Morgunblaðið - 22.02.2013, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 22.02.2013, Qupperneq 48
48 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2013 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Myndlistarkonurnar Hildigunnur Birgisdóttir og Anna Hrund Más- dóttir snúa bökum saman í sýning- unni Nacho cheese. Anna sýnir verk sem hún hefur unnið í hefðbundna miðla myndlistarinnar, meðal annars postulínsskúlptúra og þrykk en auk þess vinnur hún verk úr fjölda- framleiddu efni á borð við sælgæt- isdropa og partískraut. Yfirborðið skiptir öllu máli þar, áferð þess og margslungnar lýsingar, eins og segir í tilkynningu frá Kling & Bang. Anna býr til lagskiptan heim úr ólíku yf- irborði og dregur fram kjarnann í yf- irborðinu sjálfu. Hildigunnur tekst hins vegar á við áhugaleysi sitt á því að framleiða meira af dóti til að fylla heiminn, endurraðar hlutum sem þegar eru til og setur í nýtt sam- hengi í þeirri trú að í öllu leynist feg- urð. Margir snertifletir Blaðamaður ræddi við Hildigunni í fyrradag og spurði hana hvort áhugi þeirra Önnu fyrir að finna hversdagslegum hlutum nýtt og list- rænt hlutverk væri það sem samein- aði verk þeirra öðru fremur. „Akk- úrat. Við höfum oft fengist við það, höfum aldrei unnið saman áður en þekktumst án þess að vera beinlínis vinkonur,“ segir Hildigunnur. „Ég hafði áður séð verk eftir Önnu og hugsaði með mér að þarna færi ein- hver mjög skyldur mér af því að sýn- ingin bar sama titil og sýning sem ég hélt, held hún hafi heitið Margt í mörgu. Það datt einhverjum þetta í hug í Kling & Bang, að skella okkur saman þannig að við þurftum að kynnast auk þess að þurfa að vinna saman sem hefur gengið svona líka ljómandi vel. Snertifletirnir eru margir, útkoman er oft mjög ólík hjá okkur en þó það nálægt í umfjöll- unarefni – eins og með þessa fjölda- framleiddu hluti – en samt erum við líka að reyna að tengja við eitthvað stærra og meira. Við erum að velta fyrir okkur hringrásum og kerfum og samhenginu við alheiminn, að maður finni til sín sem manneskja í alheiminum þegar maður sér verk- in,“ segir Hildigunnur. – Þið vinnið sem sagt ekki út frá ákveðnu þema? „Nei, það er ekkert eitt umfjöll- unarefni, nema ef vera skyldi feg- urðin, að einhverju leyti. Hún kemur einhvern veginn alltaf sterk inn ann- að slagið. Það er gott að fjalla aðeins um fegurðina í sem víðustum skiln- ingi.“ – Er það þá fegurðin í yfirborði hlutanna eða fegurðin í hinu hvers- dagslega sem við veitum litla sem enga athygli frá degi til dags? „Já, akkúrat og eins og ég segi, fegurðin í yfirborðinu, Anna vinnur rosa mikið með yfirborðið og svo er ég meira að grufla í notagildinu. Ég fer í fúnksjónina og undir yfirborðið. Síðan er salurinn n.k. myndbirting á okkar samtali og okkar samstarfi undanfarna mánuði. Það má eig- inlega lesa salinn því við erum búnar að fara í rosalegar breytingar á hon- um og við vinnum heilmikið með rýmið,“ segir Hildigunnur. Ný túlkun – Þessi sýningartitill, vísar hann til þess að eitthvað tvennt ólíkt komi saman og myndi hina fullkomnu blöndu? „Nacho cheese? Takk fyrir að lesa það út úr honum, það finnst mér skemmtilegt! Þetta er ný túlkun,“ segir Hildigunnur og hlær. „Þetta er svona hallæristitill eins og gerist stundum þegar maður er krafinn um titil löngu fyrirfram af því að hann þarf að koma fram á einhverjum lista og í hinu og þessu tímaritinu, eitt- hvað svoleiðis. Hann var kokkaður upp, við höfðum farið og fengið okk- ur smá nachos og „bondað“ yfir því. En svo fjallar hann líka um það sem við erum oft að fjalla um, fjöldafram- leiðslu en jafnframt það einstaka. Ég held að við séum bæði heillaðar og hryggar yfir allri þessari framleiðslu í heiminum en samt sem áður heill- aðar af því einstaka í henni.