Morgunblaðið - 22.02.2013, Page 35
MINNINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2013
Nú er föðuramma
mín, Jóhanna Magn-
úsdóttir, látin og mig langar að
minnast hennar með nokkrum
orðum.
Tengsl okkar ömmu breyttust
og styrktust þegar ég gekk í gegn-
um erfiðleikatímabil í kringum tví-
tugsaldurinn. Þá sýndi amma mér
einlæga og fölskvalausa umhyggju
sem mér þótti ákaflega vænt um.
Það skein svo skýrt í gegn hvað
amma vildi að úr öllu rættist hjá
mér. Eftir það fórum við amma að
heyrast reglulega í síma og töluð-
um oft lengi saman. Amma sýndi
mikinn áhuga á mínum viðfangs-
efnum og vildi setja sig vel inn í
málin enda var hún mjög fróðleiks-
fús og skörp kona. Amma var
reyndar vel inni í öllum málum
sem sneru að hennar nánustu sem
og málefnum líðandi stundar. Þeg-
ar ég kynntist sambýlismanni mín-
um vakti það henni talsverða gleði
og ánægju að hann væri af Helga-
fellsættinni eins og hún en það
þótti ömmu ekki ómerkilegur ætt-
bogi. Amma var afar ættrækin og
bar mikla virðingu fyrir uppruna
sínum af Snæfellsnesinu. Amma
tjáði mér einnig þá einlægu von
sína að ég gæti fundið í honum
jafnsamhentan lífsförunaut og
amma hafði sjálf átt í Gunnari afa.
Þau hjónin gerðu allt saman og
voru þakklát hvort fyrir annað.
Það má segja að amma hafi ekki
fyllilega borið sitt barr eftir að
Gunnar dó 2002 því þótt hún
kvartaði ekki þá var söknuðurinn
greinilegur. Líkt og ömmu var um-
hugað um uppruna sinn af Snæ-
fellsnesinu bar hún sterkar taugar
til Eskifjarðar en þar var hún alin
upp af fóstru sinni og fóstra. Það
veitti því ömmu mikla gleði þegar
foreldrar mínir festu kaup á litlu
húsi þar og gerðu upp. Amma fór
margar ferðir þangað með Dedda
sínum og Hildu og talaði um litla
húsið, og foreldra mína reyndar
líka, með stolti. Amma var tekin í
fóstur en hún átti samt alltaf sína
mömmu og pabba og systkini á
Uppsölum og amma var mjög
tengd systkinum sínum sem hún
talaði oft um. Það var henni líka
erfitt að missa mörg þeirra und-
anfarin ár. Amma bjó langstærst-
an hluta ævi sinnar í Reykjavík og
fyrir mér hafði hún yfir sér ákveð-
inn frúarblæ; amma var glæsileg,
afbragðs húsmóðir og þau Gunnar
áttu afskaplega fallegt heimili.
Ég minnist ömmu með virð-
ingu, þakklæti og væntumþykju.
Takk fyrir allt amma mín.
Ragnhildur Sesselja
Georgsdóttir.
Kveðja frá Gigtarfélagi
Íslands
Látin er í Reykjavík Jóhanna
Magnúsdóttir. Jóhanna var einn af
stofnendum Gigtarfélags Íslands
fyrir 36 árum og sat í fjölda ára í
stjórn félagsins. Jóhanna var auk
þess fyrsti formaður Þorbjargar-
sjóðs, en sjóðurinn hefur síðustu
áratugina veitt á hverju ári styrki
til ungra gigtsjúklinga til náms.
Stærsta verkefni félagsins var þó
að koma upp endurhæfingarstöð
fyrir gigtveika í Reykjavík. Var
stöðinni valinn staður í Ármúla 5 í
Reykjavík, þar sem starfsemin er
ennþá. Naut félagið góðs af fé-
lagslegum tengslum Jóhönnu við
stofnun félagsins og stöðvarinnar.
Tengsl hennar við Oddfellow-
hreyfinguna á Íslandi, Vinahjálp
og fleiri líknarfélög reyndust fé-
Jóhanna
Magnúsdóttir
✝ Jóhanna Magn-úsdóttir fædd-
ist á Uppsölum í
Eiðaþinghá 27. júlí
1927. Hún lést á
Landakotsspítala 7.
febrúar 2013.
Úför Jóhönnu
fór fram 15. febr-
úar 2013.
laginu ómetanleg.
Eiginmaður Jö-
hönnu, Gunnar
Theódórsson heitinn
innanhússarkitekt,
veitti félaginu einnig
mikinn stuðning við
stofnun stöðvarinn-
ar með vinnufram-
lagi á sínu sérsviði.
