Morgunblaðið - 22.02.2013, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 22.02.2013, Qupperneq 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2013 ✝ RagnhildurJónsdóttir fæddist í Vest- mannaeyjum hinn 19. október 1944. Hún lést í faðmi fjölskyldunnar á heimili sínu hinn 14. febrúar sl. Foreldrar henn- ar eru Jón Runólfs- son, f. 1924, og Ágústa Björns- dóttir, f. 1926. Ragnhildur var elst fimm systkina, þau eru Unn- ur, f. 1949, Inga, f. 1951, Jón Ágúst, f. 1952, d. 1953, og Jón Ágúst, f. 1955. Eftirlifandi eiginmaður Ragn- hildar er Bragi Jónsson, f. 1941. Börn þeirra eru: 1) Ingunn, f. 1963, maki Óli Þór Jóhannsson, f. 1961. Synir þeirra eru Bragi Þór, f. 1989, Jóhann, f. 1991, og Jón Ingi, f. 1994. 2)Jón Björn, f. 1965, maki: Ásta Huld Henrýs- dóttir, f. 1972. Börn þeirra eru Henrý Þór, f. 1995, Ragnhildur Katla, f. 1999, og Kolbeinn Ingi, f. 2003. 3) Birkir, f. 1968, maki: Linda Júlía Tryggvadóttir, f. 1972. Börn þeirra eru Andrea Björk, f. 1998, Elmar Ingi, f. 2003, og Esther Ösp, f. 2005. Fyrir á Birkir tvo syni, Bjart, f. 1994, og Sverri, f. 1994. 4) Sunna Björk, f. 1979. Maki: Jökull Bergmann, f. 1976. Börn þeirra Íssól Anna, f. 2006, Úlfur Berg, f. 2009, og Álf- grímur Bragi, f. 2012. Ragnhildur ólst upp í Vest- mannaeyjum en fluttist ung til Dalvíkur þar sem hún og Bragi byggðu sitt framtíðarheimili á Svarfaðarbraut 2. Árið 2001 fluttu þau svo að Böggvisbraut 8. Ragnhildur var heimavinn- andi ásamt því að vinna ýmis störf utan heimilis. Síðustu árin vann hún á Dalbæ, heimili aldr- aðra á Dalvík. Útför Ragnhildar fer fram frá Dalvíkurkirkju í dag, 22. febrúar 2013, og hefst athöfnin kl. 13.30. Jæja mamma mín, nú er þinni göngu lokið í þessu jarðlífi og við er tekið nýtt tímabil hjá þér eins og reyndar okkur þínum nánustu sem búum nú við það að hafa þig ekki hjá okkur lengur. Þegar hallaði að náttmálum hjá þér var óskaplega sárt að horfa upp á hvað sú ganga reyndi á þig, en að sama skapi var aðdáunarvert að fylgjast með því hvað þú stóðst þig vel og sýndir mikið æðruleysi í allri þeirri raun, meira að segja undir það síðasta þegar öll hreyfigeta og málið var farið gat ég samt séð í augum þínum þá sömu umhyggju og hlýju sem þú hefur alla tíð veitt okkur systk- inunum og barnabörnum. Ég vil þakka fyrir þann tíma sem ég hafði þig til staðar, alla þá leiðsögn og þau litlu ævintýri sem þú leyfðir mér að upplifa sem barn. Það voru ýmis farartækin sem smíðuð voru í bílskúrnum í Svarfaðarbrautinni og einstök dýrin sem fengu þar húsaskjól í lengri eða skemmri tíma, allt frá „villtum“ hagamúsum og heimil- isköttum upp í olíublautar æðar- kollur sem koma þurfti til heilsu aftur svo þær gætu haldið áfram að synda á höfninni heima. Þú varst alla tíð vinnusöm og hélst okkur systkinunum fyrir- myndarheimili ásamt pabba. Ég minnist þess enn þegar ég fékk að fara í fyrsta skiptið einn út í búð til kaupa kaffi fyrir þig og þegar heim var komið rétti hreykinn snáðinn mömmu sinni stauk af Export-kaffibæti. Kaffi, eða kaffibætir var