“ Sýningin Nacho cheese verður opnuð kl. 17 í dag. „Gott að fjalla aðeins um fegurðina“  Sýningin Nacho cheese verður opnuð í Kling & Bang galleríi í dag Morgunblaðið/Ómar Endurraða „Ég held að við séum bæði heillaðar og hryggar yfir allri þessari framleiðslu í heiminum,“ segir Hildigunnur sem er hér með Önnu Hrund. this.is/klingogbang/ Hjónin Katrín H. Ágústsdóttir og Stefán Halldórsson opna tvær mynd- listarsýningar í dag. Sú fyrri, sem verður opnuð á Café Meskí í Fákafeni 9 kl. 15, samanstendur af batíkverk- um þar sem rifjuð er upp túlkun þeirra hjóna á þjóðlífi fyrri tíma. Sú seinni verður opnuð í safn- aðarheimili Háteigskirkju kl. 17. Þar má sjá um tuttugu batíkverk með trúarlegu ívafi og annarri túlkun. Þá verða vatnslitamyndir eftir Katrínu á sýningunni, þar sem viðfangsefnið er landslag, fjöll, sléttur og klettar. Batík Myndir með trúarlegu ívafi. Vatnslitir Katrín málar landslag. Opna tvær sýningar Á föstudag og laugardag verður boð- ið upp á tónlistardagskrá á Volta, Tryggvagötu 22, sem er nýjasti tón- leikastaðurinn í Reykjavík. Margir litu þar inn meðan á nýafstaðinni Sónar-hátíð stóð, en þá var „off- venue“-dagskrá. Á föstudagskvöld verður sann- kölluð hip-hop hátíð á Votla en fram koma þeir Gísli Pálmi, Emmsjé Gauti, Úlfur Úlfur og TRVP. Lofa aðstand- endur hressilegri stemningu. Á laugardagskvöld kveður síðan við nokkuð annan tón. Þá treður upp kunnur breskur „house“-plötusnúð- ur, Dale Howard, en hann mun vera að góðu kunnur meðal íslenskra áhugamanna um þann taktfasta tónaheim. Hann hefur sent frá sér allnokkra slagara sem hafa náð hátt á vinsældalist- um á Bretlandseyjum og meginlandi Evrópu. Áður en Howard byrjar snúa skífum þeir Housekell og Steindór Jónsson, en þeir munu vera íslenskum danstónlistarunnendum að góðu kunnir. Hip-hop og breskur skífuþeytir á Volta Plötusnúður Emmsjé Gauti er einn þeirra sem koma fram á Volta í kvöld. Morgunblaðið/Ernir FLIGHT Sýndkl.7-10 ZERO DARK TIRTY Sýndkl.7-10 VESALINGARNIR Sýndkl.6-9 HÁKARLABEITA 2 Sýndkl.4 THE HOBBIT 3D (48 ramma) Sýndkl.4 HVÍTI KÓALABJÖRNINN Sýndkl.4 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar 12 12 12 16 L L L 3 óskarstilnefningar “Ekta hátíðarævintýri fyrir alla famelíuna.” -Séð & Heyrt/Vikan “Magnþrungin og eftirminnileg” T.V. - Bíóvefurinn H.S.S -MBL Frábær spennumynd byggð á leitinni af Osama Bin Laden. 5 óskarstilnefningar H.S.S - MBL 100/100 R.Ebert 100/100 Entertainment Weekly DENZEL WASHINGTON Frá Óskarsverðlauna- leikstjóranum sem færði okkur Forrest Gump og Cast Away – Robert Zemeckis -bara lúxus sími 553 2075 www.laugarasbio.is Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU BESTI LEIKAR ÁRSINS - BESTI LEIKSTJÓRI ÁRSINS - BESTA MYND ÁRSINS SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS -EMPIRE THIS IS 40 KL. 5.40 - 8 - 10.20 L DIE HARD 5 KL. 8 - 10 16 HVELLUR KL. 5.50 L THIS IS 40 KL. 5 - 8 - 10.45 12 DIE HARD 5 KL. 5.40 - 8 - 10.20 16 DIE HARD LÚXUS KL. 5.40 - 8 - 10.20 16 DJANGO KL. 8 16 HVÍTI KÓALABJÖRNINN KL. 3.30 L LAST STAND KL. 8 - 10.20 16 HÁKARLABEITA 2 KL. 3.40 L THE HOBBIT 3D KL. 4.30 12 LIFE OF PI 3D KL. 5.20 10 “MÖGNUÐ MYND Í ALLA STAÐI” -V.J.V., SVARTHÖFÐI BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM Yippie-Ki-Y ay! JAGTEN (THE HUNT) KL. 5.30 - 8 - 10.30 12 THIS IS 40 KL. 6 - 9 12 DIE HARD 5 KL. 10.30 16 KON-TIKI KL. 5.30 - 8 12 LINCOLN KL. 9 14 VESALINGARNIR KL. 5.50 12

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.