Morgunblaðið - 22.02.2013, Síða 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2013
Jóna Hrönn Bolladóttir
,,Þegar maður fjallar um jafn hræði-
legan hlut og ofbeldi, sama hver
birtingarmynd þess er, þá verður
maður að sýna viðfangsefninu fulla
virðingu,“ segir Tryggi Gunnarsson
leikstjóri verksins Punch sem frum-
sýnt verður í Rýminu hjá Leikfélagi
Akureyrar 22. febrúar nk. af leik-
hópnum Sticks & Stones. Þarna er á
ferðinni hópur fjögurra listamanna
sem eru, fyrir utan Tryggva, leik-
ararnir Ingrid Rusten, Piet Gitz-
Johansen og Lisa Hjalmarson. Þau
fjögur voru saman í námi í Akademi
før scenekunst í Noregi.
Ofbeldi er viðfangsefni sýning-
arinnar sem byggist á leikritinu
Punch sem er 18. aldar verk. Lista-
mennirnir taka kjarnann úr verkinu
og spinna útfrá því, m.a. vegna þess
að það er ekki til neitt eitt eða upp-
runalegt handrit að því. Enda felst
gleðin, að sögn Tryggva, einnig í því
að skapa sjálf. ,,Í upphafinu gengum
við m.a. út frá því að hvert okkar
kæmi með fimm atriði sem við höfð-
um alltaf þráð að gera í leikhúsi. Eitt
okkar átti þann draum að nota 1.000
skopparabolta í leiksýningu og nú
hefur sá draumur ræst,“ segir hann
Samstaða um alla hluti
Sýningin er eitt stórt samstarfs-
verkefni, enda eru listamennirnir
fjórir á sviðinu allan tímann og
vinnuregla þeirra í þessu samsetta
verki er sú að allir sem koma að því
fá tækifæri til að nýta sína styrk-
leika og sérgáfur og það er leikstjór-
ans að draga fram allt það besta í
listafólkinu. Samstaðan um alla hluti
þarf því að vera góð og hug-
myndavinnan er allra. ,,Ef hugmynd
er sett fram þarf að nást sam-
komulag um hana. Ef það tekst ekki
þarf að koma með nýja hugmynd til
að kynna hópnum. Auðvitað verður
leikstjórinn að taka lokaákvörðun en
þetta vinnulag gerir það að verkum
að fólki finnst afar vænt um sýn-
inguna og leggur sig hundrað pró-
sent fram,“ segir Tryggvi.
Verkið er flutt á ensku enda tala
engir af leikurunum sama tungumál.
Söguþráður verksins er einfaldlega
sá að Punch drepur alla sem á vegi
hans verða. Fyrst sitt eigið barn og
endar svo á djöflinum sjálfum. Upp-
haflega leikritið byggist á hinni
sorglegu gamansögu af Punch og
Judy. ,,En upprunalega var Punch
og Judy barnaleikrit, eins ótrúlega
og það kann að hljóma. Venjulega
voru þetta tvær handbrúður sem
lemja hvort aðra miskunnarlaust
með spýtu, en þaðan er komið orð-
takið „slapstick“, en við höfum engar
brúður heldur notum okkur sjálf.
Okkur finnst spýta ekki alveg nógu
spennandi og höfum fundið upp
miklu hugvitsamlegri leiðir til að
sýna ofbeldi,“ segir Tryggvi.
Fullt af blóði og mikil öskur
Ofbeldi vekur oft sterkar tilfinn-
ingar. Hvernig ætlar hópurinn að
miðla ofbeldinu til áhorfenda?
,,Það er gaman að ærslast á svið-
inu og vekja hrifningu þeirra sem á
horfa, við erum auðvitað að
skemmta fólki,“ segir hann. „Leik-
ararnir eru á fullu að finna leiðir til
að sýna ofbeldi með margvíslegum
hætti sem gaman er að horfa á. Það
er fullt af blóði og mikil öskur. En
verkið er líka ádeila.“
Hvar liggja þolmörk okkar gagn-
vart ofbeldinu og af hverju finnst
manneskjunni það svona áhugavert?
