Morgunblaðið - 26.03.2013, Qupperneq 30
30 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2013
aprílbyrjun verður vonandi órækt
merki um að verkið muni hafast.
Þarflaust er að taka fram að mik-
il undirbúningsvinna hefur farið
fram og margir komið að því verki.
Í nútímanum er ekki eins auðvelt
og margur heldur að teikna og
reisa fangelsi enda verður að upp-
fylla ýmsa alþjóðlega staðla og taka
tillit til mannréttinda þeirra sem
hljóta fangelsisdóma.
Fyrirhugað fangelsi á Hólmsheiði
verður lágreist bygging, hógvær en
þó festuleg þar sem hún hvílir í
kyrrð heiðarinnar. Hún er í útjaðri
borgarinnar eins og Hegning-
arhúsið var á sínum tíma að áliti
margra. Nú er það gamla og virðu-
lega hús í hringiðu borgarinnar og
aldrei að vita nema sömu örlög bíði
Hólmsheiðarfangelsisins en það er
nú önnur saga.
Með nýju fangelsi á Hólmsheiði
verður stigið tímamótaskref í bygg-
ingarsögu fangelsa hér á landi.
Stefnt er að því að bæta skilyrði til
afplánunar fangelsisrefsinga frá því
sem nú er. Kvenfangar verða vist-
aðir í Hólmsheiðarfangelsinu og
Kvennafangelsið í Kópavogi lagt
Tímamót verða í
sögu fangelsisbygg-
inga hinn 4. apríl nk.
þegar tekin verður
fyrsta skóflustunga að
nýju fangelsi á Hólms-
heiði.
Í rúma hálfa öld
hafa menn velt fyrir
sér hvar best væri að
reisa nýtt fangelsi og
hvernig það skyldi bú-
ið. Föngum fjölgar í
takt við fjölgun íbúa
og af þeim sökum hafa
fangelsin verið þétt-
setin. Sum fangels-
anna uppfylla ekki
þær kröfur sem gerð-
ar eru til slíkra húsa í
nútímanum.
Í umræðu um ný
fangelsi hefur stund-
um verið bent á „ein-
faldar“ lausnir og
„ódýrar“ eins og auða
og yfirgefna skóla á
ýmsum landshornum,
fangaskip, gáma o.fl. í
þeim dúr en þá hefur gleymst að
fangelsi eru fyrir fólk sem nýtur
mannréttinda enda þótt það hafi
brotið af sér. Fangelsisbyggingar
hafa verið teiknaðar og hannaðar
en þær hafa ekki risið. Lengst
komst þó fangelsisbyggingin við
Tunguháls í Reykjavík á sínum
tíma. Grunnur var steyptur en síð-
ar var mokað yfir hann. Lengra
náði ekki sú saga.
Nú er horft til þess að nýtt fang-
elsi verði risið á Hólmsheiði 2015.
Öll undirbúningsvinna er komin það
langt á veg að trauðla verður aftur
snúið. Skóflustungan á Hólmsheiði í
niður. Kvenfangar hafa búið við
lakari skilyrði til afplánunar en
karlar; núverandi húsakynni
kvennafangelsisins eru þröng og
aðstaða til útivistar óviðunandi.
Karlfangar eru iðulega vistaðir
meðal kvenfanga og gengur stund-
um vel og stundum miður. Í nýja
fangelsinu munu þær ekki afplána á
sömu fangelsisdeildum og karlar
heldur vistast sér – rými verður
fyrir átta til tíu konur. Sameig-
inlegt rými á kvennadeild fangels-
isins verður vel búið enda haft í
huga að þar þurfi sumar konur að
afplána langa dóma. Útivistarsvæði
kvenna verður um 400 m². Þá verð-
ur og Hegningarhúsinu á Skóla-
vörðustíg 9 lokað en í nýja fangels-
inu verður móttökudeild – og
gæsluvarðhald. Aðstaða fanga til
vinnu og náms verður stórefld.
Boðið verður upp á afþreyingu og
æfingaaðstöðu í útivistartíma fanga.
Þá verður sérstök íbúð, heimsókn-
aríbúð, sem ætluð er til heimsókna
maka með börn og möguleiki á að
geta dvalist þar næturlangt með
fanganum. Þetta fyrirkomulag er
mikilvægt og mun efla tengsl fanga
og barna þeirra. Börn fanga eru
nefnilega ósýnilegur hópur sem
þarf að gefa sérstakan gaum, styðja
og vernda.
Það á að vera eitt höfuðmarkmið
fangelsa nútímans að auka mögu-
leika fanga til farsæls og heiðarlegs
lífs. Á það skal bent að góður að-
búnaður í fangelsi, fjölbreyttir
Eftir Hrein S.
Hákonarson
Hreinn S.
Hákonarson
» Það á að vera eitt
höfuðmarkmið fang-
elsa nútímans að auka
möguleika fanga til far-
sæls og heiðarlegs lífs.