ekki aðalatrið- ið fyrir þig þennan dag, en stauk- urinn stóð lengi inni í skáp óátek- inn sem minnisvarði um snáðans fyrstu sendiferð í Kaupfélagið á Dalvík. Ég minnist líka berjaferðanna sem farnar voru upp í Böggviss- taðafjall á sólríkum sumardögum og á eftir fylgdi saft- og sultugerð svo að hillur svignuðu undan í búrinu heima. Það er þyngra en tárum taki að horfa á eftir þér svona stuttu eftir að þú hættir að vinna og ætlaðir virkilega að fara njóta þess að eiga nógan tíma fyrir þig og þín áhugamál. Það er jú þannig að þegar við þurfum að horfast í augun við þá staðreynd að stutt er eftir af þessari jarðvist er lík- lega það síðasta sem okkur dett- ur í hug er óska þess að hafa unn- ið meira á lífsleiðinni og mikið liði mér betur með að geta sagt á þessum tímapunkti „að ég hefði unnið minna og verið meira til staðar“ þessa síðustu mánuði sem þín naut við hér hjá okkur. Núna þegar ég kveð þig að sinni, mamma mín, vil ég þakka þér fyrir öll þau góðu gildi sem þú hafðir í heiðri og kenndir manni að virða, en þó fyrst og fremst þá væntumþykju og hlýju sem þú hefur gefið mér og minni fjöl- skyldu í gegnum tíðina. Þinn sonur, Jón Björn. Í dag er borin til grafar tengdamóðir mín Ragnhildur sem alltaf var kölluð Ragga. Hún var dugnaðarforkur og skilur eft- ir sig myndarlega fjölskyldu sem ber henni fagurt vitni og handa- vinnu sem af öðru ber. Hún var kornung þegar hún elti ástina þvert yfir landið og var orðin tveggja barna móðir Ingunnar og Jóns Björns og með reisulegt hús í byggingu rúmlega tvítug að aldri, máltækið „já það er ungt og leikur sér“ átti ábyggilega ekki við líf tengdaforeldra minna á þessum árum. Þremur árum seinna bættist Birkir í barnahóp- inn og ellefu árum síðar kom svo hún Sunna Björk. Á meðan börn- in voru ung vann Ragga heima við og sinnti þeim og heimilinu af natni. Eftir að þau eltust fór hún út á vinnumarkaðinn og vann víða, hjá póstinum, í fiski, í búð og síðustu árin á Dalbæ sem er dval- arheimili aldraðra á Dalvík, en stóð líka alltaf sína vakt sem hús- móðirin á Svarfaðarbraut 2 og síðar í Böggvisbrautinni. Það var alltaf gaman og gott að koma til Röggu og Braga og eins að fá þau til okkar. Alltaf var eitthvað gott á boðstólum og fær ekkert toppað kleinurnar hennar ömmu í huga barnanna okkar. Af prjónum hennar féllu fallegar flíkur sem voru einstaklega smekklegar og vel gerðar og notaðar til hins ýtr- asta við öll tækifæri. Já, hún hafði gaman af fallegum hlutum, skóm og flíkum hún Ragga og naut þess að máta, skoða og kaupa slíkan varning. Ég vona fyrir hennar hönd að ógrynni séu af skó- og fatabúðum þar sem hún er nú og að úrvalið af garni þar eigi sér hvergi hliðstæðu. Hún tengdamóðir mín var góð og kærleiksrík kona en hún var líka vel gift. Þau Bragi áttu gull- brúðkaup síðasta gamlársdag. Þó að Bragi hafi unnið mikið í gegn- um tíðina og heimilishaldið verið mest á Röggu könnu þá hefur hann sýnt það og sannað í veik- indum konu sinnar úr hverju hann er gerður. Það má segja að hann hafi ekki vikið frá hlið henn- ar í rúmt ár og hugsað um hana af hlýju og natni allan sólarhring- inn, það kristallast í því sem nafna hennar sagði fyrir skemmstu: „Mamma, afi hlýtur að elska ömmu alveg ofsalega mikið, hann passar hana svo vel og hugsar svo vel um hana.