Morgunblaðið - 22.02.2013, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 22.02.2013, Qupperneq 21
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fallið er frá því að rífa framhús gamla Sjálfstæðishússins við Aust- urvöll og húsin Aðalstræti 7 og Hótel Vík standa áfram á sínum stað, samkvæmt tillögu að deili- skipulagi fyrir Landsímareit í Kvosinni sem kynnt var í vikunni. Byggingarmagn verður 10% minna en gert er ráð fyrir í gildandi deili- skipulagi. Deiliskipulag Landsímareitsins hefur verið til endurskoðunar und- anfarin ár. Reykjavíkurborg efndi til samkeppni um framtíðarsýn fyr- ir svæðið á síðasta ári. Salurinn bjartur Í þeirri tillögu að deiliskipulagi sem nú hefur verið kynnt er tekið mið af því að húsin Aðalstræti 7 og Vallarstræti 4 (Hótel Vík) hafa ver- ið friðuð, sömuleiðis framhús Thor- valdsensstrætis 2 (gamla Sjálfstæð- ishússins þar sem skemmtistaðirnir Sigtún og Nasa voru til húsa). Raunar er í tillögunum gefin heim- ild til að hækka Aðalstræti 7 til að fá nýtingu á kjallara. Við friðun húsanna minnkar byggingarmagn á reitnum verulega. Bakhús Nasa, þar sem salurinn er, verður rifið og nýtt hús byggt. Páll Gunnlaugsson, arkitekt hjá ARK arkitektum, segir að þar verði fjölnota salur í svipaðri mynd. Þó verði gert ráð fyrir þeim möguleika að opna salinn út í Vall- argötu og hann verði þá bjartur. Gert er ráð fyrir nýbyggingu sem liggur að gafli Hótels Víkur en að áfram verði opið sund á milli Ing- ólfstorgs og Víkurgarðs. Rishæð Gamla Landsímahússins við Thorvaldsensstræti 4 verður hækkuð. Settir verða kvistir þannig að hæðin nýtist betur. Þakhæðinni á Thorvaldsensstræti 6, yngra Landsímahúsinu, verður einnig breytt og hún hækkuð um rúman metra. Gert er ráð fyrir þriggja hæða viðbyggingu framan við hana, við Kirkjustræti. Verður hún með háu þaki og tekur þannig mið af húsunum hinum megin götunnar. Ekki hótel við Vallarstræti Gert er ráð fyrir miðborgar- starfsemi nema hvað nýting- armöguleikar húsanna við Vall- arstræti verða þrengdir. Þar er gert ráð fyrir verslunum, skrif- stofum og íbúðum, en ekki hóteli eins og í fyrri tillögum. Heimilt verður að koma upp hóteli eða ann- arri miðborgarstarfsemi í Land- símahúsunum og nýbyggingum. Séð frá Alþingishúsinu Þaki gamla Landsímahússins við Austurvöll verður lyft og nýbygging gerð við Kirkju- stræti, fyrir framan yngra Landsímahúsið. Mögulegt verður að reka hótel í húsinu, samkvæmt deiliskipulagi. Gömlu húsin standa  Dregið úr byggingarmagni á Landsímareitnum í nýju skipulagi  Ekki gert ráð fyrir hóteli við Vallarstræti Morgunblaðið/Jim Smart Thorvaldsensstræti Gamla Landsímahúsið og gamla Sjálfstæðishúsið (Sig- tún, Nasa) við Austurvöll. Framhús Sjálfstæðishússins verður ekki rifið. Landsímareitur » Deiliskipulag í hluta Kvos- arinnar var kynnt í vikunni. Hagsmunaaðilar geta gert at- hugasemdir til 6. mars nk. » Tillögurnar fara að nýju fyrir umhverfis- og skipulagsráð sem ákveður hvort þær verða auglýstar sem skipulag svæð- isins. FRÉTTIR 21Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2013 Unnur Þormóðsdóttir, formaður færni- og heilsumatsnefndar heil- brigðisumdæmis Suðurlands, segir 39 bíða eftir hjúkrunarrýmum á Suðurlandi, þar af eru 19 í