Morgunblaðið - 22.02.2013, Qupperneq 23
FRÉTTIR 23Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2013
Viðhaldsfríar
hurðir
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Viðhaldsfríir sólskálar og svalalokanir
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 29 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Yfir 40 litir í boði!
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187
Bíldshöfði 14 » 110 Reykjavík » Sími 567 6744 » gsvarahlutir.is
Triscan gormar, bremsu- og stýrishlutir
Pöntum á fimmtudögum, varan komin á mánudegi
Fulltrúar fjörutíu fyrirtækja í Kópa-
vogi sóttu stofnfund Markaðsstofu
Kópavogs sem fram fór í bæjar-
stjórnarsal Kópavogs í gær. Kosið
var í stjórn markaðsstofunnar og
verður á næstunni auglýst eftir
framkvæmdastjóra. Tilgangur henn-
ar er að efla atvinnuþróun og starfa
að ferða- og markaðsmálum í Kópa-
vogi.
Þetta mun félagið gera með því að
efla samstarf atvinnulífsins, sveitar-
félagsins og annarra sem vilja stuðla
að uppbyggingu innan Kópavogs og
bæta ímynd svæðisins og auka eft-
irspurn eftir hvers konar þjónustu
og atvinnustarfsemi á svæðinu.
Kópavogsbær leggur til stofnfé að
fjárhæð 8 milljónir króna og er gert
ráð fyrir því að stofnaðilar, fyrirtæk-
in í bænum, komi með stofnfé á móti.
Stjórn markaðsstofunnar mun út-
færa starfsemina nánar en í aðal-
stjórn eru: Sturla Eðvaldsson, Ari
Þorvarðarson, Eygló Karólína Bene-
diktsdóttir, Theódóra Þorsteinsdótt-
ir, Sigurjón Jónsson, Garðar H. Guð-
jónsson og Pétur Ólafsson.
Bæjarstjóri Kópavogs, Ármann
Kr. Ólafsson, setti fundinn og Vil-
hjálmur Egilsson, framkvæmda-
stjóri Samtaka atvinnulífsins, stýrði
fundinum. Vilhjálmur lýsti yfir mik-
illi ánægju sinni með stofnun þessa
samstarfsvettvangs fyrirtækja og
stofnana í Kópavogi, að því er segir í
tilkynningu frá Kópavogsbæ.
Stofnfundur Fulltrúar um 40 fyrir-
tækja sóttu stofnfundinn í gær.
Markaðsstofa
Kópavogs stofnuð
Fulltrúar fjöru-
tíu fyrirtækja sóttu
stofnfundinn
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Hátt í 50 milljarðar Bandaríkja-
dala voru millifærðir frá Rússlandi
með ólögmætum hætti á síðasta
ári. Meira en helmingur þeirrar
upphæðar tengdist fjármagns-
flutningum sem er stjórnað af að-
eins „einum vel skipulögðum hópi
manna“.
Þetta kom fram í viðtali rúss-
neska fjármálablaðsins Vedomosti
við seðlabankastjóra Rússlands,
Sergey Ignatyev, en hann mun
láta af embætti í júní á þessu ári.
Hann útskýrði þó ekki nánar
hvaða einstaklingar stæðu að baki
hinum „vel skipulagða hópi“. Um-
mæli Ignatyev, sem fram til þessa
hefur að mestu aðeins tjáð sig um
peningamál og vaxtaákvarðanir við
fjölmiðla, þykja hins vegar til
marks um gagnrýni hans í garð
þeirrar opinberu spillingar sem
hefur fengið að þrífast í valdatíð
Vladimír Pútíns Rússlandsforseta.
Að sögn seðlabankastjórans er
meðal annars um að ræða fjár-
magnsflutninga sem tengjast inn-
flutningi á fíkniefnum, undanskot
frá skattlagningu og mútu-
greiðslur til embættismanna og
stjórnenda hjá opinberum fyrir-
tækjum.
60% af hreinu
fjármagnsútflæði
Ignatyev vakti einnig athygli á
því sem hefur verið nefnt í Rúss-
landi sem „eins dags fyrirtæki,“ en
það eru félög sem eru aðeins stofn-
uð í þeim eina tilgangi að milli-
færðir eru inn á þau fjármunir.
Strax í kjölfarið hverfa þau af skrá
án þess að hafa greitt neina skatta
né gjöld til hins opinbera. Seðla-
bankastjóri Rússlands áætlar að
um helmingur allra félaga sem eru
á skrá í landinu, um 3,9 milljónir
talsins, gegni í raun engu hlutverki
öðru en að vera milligönguaðilar
fyrir slíka fjármagnsflutninga.
Sú fjárhæð sem Seðlabanki
Rússlands telur að hafi verið flutt
úr landi með ólögmætum hætti á
liðnu ári, ríflega 49 milljarðar dala,
nemur um 2,5% af allri landsfram-
leiðslu Rússlands. Af þeirri upp-
hæð voru 14 milljarðar dala vegna
vöruskipta, en afgangurinn, um 35
milljarðar dala, tengist margvís-
legum ólöglegum fjármagnsflutn-
ingum.
Sé litið til þess að hreint fjár-
magnsútflæði frá Rússlandi á síð-
asta ári, samkvæmt opinberum
hagtölum, nam 56,8 milljörðum
dala, þá er ljóst að um 60% þeirrar
upphæðar eru tilkomin vegna ólög-
mætra viðskipta.
50 milljarðar dala flutt-
ir ólöglega úr landi
Stórfellt ólögmætt fjármagnsútflæði úr Rússlandi á liðnu ári
Rússlandsforseti Ummæli seðlabankastjórans eru talin beinast að þeirri
útbreiddu spillingu sem hefur fengið að þrífast í valdatíð Vladimír Pútíns.
AFP
Stórfellt útflæði
» 50 milljarðar Bandaríkjadala
voru millifærðir frá Rússlandi
með ólögmætum hætti árið
2012.
» Seðlabankastjóri landsins
telur að helmingur þeirrar upp-
hæðar tengist fjármagnsflutn-
ingum sem sé stjórnað af að-
eins „einum vel skipulögðum
hópi manna“.
» 60% af nettó fjármagns-
útflæði Rússlands 2012.