegna þess að svo fáir samningar geti verið á bak við þær. „Mér sýnist til dæmis sem tölurnar um verðið á stúdíó- íbúðum í Reykjavík séu of lágar.“ Svanur segir að mikil breidd sé á gæðum leiguíbúða og verðmunurinn á eignum þar af leiðandi líka mikill. „Verðmunurinn á samskonar eign- um getur verið mjög mikill innan sama póstnúmers. Þú getur verið með stúdíóíbúð í kjallara eða stúd- íóíbúð á fimmtu hæð með svölum.“ Morgunblaðið/Styrmir Kári Fasteignir Verð á leiguíbúðum er hæst í Reykjavík. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu (janúar 2011=100) 120 118 116 114 112 110 108 106 104 102 100 Janúar 2011 Janúar 2013 100 118,7 Janúar 2012 111,0 Verð á leiguíbúðum komið í topp  Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkað um 0,3% á þremur mánuðum  Tæplega þúsund leigusamningum þinglýst í janúarmánuði  Meðalleiguverð lægst á Vestfjörðum og hæst í Reykjavík Svanur Guðmundsson, formað- ur félags löggiltra leigumiðlara, bendir á að húsaleigubætur hafi verið hækkaðar nýlega. Sú að- gerð hafi samt sem áður ekki skilað sér í hærri leigu. Það geti bent til þess að annað hvort sé fólk ekki búið að uppgötva að bæturnar hafi hækkað eða að það þinglýsi ekki leigusamn- ingum. Svanur segir að breytingar á skattkerfinu ásamt bótaskerð- ingum hafi haft letjandi áhrif á vilja fólks til að þinglýsa leigu- samningum. Sjálfur viti hann um dæmi þess að það hafi ekki borgað sig fyrir einstaklinga á örorkubótum að leigja íbúð sína út á löglegan hátt. Hann hafi greint frá reynslu sinni á fundi félagsmálanefndar Alþingis en mætt þar vantrú þingmanna annarra en Péturs Blöndal. Skilar sér ekki í verði HÆKKUN HÚSALEIGUBÓTA AÐALFUNDUR ÖSSURAR HF. VERÐUR HALDINN FÖSTUDAGINN 15. MARS 2013 KL. 9:00 AÐ GRJÓTHÁLSI 5, REYKJAVÍK ○○ WWW.OSSUR.COM A. DRÖG AÐ DAGSKRÁ 1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess á liðnu starfsári. 2. Ákvörðun um hvernig skuli fara með hagnað félagsins á reikningsárinu 2012. 3. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagður fram til staðfestingar. 4. Skýrsla stjórnar félagsins um starfskjör. 5. Ákvörðun um starfskjarastefnu. 6. Ákvörðun um stjórnarlaun fyrir árið 2013. B. REGLUR UM ÞÁTTTÖKU HLUTHAFA OG ATKVÆÐAGREIÐSLU Hluthafar eiga rétt á að fá mál sett á dagskrá, leggja fram ályktunartillögur og spyrja spurninga, með skriflegum eða rafrænum hætti, uns endanleg dagskrá og tillögur eru birtar föstudaginn 1. mars 2013. Nánari upplýsingar um réttindi hluthafa er að finna á vefsíðu félagsins: www.ossur.com/investors/agm Hverjum hlut í félaginu fylgir eitt atkvæði, að frátöldum eigin hlutum sem ekki fylgir atkvæðisréttur. Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað. Hluthafar, sem ekki sækja aðalfundinn, geta annaðhvort: a) kosið um dagskrármál með skriflegum eða rafrænum hætti, eða b) veitt umboð. Beiðni hluthafa um að kjósa með skriflegum eða rafrænum hætti þarf að berast félaginu eigi síðar en 5 dögum fyrir aðalfundinn. Hluthafar geta óskað eftir því að fá atkvæðaseðla senda til sín og þeir geta einnig vitjað atkvæðaseðla í höfuðstöðvum félagsins og greitt þar atkvæði alla virka daga á skrifstofutíma. Atkvæði þurfa að berast félaginu fyrir aðalfundinn. Hluthafar geta annaðhvort veitt skrifleg eða rafræn umboð að uppfylltum ákveðnum formkröfum sem fram koma á vefsíðu félagsins. Rafræn umboð þarf að senda í gegnum aðgangskerfi hluthafa hjá félaginu. Umboð þurfa að berast félaginu fyrir aðalfund eða á fundarstað. Nánari upplýsingar um atkvæðareglur og notkun umboða er að finna á vefsíðu félagsins: www.ossur.com/investors/agm C. AÐRAR UPPLÝSINGAR Aðalfundurinn fer fram á ensku. Skjöl sem lögð verða fyrir aðalfund, þ.m.t. endurskoðaður ársreikningur fyrir árið 2012 og ársskýrsla fyrir árið 2012, auk ályktunartillagna og athugasemda við hvert dagskrármál er að finna á ensku á vefsíðu félagsins: www.ossur.com/investors/agm Hluthafar geta einnig nálgast skjölin í höfuðstöðvum félagsins að Grjóthálsi 5, 110 Reykjavík, alla virka daga á skrifstofutíma. Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar föstudaginn 1. mars 2013. Hluthöfum er hins vegar bent á að samkvæmt grein 63 a. í hlutafélagalögum nr. 2/1995 er hægt að tilkynna um framboð til stjórnar skriflega skemmst 5 dögum fyrir aðalfund. Af þeim sökum verða upplýsingar um alla frambjóðendur til stjórnar kunngerðar eigi síðar en 2 dögum fyrir aðalfund. Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent frá kl. 8:30 á aðalfundardag. Aðalfundurinn hefst stundvíslega kl. 9:00. Nánari upplýsingar um aðalfundinn er að finna á vefsíðu félagsins: www.ossur.com/investors/agm Reykjavík, 21. febrúar 2013, Stjórn Össurar hf. 7. Kosning stjórnar félagsins. 8. Kosning endurskoðenda. 9. Tillaga um heimild til að kaupa eigin hluti. 10. Önnur mál sem borin hafa verið löglega fram eða aðalfundur hefur samþykkt að taka til meðferðar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.