“ En elskulegur tengdafaðir minn stóð ekki alveg einn í baráttunni, að öðrum ólöstuðum eiga mágkonur mínar þær Inga og Sunna heiður skilinn fyrir umönnunina sem þær veittu móður sinni og helg- uðu henni allar stundir síðustu mánuði. Hún tengdamóðir mín fékk því síðustu ósk sína uppfyllta að fá að kveðja í hinsta sinn á notalegu heimili sínu. Með ást og kærleik kveð ég þig, elsku Ragga mín, og þakka þér af heilum hug fyrir samfylgd- ina í næstum tvo áratugi. Ég bið góðan Guð að styrkja og hjálpa foreldrum þínum, eiginmanni og öllum ykkar afkomendum í sorg- inni og söknuðinum og veit að þú vakir yfir þínu fólki sem þú varst svo endalaust stolt af. Sjáumst seinna. Þín Ásta. Elsku amma mín, takk fyrir allar góðar stundir sem við höfum átt saman og allt sem þú hefur gert fyrir mig. Þú varst svo dugleg og ynd- isleg kona sem barðist við erfið veikindi í heilt ár en nú líður þér vel á nýja staðnum, hjá guði. Ég á eftir að sakna þín svo rosalega mikið. Þú ert hetjan mín, amma, og mér þykir mjög vænt um þig. Þú átt alltaf stað í hjarta mínu. Ég elska þig. Elsku amma mín, ertu nú farin frá mér, hugur minn hann dvelur ætíð hjá þér og góður guð þér taki opnum örmum en eftir sitjum við með tár á hvörmum. Hvíldu í friði. Þín, Andrea Björk. Mig langar að minnast systur- dóttur minnar, Ragnhildar Jóns- dóttur, sem alltaf var svo kát og hress þegar ég hitti hana. Hún lést 14. febrúar eftir að hafa strítt við erfiðan sjúkdóm. Fjölskylda mín bjó í kjallaranum í Péturs- borg þegar Gústa systir mín var komin með kærasta og átti von á barni. Nú voru góð ráð dýr. Ekk- ert sér herbergi fyrir Gústu. Ingibjörg Björnsdóttir, föður- amma mín, átti húsið og var fljót að bjarga þessu. Hún sagði við systur mína, „Gústa mín, þið komið bara upp á loft til mín og ég lána ykkur stofuna mín“. Þetta var yndisleg amma. Svo var það þegar sumarið og sólin kom að pabbi keypti íbúð að Heiðarvegi 30 og við fluttum öll þangað. Ég fékk herbergi við hliðina á ykkar íbúð og þú, tæp- lega ársgömul, reyndir að opna inn til mín á sunnudagsmorgnum þegar ég vildi sofa. Þú vaktir mig og trítlaðir inn til mín og það voru alltaf fagnarfundir. Þú varst ynd- isleg lítil frænka. Mamma kom svo til þín og spurði hvort þig vantaði fínan kjól og settist svo við saumavélina og saumaði kjól á dömuna litlu. Svo kom að því að aftur þurfti að flytja. Föðuramma þín veiktist og dó. Hver átti nú að sjá um stóra heimilið hans Runólfs í Bræðratungu? Mamma þín og pabbi tóku það að sér og fluttu til hans. Svona gekk þetta og árin liðu. Ragga orðin ung dama og farin að vinna í fiski eins og flestir unglingar í sjávarplássum. Svo var það einn daginn að það kom ástarblossi frá ungum manni sem líka var að vinna þarna í fiski. Hann hitti í mark og ástin var heit. Þetta