„Þetta verk kallar á ákveðna sjálf-
skoðun,“ segir leikstjórinn. „Það er
ljóst að ofbeldið er gert að einskonar
leik í þessari sýningu, þar sem af-
leiðingarnar eru engar. Það er einn-
ig ljóst að leikarnir hafa allir, þrátt
fyrir ólík tungumál og bakgrunn,
gaman af þessu sviðsetta ofbeldi. Við
göngumst við því, en við erum ekki
að upphefja ofbeldið, þvert á móti
erum við að reyna að horfast í augu
við það sem okkur finnst hálf-
skammarlegur afkimi á áhugasviði
okkar,“ segir Tryggvi og bætir við:
„Við erum eins og börn í stríðsleik á
sviðinu.“
Leikritið verður einnig sýnt í
Norðurpólnum á Seltjarnarnesi dag-
ana 28. febrúar til 4. mars.
„Við erum eins og börn
í stríðsleik á sviðinu“
Ofbeldi Sýning Sticks & Stones er eitt stórt samstarfsverkefni, þar sem all-
ir listamennirnir fá útrás fyrir styrkleika og sérgáfur sínar.
Sticks & Stones
sýna verkið Punch
í Rýminu hjá L.A.
This Is 40
Gamanmynd sem er sögð „nokkurs
konar“ framhald af gamanmyndinni
Knocked Up. Hér segir af Pete og
Debbie sem eiga orðið býsna langt
hjónaband að baki og tvær dætur.
Hjónabandið er enginn dans á rósum,
ýmis vandamál blasa við og lítill tími
er fyrir rómantík. Pete og Debbie
standa bæði á fertugu og átta sig á
því að breytinga er þörf eigi þau ekki
að enda með því að drepa hvort ann-
að. Leikstjóri er Judd Apatow og í
aðalhlutverkum Paul Rudd, Leslie
Mann og Albert Brooks.
Rotten Tomatoes: 52%
Flight
Dramatísk kvikmynd frá leikstjór-
anum Robert Zemeckis. Í henni segir
af flugstjóra sem glímir við vímu-
efnafíkn. Hann mætir til vinnu undir
áhrifum og sefur þegar vélin fer að
hrapa. Honum tekst að afstýra skelfi-
legu flugslysi með lygilegum hætti en
þó deyja fjórir farþegar og tveir úr
áhöfn þegar hann brotlendir. Ef ekki
hefði verið fyrir snarræði hans hefðu
á annað hundrað látið lífið. Þegar
upp kemst að hann var undir áhrifum
vímuefna er rannsókn hrint af stað.
Með aðalhlutverk fara Denzel Wash-
ington og John Goodman.
Rotten Tomatoes: 78%
Beautiful Creatures
Kvikmynd byggð á samnefndri
skáldsögu og segir af ungri konu,
Lenu, sem þarf að velja milli ljóss og
myrkurs á 16 ára afmæli sínu. Í fjöl-
skyldu hennar býr hver maður yfir
yfirnáttúrulegri orku. Ungur maður
verður ástfanginn af Lenu og reynir
að koma í veg fyrir að hún gangi
myrkrinu á vald. Leikstjóri er Rich-
ard LaGravenese og í aðal-
hlutverkum Alice Englert og Alden
Ehreinreich. Rotten Tomatoes: 45%
Jagten
Nýjasta kvikmynd danska leikstjór-
ans Thomas Vinterberg. Í henni seg-
ir af leikskólakennara, Lucasi, sem
er hafður fyrir rangri sök, að hafa
misnotað barn í leikskólanum. Sam-
félagið snýst í kjölfarið gegn honum
og úr verður mikil múgsefjun. Leik-
arinn Mads Mikkelsen fékk verðlaun
á kvikmyndahátíðinni í Cannes í
fyrra fyrir leik sinn.
