Morgunblaðið - 26.03.2013, Qupperneq 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2013
Málfundur Lög-
réttu, félags laga-
nema við Háskól-
ann í Reykjavík,
verður haldinn í
dag, þriðjudaginn
26. mars kl. 16.00
í stofu V101.
Að þessu sinni
verður fjallað um
lögmæti þess að nota tálbeitur við að
upplýsa sakamál.
Fundarstjóri verður Hulda María
Stefánsdóttir, saksóknari og kennari
í refsirétti við lagadeild HR.
Framsögumenn verða Brynjar
Níelsson hrl., Kolbrún Benedikts-
dóttir, saksóknari hjá embætti rík-
issaksóknara, og Karólína Finn-
björnsdóttir lögfræðingur, sem
skrifaði ML-ritgerð sína við laga-
deild um þetta efni.
Fundurinn er öllum opinn.
Rætt um lög-
mæti þess að
nota tálbeitur
Morgunblaðið/Eggert
Mikilvægt starf Nám kennara hef-
ur nýlega verið lengt um tvö ár.
Anna Kristín Sigurðardóttir, deild-
arforseti Kennaradeildar Háskóla
Íslands, segir að stöðugt sé verið að
þróa kennaranámið og mikilvægt
sé að heyra skoðanir nemenda sem
hafi verið duglegir að taka þátt í
mótun námsins.
Í Morgunblaðinu í gær lýstu tveir
meistaranemar í kennslufræðum
upplifun sinni af náminu, m.a.
sögðu þeir það skoðun sína að of
mikil áhersla væri á fræðin í nám-
inu, í stað þess að auka vægi vett-
vangsnáms. Þannig gætu nem-
endur komist lengra inn í kjarna
kennarastarfsins sem m.a. feli í sér
að taka á agamálum, samskiptum
við foreldra og bekkjarstjórnun.
Anna segir að skipulag námsins
geri ráð fyrir að á næstu önn muni
umræddir nemendur fara í lengra
vettvangsnám þar sem þeir fylgja
eftir heilum bekk á haustmisseri í
samtals átta vikur. Anna vonar að
nemendur komist nær kjarna kenn-
arastarfsins í því vettvangsnámi
sem boðið er upp á í náminu en hún
tekur þó fram að nemar nái ekki
fullri færni fyrr en þeir takast á við
starfið sjálft. Anna segir að áhersla
sé lögð á ofannefnda þætti í náminu
en hugsanlega mætti áherslan vera
meiri.
Skipulagið rætt ítarlega
Anna bætir við að kannanir með-
al brautskráðra nemenda sýni að
ánægja sé með vettvangsnámið.
„Þeim finnst vettvangsnámið
gagnast mjög vel. Það hefur aukist
töluvert samfara lengingu náms-
ins,“ segir Anna.
Fyrstu kennaranemarnir eru nú
á fyrra árinu í meistaranámi sínu
eftir lengingu námsins í fimm ár og
því lítil reynsla komin á fyrir-
komulagið. Anna segir það hafa
verið rætt ítarlega hvort og hversu
mikið ætti að auka vægi vettvangs-
náms þegar námið var skipulagt.
„Nemendur fá að kynnast starfinu
strax á fyrsta ári og eru úti í skól-
unum á hverju einasta námsári.
Rökin fyrir því eru að nemendur til-
einka sér fræðin og læra jafnhliða
að beita þeim í samhengi við raun-
verulegt skólastarf. Reynslan hefur
áhrif á hvernig þau tileinka sér
fræðin og öfugt,“ segir Anna að
lokum. heimirs@mbl.is
Kennaranámið stöðugt í þróun
Forseti Kennaradeildar segir braut-
skráða ánægða með vettvangsnámið
Tveimur stúlkum
var bjargað úr
sjálfheldu úr
fjallinu Þríhyrn-
ingi. Meðlimir
Flugbjörg-
unarsveitarinnar
á Hellu komu
stúlkunum til
bjargar í gær-
dag. Vel gekk að
komast að stúlk-
unum en björgunarmenn fóru upp í
fjallið og komu að þeim ofan frá,
segir í tilkynningu frá Lands-
björgu. Tryggðu þeir öryggi sitt og
stúlknanna með línum áður en
haldið var niður. Ekkert amaði að
stúlkunum þegar að var komið en
þær voru að vonum skelkaðar eftir
ævintýrið. Þær brugðust hárrétt
við, héldu kyrru fyrir og hringdu
eftir aðstoð.
Var bjargað úr sjálf-
heldu í Þríhyrningi
Fjallganga Tvær
komust í sjálfheldu.
Sjómaður slasaðist í fyrrinótt þegar
alda reið yfir bát hans. Maðurinn
mun hafa verið sofandi í koju og
kastaðist til við höggið og lenti með
öxlina á kojubrún. Hann hlaut
þungt högg á annað herðablaðið.
Sjómaðurinn var á mótorbátnum
Daðey GK-777 sem var á leið til
veiða en var samstundis snúið til
lands og lagðist að bryggju í
Grindavíkurhöfn þegar slysið varð.
Hinn slasaði var fluttur með
sjúkrabifreið á Landspítalann í
Fossvogi.
Sjómaður slasaðist
Slys Var sofandi og kastaðist til.