Morgunblaðið - 22.02.2013, Side 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Haltu fast utan um pyngjuna því ein-
hver nákominn þér er farinn að gerast helst
til þurftafrekur. Minntu þig á að börnin læra
af því sem við gerum frekar en því sem við
segjum.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er margt sem freistar í fjár-
málaheiminum og þar er líka margt að var-
ast. En kapp er best með forsjá; þér liggur
ekkert á, því hlutirnir verða hér líka á morg-
un.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er engin ástæða til að hlaupa
upp til handa og fóta, þótt einhver gylliboð
séu í gangi. Flýttu þér umfram allt hægt.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert á kraftmiklu skeiði núna og í
námunda eru manneskjur sem þrá virðingu
þína meira en nokkuð annað. Hróp og köll
munu hins vegar ekki veita skoðunum þínum
brautargengi.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Tilhneiging þín til þess að dreyma dag-
drauma verður þér til happs. Segðu já, og þú
upplifir stórkostlegar samræður og stuð.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Nú er rétti tíminn til þess að fara í
saumana á gildismati sínu. Mundu að það
þarf tvo til að deila og að hlýlegt bros getur
breytt heildarmyndinni.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þig klæjar í fingurna að bjarga heim-
inum – frið, ást og samhljóm handa öllum,
takk! Safnaðu saman fólki sem er á sömu
línu. Reyndu að slaka á.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú átt auðvelt með að laða
fram það besta í öðrum og að miðla málum
þegar menn eru ekki sáttir. Haltu ótrauður
áfram þótt þú sért ekki viss hvað gera skal.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Aðrir eru furðu lostnir vegna við-
horfa þinna. Sýndu frumkvæði, þú átt góða
möguleika á að láta drauma þína rætast.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ást við fyrstu sýn er möguleiki í
dag. Rétt mat á áhættu er eitt helsta verk-
færi þitt til þess að afla peninga.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Vinnufélagar þínir veita þér
óvenjumikinn stuðning og sýna mikinn sam-
starfsvilja næsta mánuðinn. Taktu því vel
eftir og reyndu að skilja kjarnann frá hism-
inu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Settu mál þitt fram af skynsemi og
sanngirni og þá munu aðrir veita því athygli
og taka afstöðu. Varðandi leynilegt áhuga-
mál sem þú hefur ekki sinnt, er núna rétti
tíminn til þess að leggjast í rannsóknir.
Í klípu
„ÞÚ GETUR EKKI ALLTAF VERIÐ AÐ
BJARGA HONUM. EF HANN RAUNVERULEGA
VILL HJÁLP GETUR ÞÚ BÓKAÐ TÍMA HJÁ
ÞÉR FYRIR HANN.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að hafa einhvern til
að hjálpa sér á erfiðum
tímum.
BRÁÐAMÓTTA
KA
RAKARASTO
FA
ÉG ER KOMINN AFTUR
ÚR STRANDHÖGGINU
Á ENGLANDSSTRENDUR
OG ÉG TAPAÐI ÖLLU!
EN LEIÐINLEGT. FARÐU ÚR
SKÓNUM SVO ÞÚ BERIR
EKKI MOLD INN Í HÚS.
HEYRÐIR ÞÚ EKKI HVAÐ ÉG SAGÐI?
ÞETTA ER
OTTÓ FRÆNDI.
HANN VAR MJÖG
FORVITINN.
ALVEG ÞAR TIL HANN MISSTI
VARIRNAR Í MJALTAVÉLARSLYSI.
SÉRSTAKT
BROS.
Fyrir nokkrum árum fór maki Vík-verja að finna fyrir verkjum í
mjöðm. Verkirnir ágerðust jafnt og
þétt og þegar þeir voru farnir að
hindra eðlilegt líf svo um munaði
var ákveðið að skipta um mjaðma-
liði. Byrja öðrum megin og sjá síðan
til. Það var gert fyrir um fjórum og
hálfu ári og eftir að makinn fékk
stálkúlu í liðinn hefur hann fengið
sérstaka meðferð á flugvöllum.
x x x
Í raun lagaðist lítið sem ekkert viðuppskurðinn. Það gerist víst
stundum, en sem betur fer næst oft-
ar árangur, þó það sé ekki ávísun á
sérstaka meðferð á flugvöllum. Vík-
verji fór til dæmis í uppskurð vegna
brjóskloss í baki fyrir um fimm og
hálfu ári og hefur verið stálsleginn
síðan. Samt ekki fengið sérstaka
meðferð á flugvöllum.
x x x
Maka Víkverja þykir óskaplegagott að fá nudd og þó Víkverji
segi sjálfur frá er hann handlaginn
að þessu leyti með afbrigðum. Hef-
ur samt oftast öðrum hnöppum að
hneppa. Hefur fengið orð í eyra
fyrir að sinna nuddinu ekki sem
skyldi en skildi fyrst á dögunum
áhuga makans á flugferðum.
x x x
Eftir árásina á Bandaríkin haustið2001 hefur öryggiseftirlit á flug-
völlum um allan heim verið hert.