Rotten Tomatoes: 91%
Bíófrumsýningar
Ofsóknir Í kvikmyndinni Jagten eftir Thomas Vinterberg segir af leik-
skólakennara sem hafður er fyrir rangri sök og er ofsóttur í kjölfarið.
Gaman, drama,
forboðin ást og ofsóknir
KVIKMYNDAÚRVALIÐ ER Í SAMBÍÓUNUM
Á TOPPNUM Í ÁR
KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ Á
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
VIP
FLIGHT KL. 5:10 - 8 - 10:50
FLIGHT VIP KL. 5:10 - 8 - 10:50
BEAUTIFUL CREATURES FORSÝNING KL. 8
WARM BODIES KL. 5:50 - 8 - 10:40
HANSEL AND GRETEL KL. 6 - 8 - 10:10
PARKER KL. 8 - 10:20
GANGSTER SQUAD KL. 10:10
FJÖLSKYLDUDAGAR TILBOÐ 590 KR. MIÐAVERÐ
MONSTERS INC ÍSLTAL3D KL. 3:40 - 5:50
WRECK-IT RALPH ÍSLTAL KL. 3:40
ÖSKUBUSKA Í VILLTA VESTRINU ÍSLTALKL. 4 - 6
SAMMY 2 ÍSLTAL KL. 3:40
KRINGLUNNI
THIS IS 40 KL. 5:10 - 8 - 10:45
WARM BODIES KL 5:50 - 8 - 10:20
THE IMPOSSIBLE KL. 5:40 - 8
BULLET TO THE HEAD KL. 10:20
FJÖLSKYLDUDAGARTILBOÐ590KR.MIÐAVERÐ
MONSTERS INC ÍSLTAL3D KL. 5:50
ÖSKUBUSKAÍVILLTAVESTRINU ÍSLTAL KL. 6
BEAUTIFULCREATURESFORSÝNING KL.8
FLIGHT KL.5:20-8-1:10
AGOODDAYTODIEHARD KL. 5:50 - 8 - 10:40
WARM BODIES KL. 5:50 - 8 - 10:30
PARKER KL. 10:10
MONSTERS INC ÍSLTAL3D KL. 5:50
NÚMERUÐ SÆTI
KEFLAVÍK
FLIGHT KL. 8
THIS IS 40 KL. 10:50
THE IMPOSSIBLE KL. 8
BULLET TO THE HEAD KL. 10:20
FJÖLSKYLDUDAGAR TILBOÐ 590 KR. MIÐAVERÐ
MONSTERS INC ÍSLTAL3D KL. 6
ÖSKUBUSKAÍVILLTAVESRTRINU ÍSLTAL KL. 6
AKUREYRI
WARMBODIES KL.6
FLIGHT KL. 8 - 10:30
BULLET TO THE HEAD KL. 8 - 10:10
FJÖLSKYLDUDAGARTILBOÐ590KR.MIÐAVERÐ
ÖSKUBUSKAÍVILLTAVERSTRINU ÍSLTAL KL. 6
590.KR
NÝTTÚTLITÁKLASSÍSKUÆVINTÝRI
Í VILLTA VESTRINU
ÖSKUBUSKA
Alden
EHRENREICH
Alice
ENGLERT
Jeremy
IRONS
Viola
DAVIS
Emmy
ROSSUM
Thomas
MANN AND
Emma
THOMPSON
DARK SECRETS WILL COME TO LIGHT.
FORSÝND
EMPIRE
EINFRUMLEGASTA
GAMANMYND
SEM GERÐ
HEFUR VERIÐ
FÓRBEINT ÁTOPPINN ÍUSA
TILNEFND TIL 2
ÓSKARSVERÐLAUNA
R.EBERT
ENTERTAINMENT WEEKLY
100/100
BRÁÐSKEMMTILEG GAMANMYND