Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.03.2013, Qupperneq 16
*Saga Garðars var fljót að sjá spaugilegar hliðar á Frökkum þegar hún heimsótti París í fyrra »18Ferðalög og flakk
Það voru él þegar við vöknuðum að morgni á skíðasvæðinu í Mammoth í
Kaliforníu. Élin urðu að hríð þegar ofar dró í fjallið og skyggnið minna,
einkum við tindinn. Við vorum búin að ákveða að fara upp á tindinn
klukkan tíu en það var ekki búið að opna topplyfturnar þegar við mættum
í skálann. Meðan við góndum upp í hríðina og reyndum að meta hvort
það væri að rofa til eins og spáð hafði verið kváðu við miklir hvellir. Starfs-
maðurinn við upplýsingaskiltið sagði okkur að verið væri að sprengja
snjóhengjur í fjallsbrúninni sem hlaðist höfðu upp um nóttina. Maðurinn
sagði okkur að Mammoth væri sá skíðastaður í Bandaríkjunum sem nyti
flestra sólarstunda en snjóaði jafnframt mest. Það var sannarlega nóg af
snjó á svæðinu og sérlega gaman, en erfitt, að renna sér í nýföllnu 20 til
30 sentimetra lagi ofan á því gríðarmagni sem fyrir var.
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson og Heiðrún Gígja Ragnarsdóttir við
landakort sem sýnir skíðasvæðið í Mammoth-fjalli.
Ásamt Högna Friðrikssyni á toppi
Mammoth-fjalls í 3370 metra hæð.
Élin urðu að hríð
Slæmt skyggni var við toppinn.
PÓSTKORT F
RÁ MAMMOT
H
Bryndís Rún Hafliðadóttir, sem verður tvítug í sumar, varskiptinemi í borginni Rosario í Argentínu frá ágúst 2011til júlí 2012. Hún dásamar bæði land og þjóð og segirsérlega skemmtilegt að hafa fengið tækifæri til að fara
norður í land og kynnast gamla samfélaginu, þar sem evrópskra
áhrifa gætir ekki enn.
Á myndinni er Akureyringurinn Bryndís Rún, til vinstri, ásamt
norskri stúlku, Siri, sem var skiptinemi suður þar á sama tíma.
Myndin er tekin við Sjö lita fjallið, frægt og fallegt kennileiti í
norðurhluta landsins, sem þær skoðuðu í ferð 60 skiptinema.
„Við fórum í ferðina í janúar 2012. Staðurinn er stutt frá landa-
mærunum yfir til bæði Síle og Bólivíu og þarna fengum við tæki-
færi til að komast eins nálægt frumbyggjum Argentínu og mögu-
legt er. Evrópsk menning, sem er mjög áberandi í borgunum,
hefur ekki náð þangað norður og stemningin því allt önnur. Öll
húsin eru úr leir – öll á einni hæð, vegna jarðskjálftahættu, og
vegir ekki malbikaðir. Okkur var sagt að þarna væri allt eins og
fyrir mörgum áratugum.“
Hópurinn var 15 tíma í rútu frá Rosario til Salta, höfuðborgar
svæðisins og þaðan var tveggja tíma ferð að þorpi við fjallið. „Það
er ekki búið að túristavæða svæðið og enginn talar ensku. En fjall-
ið fræga er mjög fallegt; alls konar rauðir og gulir litir á svæðinu.“
Bryndísi Rún dreymdi um að læra spænsku, vildi til Suður-
Ameríku í þeim tilgangi og sér ekki eftir að hafa valið Argentínu.
„Ég mæli eindregið með því að fólk fari þangað. Landið er gríðar-
lega stórt og eini ókosturinn í raun vegalengdirnar. En þarna er
hægt að gera allt; ég fór til dæmis í jöklagöngu, sem ég hafði aldr-
ei gert, þarna eru skíðasvæði og þeir eiga sitt jökulsárlón. Lands-
lagið minnir satt að segja víða á Ísland. Landið er rétt sunnan við
miðbaug og þar er líka sums staðar mjög heitt.“
Bryndís Rún segir að gaman sé að vera Evrópubúi í Argentínu
og fólki þar þyki Evrópa hreinlega toppurinn á tilverunni. „Fáir vita
eitthvað um Ísland en sumir könnuðust við Björk og börn í skól-
anum þekktu öll Latabæ, en vissu reyndar ekkert um að hann
væri frá Íslandi. Þessi skóli var eins og 8., 9. og 10. bekkur hér
heima, og tveir fyrstu bekkirnir í framhaldsskóla.“
VILDI LÆRA SPÆNSKU OG FÓR TIL S-AMERÍKU
Argentína
er heillandi
ÓALGENGT VAR AÐ HEIMAMENN KÖNNUÐUST VIÐ
ÍSLAND. ÖLL BÖRN Í SKÓLANUM ÞEKKTU LATABÆ
EN VISSU BARA EKKI AÐ HANN VÆRI ÍSLENSKUR!
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Bryndís Rún og norski skiptineminn Siri
við Sjö lita fjallið í norðurhluta Argentínu.