Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2013, Side 41
ÞEGAR BLAÐAMAÐUR TEKUR HÚS Á FRÍÐU GULLSMIÐ Í
HAFNARFIRÐI, ER HÚN EINMITT AÐ LEGGJA LOKA-
HÖND Á GLÆNÝJA HRINGA, ARMBÖND OG HÁLSMEN
Í „BLÚNDUNNI“ NÝJUSTU SKARTGRIPALÍNUNNI SEM
HÚN KYNNTI FYRIR SÍÐUSTU JÓL.
Unnur H. Jóhannsdóttir uhj@simnet.is
M
ér finnst gaman að
gera nýjar útfærslur
við línurnar mínar og
kem öðru hverju með
nýtt í eldri línum. Í vetur kom
ég með nýja útfærslu af hring í
mólikúl-línunni minni sem hefur
slegið í gegn og í vor kemur ný
útfærsla að armbandi við einn
vinsælasta hringinn minn sem er
í sjávarlínunni, „bóluþangshring-
urinn“, svo það er alltaf einhvað
að gerast hérna hjá mér í
Strandgötunni. Síðan er ný
skartgripalína í þróun hjá mér
þessa dagana,“ segir Fríða Jóns-
dóttir gullsmiður. Hún segist hafa
mikla þörf fyrir að skapa og fær
innblástur að skartgripalínunum
víða að, bæði úti í náttúrinni, en
ekki síst í íslenskri menningu
eins og sjá má í línunum „Fjölin
hennar ömmu“, „Slétt og brugðið“
og síðan „Blúndunni“ línu
sem er útfærð í anda
brjóststykkisins
úr peysuföt-
unum, bland-
að saman við
„Slétt og
brugðið“, þann-
ig að hver kona
getur valið sína samsetn-
ingu út báðum línunum að eigin
smekk.“
Fríða myndi lýsa skartgrip-
unum mínum sem frekar sígildum
og sem henta fjölbreyttum hóp
kvenna. „Hver kona setur sinn
svip á skartið. Hönnunin er frek-
ar látlaus og þægileg að vera
með og varðandi hringa þá reyni
ég að gera fjölbreytt snið að
hringum fyrir ólíka fingur. Mér
finnst það áskorun.“
Fríða skartgripahönnuður í sam-
nefndri verslun sinni í Hafnarfirði.
Morgunblaðið/Ernir
SÝNIR SKARTGRIPI SÍNA Í RÁÐHÚSI REYKJAVÍKUR
Fríðir
skartgripir
Úr skartgripalínunni
„Slétt og brugðið“.
Skartgripalínan
„Blúndur“ er sú nýj-
asta úr smiðju Fríðu.
Eilítið gamaldags og
mjög smart gullhringir.
14.4. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41
Föt og fylgihlutir
Vertu vinur okkar á facebook www.facebook.com/weledaísland
Eitt best geymda
leyndarmálið á
markaðnum
Weleda Skin Food er í miklu uppáhaldi hjá þekktum
tískufyrirsætum og förðunarfræðingum um allan
heim. Skin Food er 100% lífrænt árangursríkt alhliða
krem sem nærir þurra og viðkvæma húð og kemur
jafnvægi á húðina.
Skin Food kom fyrst á markað fyrir meira en 80 árum
síðan og hefur uppskriftin verið óbreytt síðan.
Kremið er unnið úr lífrænt ræktuðum Stjúpum,
Baldursbrá, Morgunfrú og Rósmarín, gott krem
fyrir alla fjölskylduna
– Í samhljómi við mann og náttúru.
www.weleda.is
Þú kaupir Weleda vörur í heilsuverslunum
og apótekum um allt land
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta í 90 ár