Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2013, Blaðsíða 30
Tígrisrækjur og ananas
Tígrisrækjur
16 stk. tígrisrækjur, 1 lime, börkurinn, 1 sítróna,
börkurinn, 1 appelsína, börkurinn, olía.
Börkurinn af ávöxtunum er rifinn með fínu rif-
járni. Rækjunum er síðan velt upp úr olíu og berk-
inum og grillaðar í 2-3 mínútur á hvorri hlið.
Ananassósa
1 ananas, ½ dl mirin, ½ dl eplaedik, 1 dl hvítvín, 2
anísstjörnur, 1 rautt chilli, saxað.
Ananasinn er skorinn í bita og allt soðið saman í
u.þ.b. 5 mínútur og síðan maukað með töfrasprota.
Ávaxtasalat
¼ ananas, ¼ vatnsmelóna, ¼ mangó, ¼ rautt chilli,
saxað, 1 msk. mirinmynta, söxuð,1 msk. olía, salt
Ávextirnir eru skornir í bita og öllu blandað sam-
an. Smakkað til með salti.
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.4. 2013
Matur og drykkir
F
erskleiki og heilsa eru fyrstu orðin
sem Völundi Snæ Völundarsyni,
Völla Snæ, matreiðslumanni og öðr-
um eiganda Borg Restaurant, koma
í hug þegar spurt er um áherslur staðarins
þetta vorið. „Eins og alltaf er lykilatriðið
samt að maturinn sé góður. Það er engin
ástæða til að kljúfa mat niður í nifteindir,
leyfum honum bara að njóta sín,“ segir
hann.
Völli segir matseðil hins nýja staðar
koma til að taka breytingum eftir árstíðum
og framboði á hráefni. Seðillinn verði ekki
meitlaður í stein, hann muni fara eftir
stemningu og mörkuðum hverju sinni. „Við
erum mikið fyrir það að gera tilraunir.“
Sjávarréttir eru sérstakt áhugamál hjá
Völla og gestir Borg Restaurant munu ekki
fara varhluta af því á komandi misserum.
„Annars er markmið okkar einfalt: Við
viljum vera samkeppnishæfir í verði og að
fólki líði vel þegar það fer út. Það má auð-
vitað ekki vera svangt en ekki of hlaðið
heldur. Hér gildir hið gullna meðalhóf.“
Lambaprime og
misosósa
Tígrisrækjur
og ananas
Langa með
ávöxtum
VÖLLI SNÆR OG FÉLAGAR Á BORG RESTAURANT
Ferskleiki
og heilsa
Völundur Snær Völundarson matreiðslumaður.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
VOR ER Í LOFTI OG FERSKLEIKI OG HEILSA ERU LYKILORÐIN ÞEGAR
VÖLUNDUR SNÆR VÖLUNDARSON OG FÉLAGAR SETJA SAMAN MAT-
SEÐILINN Á SPÁNNÝJUM VEITINGASTAÐ Á GÖMLUM GRUNNI, BORG
RESTAURANT. VÖLLI SNÆR DEILIR VORUPPSKRIFTUM MEÐ LESENDUM.
Lamba prime
800 g lamba primesalt og pipar
Lambið er kryddað með salti og pipar og grillað
í 7-8 mínútur á hvorri hlið.
Miso-sesamsósa
½ dl rautt miso, ½ dl majones, ½ dl jógúrt, 2 msk.
sesamolía,1 tsk. chilliduft, 1 msk. svört sesamfræ.
Öllu blandað saman.
Sætar kartöflur
2 sætar kartöflur, skrældar og skornar í báta, hvít-
lauks-chilliolía.
Sætu kartöflurnar eru grillaðar og síðan mar-
ineraðar í hvítlauks-chilliolíunni.
Hvítlauks-chilliolía
1 dl olía,1 rautt chilli, saxað, 2 hvítlauksgeirar, sax-
aðir.
Öllu blandað saman og olían hituð í smá stund í
potti.
Lambaprime og misosósa
Langa
800 g langa
2 msk. svört sesamfræ, 2 msk. olía, ¼
rautt chilli, saxað, 15 g engifer, 1 hvítlauks-
geiri, fínt rifinn, 2 msk. soja, 2 msk. fljótandi
hunang, 1 dl olía.
Öllu blandað saman og fiskinum leyft að
marinerast í a.m.k. 2 klst. Langan er grilluð í
3 mínútur á hvorri hlið og krydduð með
salti og pipar í lokin.
Ávaxtasalsa
5 stk. döðlur, 5 stk. þurrkaðar apríkósur, 5
stk. þurrkaðar gráfíkjur, ¼ vatnsmelóna, ¼
ananas, ¼ mangó, 1 rautt chilli, saxað, 150
ml sætt hvítvín.
Fersku ávextirnir eru skornir í bita.
Þurrkuðu ávextirnir og döðlurnar eru skor-
in í bita og soðið upp á þeim og chilliinu í
hvítvíninu. Það er síðan látið kólna og fersku
ávöxtunum bætt út í. Smakkað til með salti.
BBQ-sósa
Safi úr einni sítrónu, ½ bolli tómatsósa, ¼
bolli sojasósa, 1 bolli hunang, ½ bolli hvít-
vínsedik.
Allt sett í pott og soðið niður um helm-
ing.
Kartöflur
Kartöflur eru soðnar í 20 mínútur með
salti. Þær eru síðan skornar í tvennt, settar
á spjót með paprikumarineringu og grill-
aðar.
Paprikumarinering
2 paprikur, 1 laukur, 3 hvítlauksgeirar, 2
msk. balsamico, 1 msk. paprikuduft, 1 tsk.
chilliduft, 3 dl olía, salt.
Allt soðið saman í potti þar til papr-
ikurnar og laukurinn eru mauksoðin. Síðan
er allt maukað saman með töfrasprota.
Langa með ávöxtum