Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2013, Qupperneq 53
14.4. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53
Líflegt verður á Sögulofti
Landnámssetursins í Borg-
arnesi um helgina. Sagna-
maðurinn og rithöfundurinn
Einar Kárason flytur „Skáldið
Sturlu“ á laugardag kl. 17 og á sunnu-
dag kl. 16 verður „Judy Garland ka-
barett“ með Láru Sveinsdóttur.
2
Áhugamenn um metn-
aðarfulla norræna kvik-
myndagerð ættu að skondra
í Norræna húsið en þar er
norræn kvikmyndahátíð. Aðgangur
er ókeypis og allar myndirnar sýndar
með enskum texta. Um helgina er
t.d. sýnd danska myndin Kapringen,
Sjóránið, með Pilou Asbæk.
4
Nú um helgina eru síðustu
forvöð að upplifa sýningar á
Sequences, listahátíðinni sem
kennd er við tímann. Því er
um að gera að drífa sig af stað, líta á
sýningu Gretars Reynissonar í
NÝLÓ og á nokkra staði til.
5
Nemendur úr Dalskóla,
Grandaskóla og Laugalækj-
arskóla, og nemendur við
Myndlistaskólann í Reykja-
vík, eiga verk á sýningum sem verða
opnaðar með tónlistarflutningi klukk-
an 15 á laugardag í Þjóðmenningar-
húsinu og Listasafni Íslands. Nemend-
urnir hafa unnið verk út frá lista-
verkinu Safni eftir Olgu Bergmann.
3
Í ár eru tvær aldir frá fæðingu
óperujöfranna Wagners og
Verdis. Á laugardag klukkan
13 gengst Richard Wagner fé-
lagið á Íslandi fyrir dagskrá í Norræna
húsinu um tónskáldin, í umsjón
Magnúsar Lyngdal Magnússonar.
MÆLT MEÐ
1
Mér finnst það mikilvægur þáttur þessað vera hluti þessa samfélags aðskilja ræturnar, að þekkja hvaðan
maður er kominn. Þá veit maður kannski líka
betur hvert maður vill stefna,“ segir Bára
Grímsdóttir, tónlistarmaður og tónskáld, þeg-
ar hún er spurð út í nýjan hljómdisk þeirra
Chris Fosters, eiginmanns hennar, en þau
mynda dúettinn Funa. Diskinn kalla þau Flúr
og inniheldur hann fallega íslenska þjóðlaga-
tónlist. Nokkur laganna eru eftir Báru en
meirihlutinn er þó kvæðalög, tvísöngslög og
sálmalög sem fundist hafa í gömlum heim-
ildum og heyrast hér í útsetningum Báru og
Chris. Textarnir eru bæði nýir og gamlir, allt
frá þjóðkvæðum og sálmum frá fyrri öldum til
kvæða eftir Grím Lárusson frá Grímstungu,
föður Báru.
.„Við höfum spilað saman frá árinu 2001 og
byggjum okkar tónlist aðallega á þjóðar-
arfinum, á lögum sem þekkjast lítið,“ segir
Bára. „Við förum aðrar leiðir en margir aðrir,
við notum mikið kvæðalög en ég er svo að
segja alin upp í kvæðamannafélaginu Iðunni.
Foreldrar mínir gengu í það þegar ég var lítil
og ég ólst upp í kveðskap hjá þeim og afa og
ömmu. Þetta er mér í blóð borið.“
Bára er nú varaformaður Iðunnar. Hún er
virtur flytjandi íslenskra þjóðlaga og nýtur
ekki síður virðingar sem tónskáld. Chris Fost-
er er snjall flytjandi enskrar þjóðlagatónlistar
og hefur farið í tónleikaferðir víða um lönd.
Undir hatti Funa hafa þau hjón keppst við að
blása lífi í íslenska þjóðlagatónlist sem hefur
leynst í gömlum upptökum og lítt þekktum
bókum, auk þess sem þau hafa samið ný lög í
þjóðlegum stíl.
Þegar Bára er spurð að því hvort þau hjón
telji mikilvægt að vinna með arfinn á nýjan
hátt, þá segir hún svo vera.
„Með því að koma þessum lögum í nýjan
búning erum við kannski að gefa þeim nýtt líf
og koma þeim upp á yfirborðið. Ég rek mig
oft á það að fólk þekkir ekki þessi lög, og í
raun og veru lítið af íslenska tónlistararfinum.
Fólk þekkir „Móðir mín í kví, kví“, „Augun
mín og augun þín“, „Krummi svaf í klettagjá“
og „Sofðu unga ástin mín“. Jón Ásgeirsson
hefur síðan gert frábæra hluti í útsetningum
þjóðlaga fyrir kór, en við erum hinsvegar að
reyna að fara ekki of langt frá rótinni. Við er-
um stundum að kenna á námskeiðum og
bendum þá nemendunum á að hlusta á þetta
gamla og þekkja frumútgáfurnar og vinna út
frá því upphaflega en ekki endurgerðum ann-
arra, því þá er fólk að fjarlægjast ræturnar.“
Á mánudagskvöld heldur Funi útgáfu-
tónleika í Gerðubergi, ásamt tónlistarmönnum
sem koma fram ásamt þeim á diskinum, og
hefjast tónleikarnir klukkan 20.
DÚETTINN FUNI GEFUR ÚT DISK MEÐ ÍSLENSKRI ÞJÓÐLAGATÓNLIST
Ekki langt frá rótunum
HJÓNIN BÁRA GRÍMSDÓTTIR OG
CHRIS FOSTER Í FUNA HAFA GEFIÐ
ÚT DISKINN FLÚR ÞAR SEM ÞAU
FLYTJA ÞJÓÐLAGATÓNLIST.
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is
Bára Grímsdóttir og Chris Foster með kant-
ele og langspil, hljóðfæri sem þau leika meðal
annars á í lögunum á nýja diskinum, Flúri.
Morgunblaðið/Golli
„Það er merkilegt hve mikið er enn til af þessum silfurgripum,“ segir Þór Magnússon. Hann skoðar hér fallega gripi íslenskra silfursmiða fyrri alda á
sýningunni Silfur Íslands í Bogasal Þjóðminjasafnsins. Kaleikinn fyrir miðju smíðaði Tómas Tómasson (1749-1805), afi Gríms Thomsens skálds.
Morgunblaðið/Einar Falur