Undirritaður,
sem hlotnaðist sú
ánægja að vinna
með Jóhönnu og fleirum að
nokkrum málum fyrir félagið,
varð var við þá virðingu, sem hún
hafði áunnið sér meðal fólks í
samfélagi okkar, en hún bar sig
ávallt vel þrátt fyrir að vera þjök-
uð af alvarlegum gigtarsjúkdómi.
Framlag Jóhönnu var félaginu
ómetanlegt og flýtti mikið fyrir
þeim góðu málum, sem félagið
hefur barist fyrir frá stofnun þess.
Minningar mínar um þessa góðu
konu eru bjartar, tengdar virð-
ingu og þakklæti.
F.h. Gigtarfélags Íslands,
Einar S. Ingólfsson.
Elsku Nanna mín
Þá er komin að kveðjustund
eftir að hafa þekkt þig og fjöl-
skylduna þína alla mína ævi.
Þórunn dóttir Nönnu og ég er-
um systkinabörn og svo var
Nanna besta vinkona móður
minnar, sem lést fyrir 29 árum.
Nanna reyndist okkur fjölskyld-
unni ómetanleg hjálp við bana-
legu móður minnar og leyfi ég
mér að efast um að við höfum
nokkru sinni fullþakkað henni alla
þá hjálp og umhyggju sem hún
sýndi mömmu.
Minningarnar er ótakmarkað-
ar, fyrst man ég eftir fjölskyld-
unni í Gnoðavogi. Einnig man ég
að Hinrik dvaldi í umsjón mömmu
um tveggja vikna skeið á fyrsta
ári vegna veikinda Nönnu og átt-
um við mamma góðar stundir
saman í “mömmuleik“ með hann!
En svo vorum við svo heppin að
þau Nanna og Gunnar fluttu með
börnin sín á neðri hæð í hús for-
eldra minna við Selvogsgrunn og
bjuggu þar í 5 ár. Mikill samgang-
ur var milli fjölskyldnanna og
mikið líf og fjör í húsinu. Á meðan
þau bjuggu í húsinu hjá okkur
voru haldnar a.m.k. tvær stór-
veislur á neðri hæðinni, Gunnar
Theódór fermdist og Nanna varð
40 ára. Með mikilli útsjónarsemi
voru báðar þessar veislur haldnar
heima við í litlu íbúðinni.
Á þessum árum byrjaði íslenskt
sjónvarp útsendingar og eigum
við ljósmyndir af þessum stundum
þegar báðar fjölskyldurnar sam-
einuðust fyrir framan þetta
undratæki.
Nanna og Gunnar hafa verið
viðstödd allar stærri stundir í lífi
fjölskyldu minnar, fermingar, út-
skriftir og stórafmæli og ber að
þakka fyrir þá vináttu.
Nanna var pabba mínum mjög
innanhandar eftir að hann missti
mömmu og þótti honum- eins og
mér – gott að geta leitað til hennar
þegar matseld var fyrirhuguð, en
fyrst eftir fráfall mömmu áttum
við ófá símtöl um hinar ýmsu upp-
skriftir og var hún alltaf góð að
leita til.
Sorgin þegar dauðsfall Gunn-
ars Theódórs dundi yfir 1980 var
Nönnu og Gunnari alla tíð mjög
erfitt.
Í seinni tíð höfðum við þann
háttinn á að tala saman í síma á af-
mælisdögum okkar, þ.e. í júlí, nóv-
ember og um jólin. Þegar ekkert
heyrist frá Nönnu um síðustu jól
fór ég að grennslast fyrir um hana
en því miður varð ekki úr að ég
heimsótti hana á sjúkrahúsið og
þykir mér það leitt. Í einu af síð-
ustu samtölum okkar sagði hún
mér að hún væri orðin tilbúin til að
fara, saknaði Gunnars mikið og
hlakkaði til að hitta hann að nýju.
Ég efast ekki um að það hafa orðið
fagnaðarfundir hjá Gunnurunum
tveimur sem biðu hennar.
Elsku Nanna, ég kveð þig með
þakklæti fyrir allt sem þú gerðir
fyrir mig og mína fjölskyldu og
votta Þórunni frænku, Georg og
Hinrik og fjölskyldum þeirra mína
samúðarkveðjur.
Þín,
Halla Kristín.
Elsku Nanna mín.
Þá er komin að kveðjustund
eftir að hafa þekkt þig og fjöl-
skylduna þína alla mína ævi.
