Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2013, Blaðsíða 16
Kæri Felix Bergsson!
Mér skilst að þú ætlir til Malmö að lýsa Eurovision í
maí. Er það ekki eitthvert rugl?
Ég lofa því að við tökum miklu betur á móti þér
hérna í Stokkhólmi. Snjórinn er næstum farinn og það
er tónlist á hverju götuhorni. Og kræsingarnar maður.
En ef þú ákveður að halda þig við Malmö þá er
spurning hvort ég kíki ekki bara á þig?
Þinn vinur, Baldvin.
p.s. Bergsson og Bergsson. Er það ekki eitthvað?
Baldvin Þór Bergsson fjölmiðlamaður í góðu stuði í eldhúsinu heima.
Baldvin Þór lofar stuði á hverju
götuhorni í borginni.
Vill Felix til Stokkhólms
Baldvin fullyrðir að snjórinn sé við
það að hverfa í Stokkhólmi.
PÓSTKORT F
RÁ SVÍÞJÓÐ
1. Chocoholic Buffet, Vancouver, Kanada
Á hótelinu Sutton Place í Vancouver er boðið upp á súkkulaðihlaðborð sem sam-
anstendur af heimagerðum kökum, bakkelsi og sætabrauði gerðu úr hágæða Schok-
inag súkkulaði. Meira að segja líkjörar og kokteilar eru með súkkulaðiívafi á hótelinu.
2. Magnolia Bakery, New York City
Bakaríið sem varð frægt í þáttunum Beðmál í borginni er þekkt fyrir bollakökur í öll-
um regnbogans litum. Þýsk súkkulaðikaka þykir þó bera af í úrvali af súkku-
laðikökum.
3. Max Brenner, New York City
Í súkkulaðiversluninni Max Brenner er gengið út frá því að súkkulaði sé lífsstíll og
þar má fá allar mögulegar útfærslur af súkkulaðitengdum varningi.
4.Maya Chocolate, Tabasco, Mexíkó
Þykkt, froðumikið, heitt súkkulaði er hér í öndvegi. Einnig er til siðs að bæta smáveg-
is chili pipar út í heitan súkkulaðidrykkinn. Í næsta nágrenni má finna kakósafn.
5. Hotel Sacher, Vín, Austurríki
Í heimaborg Sacher-tertunnar þarf ekki að leita lengi eftir hinni fullkomnu sneið af
þessari dýrindis súkkulaðiköku. Á Hotel Sacher ku vera að finna sérlega góða útgáfu
af þessum fræga eftirrétti.
6. Súkkulaðihátíðin, Tórínó, Ítalía
Tórínó hefur verið nefnd súkkulaðihöfuðborg Ítalíu en í febrúar ár hvert fer þar fram
súkkulaðihátíðin CioccolaTó. Þá er hægt að kaupa svokallaðan súkkulaðipassa og fá
afslátt af sætindum og súkkulaði um alla borg. Aðalsmerkið er þó heitt súkkulaði í
bolla sem er þykkt og biturt með miklum þeyttum rjóma.
7. Valrhona verksmiðjan, Tain l’Hermitage, Frakkland
Í heimabyggð Valrhona-súkkulaðis er hægt að fara í sérstakar verksmiðjuferðir og
smökkun. Margir af helstu súkkulaðimeisturum heims hafa einnig numið við Valrho-
na’s École du Grand Chocolat skólann.
8. Chocolatería San Ginés, Madrid, Spánn
Í Madríd er til siðs að borða súkkulaði síðla kvölds og fram á nótt. Til að mynda má
stoppa í Chocolatería San Ginés og kaupa langa deigstauta, sem líta út eins og risa-
stórar franskar kartöflur, sem svo er dýft í bráðið súkkulaði. Þar er opið allar nætur.
9. Nemesis, River Café, London, England
Súkkulaðikaka sem kennd er við staðinn er eitt aðalsmerkja veitingastaðarins Nemes-
is í London þar sem sjálfur Jamie Oliver hefur eldað.
10. Chocolate Hotel, Bournemouth, England
Fyrir alvöru súkkulaðiaðdáendur er vart hægt að hugsa sér betra frí en að gista á
hóteli sem beinlínis er kennt við súkkulaði! Hægt er að skrá sig á námskeið í súkku-
laðigerð en fyrir þá sem ekki nenna því er að sjálfsögðu boðið upp á smökkun. Svo er
hægt að fara á ströndina þegar búið er að úða í sig súkkulaði.
AFP
TOPP TÍU SÚKKULAÐISTAÐIR
Súkkulaði um
allan heim
LISTI FERÐARITSINS NATIONAL GEOGRAPHIC YFIR TÍU BESTU
STAÐINA TIL AÐ BORÐA SÚKKULAÐI ER GIRNILEGUR Í MEIRA LAGI
Elísabet II Bretlandsdrottning heimsótti súkkulaðiverksmiðju á dögunum en í hennar heimalandi er ein-
mitt að finna súkkulaðihótel auk þess sem boðið er upp á sérstakar súkkulaðiferðir um Lundbúnaborg
eins og fræðast má um á vefnum www.chocolateecstasytours.com.
*Ferðalög og flakkÍslenskur læknanemi, Signý Ásta Guðmundsdóttir, læknaði innfædda í hlíðum Himalaja »18