dval- arrými og bíða eftir flutningi í hjúkrunarrými miðað við stöðuna 20. febrúar sl. Eru þá ótaldir þeir einstaklingar sem bíða eftir flutn- ingi milli stofn- ana og eru nú þegar í hjúkrun- arrýmum. Rætt var við Unni um málefni aldraðra í Morgunblaðinu 19. febrúar sl. en þar kom m.a. fram að 40 ein- staklingar væru á biðlista eftir hjúkrunarrými á Suð- urlandi og 22 biðu eftir dvalarrými. Velferðarráðuneytið gerði at- hugasemd við þessar tölur í tilkynn- ingu á vefsíðu sinni með þeirri um- sögn að hið rétta væri að 25 einstaklingar biðu eftir hjúkrunar- rými á Suðurlandi. Þá fylgdi með í tilkynningunni samanburður á stöð- unni á Suðurlandi og á höfuðborg- arsvæðinu: Tvö landsvæði borin saman „Í árslok 2012 voru 244 hjúkrun- arrými á Suðurlandi af þeim tæp- lega 2.450 rýmum sem eru á landinu öllu. Þetta svarar til þess að á svæð- inu séu 79,6 hjúkrunarrými fyrir hverja 1.000 íbúa sem eru 67 ára og eldri. Til samanburðar má geta þess að á höfuðborgarsvæðinu er þetta hlutfall 65,9 rými,“ sagði orðrétt í tilkynningu ráðuneytisins. Spurð um þennan samanburð bendir Unnur á að landsvæðin tvö séu ólík. „Varðandi fjölda hjúkrun- arrýma á svæðinu verður að taka til- lit til þess að heilbrigðisumdæmi Suðurlands ef mjög víðfeðmt og þjónusta í heimahúsum af skornum skammti miðað við höfuðborgar- svæðið. Á stórum hluta svæðisins er eingöngu dagþjónusta í boði.“ Þá var haft eftir Unni í Morg- unblaðinu að síðast þegar ríkið út- hlutaði fé úr Framkvæmdasjóði aldraðra hefði til dæmis engu fé ver- ið úthlutað á Suðurlandi en úthlutað til Akraness og fleiri staða. Samþykkti níu þeirra Vill ráðuneytið af þessu tilefni árétta að árið 2012 hafi 14 umsóknir borist um framlög úr Framkvæmda- sjóði aldraðra og mun velferðarráð- herra hafa samþykkt fjárveitingar úr sjóðnum til níu þeirra. Fjórar umsóknir hafi borist af Suðurlandi og voru þrjár þeirra samþykktar. Spurð um þetta vill Unnur árétta að hún hafi meint að við síðustu út- hlutun hafi ekki komið framlag til að fjölga hjúkrunarrýmum á svæðinu. „Fé hefur komið til breytinga en ekki til fjölgunar frá því 2008,“ segir Unnur en tekið skal fram að hún fékk að sjá viðtalið fyrir birtingu. Telur Unnur að sá misskilningur hafi orðið milli sín og blaðamanns að sá síðarnefndi hafi ætlað að yfirfara úthlutanirnar. baldura@mbl.is Velferðarráðu- neytinu svarað  Sérfræðingur svarar aðfinnslum vegna fréttar um aldraða á Suðurlandi Unnur Þormóðsdóttir þingholtsstræti 1 · 101 rvk · sími 562 7335 caruso.is · caruso@caruso.is við Erum líka á facebook Fjölbreyttur matseðill þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi Lifandi tónlist um helgar Rómantískur og hlýlegur veitingastaður á þremur hæðum í miðbæ Reykjavíkur Á föstudags- og laugardagskvöldum töfrar hinn frábæri klassíski gítarleikari Símon H. Ívarsson fram fallegar perlur tónlistarsögunnar. Njóttu þess að borða góðan mat og hlíða á töfrandi tóna í hlýlegu umhverfi. Hjá okkur er notalegt í skammdeginu. Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Opið virka daga 10–18, laugard. kl. 11–16, sunnud. 14–16 Opnun kl. 17, föstudag 22. febrúar Allir velkomnir Kristján Eldjárn 22. febrúar – 10. mars

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.