Morgunblaðið - 22.02.2013, Side 24

Morgunblaðið - 22.02.2013, Side 24
AFP Fyrir rétti Oscar Pistorius við réttarhöldin í gær en hann brotnaði niður nokkrum sinnum. Lögreglumanni vikið frá  Kastljósið beinist að lögreglumanninum Hilton Botha sem rannsakaði mál Oscars Pistorius  Botha hefur sjálfur verið sakaður um sjö morðtilraunir Vitnaleiðslur fóru fram í gær í máli suðurafríska hlauparans Oscars Pistorius sem hefur verið sak- aður um að hafa myrt unnustu sína, fyrirsætuna Reevu Steenkamp, hinn 14. febrúar. Í beinni textalýsingu frá BBC sagði að Pistorius hefði verið í töluverðu tilfinningauppnámi og brotnað nokkrum sinnum niður meðan á réttar- haldinu stóð. Pistorius heldur fram sakleysi sínu í málinu en að hans sögn taldi hann að um innbrotsþjóf hefði verið að ræða. Það er skýring sem margir hafa dregið í efa enda er bæði hús Pistorius og hverfið sem hann býr í rammgirt og talið mjög öruggt. Umdeildur lögreglumaður Það gerir erfitt mál enn erfiðara og mögulega flóknara að fortíð lögreglumannsins Hiltons Botha, sem rannsakaði mál Pistorius, setti strik í reikninginn. Botha hefur sjálfur verið sakaður um sjö morðtilraunir og skýrt var frá því í gær að hann hefði verið leystur frá störfum meðan ásak- anirnar yrðu rannsakaðar. Mál lögreglumannsins þykir veikja málflutning ákæruvaldsins töluvert. Ennfremur eru taldar lík- ur á því að Botha hafi spillt sönnunargögnum þar sem hann var ekki í hlífðarbúningi þegar hann kom inn á heimili Pistorius til að rannsaka málið. Morðmálið hefur orðið til þess að íþróttavöru- framleiðandinn Nike og sólgleraugnaframleiðand- inn Oakley hafa sagt upp samningum sínum við íþróttastjörnuna meðan réttað er í málinu. Þá hef- ur franska snyrtivörufyrirtækið Clarins tilkynnt að það hyggist hætta að birta auglýsingar sem hlauparinn kemur fram í. vilhjalmur@mbl.is 24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2013 Hátúni 6a • 105 Rvk • Sími 552 4420 • fonix.is Gram heimilistækin eru vönduð í gegn Nilfisk þekkja allir Fyrsta flokks frá Fönix Herskáu náttúruverndarsamtökin Sea Shepherd hafa reynt að stöðva hvalveiðar Japana við Suðurskauts- landið en án ár- angurs. Japönsk stjórnvöld segja að bát Sea Shep- herd hafi verið siglt á eitt hval- veiðiskipanna í gær. Samtökin segja aftur á móti að hval- veiðimennirnir leggi sig í líma við að láta skip sín rekast á skip og báta samtakanna. Paul Watson, stofnandi Sea Shepherd, fullyrti í gær að Japanar hygðust láta af hvalveiðunum vegna aðgerða sam- takanna og sagði við fréttamenn að japönsku hvalveiðiskipin væru að taka eldsneyti á þeim hafsvæðum þar sem slíkt væri bannað. Sjálfir segja Japanar að þeir muni ekki hætta veiðum við Suðurskauts- landið. Aðgerðir Sea Shepherd gegn hvalveiðiskipum Japana nefn- ast Operation Zero Tolerance, eða „Aðgerðin ekkert umburðarlyndi“. Þá er Paul Watson, stofnandi sam- takanna, eftirlýstur af Interpol eft- ir að hafa flúið stofufangelsi í Þýskalandi síðastliðið sumar eftir meint átök við hákarlaveiðimann frá Kostaríku. Árekstur milli skipa Sea Shepherd og hvalveiðiskipa Paul Watson JAPAN Fyrrverandi forsetafrú Banda- ríkjanna, Laura Bush, hefur tekið allt annan pól í hæðina þegar kemur að rétt- indum samkyn- hneigðra í Bandaríkjunum en eiginmaður hennar George W. Bush. Þrátt fyrir að vera þó- nokkru frjáls- lyndari en eig- inmaðurinn hefur hún farið fram á það að auglýsingar með henni um stuðn- ing við hjónabönd samkyn- hneigðra verði teknar niður. Tals- maður Lauru Bush segir auglýsingarnar hafa verið settar fram án vitundar hennar og því hafi hún óskað eftir því að þær verði teknar niður. Í þætti hjá Larry King á CNN árið 2010 sagði Laura að ást- fangin pör ættu að hafa sama rétt óháð kynhneigð. Auglýsir ekki fyrir samkynhneigða Laura Bush BANDARÍKIN Öflug sprenging varð við höfuðstöðvar Baath-flokksins í Damaskus, höfuð- borg Sýrlands, í gærmorgun. Ekki hefur enn verið staðfest hve margir lét- ust en það voru að minnsta kosti 53 manns. Sprengingin varð í bíl sem stóð nærri höfuðstöðvum Baath-flokksins og lá svartur þykkur reykur yfir mið- borg Damaskus í gær. Talið er nokkuð víst að uppreisnarmenn í landinu beri ábyrgð á sprengingunni. Tugir létu lífið í sprengjutilræði AFP Shimon Peres, forseti Ísraels, hvet- ur Evrópusambandið til að setja Hizbollah-samtökin í Líbanon á lista sambands- ins yfir hryðju- verkasamtök í kjölfar þess að stjórnarandstæð- ingar í Sýrlandi fullyrtu að skytt- ur samtakanna hefðu skotið yfir landamærin að almennum borg- urum. Fyrir nokkru sögðu yfirvöld í Búlgaríu að Hiz- bollah-samtökin væru ábyrg fyrir sprengju sem sprakk í strandbæn- um Burgas með þeim afleiðingum að fimm ísraelskir ferðamenn og einn Búlgari létust. „Það er kominn tími til að þjóðir heims, sérstaklega þær sem eru í Evrópusambandinu, setji Hizbollah á lista yfir hryðju- verkasamtök,“ segir Peres. Shimon Peres Skilgreini Hizbollah hryðjuverkasamtök ÍSRAEL

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.