Morgunblaðið - 22.02.2013, Side 42

Morgunblaðið - 22.02.2013, Side 42
42 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2013 Í hugum sumra okkar eru skotveiðar og skotvopn tengd viðheldri menn sem áunnið hafa sér viskíröddina og komnir meðgrátt í hárið. Kolbrún Júlía Erlendsdóttir á fátt sameiginlegt með staðalímynd skotveiðimannsins annað en áhugann á skotvopn- um og veiðum. Hún byrjaði um tvítugt að stunda sportið og hefur stundað það allar götur síðan. „Ég er með flest þau réttindi sem er hægt er að hafa í sportinu og hef farið á rjúpu og skotið hreindýr hér á landi,“ segir Kolbrún en í hennar huga er skotveiði meira en bara að skjóta úr byssu. „Útivistin og náttúran er það sem gerir þetta sport heillandi og góður félagsskapur skemmir ekki fyrir.“ Eiginmaður Kolbrúnar fylgir henni stundum á veiðar en Kolbrún segir hann of mikinn dýravin til að skjóta sjálfur í veiðiferðum. „Hann er með skotvopnaleyfi og finnst gaman að koma með mér á veiðar en lætur mér eftir að skjóta.“ Fjölskyldan kemur fyrst þó að skotveiðarnar séu skemmtilegar og segir Kolbrún samverustundir með stelpunum sínum tveimur og eiginmanninum mikilvægri en skotveiðina. „Við förum mikið saman í útilegur og ferðalög og ætlum að eyða helginni í sumarbústað sam- an.“ Þó Kolbrún sé mikið afmælisbarn segist hún muna frekar eftir afmælisveislum stelpnanna sinna en sínum eigin og það lýsir Kol- brúnu kannski betur en nokkuð annað. vilhjalmur@mbl.is Kolbrún Júlía Erlendsdóttir er 42 ára í dag Afmælisbarnið Kolbrún Júlía Erlendsdóttir nýtur sín best grá fyrir járnum í náttúrunni með eiginmanninn í eftirdragi. Elskar skotvopnin og fjölskylduna Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. Aðalsteina Sumarliðadóttir er ní- ræð í dag 22. febrúar. Eiginmaður hennar er Þórður Þórðarson sem verður níræð- ur síðar á þessu ári. Hafa þau allan sinn aldur búið í Ólafsvík og búa nú á Dvalarheimilinu Jaðri í góðu yfirlæti. Þau eiga fimm börn, níu barna- börn og fjögur barnabarnabörn. Aðalsteina hef- ur alla tíð haft mikla unun af bóka- og ljóða- lestri. Á síðari árum hefur hún haft mikinn áhuga á að heiðra minningu Jóhanns Jónssonar skálds frá Ólafsvík og vekja áhuga fólks á skáld- inu. Hefur hún staðið fyrir fyrirlestrum og kynn- ingu sem vonandi mun halda minningu skálds- ins frá Ólafsvík á lofti. Í tilefni afmælisins verður opið hús á Jaðri á morgun, 23. febrúar frá kl. 15 til 17, þar sem af- mælisbarnið býður til kaffisamsætis og þiggur bros en afþakkar gjafir. Árnað heilla 90 ára J úlíus fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í foreldra- húsum í Skólastræti 1, fyr- ir ofan Bernhöftstorfuna. Hann var í Miðbæjarskól- anum og Gagnfræðaskóla Austur- bæjar og lauk stúdentsprófi frá MR 1975. Júlíus var í sveit á bænum Egilsseli á Fljótsdalshéraði á æskuárunum. Hann var við tónlistarstörf með hljómsveitinni Pelikan í Kaupmanna- höfn á árunum 1976-81. Hann starf- aði við upptökur með Þursaflokknum um skeið og síðan með hljómsveitinni Stuðmönnum á árunum 1981-87. Vinnur fyrir Walt Disney Júlíus starfaði með Agli Ólafssyni við tónlistarstúdíóið Grettisgat en stofnaði Stúdíó Eitt 1986 og hefur starfrækt það síðan, fyrst í Skóla- stræti 1 á árunum 1987-2003, á Grett- isgötu 5 á árunum 2003-2005 og í Þingholtsstræti 27 frá 2006. Stúdíó Eitt hefur hljóðsett og tekið upp ógrynni auglýsinga fyrir útvarp og sjónvarp, sem og heimildarmyndir og heimildarþætti og séð um hljóð- setningu á ógrynni teiknimynda og barnaefnis fyrir ýmsa aðila. Þá hefur Stúdíó Eitt séð um hljóð- og talsetningu fyrir íslenska útgáfu á allflestum þekktustu teiknimyndum stóru Hollywood-kvikmyndaveranna frá 1992. Fyrirtækið hefur hljóð- og talsett 79 Walt Disney-kvikmyndir, 15 kvikmyndir fyrir Warner Brot- hers, 25 kvikmyndir fyrir Dream- works og 14 aðrar kvikmyndir í fullri Júlíus Agnarsson upptökustjóri – 60 ára Bræðurnir Synir Júlíusar og Vilhelmínu fyrir 20 árum. Frá vinstri: Björn Ármann, Agnar Már og Eiríkur Kristinn. Litríkur listakokkur Júlli og Ringo Júlíus er ætíð aðalmaðurinn og Ringo, vinur hans, er sammála. Friðbjörg Kristjana Ragnars- dóttir, Skipalóni 20 í Hafnarfirði, er áttræð í dag, föstu- daginn 22. febrúar. Í til- efni dagsins mun Frið- björg taka á móti gestum á heimili sínu frá kl. 18 á afmælisdaginn. Árnað heilla 80 ára Njarðvík Hafdís María fæddist 3. maí kl. 15.15. Hún vó 3.535 g og var 54 cm löng. Móðir hennar er Þóra Möller. Nýir borgarar Styrking • Jafnvægi • Fegurð CCFlax Frábært gegn fyrirtíðarspennu fyrir konur á öllum aldri og einkennum breytingaskeiðs Heilbrigðari og grennri konur Rannsókn sýna að konur sem hafa mikið lignans i blóðinu eru að meðaltali með 8,5 kg minni fitumassa en þær konur sem skortir eða hafa lítið af Lignans.** * Howel AB Journal of the American Medical Associaton june 2002 287:3082 ** British Journal of Nutrition(2009), 102: 195-200 Cambridge University. 1 kúfuð teskeið á dag - 40 daga skammtur Fæst í apótekum, heilsubúðum og völdum stórmörkuðum www.celsus.is Slegið í gegn í vinsældum, frábær árangur ! Mulin hörfræ – Lignans – Trönuberjafræ Kalk úr hafþörungum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.