Skóflustunga á Hólmsheiði
HJÁ AÐALSKOÐUN ERT ÞÚ
Í GÓÐUMHÖNDUM
Snjallt að
kíkja á okkur
á adal.is
Við erummeð fjórar skoðunarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu og eina í
Reykjanesbæ. Þaulreyndir og þjónustuliprir fagmenn taka á móti þér á
þeim öllum. Hlökkum til að sjá þig!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3
-0
4
6
7
Aðalskoðun, faggildur skoðunaraðili í 19 ár
Reykjavík
Grjóthálsi 10
Sími 590 6940
Reykjavík
Skeifunni 5
Sími 590 6930
Hafnarfjörður
Hjallahrauni 4
(við Helluhraun)
Sími 590 6900
Kópavogur
Skemmuvegi 6
(bleik gata)
Sími 590 6935
Reykjanesbær
Holtsgötu 52
(við Njarðarbraut)
Sími 590 6970
www.adalskodun.is og www.adal.is
Við getum minnt þig á þegar þú þarft að láta skoða bílinn
á næsta ári. Skráðu þig á póstlistann hjá okkur þegar þú kemur með
bílinn í skoðun og þú gætir unnið 200 lítra eldsneytisúttekt.
Opið kl. 8-17 virka daga – sími 590 6900
Hverafold 1-3 | Grettisgötu 3 | Smáralind | Langholtsvegi 113 |
Turninn Höfðatorgi | 511 1710 | svanhvit@svanhvit.is | svanhvit.is
ÞAÐ KOSTAR LÍKA AÐ ÞVO SJÁLFUR!
LÁTTU OKKUR SJÁ UM ÞÍNAR SKYRTUR.
Efnalaug - Þvottahús
330 KR. SKYRTAN
hreinsuð og pressuð
-ef komið er með fleiri en 3 í einu
Fullt verð 580 kr. stk.
NÚ Á FIMM STÖÐUM
Hverafold 1-3, 112 Reykjavík
Grettisgötu 3, 101 Reykjavík
Smáralind, 201 Kópavogur
Langholtsvegi 113
Turninn Höfðatorgi
Það er ánægjulegt
hversu margir hafa
kynnt sér stefnu
Framsóknarflokksins.
Skoðanakannanir
benda til þess að fjöldi
Íslendinga sé sammála
Framsókn um að
heimilin séu und-
irstaða og drifkraftur
þjóðfélagsins.
Einn þeirra sem
hafa kynnt sér stefnu
Framsóknarflokksins er Arnar Þór
Stefánsson lögfræðingur. Bendir
Arnar á í grein sinni í Morg-
unblaðinu, þann 15. mars sl. að
Framsóknarflokkurinn sé þekktur
fyrir að standa við kosningaloforð
sín og hafi árið 2003 tryggt heim-
ilum félagslegan stuðning með 90%
lánum frá Íbúðalánasjóði. Arnar
hefur þó gleymt framgangi við-
skiptabankanna 2004 og ályktar
ranglega að rót vanda heimilanna
sé Íbúðalánasjóður.
Vilhjálmur Bjarnason, frambjóð-
andi Sjálfstæðisflokksins, ályktar
einnig ranglega á sama hátt í ný-
legri grein. Rökvillu þeirra félaga
Arnars og Vilhjálms má glöggt sjá á
meðfylgjandi mynd, sem sýnir
skuldir heimila við helstu lánastofn-
anir.
Í ágúst 2004 hófu viðskiptabank-
arnir að bjóða óhóflegan aðgang að
fjármagni til íbúða-
kaupa og átti útlána-
aukninginn sér enga
stoð í undirliggjandi
efnahagsþróun. Heild-
arlánveitingar Íbúða-
lánasjóðs drógust
hinsvegar saman á
sama tíma og kyntu
því ekki undir báli
bankanna.
Útlánaþensla við-
skiptabankanna var
forsenda þess að fast-
eignabólan blés út með
þeim afleiðingum að hún brast með
tilheyrandi eignabruna hjá íslensk-
um heimilum.
Innstæðulaus og útblásin skuld
heimilanna var síðan flutt á silf-
urfati til vogunarsjóðanna af núver-
andi ríkisstjórn árið 2009. Þessa til-
færslu ætlar Framsókn að leiðrétta.
Leiðrétting Fram-
sóknarflokksins
Eftir Sigurð Inga
Jóhannsson
Sigurður Ingi
Jóhannsson
»Útlánaþensla við-
skiptabankanna var
forsenda þess að fast-
eignabólan blés út með
þeim afleiðingum að hún
brast með eignabruna
hjá íslenskum heim-
ilum.
Höfundur er varaformaður
Framsóknarflokksins.
Skuldir heimila við helstu lánastofnanir
Heimild: Seðlabanki Ísland
1.200
1.000
800
600
400
200
0
M
ill
ja
rð
ar
kr
ón
a
R
au
nv
er
ð
hú
sn
æ
ði
s,
10
0
=á
gú
st
20
0
4
125
100
75
Íbúðalánasjóður og lífeyrissjóðir (v. ás) Bankar (v. ás) Raunverð húsnæðis (h. ás)
Maí ‘03 Maí ‘07Maí ‘04 Maí ‘05 Maí ‘06
Bankarnir hefja innreið
á fasteignalánamarkað