var hann Bragi og hann tók þig með sér til Dalvíkur þar sem hans heimili var. Við söknuðum þín mikið en vissum að Bragi var góður maður og allt hans fólk. Svo leið tíminn og við hittum ykkur af og til, bæði á Dalvík og hér í Eyjum. Það voru yndislegar stundir sem við áttum með ykkur. Bragi minn og fjöl- skyldan þín öll. Við biðjum Guð að gefa ykkur styrk í sorginni. Alda Björnsdóttir og Hilmir Högnason. Að hryggjast og gleðjast hér um fáa daga, að heilsast og kveðjast. – Það er lífsins saga. (Páll J. Árdal.) Hún Ragga er látin eftir langa og harða baráttu við illvígan sjúk- dóm, sem engu eirir. Eftir stönd- um við án þess að skilja almættið, án þess að geta nokkru breytt eða aðhafst neitt sem þessu fær af- stýrt. Hvers vegna hún? Hún var að komast á þann aldur að geta notið ævikvöldsins í faðmi fjöl- skyldu og vina og haft tíma til að sinna eigin hugðarefnum og ráða betur tíma sínum. En enginn veit sína ævina fyrr en öll er. Þótt veikindi steðji að viljum við halda í vonina að úr rætist og alltaf er- um við óviðbúin endalokunum, ósátt við að tapa orrustunni. Á þessum tímamótum vil ég þakka allt það góða sem ég hef notið við að kynnast þessari mætu konu, sem Bragi vinur minn til margra ára, kom með frá Vestmannaeyjum eftir að hann hafði verið þar á vertíð. Þá kom hann til baka með þessa fallegu stelpu. Við samferðafólkið getum þakkað fyrir að þau komu norður, en byggðu ekki bú sitt í Eyjum. Við höfum notið verka þeirra á margvíslegan hátt hér í bæ. Ragga var hrein og bein og kom til dyranna eins og hún var klædd. Hún sóttist ekki eftir mannaforráðum eða tranaði sér fram til metorða í mannfélags- stiganum. Samt hafði hún ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum, þótt ætíð vildi hún sjá það góða við hvert viðfangsefni og benda á það sem betur mætti fara. Hún var mikil húsmóðir og hélt fallegt heimili. Til þeirra hjóna var gott að koma og naut ég þess í ríkum mæli. Þótt seint sé vil ég nú þakka henni allar ágætar samverustundir sem ég átti með henni og þá oftar en ekki í eldhúsinu. Á þeim árum, sem ég dreif mig stundum á skíði, var góður mjólkurgrautur með rús- ínum og slátri ómissandi undir- staða fyrir daginn. Þeim hjónum var svo eðlislægt að taka á móti gestum án tilgerðar eða óþarfa tilstands. Til þeirra var gott að koma og njóta þess. Ég vil halda í góðar minningar eins og ég upp- lifði þær. Ég vona að enn eigi ég eftir að halda áfram heimsóknum til Braga vinar míns, sem sýnt hefur ótrúlegt æðruleysi, úthald og samviskusemi við umönnun konu sinnar á þessum erfiða tíma. Ástin endist lengi þegar að henni er hlúð. Ég vil svo að end- ingu þakka Röggu góða kynningu og samskipti á liðnum árum með þessari vísu: Margt ég vildi þakka þér og þess er gott að minnast, að þú ert ein af þeim sem mér þótti gott að kynnast. (Guðrún Jóhannesdóttir.) Með þessum fátæklegu orðum vil ég senda innilegar samúðar- kveðjur frá mér og Ásu, til Braga, barna hans og fjöl- skyldna, annarra ættingja og vina. Þeirra er missirinn mestur. Blessuð