Þórunn, dóttir Nönnu, og ég er-
um systkinabörn og svo var
Nanna besta vinkona móður
minnar, sem lést fyrir 29 árum.
Nanna reyndist okkur fjölskyld-
unni ómetanleg hjálp við banalegu
móður minnar og leyfi ég mér að
efast um að við höfum nokkru
sinni fullþakkað henni alla þá
hjálp og umhyggju sem hún sýndi
mömmu.
Minningarnar er ótakmarkað-
ar, fyrst man ég eftir fjölskyldunni
í Gnoðavogi. Einnig man ég að
Hinrik dvaldi í umsjón mömmu
um tveggja vikna skeið á fyrsta ári
vegna veikinda Nönnu og áttum
við mamma góðar stundir saman í
„mömmuleik“ með hann!
En svo vorum við svo heppin að
þau Nanna og Gunnar fluttu með
börnin sín á neðri hæð í hús for-
eldra minna við Selvogsgrunn og
bjuggu þar í fimm ár. Mikill sam-
gangur var milli fjölskyldnanna og
mikið líf og fjör í húsinu. Á meðan
þau bjuggu í húsinu hjá okkur
voru haldnar a.m.k. tvær stór-
veislur á neðri hæðinni, Gunnar
Theódór fermdist og Nanna varð
40 ára. Með mikilli útsjónarsemi
voru báðar þessar veislur haldnar
heima við í litlu íbúðinni.
Á þessum árum byrjaði íslenskt
sjónvarp útsendingar og eigum
við ljósmyndir af þessum stundum
þegar báðar fjölskyldurnar sam-
einuðust fyrir framan þetta
undratæki.
Nanna og Gunnar hafa verið
viðstödd allar stærri stundir í lífi
fjölskyldu minnar, fermingar, út-
skriftir og stórafmæli og ber að
þakka fyrir þá vináttu.
Nanna var pabba mínum mjög
innanhandar eftir að hann missti
mömmu og þótti honum- eins og
mér – gott að geta leitað til hennar
þegar matseld var fyrirhuguð, en
fyrst eftir fráfall mömmu áttum
við ófá símtöl um hinar ýmsu upp-
skriftir og var hún alltaf góð að
leita til.
Sorgin þegar dauðsfall Gunn-
ars Theódórs dundi yfir 1980 var
Nönnu og Gunnari alla tíð mjög
erfitt.
Í seinni tíð höfðum við þann
háttinn á að tala saman í síma á af-
mælisdögum okkar, þ.e. í júlí, nóv-
ember og um jólin. Þegar ekkert
heyrist frá Nönnu um síðustu jól
fór ég að grennslast fyrir um hana
en því miður varð ekki úr að ég
heimsótti hana á sjúkrahúsið og
þykir mér það leitt. Í einu af síð-
ustu samtölum okkar sagði hún
mér að hún væri orðin tilbúin til að
fara, saknaði Gunnars mikið og
hlakkaði til að hitta hann að nýju.
Ég efast ekki um að það hafa orðið
fagnaðarfundir hjá Gunnurunum
tveimur sem biðu hennar.
Elsku Nanna, ég kveð þig með
þakklæti fyrir allt sem þú gerðir
fyrir mig og mína fjölskyldu og
votta Þórunni frænku, Georg og
Hinrik og fjölskyldum þeirra mína
samúðarkveðjur.
Þín
Halla Kristín.
Elskuleg amma mín, þú sem
varst mér svo kær.
Ég er svo ánægð að hafa verið
með ömmu hjá móðursystur
minni kvöldið sem hún lést, fyrir
það er ég þakklát. En ekki grun-
aði mig þá að það væri í síðasta
skipti sem við hittumst. Ég hafði
orð á því við hana hvað hún væri
vel til fara, enda smekkleg kona,
hún var svo fín í fallegri fjólu-
blárri peysu sem hún hafði keypt
fyrr um daginn og það geislaði af
henni á einhvern óútskýranlegan
hátt. Fjólublár merkir hlýju og
það má með sanni segja að amma
hafi verið hlý sál og umhyggju-
söm með eindæmum.
Ég leyndi ekki tárum mínum
er ég frétti að hún væri látin og
Ólafía Guðfinna
Alfonsdóttir
✝ Ólafía Guð-finna Alfons-
dóttir fæddist í
Hnífsdal 17. maí
1924. Hún lést á
heimili sínu í
Reykjavík 6. febr-
úar síðastliðinn.
Útför Ólafíu fór
fram frá Bústaða-
kirkju 15. febrúar
2013.
tárin streyma enn.
