Morgunblaðið - 22.02.2013, Page 25
FRÉTTIR 25Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2013
Mikil reiði er meðal stuðnings-
manna og flokksfélaga Silvios Ber-
lusconi í garð forseta Evrópuþings-
ins, Martins Schulz, eftir að hann
hvatti Ítali til þess að kjósa ekki
Berlusconi í komandi þingkosning-
um.
Þjóðverjinn Martin Schulz sem er
leiðtogi sósíalista á Evrópuþinginu
og forseti Evrópuþingsins sagði að
Berlusconi hefði þegar sent Ítalíu í
þrot með óábyrgri stjórnarstefnu og
persónulegum skrípalátum sínum
meðan hann gegndi embætti for-
sætisráðherra Ítalíu. „Ekki ber að
rústa það traust sem Ítalir hafa
áunnið sér með Mario Monti sem
forsætisráðherra. Ég hef alla trú á
því að ítalskir kjósendur velji rétta
kostinn fyrir land sitt í komandi
kosningum,“ segir Schulz í viðtalið
við þýska blaðið Bild.
Ítalir sem eru ósáttir við orð
Schulz hafa bent á það að meðan
hann gegni embætti innan Evrópu-
sambandsins sé óeðlilegt að hann
beiti sér með þessum hætti í kosn-
ingum eins aðildarríkis sambands-
ins.
Silvio Berlusconi og Martin
Schulz eru á sitt hvorum enda
stjórnmálanna en þar fyrir utan hef-
ur lítill kærleikur verið á milli
þeirra. Frægt var þegar Berlusconi
lagði það eitt sinn til að Schulz léki
vörð í fangabúðum nasista.
AFP
Evrópuþingið Forseti Evrópuþingsins skiptir sér af kosningum á Ítalíu.
Ósáttir við Schulz
Veikur hagvöxtur í Frakklandi veld-
ur áhyggjum innan Evrópusam-
bandsins. Búist er við því að Frakk-
land standist ekki fjárlagaviðmið
sambandsins sem gera ráð fyrir því
að ríki evrusvæðisins skili ekki
meiru en halla upp á þrjú prósent af
vergri landsframleiðslu. Reiknað er
með að fjárlagahallinn verði 3,6 pró-
sent hjá Frökkum en það skýrist
hvort tveggja af auknum ríkisút-
gjöldum og töluvert minni hagvexti
er spár gerðu upphaflega ráð fyrir.
Sérfræðingar höfðu spáð því að
franska hagkerfið myndi vaxa um 0,8
prósent en Francois Hollande, for-
seti Frakklands, segir að hagvöxt-
urinn verði líklega ekki mikið meiri
en 0,3 prósent.
Dökkar horfur framundan
Frá því sósíalistastjórn Hollande
tók við völdum í Frakklandi hefur
hann ítrekað sagt að Frakkland
muni standast viðmið Evrópusam-
bandsins. Nú blasir hins vegar við að
Frakkland verður að fara fram á
undanþágu frá viðmiðinu og horfur
hafa ekki verið jafndökkar í fjögur ár
sé mið tekið af könnun á umsvifum
einkafyrirtækja, en svör forsvars-
manna þeirra benda til að samdrátt-
urinn sé hraðari og alvarlegri en
nokkru sinni frá í mars 2009. Þá hafa
hagfræðingar bent á að fyrsti fjórð-
ungur ársins 2013 sé sá versti frá
upphafi lausafjárkreppunnar. Óttast
er að Frakkland, næst stærsta hag-
kerfi evrusvæðisins, sé á barmi
kreppu. Fréttir af slæmu gengi
franska hagkerfisins hafa þó enn
sem komið er ekki haft neikvæð
áhrif á tíu ára ríkisskuldabréf en
vaxtastig þeirra er enn 2,26 prósent.
Hafnar öllum niðurskurði
Olli Rehn, sem fer með efnahags-
mál í framkvæmdastjórn ESB hefur
sagt að ríki geti fengið andrými svo
fremi sem þau grípi til niðurskurðar
og aðhalds. Hollande hefur hins veg-
ar hafnað alfarið frekara aðhaldi sem
hann sagði geta leitt til þverrandi
framleiðslustarfsemi, vaxandi
skulda og enn frekari samdráttar í
Frakklandi. vilhjalmur@mbl.is
AFP
Evrópusambandið Erfiðleikar innan evrusvæðisins og Evrópusambandsins eru hvergi nærri búnir og nú óttast
menn að Frakkland sé á leið inn í efnahagskreppu. Frakkland er næststærsta hagkerfi evrusvæðisins.
Standast ekki viðmið ESB
Hagvöxtur í Frakklandi er töluvert undir væntingum
Hollande hafnar frekari niðurskurði og sparnaði
Efnahagskreppa
» Hagvöxtur í Frakklandi er
töluvert minni en spáð var.
» Fjárlagahalli franska ríkisins
er meiri en viðmið Evrópusam-
bandsins gera ráð fyrir.
» Hollande neitar frekari
niðurskurði og sparnaði sem
hann segir geta hægt enn frek-
ar á franska hagkerfinu.
» Aukin hætta er á kreppu í
Frakklandi.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
12
18
16
www.jonogoskar.is Sími 5524910 / Laugavegi 61 / Kringlan / Smáralind
LÁTTU FAGMENN
META GULLIÐ
Sérstaða okkar hjá Jóni og Óskari er sú að við höfum keypt og selt
gull í 41 ár og búum því yfir mikilli þekkingu, reynslu og fagmennsku
á þessu sviði.
Við kaupum til endurvinnslu allar tegundir af gullskartgripum, gamla
og nýja, gullúr, tanngull, gullpeninga, hvers kyns silfur og demanta í betri
skartgripagæðum.
Við bjóðum gott og alþjóðlega samkeppnishæft verð fyrir gripina og fram-
leiðum úr öllu gulli sem við kaupum. Þannig spörum við gjaldeyri.
Komdu til okkar á Laugaveg 61 og leyfðu okkur að veita þér faglega
ráðgjöf sem tryggir að þú færð rétta greiningu á þínum verðmætum.
Það skiptir mestu máli.
Við staðgreiðum allt gull en áskiljum okkur rétt til að biðja um persónuskilríki.
Aðeins í verslun okkar að Laugavegi 61, virka daga milli kl. 10–18.
Góð séraðstaða þar sem gull er metið í ró og næði.
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
• Mylur alla ávexti, grænmeti
klaka og nánast hvað sem er
• Hnoðar deig
• Býr til heita súpu og ís
• Uppskriftarbók og
DVD diskur
fylgja með
Lífstíðareign!
Tilboðsverð kr. 106.900
Með fylgir Vitamix sleif
drykkjarmál og svunta
Fullt verð kr. 125.765
Meira en bara
blandari!