Farþegum er nánast gert að fara úr
öllu áður en þeir ganga í gegnum
öryggishlið. Víkverji hefur aldrei átt
í neinum vandræðum með þetta en
síðan makinn fór í aðgerðina, sem
átti meðal annars að gera honum
auðveldara að ferðast, hefur Vík-
verji alltaf þurft að bíða eftir hon-
um.
x x x
Þó uppskurðurinn á mjöðm mak-ans hafi misheppnast hefur
hann gert það að verkum að makinn
fær nudd á öryggissvæði viðkom-
andi flugvallar fyrir hverja einustu
flugferð. Það sem kemur Víkverja
mest á óvart er að nuddið takmark-
ast ekki við mjöðmina með stálkúl-
unni heldur virðist alltaf vera um
heilnudd að ræða. víkverji@mbl.is
Víkverji
Kenn mér, Drottinn, veg laga þinna
og ég mun fylgja honum allt til enda.
(Sálmarnir 119:33)
Íslensk hönnun Jens bíður 30% afslátt af
Uppsteyt hjartahálsmenum
í tilefni af konudeginum*
* Gildir til 24. febrúar 2013 og aðeins fyrir meðlimi vinaklúbbsins.
Hægt er að skrá sig á www.jens.is og á staðnum.
Konudagurinn
www.jens.is
www.uppsteyt.is
Síðumúla 35
Kringlunni og
14.600.-
-30%
10.220.-
12.700.-
-30%
8.890.-
18.300.-
-30%
12.810.-
18.200.-
-30%
12.740.-
12.700.-
-30%
8.890.-
Morgunninn var óvenju fallegurhér um tíma,“ skrifar Akur-
eyringurinn Davíð Hjálmar Har-
aldsson. „Sól roðaði brúnir snævi
þakins Hlíðarfjalls en neðar var
fjallið í bláum skugga. Töfrabirta.
Enn er sól og næstum sumarblíða
en töfrar morgunsins horfnir.
Hlíðarfjall nú hlær við sól,
hlákublátt um vanga.
Undir fölum fannakjól
felur svarta dranga.“
Sigmundur Benediktsson kastaði
fram nokkrum bjartsýnis- og
hvatningarvísum:
Ei mun hríðin ógna lýð,
andinn skrýðist þori.
Sólin býður sælutíð,
senn að líður vori.
Fráleitt stíma hug við hrím
hækkar skíma dagsins,
gleðivíma, fjör og flím
fæðir tíma hagsins.
Stakan fagurt léttir lag
lyftir brag í geði.
Kveðin baga kætir hag
kynnir fagsins gleði.
Nú skal vanda vísnaband
vonalandið hrífa.
Létt skal banda ljóðagand
láta andann svífa.
Stöku rólið hlýtur hól,
háttaskjólin styðja.
Kveðum sól í sinnisból
sætt um njólu miðja.
Davíð Hjálmar orti aðra nátt-
úrustemningu, að vísu með öðrum
formerkjum:
Enn liggja skaflar á holti og hól
og hrannir af klaka á fjöru
en brátt kemur vorið með vætu og sól
og vegi sem löðra í tjöru.
Hjálmar Freysteinsson veltir fyr-
ir sér hvort þetta tengist öðru máli
utan landsteinanna:
Það bilar síst sem vel er vandað;
vondan kalla ég þennan sið:
Heimskingjarnir hafa blandað
hrossafeiti í malbikið.
Limruskáldið Sigrún Haralds-
dóttir bregður á leik:
Þótt engan sér ætti hún karl
og æti helst pylsur og snarl
þá svaf hún hjá Munda,
Megasi og Dunda
og elskaði Ámunda Jarl.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahornið
Af limru, fölum fannakjól
og vegum löðrandi í tjöru