Þetta er svo óraun-
verulegt. Er ég lít til
baka hrannast upp
minningarnar úr
Hnífsdal, samveru-
stundirnar sem við
áttum á Bakkavegin-
um, þegar ég var
ýmist í pössun hjá
þeim afa, í heimsókn
eða einfaldlega að
leika mér í dalnum.
Þessar minningar eru ógleyman-
legur hluti af lífi mínu, þetta eru
minningar sem gott er að hugsa
um með hlýju og söknuð í hjarta.
Í Hæðargarð var einnig alltaf
ljúft að koma, heimilið fallegt og
fínt, þar leið manni vel. Hún var
húsmóðir af lífi og sál og höfðingi
heim að sækja. Stundum velti ég
því fyrir mér hvaðan allur þessi
kraftur kom sem hún bjó yfir alla
tíð, henni féll aldrei verk úr
hendi.
Alltaf passaði hún upp á að all-
ir fengju nóg að borða. Maður
fór svo sannarlega ekki svangur
frá henni. Hún sagði gjarnan er
hún var búin að elda og bera
matinn fram: „Ég vona að þið
getið borðað þetta, ég kann ekk-
ert að gera eins og unga fólkið
gerir.“ Það var nú hvergi betra
að fá lambalæri með brúnni sósu,
brúnuðum kartöflum og meðlæti
en upp á gamla mátann hjá
ömmu og fast á hælana fylgdi svo
dýrindis eftirréttur. Þær eru ófá-
ar veislurnar sem maður hefur
fengið hjá Ólafíu ömmu og þeirra
samverustunda verður sárt
saknað.
Elsku amma Ólafía. Ég dáist
að því hvernig þú tókst lífinu
með stakri ró, eljusemi og dugn-
aði, aldrei hefur maður heyrt þig
kvarta undan neinu, þú tvínón-
aðir ekki við hlutina og gekkst
hreint til verks. Fjölskyldan var
þér mikilvæg og fjölskyldu-
tengslin, þú vildir fylgjast vel
með og varst með á nótunum allt
til síðasta dags. Þér fannst svo
gaman að hafa félagsskap og
vera innan um fólkið þitt. Þú
varst mikil félagsvera og það var
gott að koma til þín. Þú kenndir
mér margt um lífið og tilveruna.
Takk fyrir samverustundirnar,
þeim mun ég aldrei gleyma. Ég
sakna þín. Ég bið góðan guð um
að geyma þig og vernda.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Hildur Sigurðardóttir.
Ég kynntist Maríu tengdamóð-
ur minni fyrir tæpum þrjátíu ár-
um. Við fyrstu kynni var mér
strax vel tekið í fjölskyldunni. Við
María náðum strax vel saman.
Fljótlega fann ég að María var
kraftmikil og dugleg kona sem var
annt um sína nánustu. Tengda-
móðir mín var réttsýn og var oft
gott að leita til hennar þegar vafa-
atriði eða vandamál þurfti að
leysa. Spjall um lífið og tilveruna
yfir kaffibolla á Hraunbrautinni
var alltaf skemmtilegt og inni-
haldsríkt.
Fyrsta jólaboðið er mér minn-
isstætt, glæsilegt jólaborð líkt og
lagt væri á borð fyrir kóngafólk.
Lagt á borð af alúð og natni við
matargerðina. Eftir því sem árin
liðu fjölgaði í jólaboðunum, barna-
börnum fjölgaði, diskum fjölgaði
en sami metnaðurinn og fágunin.
Þetta var hópurinn hennar, ætt-
móðirin sem horfði stolt á hópinn
sinn vaxa úr grasi og þroskast.
Ég hef sjálfur margt lært af
kynnum mínum við tengdamóður
mína sem hefur reynst mér gott
veganesti í lífinu. Fyrir börnin
okkar þrjú einstök væntumþykja
og um um leið hvatt þau áfram til
dáða og góðra verka.
Í erfiðum veikindum sonar okk-
ar fyrir fjórtán árum stóð hún sem
klettur okkur hjónum við hlið og
hvergi gefið eftir. Ósérhlífni var
einn af mörgum kostum hennar.
Hún vildi ekki að athyglin
beindist að henni sjálfri heldur að
hennar nánustu og þannig vildi
hún hafa það, að gleðja aðra og
samgleðjast. Hún naut sín best við
að fá hópinn sinn reglulega í
kvöldverðarboð, læri með öllu eða
í kaffi. Heimili tengdaforeldra
minna, Maríu og Ólafs, bar ætíð
vott um fágun og listfengi hús-
freyju. María var mjög listræn og
smekkleg kona sem hafði gott
auga fyrir listum og fögrum hlut-
um. Prjónaskapurinn og aðrar
hannyrðir báru vott um smekkvísi
og list.