sé minning hennar. Sveinn Jónsson. Ragnhildur Jónsdóttir HINSTA KVEÐJA Kallið kom, þú kvaddir, amma mín, nú klökk við sitjum og þerrum tregatárin. Guð hann hefur kallað þig til sín, hans kærleikshönd mun græða dýpstu sárin. Takk fyrir allar góðar stundir, elsku amma. Elmar Ingi, Esther Ösp. Til ömmu Röggu. Með stórt hjarta og hlýjan faðm, tók á móti öllum. Lífið fullt af litadýrð og kleinurnar í stöflum. Eins góð og hún var, eins falleg og hún var er erfitt að sætta sig við að Guð virðist velja þá einstöku úr til þess að hafa sér við hlið. (RKJ) Sakna þín. Ragnhildur Katla. ✝ Gústaf AdólfLárusson, fæddist 4. des. 1917, á Efri-Vaðli, Barðastrand- arhreppi V- Barðarstrand- arsýslu. Hann lést í Reykjavík 12. febr- úar 2013. Foreldrar Gúst- afs voru Lárus Mikael Stefánsson, f. 22. sept. 1871, á Fæti, Barða- strandarhr. V-Barð., d. 13. apríl 1930, bóndi á Grænhól og Efri- Vaðli og kona hans, Jónína Val- gerður Engilbertsdóttir, f. 12 jan. 1875 á Melgraseyri, Naut- eyrarhreppi, N-Ís., d. 9. feb. 1926., húsfreyja á Grænhól og Efra-Vaðli. Gústaf var næst yngstur 14 systkina, sem öll náðu fullorð- insaldri en eru nú öll látin. Eftirlifandi eiginkona Gúst- afs er Þórhildur Magnúsdóttir, f. 22. des.1917 í Mið- húsum, Bisk- upstungnahr, Ár- nessýslu. Börn þeirra eru Ásta Vigdís, f. 8. mars 1942, Hildur, f. 9. apríl 1943, Hulda, f. 19. apríl 1944, Auð- ur, f. 9. mars 1948, Margrét, f. 29. mars 1949, og Guðrún,f. 19. sept. 1950. Gústaf fluttist til Reykjavíkur árið 1940, lærði húsasmíðar og starfaði við þá iðju óslitið alla sína starfsævi. Árið 1947 reistu þau hjón sér hús í Jöldugróf 8, Rvk. og bjuggu þar alla tíð eða þangað til Gústaf fór á hjúkr- unarheimilið Skógarbæ í jan. 2012. Útför Gústafs fór fram frá Bústaðakirkju 21. feb. 2013. Þó að náið samband myndaðist aldrei milli mín og Gústafs, tengdaföður míns, um hartnær hálfan annan áratug, leyndist ekki fyrir mér að í honum fólust margir flottir drættir. Hann var ólseigur dugnaðarforkur með ljóðrænu ívafi, kjarkmaður sem fór sínu fram hvað sem öllu leið og hvað sem öðrum fannst. Saga hans sem frumbyggja í Blesugrófinni minnir um sumt á Bjart í Sumarhúsum. Þegar fá- tækum alþýðumönnum voru fáar leiðir færar í húsnæðismálum nema bæjarblokkir eða braggar fann hann stæði undir hús á grunni bragga frá hernámstíman- um og byggði sér þar tvílyft hús í trássi við Guð og menn. Neyslu- vatnið fann hann í vatnslögn borg- arinnar í nokkur hundruð metra fjarlægð og nutu nágrannar hans góðs af dugnaðinum. Skilningsrík- ur og velviljaður háttsettur emb- ættismaður borgarinnar var hafð- ur með í ráðum til að fá frið með framkvæmdina sem þætti ekki til fyrirmyndar í dag. En svona leit veruleikinn út um miðja síðustu öld. Það lýsir eðliskostum Gústafs að það varð eitt hans höfuðverk- efna að reisa endurvarpsstöðvar á fjallatoppum úti um allt land og þurfti oft ótrúlega elju og útsjón- arsemi til slíkra verka. Ég heim- sótti hann eitt sinn á slíkan fjalla- topp og sá hann þar í essinu sínu. Smásaga að lokum lýsir Gústaf vel: Þórhildur, kona hans og tengdamóðir mín, hringdi í Gúst- af, dótturson sinn og smíðalærling hjá afa sínum, sem hafði meistara- réttindi. Þórhildur sagði Gústa yngri að óhapp hefði valdið skemmdum á kerru sem lærling- urinn geymdi í portinu hjá verk- stæði afa síns. „Hvað gerðist?