Morgunblaðið - 22.02.2013, Page 19

Morgunblaðið - 22.02.2013, Page 19
FRÉTTIR 19Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2013 H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA ekkert nema ostur Fullkomnaðu réttinn með góðum hráefnum. Rifnu ostarnir frá MS innihalda 100% ost. Þú finnur spennandi og girnilegar uppskriftir á gottimatinn.is. ÍSLENSKUR OSTUR Tillaga uppstillingarnefndar Dög- unar að skipan efstu sæta á listum framboðsins í Reykjavíkurkjör- dæmi norður, Reykjavíkurkjör- dæmi suður og Suðvesturkjördæmi hefur verið lögð fram. Listinn í Reykjavík norður: 1. Ólöf Guðný Valdimarsdóttir arki- tekt 2. Jóhannes Björn Lúðvíksson, sjálfstætt starfandi 3. Ása Lind Finnbogadóttir framhaldsskóla- kennari 4. Friðrik Þór Guðmunds- son, kennari og blaðamaður 5. Hólmfríður Berentsdóttir hjúkr- unarfræðingur. Listinn í Reykjavík suður: 1. Þórður Björn Sigurðsson fram- kvæmdastjóri 2. Ragnar Þór Ing- ólfsson sölustjóri 3. Helga Þórð- ardóttir kennari 4. Rannveig Óskarsdóttir, meistaranemi í trúar- bragðafræðum 5. Hólmsteinn Brekkan réttarráðgjafi. Listinn í Suðvesturkjördæmi: 1. Margrét Tryggvadóttir þingmaður 2. Álf- heiður Eymarsdóttir stjórnmála- fræðingur 3. Jón Jósef Bjarnason, ráðgjafi og bæjarfulltrúi 4. Baldvin Björgvinsson, raffræðingur og kennari 5. Guðrún Lilja Guðmunds- dóttir viðskiptafræðingur. Á næstu dögum verður tillaga uppstillingarnefndar um skipan efstu sæta á listum framboðsins í Norðvesturkjördæmi, Norðaust- urkjördæmi og Suðurkjördæmi kynnt, segir í tilkynningu frá Dög- un. Tillaga að fullskipuðum fram- boðslista verður lögð fyrir fé- lagsfund í hverju kjördæmi fyrir sig. Endanleg skipan framboðslista er á valdi félagsfundar. Dögun kynnir skipan efstu sæta Góu verður fagn- að á Hallveig- arstöðum, Tún- götu 14,laugardaginn 23. febrúar kl. 14 með dagskrá um Rannveigu Þor- steinsdóttur. Hún ruddi braut fyrir konur varðandi, nám félagsstörf og stjórnmál. Hún sat á Alþingi 1949 til 1953. Fulltrúar, frá Kvenfélaga- sambandi Íslands, Félagi háskóla- kvenna og kvenstúdenta, Sóroptim- istum, UMFÍ, Lögfræðingafélaginu, Glímufélaginu Ármanni og Félagi framsóknarkvenna í Reykjavík, varpa upp svipmyndum um hana og störf ásamt skólabræðrum og öðru samferðafólki. Góugleði í boði fram- sóknarkvenna hefst að lokinni dags- skrá. Ungir glímumenn frá Ármanni koma og sýna glímutökin. Góudagskrá um braut- ryðjanda Rannveig Þorsteinsdóttir Talsvert færri sóttu um leyfi til að veiða hreindýr í ár en í fyrra. Bjarni Pálsson, líffræðingur hjá Umhverfisstofnun, telur líklegt að krafa um að veiðimenn standist skotpróf eigi þátt í að færri sæki um leyfi. Verið er að taka saman endanlegar tölur um umsóknir en Bjarni segir að tæplega 3.600 gildar umsóknir hafi bor- ist. 4.270 gildar umsóknir bárust í fyrra. Í ár verður leyft að fella 1.229 hreindýr, sem er nokkur fjölgun milli ára, en í fyrra var leyft að fella 1.009 dýr. Nokkur tilflutningur leyfa er einnig milli svæða. Dregið verður úr hreindýraveiðileyfum á morgun kl. 14 í húsakynnum Þekkingarnets Austurlands á Egilsstöðum. Eins og undanfarin ár verður hægt að fylgjast með út- drættinum á veraldarvefnum og má nálgast slóðina á vef Umhverfisstofnunar þegar þar að kemur. Niðurstöður út- dráttar verða sendar á sunnudegi eða mánudegi til um- sækjenda. Í fyrra var í fyrsta skipti krafist þess að veiðimenn færu í skotpróf. Ekki stóðust allir prófin. Bjarni telur líklegt að þessi próf hafi leitt til þess að færri sæki um veiðileyfi í ár. Tilgangur skotprófanna hafi ekki verið að fækka umsókn- um heldur að herða kröfur til veiðimanna, en fram til þessa hafi mun minni kröfur verið gerðar til veiðimanna hér á landi en í nágrannalöndunum. egol@mbl.is Færri sækja um veiðileyfi Morgunblaðið/Friðrik Hjörð Hreindýr á Fljótsdalsheiði. Leyft verður að fella 1.229 dýr í ár.  3.600 hafa sótt um í ár en 4.270 umsóknir voru í fyrra  Krafa um skotpróf talin eiga þátt í fækkuninni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.