Að leiðarlokum vil ég þakka
henni samveruna og allt það sem
hún var okkur og bið henni Guðs
blessunar.
Þinn tengdasonur,
Einar Þór Jónsson.
Hjá okkur ríkir nú mikill sökn-
uður og sárt er að þurfa að kveðja
hana ömmu Mæju okkar. Hún er
og verður okkur alltaf mikil fyr-
irmynd, kona sem lét aldrei bug-
ast þó á móti blési, svo heil í öllu
sem hún tók sér fyrir hendur,
kjarkmikil og góð. Hún hafði þann
dýrmæta eiginleika að koma alltaf
auga á það góða.
Það eru margar minningarnar
María Guðrún
Steingrímsdóttir
✝ María GuðrúnSteingríms-
dóttir fæddist í
Miklagarði í
Saurbæ í Dalasýslu
6. júní 1927. Hún
andaðist á Land-
spítalanum í Foss-
vogi 4. febrúar sl.
Útför Maríu fór
fram 15. febrúar
2013.
sem við eigum úr
heimsóknunum til
hennar á Hraun-
brautina. Fjölskyld-
an skipti ömmu
Mæju öllu máli, hún
lagði sig fram um að
halda góðu sam-
bandi við sitt fólk og
það skipti hana líka
miklu máli að fólkið
hennar þekkti sínar
rætur. Tímunum
saman var hægt að hlusta á ömmu
Mæju segja sögur af forfeðrum
okkar og sagði hún stolt frá því
hverju þeir höfðu áorkað og þeim
þrautum sem þeir höfðu þurft að
sigrast á. Nú er komið að okkur að
segja sögurnar og gæta þessa að
miðla til þeirra sem yngri eru.
Amma Mæja hafði einstakt lag á
börnum og langömmubarnið
hennar og nafna var þar engin
undantekning. Þær urðu strax
miklar vinkonur og það var alltaf
mikill spenningur sem fylgdi því
að fara í heimsókn til ömmu
Mæju.
Við eigum öll eftir að sakna
hennar sárt en getum á móti
huggað okkur við það að hennar
var þörf annars staðar og minn-
ingarnar um einstaka konu munu
veita okkur styrk í sorginni.
Við kveðjum þig, elsku amma
Mæja okkar, með miklum söknuði
og jafnframt þakklæti fyrir allt
sem þú gafst okkur. Þú munt allt-
af eiga stað í hjarta okkar og
minning þín mun ávallt lifa í okkar
huga.
Guð blessi þig elsku amma.
Guðmundur Hjalti
Sveinsson og fjölskylda.
Amma María var með græna
fingur enda er garðurinn þeirra
afa á Hraunbrautinni fallegasti
garðurinn sem ég hef séð. Amma
var merkileg og dugleg kona. Það
trúir mér enginn þegar ég segi frá
því þegar hún klifraði upp í
Ábyrgð, tíu metra hátt tré fyrir
framan húsið þeirra, rúmlega átt-
ræð og sagaði af því nokkrar
greinar. Amma átti líka fullt af
slæðum og klútum og vorum við
Anna frænka alltaf að leika okkur
að búa til föt úr þeim og halda svo
tískusýningar fyrir alla. Amma
var góður kokkur og hún átti alltaf
eitthvert góðgæti handa okkur
þegar við komum í heimsókn. Hún
gerði bestu pönnukökur í heimi og
það besta var að hún notaði aldrei
mæliskeiðar og þess vegna voru
þær aldrei eins. Oft þegar ég var
hjá ömmu og afa voru þau að spila
marías og var þá mikið keppnis-
skap í gangi. Það var alltaf gaman
að horfa á þau spila. Það er sorg-
legt að hugsa til þess að amma og
afi munu aldrei spila marías aftur.
Ég mun aldrei gleyma síðustu
stundunum sem ég átti með ömmu
eða síðustu orðunum sem hún
sagði við mig: „Haltu áfram.“ Þá
var hún að meina að ég ætti að
halda áfram að syngja því hún
vissi að það er eitt af því sem mér
finnst gaman að gera. Fyrir ömmu
ætla ég aldrei að hætta því. Ég
elska þig amma og ég veit að núna
syngur þú með englunum.
Stefanía Sigurðardóttir.
VirðingReynsla & Þjónusta
Allan sólarhringinn
www.kvedja.is
571 8222
82o 3939 svafar
82o 3938 hermann