Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2013, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2013, Blaðsíða 51
14.4. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51 Hulda Elma segir það sannarlega ómaks- ins virði að leggja allt þetta á sig. „Ég hef mikinn áhuga á að spila blak, það er mjög skemmtilegt og vel að öllu staðið hjá Þrótti í Neskaupstað. Umgjörðin er góð og þjálf- arinn, Matthías Haraldsson, ótrúlega flottur. Ég hef ekki haft svona þjálfara áður; aginn er mikill og ég er viss um að það hafði mikil áhrif á að okkur gekk svona vel í vetur. Ef einhver kemur of seint á æfingu, þó ekki muni nema einni mínútu, er hann sektaður. Líka ef einhver gleymir skónum… Þess vegna vilja allir mæta á réttum tíma og vera byrjaðir að hita upp um leið og klukkan slær.“ Fjölskyldan flutti til Akureyrar fyrir sex árum en var þar áður í tvö ár í Reykjavík. Seinna árið þar lék Hulda Elma með móður sinni hjá Reykjavíkur-Þrótti en var ólétt fyrra árið og tók sér þá auðvitað frí. „Ég varð svo ólétt aftur, við fluttum hingað og ég hætti. Eftir að ég eignaðist þriðja barnið byrjaði ég aftur og spilaði aðeins með KA en var svo ákveðin að fara bara í öldungablakið í fyrra, þegar ég var orðin þrítug. En eftir að ég tók þátt í bikarmóti hnippti Matthías Haraldsson í mig og spurði hvort ég vildi ekki spila aftur með Þrótti í Neskaupstað. Hann talaði við mig á hárréttu augnabliki því ég fann á þessu móti hvað þetta var ógeðslega skemmtilegt! Ég hafði ekki spilað lengi.“ Hulda Elma æfir lítið með samherjum sín- um eins og gefur að skilja. „Þegar við áttum leik fyrir austan keyrði ég eftir skóla hjá börnunum á fimmtudegi og náði æfingu um kvöldið og daginn eftir. Svo var leikur á laugardegi. Ég æfði líka með þeim fyrir austan í haust og við vorum þar um páskana. Ég á mjög gott fólk í Neskaupstað, á Akur- eyri og í Reykjavík sem er tilbúið að hjálpa mér og það er ómetanlegt. Svo er þjálfari liðsins ekkert viðkvæmur fyrir börnum og þau fengu ósjaldan útrás í íþróttahúsinu á meðan ég var á æfingu!“ Blak og aftur blak Auk þess að spila þjálfar Hulda Elma liðið Eik á Akureyri. „Það er rótgróið lið í öld- ungablakinu, konur frá 35 til 78 ára. Ég þjálfa líka lið sem við vinkonurnar stofn- uðum í fyrra, Krákurnar; þar eru 18 stelpur frá 22 til 35 ára sem höfðu aldrei snert blak- bolta áður en eru orðnar ótrúlega góðar. Það var mjög skemmtilegt verkefni að kenna þeim íþróttina frá grunni. Eitt kvöld í viku fer í að þjálfa þessi tvö lið og ég æfi með þeim einu sinni í viku.“ Í upphafi var þess getið að blakið væri Huldu Elmu í blóð borið og vert að geta þess að fjölmargir ættingjar hennar hafa verið á kafi í íþróttinni líka. Móðirin og amman voru þegar nefndar en gaman að geta þess að þær Elsa Sæný Valgeirsdóttir, sem varð bikarmeistari með HK á dögunum, og einnig sem þjálfari karlaliðs félagsins, eru bræðradætur og æfðu saman fyrir austan þegar þær voru litlar. Þá er Valgeir bróðir Elsu Sænýjar og ná- frændi Huldu Elmu leikmaður Þróttar N. og dómari. Svona mætti líklega halda lengi áfram. Hulda Elma ásamt börnunum fjórum. Þau eru, frá vinstri: Amelía Ýr, Styrmir Lár, Sonja Björg og Guðmundur Steinn. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Þrír ættliðir með gull. Myndin er tekin á Landsmóti UMFÍ 2001. Elma amma Guðmundsdóttir fékk gull fyrir golf en mæðgurnar Hulda Elma Eysteinsdóttir og Petrún Jónsdóttir voru í sigurliði UÍA í blaki. Elma eldri kom reyndar inn á í einum blakleikjanna þannig að þær léku allar saman. Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson Ferðalög Huldu Elmu í vetur 10 ferðir frá Akureyri á Neskaup- stað til að keppa í blaki. Akureyri Reykjavík Neskaupstaður 1 ferð frá Akureyri til Reykja- víkur til að keppa í blaki. 6 ferðir með flugi frá Akureyri til Reykja- víkur til að keppa í blaki. 1 ferð flaug frá Akureyri til Reykja- víkur, fór með liðinu austur og keyrði svo til Akureyrar. Ferðalög vegna keppni í blaki: 7.350 eknir km 7 flugferðir 17 helgar á ferðalagi börnin fjögur með í flestum ferðum 2 ferðir frá Akureyri til Reykjavíkur vegna fimleikamóts elstu dótturinnar. Ferðalög alls í vetur: 8.120 eknir km 6,1 hringferðir um landið eða: eða: jafn langt og til Japan G ru nn ko rt /L of tm yn di re hf . – FULLT HÚS ÆVINTÝRA REYKJAVÍK • Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • mánud.–föstud. 10–18 • laugard. 10–16 AKUREYRI • Tryggvabraut 1-3 • Sími 460 3630 • mánud.–föstud. 8–18 • laugard. 10–16 • ellingsen.is ENDURSTILLING Á BREMSUM OG GÍRUM FYLGIR FRÍTT ÖLLUM HJÓLUM SELDUM HJÁ ELLINGSEN MERIDA CROSSWAY HYBR DÖMU 13.332 KR. 79.990 KR. Léttgreiðslur í 6 mánuði. Léttgreiðslur í 6 mánuði. MERIDA MATTS REDWOOD 11.665 KR. 69.990 KR. MERIDA MATTS TFS-300 FJALLAHJÓL 24.998 KR. 149.990 KR. Léttgreiðslur í 6 mánuði. MERIDA KRÅKEOY 7 18.332 KR. 109.990 KR. Léttgreiðslur í 6 mánuði. MERIDA JULIET REDWOOD 11.665 KR. 69.990 KR. Léttgreiðslur í 6 mánuði. MERIDA DINO/BELLA 12 BARNAHJÓL 2–4 ÁRA 4.165 KR. 24.990 KR. Léttgreiðslur í 6 mánuði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.