“ spurði lærlingurinn. „Jú, það brotnaði afturljós,“ svarði amman. „Nú, hvernig?“ var aftur spurt. „Hann afi þinn datt á kerruna of- an af þaki,“ svaraði amman og var ekki að gera rellu út af slíkum smámunum frekar en afinn sjálf- ur. Valdimar Hergils Jóhannesson. Síðasta skiptið sem ég hitti afa minn var þegar ég fór ásamt fjöl- skyldu minni, eiginmanni, tveimur börnum og einu stjúpbarni að heimsækja hann þar sem hann dvaldi á Skógarbæ. Oliver sonur minn, tæplega þriggja ára, var mjög spenntur að heimsækja afa langa. Hann hafði stuttu áður fengið að kaupa tvö sverð úr frauðplasti. Hann tók þau bæði með í heimsóknina, því hann ætl- aði að skylmast við afa langa sinn. Sem þeir og gerðu. Við hjálpuðum afa fram úr í stólinn sinn og sá stutti hljóp og dansaði í kringum hann, báðir vopnaðir frauðplasts- verðum. Þar sem ég sat og fylgd- ist með þeim skylmast af fullum krafti horfði ég á fölskvalausa gleðina streyma úr andlitum þeirra beggja. Báðir skemmtu þeir sér konunglega. Þessa minn- ingu mun ég varðveita. Þessa sögu mun ég segja syni mínum þegar fram líða stundir. Þegar ég hugsa til afa míns er það helst vinnusemi hans, sem kemur mér í huga. Alltaf að bar- dúsa á verkstæðinu eða í húsinu sem hann byggði sér og fjölskyldu sinni, húsið í Jöldugrófinni, húsið sem er svo mikið sameiningartákn fjölskyldunnar. Húsið sem maður er alltaf velkominn í. Þar lék ég mér í garðinum, þar jarðaði ég hamsturinn minn og afi smíðaði kross til að leggja á leiðið. Þar leika börnin mín sér núna. Ég minnist líka ferðanna í sum- arbústaðinn sem afi byggði, en ég kallaði sumarbústaðinn hans afa ævinlega „sumarGústaf“ þaðan sem ég á fallegar og góðar minn- ingar, minningar um Lödusport- jeppann hans afa, minningar um fjöruferðir, minningar um kríur, minningar um spilamennsku og margt, margt fleira. Mér er mjög minnisstætt þegar afi og amma voru að verða níræð. Það sumarið þurfti afi að leggjast inn á spítala vegna sýkingar. Það var fallegt sumarkvöld og ég sat í stofunni hjá mömmu þegar amma kemur upp og segist bara ekki geta hugsað sér að fara að sofa án þess að kyssa manninn sinn góða nótt. Ég bauðst til að fara með ömmu upp á deild. „Þóra mín, ertu komin, ástin mín?“ sagði afi þegar við amma löbbuðum inn. Þau föðmuðust og kysstust og skiptust á ástaryrðum. Þá áttaði ég mig á því hversu djúp þeirra ást var og er eftir 75 ár í sambúð. Búin að ganga í gegnum þykkt og þunnt. Búin að ala af sér sex stúlkur og eignast fjöldann allan af barna- börnum og barnabarnabörnum. Í dag fylgjum við afa mínum til grafar og amma kyssir manninn sinn í hinsta sinn. Elsku afi minn, hvíldu í friði. Marín Hergils. Gústaf Adólf Lárusson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.